Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Örn Haraldsson, þing-
maður Framsóknarflokksins og for-
maður umhverfisnefndar Alþingis,
er ekki sammála því mati Aðalheiðar
Jóhannsdóttur, lögfræðings og sér-
fræðings í umhverfisrétti, að rétt-
aróvissa sé uppi vegna ákvæða um
úrskurðarvald skipulagsstjóra í lög-
um um mat á umhverfisáhrifum.
Ólafur Örn tekur fram að honum
hafi ekki gefist tóm til að kynna sér
nema lauslega þau sjónarmið sem
Aðalheiður setur fram í viðtalinu en
segist telja að lögin séu ljós hvað
þetta varðar og að ætlun þingmanna
við lagasetninguna hafi líka verið
ljós.
Ólafur telur sjálfsagt að skoða
þessi álitamál vandlega og segir að
vilji menn breyta lögunum þá sé það
að sjálfsögðu mál sem menn þurfi
alltaf að vera vakandi yfir.
Fram kom í viðtali Morgunblaðs-
ins við Aðalheiði sl. laugardag að
hún teldi alvarlega galla á ákvæði
laga um mat á umhverfisáhrifum
sem fjallar um úrskurði Skipulags-
stofnunar. Telur hún að breyta þurfi
lögunum á þann veg að raunveruleg
ábyrgð á hvort fallist er á fram-
kvæmd eða lagst er gegn henni sé
ótvírætt hjá leyfisveitanda.
Ólafur Örn bendir á að á síðustu
árum hafi orðið miklar og merkileg-
ar breytingar á löggjöf um umhverf-
is- og skipulagsmál þar sem Alþingi
hafi samþykkt þrjá lagabálka, lög
um mat á umhverfisáhrifum, nátt-
úruverndarlögin og skipulags og
byggingarlög. ,,Þessi þrír lagabálkar
hafa allir komið til lagasetningar og
framkvæmda á síðustu fimm árum,
ásamt gríðarlega miklum breyting-
um sem orðið hafa á þekkingu
manna og viðhorfi til umhverfis- og
skipulagsmála. Þetta hafa verið um-
brotatímar og mjög áhugaverðir en
um leið hafa þeir reynt á stjórn-
sýsluna og sett mikið rót á stjórn-
málaviðhorfin. Það er því mjög eðli-
legt að lög af þessu tagi þurfi að vera
í stöðugri endurskoðun, sérstaklega
þegar stór og mikil hagsmunamál
koma upp,“ sagði Ólafur.
,,Ég þekki vel hugmyndir Aðal-
heiðar, sem ganga út á að hin end-
anlega ábyrgð á framkvæmdinni eigi
að hvíla á herðum leyfisveitanda,“
segir Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar-
græns framboðs og fulltrúi í um-
hverfisnefnd Alþingis. Kolbrún
minnir á að matsskyldar fram-
kvæmdir eru háðar leyfum frá ýms-
um aðilum.
Umhverfisnefnd kynnti sér
hugmyndir Aðalheiðar
,,Þegar við vorum að vinna að lög-
unum [um mat á umhverfisáhrifum],
sem voru samþykkt vorið 2000, þá
skoðuðum við þessar hugmyndir Að-
alheiðar, en hún sendi okkur umsögn
um lagafrumvarpið. Þá þótti hvorki
stjórn né stjórnarandstöðu fýsilegt
að fara út í þetta af tveimur ástæð-
um. Annars vegar vegna þess að
leyfisveitingarferlið hjá okkur er
ekki eins mótað og víða annarsstað-
ar og fellur þess vegna ekki alveg að
EES-tilskipuninni, sem lögin byggja
á. Hin ástæðan var sú að í Evrópu,
þar sem lög af þessu tagi hafa verið
við lýði miklu lengur en hér á landi,
lúta skipulagsáætlanir mati á um-
hverfisáhrifum. Það er mjög þýðing-
armikið vegna þess að þegar skipu-
lagsáætlun hefur farið í gegnum
matsferli er algerlega búið að leiða í
ljós þau umhverfisáhrif eða fara í
þær mótvægisaðgerðir sem nauð-
synlegar eru til þess að skipulag við-
komandi svæðis geti tekið við við-
komandi framkvæmd,“ segir hún.
,,Í þessum löndum er því í gangi
ferli, sem er miklu rótgrónara og öfl-
ugra en okkar og af því að við erum í
landi sem er að meira eða minna
óskipulagt og hefur ekki farið í
gegnum svona ferli áður, þá töldum
við þetta ekki ráðlegt. Um það vor-
um við sammála bæði stjórn og
stjórnarandstaða. Talið var að lands-
lag okkar og lagaumhverfi væri ekki
orðið það þroskað að það gæti borið
þessar hugmyndir Aðalheiðar.
Nú eigum við hins vegar von á að
fá upp á borð á næsta þingi frum-
varp til laga um mat á umhverfis-
áhrifum skipulagsáætlana. Það kem-
ur líka til með að byggja á
reglugerðarákvæðum frá Evrópu-
sambandinu. Þetta er því umhverfi
sem við sjáum í nánustu framtíð en
við erum ekki komin eins langt og
löndin í kringum okkur,“ segir hún.
Orðalag kann að orka tvímælis
Aðspurð um þá skoðun Aðalheiðar
að réttaróvissa sé vegna orðalags í
11. grein laganna um vægi úrskurð-
ar Skipulagsstofnunar bendir Kol-
brún á að Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra hafi lýst yfir að hún
líti svo á úrskurður Skipulagsstjóra
sé bindandi, og sömu ályktun megi
draga af dómum sem gengið hafa.
Hins vegar segist Kolbrún geta tek-
ið undir að orðalag laga um að leyf-
isveitandi skuli ,,taka tillit til“ úr-
skurðar um mat á
umhverfisáhrifum, kunni að orka
tvímælis. ,,Það má vel vera að það
þurfi eitthvað að hnykkja frekar á
því orðalagi,“ segir Kolbrún.
Formaður umhverfisnefndar um ummæli Aðalheiðar Jóhannsdóttur lögfræðings
Telur ekki réttar-
óvissu vegna laga
um umhverfismat
SEX manns voru fluttir á Landspít-
alann í Fossvogi eftir að rúta frá
Austurleið-SBS með 37 erlenda
ferðamenn innanborðs, auk bílstjóra
og leiðsögumanns, valt við gangna-
mannahúsið Hólaskjól við Syðri-
Ófæru, sunnan við Eldgjá á Fjalla-
baksleið nyrðri, rétt fyrir klukkan
18 á mánudag. Rútan var að fara frá
Hólaskjóli og var á afleggjaranum
þegar hún ók út af veginum vinstra
megin með þeim afleiðingum að hún
valt. Brotnuðu allar rúður vinstra
megin í rútunni auk beggja fram-
rúða.
Tvær konur voru fluttar með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á Land-
spítalann í Fossvogi og fjórir með
sjúkrabifreiðum. Í gær fengust þær
upplýsingar hjá vakthafandi lækni á
slysa- og bráðamóttöku að meiðsl
fólksins hafi reynst minni háttar. Þó
var ein kona lögð inn vegna bein-
brots og átti að útskrifa hana í gær.
Þá þurfti karlmaður að gangast und-
ir aðgerð en ekki var reiknað með að
hann þyrfti að leggjast inn.
Öðrum í rútunni, alls 33 manns af
sjö þjóðernum, var veitt áfallahjálp í
félagsheimilinu Kirkjuhvoli á
Kirkjubæjarklaustri en 26 gistu þar
um nóttina. Flestir ferðamannanna
voru frá Þýskalandi og Frakklandi.
Hópslysaaðgerð sett í gang
Hörður Davíðsson, formaður
Rauðakrossdeildar á Kirkjubæjar-
klaustri og björgunarsveitarmaður í
Kyndli, segir að almannavarnarkerfi
í samræmi við hópslysaaðgerð hafi
verið sett í gang. Lögregla í Vestur-
Skaftafellssýslu, læknar og sjúkra-
lið, björgunarsveitir og flugdeild
Landhelgisgæslunnar var kallað út.
Þá virkjuðu Almannavarnir ríkisins
samræmingarstjórnstöð sína þegar
tilkynning barst.
Björgunarsveitarmenn fengu
rautt útkall klukkan 18:16 með
SMS-skilaboðum en það þýðir taf-
arlaust.
Hörður segir að fólkinu hafi verið
veitt einstaklingsáfallahjálp fram
eftir nóttu en ástand fólksins hafi
verið furðanlega gott. Þó hafi verið
mikið um smápústra en fólk hafi
borið sig ágætlega.
Hann segir að notast sé við 112 til
að boða björgunarsveitir og segir
hann að ekki hafi náðst í nema brot
af þeim mannskap þar sem það er
GSM-sambandslaust í meirihluta
sveitanna.
„Meira en helmingur björgunar-
sveitarmanna fékk ekki SMS-skila-
boðin. Við erum gríðarlega óhress
með hversu lítið hefur gerst hjá
Landssímanum til að laga þau mál
þrátt fyrir þrýsting frá okkur. Þá
kvíðum við fyrir þegar Landssíminn
verður einkavæddur fyrst þetta er
ekki komið núna. Hvað þá? Þá voru
engin fjarskipti frá Hólaskjóli nema
með gömlu gufunni sem er vita
gagnslaust. Það virkuðu nokkrar
talstöðvar en sambandið var mjög
lélegt og mikið um truflanir.“
Áhersla lögð á
að fólk noti belti
Ómar Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Austurleiðar-SBS, segir að
verulegar skemmdir hafi orðið á rút-
unni en þó hafi verið hægt að aka
henni í burtu af slysstaðnum. Þó sé
það fyrir öllu að slys á fólki hafi ver-
ið minni háttar. Hann segir enn
fremur að öryggisbelti hafi verið í
rútunni en nokkrir farþeganna hafi
þó ekki notað þau.
„Við leggjum á það áherslu að fólk
noti beltin og ég hef haft fréttir af
því að bílstjórinn hafi brýnt fyrir
fólki að nota þau. Ennþá er ekki
skylda að nota belti en þau eru kom-
in í 24 rútur hjá okkur af 34.“
Mikill viðbúnaður vegna rútuslyss við Fjallabaksleið nyrðri á mánudag
Sex fluttir á slysadeild
og 33 veitt áfallahjálp
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Björgunarsveitarmenn, læknar og sjúkralið hlúa að slösuðum ferðamönnum.
Tveir ferðamenn voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til
Reykjavíkur en meiðsl þeirra reyndust minniháttar.
Yfir helmingur björgunarsveitarmanna fékk ekki tilkynningu um slysið
Fengu við-
urkenningu
fyrir þjón-
ustu við
flugvélar
FLUGÞJÓNUSTUNNI ehf. á
Reykjavíkurflugvelli barst um
mánaðamótin viðurkenningar-
skjal frá tímaritinu „Aviation
International News“ fyrir að
hafa staðið sig með miklum
ágætum í þjónustukönnun
meðal flugmanna. Sveinn
Björnsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, segir þetta vera
í þriðja sinn sem félagið fær
viðurkenningu frá tímaritinu,
sem sé eitt þeim stærstu sem
fjalli um flug og flugrekstur,
en Flugþjónustan hafi jafnan
fengið góða einkunn í þessum
könnunum.
Verðlaunin bera heitið „2001
Pilot’s Choice Award“ og segir
Sveinn að kosningin fari fram
árlega meðal flugmanna þar
sem þeir velja afgreiðslustöðv-
ar og gefa þeim einkunn.
„Okkur barst viðurkenningin,
innrammað skjal, í pósti og svo
kom bréf með til útskýringar,“
sagði hann.
Enginn með
falleinkunn
Í bréfinu kemur fram að ein-
ungis 14 staðbundnar flug-
þjónustur hafi komist í úrvals-
flokk í kosningunni þetta árið,
en könnunin náði til evrópskra
þjónustustöðva og segir að ár-
angur Flugþjónustunnar beri
gæðum þjónustunnar, sem
veitt sé öllum stundum, gott
vitni. Fyrirtækin geta lent í
fimm flokkum sem skipt er eft-
ir litum. Eins og áður sagði
komust 14 í rauða flokkinn
sem er úrvalsflokkur, 28 í
grænan, 65 í bláan og ellefu í
gulan. Á heimasíðu fyrirtæk-
isins kemur fram að ekkert
fyrirtæki hafi lent í þeirri
ógæfu að lenda í svörtum
flokki.
„Vinsamlegast veitið þessum
verðlaunum viðtöku og með-
takið hamingjuóskir okkar og
þakkir fyrir að veita flugfélög-
um bestu þjónustu, vinsemd og
aðstöðu sem völ er á,“ segir í
bréfinu og undir það ritar
Perry E. Bradley, útgefandi.