Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TILKYNNT var um fjölda kynferð-
isafbrotamála á Eldborg á Kaldár-
melum um nýliðna verslunarmanna-
helgi. Fulltrúar Stígamóta og
neyðarmóttöku voru á staðnum og
segir Eyrún Jónsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur á neyðarmóttöku, vegna
nauðgunar að þegar hafi verið til-
kynnt um ellefu tilfelli til neyðar-
móttöku og hafi þau öll átt sér stað á
Eldborg. Hún telur að ef til vill eigi
einhver fleiri eftir að koma, því
reynsla þeirra sé að fólk leiti til
neyðarmóttöku í nokkra daga á eft-
ir.
Aðspurð hvers vegna hún telji að
flest málanna hafa komið upp á Eld-
borg en ekki öðrum útihátíðum segir
hún að allt annað sé uppi á teningn-
um til dæmis á þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum. „Þar er margra ára
reynsla og hefð fyrir þessu, þar eru
björgunarsveitir og annað, sem
margar hverjar eru búnar að vera
með gæslu ár eftir ár. Í Eyjum er
spítali og fólk sem þar vinnur sinnir
þessum málum. Þessi þjónusta var
þarna þótt hún væri ekki auglýst
sem slík, hvorki neyðarmóttaka eða
Stígamót, þá var hún þarna til stað-
ar,“ segir Eyrún og bendir á að það
gildi einnig um Akureyri, þar sé
neyðarmóttaka og við önnur mót-
svæði séu heilsugæslur og sjúkra-
hús. Ef þessi mál hefðu komið upp
hefði verið hægt að leita þangað, en
því hafi bara ekki verið að heilsa á
Eldborgarhátíðinni. „Þá erum við
náttúrlega, má segja sem betur fer,
á staðnum og við algjört aðstöðu-
leysi. Við gátum þá allavega gripið
inn í þau mál sem eru komin upp
núna.“
Alvarlegt ef lífshættuleg efni
berast á útihátíðir
Að sögn Eyrúnar er um gróf mis-
neytingarmál að ræða, þar sem
stúlkur geti ekki borið hönd fyrir
höfuð sér vegna þess að þær séu
annað hvort ofurölvi eða þeim hafi
verið byrlað efni, það geti enginn
sagt til um það og við allar aðstæður
eins og þær gerist verstar á útihátíð-
um. Af þessum ellefu málum var um
tvær hópnauðganir að ræða.
Mikið hefur verið rætt um vímu-
efnið smjörsýru, en einn maður var
tekinn með nokkurt magn á sunnu-
dagskvöldið. Efnið getur virkað
svæfandi og segir Eyrún að ekki sé
búið að rannsaka þátt smjör-
sýrunnar í málunum, hvort einhverj-
um hafi jafnvel verið byrlað lyfið.
Hún bendir á að rannsakaðar verði
blóðprufur úr nokkrum málum, en
hvort sem smjörsýru sé neytt eða
ekki þá sé fólk jafn illa statt ef
ótæpileg áfengisneysla sé fyrir
hendi, nema munurinn sé sá að
smjörsýran geti drepið fólk í eigin-
legri merkingu. „Lyfið getur valdið
öndunarstoppi og það getur verið
lífshættulegt þegar fólk tekur það
og við megum þakka fyrir að það
kom þá ekki upp svo alvarlegt til-
felli. Við höfum auðvitað séð svona
hér á slysadeildinni en þetta er nýtt í
tengslum við útihátíðir. Sem betur
fer hefur þetta ekki verið sjáanlega í
umferð, en það getur vel verið að
þetta hafi verið notað. Það hlýtur
náttúrlega að vera hér eins og er-
lendis að það er allt notað sem hægt
er,“ segir Eyrún. Hún nefnir að ým-
is mjög alvarleg slík tilfelli hafi kom-
ið inn á slysadeildina og segir það
mjög alvarlegt mál ef að svona efni
berist inn á hátíðir, þar sem séu ung-
menni sem viti náttúrlega ekkert um
hvaða skelfilegu afleiðingar neysla
lyfsins geti haft.
„Það er rætt um það að fólki hafi
verið byrlað þetta, við getum nátt-
úrlega ekkert sagt um það fyrr en
við erum búin að fá út úr sýnum, en
efnið er mjög fljótt að hverfa úr lík-
amanum, þannig að það er mjög erf-
itt að fylgja því eftir. Það er ekkert
víst að við getum séð það eða vitað
það, ekkert frekar en við vitum
hversu margar nauðganir eða mis-
neytingarmál hafi komið þarna upp
um helgina vegna þess að það er al-
veg öruggt mál að það eru ekki
næstum því allar stúlkur eða dreng-
ir, sem munu nokkurn tímann segja
neitt til um það,“ segir Eyrún og
bendir á að það sé meðal annars
vegna þess að þau kenni sér um það
og þau séu hrædd við að segja frá
því af því að þá fái þau aldrei að fara
aftur á útihátíð. Það sé nú oft þannig
sem krakkar bregðist við, þeir meti
það þannig að það sé þá bara betra
að lifa með því.
Oft ekki vitað hvern
eigi að kæra
Eyrún segir að þegar sé búið að
kæra eitt mál en bendir á að það sé
enginn mælikvarði á alvarleika
þessara mála hvort þau séu kærð
eða ekki, því að í svona málum sé
stundum ekki hægt að vita hvern
eigi að kæra. Það sé enginn til frá-
sagnar um það hver hafi verið að
verki eða að það séu ekki borin
kennsl á viðkomandi í einhverjum
mjög stuttum kynnum. „Það er auð-
velt að hverfa inn í fjöldann í sjö,
átta þúsund manns og kannski í
niðamyrkri,“ segir Eyrún. En
starfsmenn neyðarmóttöku áttu, að
þeirra frumkvæði, fund með land-
lækni í gær, þar sem staða þessara
mála var rædd.
Að sögn Bjargar Gísladóttur,
starfsmanns Stígamóta, er mjög erf-
itt að segja til um það hvort nú hafi
verið meira af kynferðisafbrotamál-
um en almennt gerist á útihátíðum.
„Við vorum með skúr sem stóð á
stórum stöfum Stígamót, þannig að
krakkarnir vissu af okkur. Sam-
kvæmt reynslu okkar hér í Stíga-
mótum eru nauðgunarmál að skila
sér inn í marga mánuði eða jafnvel
mörg ár eftir útihátíðir. Þannig að
það er mjög erfitt að segja til um
það,“ segir hún og bendir á að óskað
hafi verið eftir að starfsmenn Stíga-
móta yrðu á Eldborg, en oft hafi þeir
einnig verið á þjóðhátíð og Halló Ak-
ureyri svo dæmi séu tekin. Hins veg-
ar sé nú neyðarmóttaka á Akureyri
Fíkniefna- og ofbeldismál komu upp á fjölsóttum útihátíðum
Ellefu mál í rannsókn
eftir Eldborgarhátíð
FJÖLMENNASTA útihátíð lands-
ins um verslunarmannahelgina,
Kántríhátíðin á Skagaströnd, sem
nú var haldin í níunda sinn, fór vel
fram að sögn lögreglu og mótshald-
ara. Talið er að um 12 þúsund
manns hafi sótt hátíðina sem eru
mun fleiri gestir en í fyrra sem þó
var metár á Kántríhátíð. Þess má
geta að íbúar í Skagafirði eru á
sjötta hundrað og íbúafjöldi því
nær tuttugfaldur um helgina.
Hátíðargestir tjölduðu hvarvetna
þar sem auðan grasflöt var að
finna, á öllum túnum, uppi við
gangstéttir og jafnvel á umferð-
areyjum. Talið er að níu þúsund
manns hafi sótt gospelmessu á
Kántríhátíðinni á sunnudag. Að
sögn viðstaddra var stemmningin
gríðarlega góð og veðrið lék við há-
tíðargesti. Á sunnudagskvöld var
kveiktur varðeldur og þúsundir há-
tíðargesta fylgdust með flug-
eldasýningu laust fyrir miðnætti
áður en haldið var á dansleik undir
stjórn kúreka norðursins, Hall-
björns Hjartarsonar. Lögreglan á
Skagaströnd segir að hátíðin hafi
verið róleg en fjölskyldufólk var að
mestu leyti á svæðinu.
Mikil stemmning í brekkusöng
Lögregla í Vestmannaeyjum seg-
ir þjóðhátíðina í ár sérstaka vegna
blíðviðris og hve vel skemmtanir
fóru fram en á níunda þúsund
manns sóttu hátíðina í ár. Þetta var
127. þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum.
Lögregla segir það reynslu und-
anfarinna ára að þegar veður væri
gott væru hátíðargestir í Herjólfs-
dalnum rólegri en ella. Nokkuð var
þó um átök og stympingar enda
fólk orðið þreytt og slæpt, og sumir
langdrukknir, þegar líða tók á
helgina, að sögn lögreglu.
Mikil stemmning var í hefð-
bundnum brekkusöng á þjóðhátíð-
inni í Vestmannaeyjum á sunnu-
dagskvöld sem Árni Johnsen
stjórnaði að venju.
Þjóðhátíðin í ár þykir hafa
heppnast sérlega vel enda var veð-
urblíða allan tímann og fegurð um-
gjarðar þjóðhátíðar naut sín til
fulls. Birgir Guðjónsson, formaður
þjóðhátíðarnefndar í Vest-
mannaeyjum, segist enda mjög
ánægður með hvernig til hafi tekist
og gestir hátíðarinnar hafi notið
veðurs og skemmtiatriða.
Birgir sagði að þjóðhátíðin í ár
hefði verið mjög góð og mannfjöld-
inn í meira lagi en hátíðin í fyrra
hefði þó verið einstaklega góð hvað
það varðar.
Eiturlyf og nauðganir skyggðu
á Eldborgarhátíðina
Eldborgarhátíðina á Kald-
ármelum sóttu á áttunda þúsund
gestir og segja skipuleggjendur há-
tíðarinnar ágætlega hafa tekist til
um framkvæmdina. „Okkur fannst
gaman að þessu tónleikahaldi og
þessir stærstu tónleikar Íslandssög-
unnar, þar sem eingöngu koma
fram íslenskar hljómsveitir, tókust
mjög vel,“ segir Einar Bárðarson,
talsmaður Eldborgarhátíðarinnar.
„Eiturlyf og nauðganir eru hins
vegar ekki eitthvað sem neinn
mótshaldari óskar eftir á svona há-
tíð og mér þykir það sorglegast.
Þetta skyggði á hátíðina en það er
mjög erfitt að eiga við svona mál.
Nauðganir og eiturlyfjaneysla eru
samfélagsleg vandamál sem verða
ekki afgreidd eða leyst á einni
útihátíð. Við buðum Stígamótakon-
um á svæðið til okkar þar sem fólk
sem taldi sig hafa verið beitt mis-
rétti gat leitað sér aðstoðar, enda
er mín skoðun sú að fólki hlýtur þó
að líða betur að vita af börnum sín-
um á skipulögðu hátíðarhaldi þar
sem gæsla fer fram heldur en ann-
ars staðar,“ segir Einar aðspurður
um atburði helgarinnar. Hann segir
12 til 13 milljónum hafa verið varið
til að gæta öryggis gesta og hann
telji að ekki hafi verið hægt að gera
betur en gert var.
Að sögn lögreglunnar í Stykk-
ishólmi var mikið rusl skilið eftir á
Eldborg en hátíðargestir kvörtuðu
nokkuð undan því að ruslatunnur
væru fáar og salernisaðstaða bæði
léleg og illa hirt. Lögregla tekur
undir þetta og segir einnig að tjöld
og annar útilegubúnaður hafi verið
skilinn eftir á víðavangi og fjölda-
margir unglingar hafi hringt til að
grennslast fyrir um óskilamuni, að-
allega glataðar töskur og farsíma.
Smærri hátíðir vel heppnaðar
Engin alvarleg mál komu upp á
Síldarævintýrinu á Siglufirði og
Neistaflugi í Neskaupstað að sögn
lögreglu. Töluvert var af fólki í
Neskaupstað, líklega milli 3.500 og
4.000 manns, eða ríflega tvöfaldur
íbúafjöldi bæjarins.
Á Úlfljótsvatni stóð Útilífs-
miðstöð skáta fyrir fjölskyldumóti.
Áhersla var lögð á friðsæla fjöl-
skyldustemmningu og þótti hátíðin
takast afar vel. Tæplega 400 gestir
sóttu hátíðina.
Aðsókn að Sæludögum í Vatna-
skógi hefur aldrei verið meiri en nú
um verslunarmannahelgina en há-
tíðin, sem er á vegum KFUM, var
nú haldin í 10. skipti. Talið er að
1.300–1.400 manns hafi verið sam-
ankomnir, nánast eingöngu fjöl-
skyldufólk.
Umferð til Reykjavíkur var jöfn á
Suður- og Vesturlandsvegi á mánu-
dag að sögn lögreglu en óvenju-
mikil umferð var til borgarinnar
síðdegis á sunnudag og fram yfir
miðnætti.
Fjölsótt-
asta hátíð-
in á Skaga-
strönd
Morgunblaðið/Jón Sig.
Gestir Kántríhátíðar á Skagaströnd hafa aldrei verið fleiri.
UM níu þúsund manns sóttu þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum og gekk hátíð-
in mjög vel fyrir sig, að sögn lög-
reglu, fólk hafði jafnvel orð á að þetta
hefði verið með allra rólegustu hátíð-
um sem haldnar hefðu verið hin síð-
ari ár. „Það komu mun færri mál til
okkar nú heldur en til dæmis í fyrra
og oft áður, það verður að segjast
eins og er. Líkamsárásir og líkams-
meiðingar voru mjög fáar og allar
minniháttar,“ segir Jóhannes Ólafs-
son, settur yfirlögregluþjónn í Vest-
mannaeyjum.
Eitt kynferðisafbrotamál var til-
kynnt strax á föstudag og var það
rannsakað. Að sögn Jóhannesar er
málið fremur óljóst en viðkomandi
stúlka hefur ekki viljað leggja fram
formlega kæru. Starfsfólk Stígamóta
var ekki með aðstöðu í Herjólfsdal en
Jóhannes bendir á að hátíðin hafi
verið haldin í 127. skipti og hafi æv-
inlega öll sú þjónusta og öryggisráð-
stafanir sem til séu verið til staðar,
þar á meðal til að sinna nauðgunar-
málum. „Þá eru nauðgunarteymi frá
sjúkrahúsinu með tilbúnar séráætl-
anir og síðan starfa í Herjólfsdal
læknar og fagfólk, menntaðir sál-
fræðingar og félagsfræðingar. Við
teljum okkur ekki vera síður í stakk
búin til að taka við svona málum,“
segir Jóhannes og nefnir sem dæmi
að björgunarfélagið hafi gefið út leið-
beiningarbækling til björgunar-
sveitamanna hvað gera skuli ef kyn-
ferðisafbrotamál komi upp. „Það
sem menn verða að skilja er að hér er
blanda af eldra og yngra fólki. Það er
mikið af eldra fólki á svæðinu og það
gefur náttúrlega augaleið að það
veitir örugglega mikið aðhald og þar
til viðbótar teljum við okkur vera
orðin mjög reynd í eftirliti og skipu-
lagningu á svona hátíðum.“
Tekinn með fimm e-töflur
Þrettán fíkniefnamál komu til
kasta lögreglu í heildina. Þá eru
meðtalin þau mál sem komu upp í
vikunni fyrir þjóðhátíð og eru það
töluvert færri mál en í fyrra. Jóhann-
es bendir á að lagt hafi verið hald á
mun minna af efni yfir sjálfa hátíðina
en fyrir ári og allt lítilsháttar. Mest
hafi verið tekið af einum manni á
sunnudagskvöld eða fimm e-töflur.
Lögregla varð ekki vör við smjör-
sýruna, sem var í umferð á annarri
hátíð, og segir Jóhannes að það sé
samdóma álit björgunarsveita,
lækna og þeirra sem sinntu neyðar-
þjónustu að hátíðin hafi verið mun
rólegri en oft áður og færri mál hafi
komið upp.
Þjóðhátíð fór stóráfallalaust fram
Góð reynsla í skipu-
lagningu og eftirliti
MIKILL erill var hjá lögreglu á Eld-
borgarhátíðinni á Kaldármelum um
helgina og kom fjöldi alvarlegra
mála til kasta hennar. Öflugt eftirlit
fíkniefnalögreglu var á hátíðinni og
hafði hún afskipti af um fimmtán
málum, flestum minniháttar og var
oftast um lítið magn að ræða. Að-
faranótt mánudags var maður tekinn
með nokkurt magn svokallaðrar
smjörsýru í fórum sínum. Að sögn
lögreglu er maðurinn ekki lengur í
haldi hennar en fíkniefnalögreglan
rannsakar málið.
Tilkynnt var um nokkur kynferð-
isafbrotamál og reiknar lögregla
með að að minnsta kosti tvö tilfell-
anna verði kærð. Ekki er vitað hvort
smjörsýran hafi átt þátt í einhverj-
um þessara nauðgunartilfella, en öll
eru þau í rannsókn.
Að mati lögreglu eru þessi nauðg-
unarmál það alvarlegasta sem hún
hafði afskipti af, en hún telur samt að
margt hafi mátt betur fara á hátíð-
inni. Aðstöðuleysi gesta hafi verið
mikið og skorti stórkostlega á að
hreinlætismál væru í lagi. Lögreglan
segir að á útihátíðum sé yfirleitt mis-
jafn sauður í mörgu fé.
Erill var hjá lögreglu
á Eldborgarhátíðinni