Morgunblaðið - 08.08.2001, Qupperneq 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 13
og nauðgunarteymi á þjóðhátíð.
Hún segist ekki vera frá því að ef
unglingarnir viti að Stígamót séu á
staðnum leiti þau sér aðstoðar fyrr
og telur það líklegt að þeim finnist
það auðveldara heldur en að fara
upp á spítala.
Smjörsýra hamlar öndun
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að smjörsýra hafi fyrst
byrjað að sjást hér á landi 1997 og
þá hafi fólk kallað efnið „fljótandi al-
sælu“ af því að þá fékkst það
sem tær og lyktarlaus vökvi.
Þetta vímuefni sé notað í til-
raunaneyslu og hafi komið inn í
þessa klúbbamenningu og sé
notað þar ásamt e-pillunni,
LSD, amfetamíni og ketamíni.
„Þessi smjörsýra er svolítið
undarleg vegna þess að menn
sjá eitthvað í þoku og verða
skrítnir, þeir fá einhverja vímu
út úr þessu og það er mjög
stutt milli venjulegra vímu-
skammta og yfir í að menn
sofni,“ segir Þórarinn. Hann
segir áhrifin hættulegust á
öndunina, því líkt og mörg önn-
ur efni sem rói mann þá hamli
þau öndun og ef þetta virki
með áfengi og öðrum róandi
lyfjum, þá geti skapast hætta.
Öndunin verði mjög grunn og
geti jafnvel stöðvast og leitt til
dauða.
„Það eru dæmi þess að
mönnum sé beinlínis byrluð
smjörsýra, þó hún hafi ekki
komið þannig inn á markað-
inn, heldur fyrst og fremst
komið í bland inn í þessa
klúbbamenningu,“ segir Þór-
arinn. Hins vegar telur hann að
þetta vímuefni muni aldrei festa
verulega rætur hér á landi, heldur
sé það eins og ketamín og LSD, sem
verði notað annað slagið. Engin efni
geti keppt við kókaín, áfengi og
hass, en þau efni noti menn daglega.
„Ég er þar með ekkert að draga úr
þessu vandamáli, smjörsýra er hluti
af þessari klúbbamenningu og menn
gera tilraunir með næstum allt í
þessum vímuefnum. Það er alveg
skelfilegt,“ segir Þórarinn.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Flugeldasýningin í Herjólfsdal var
með glæsilegasta móti.