Morgunblaðið - 08.08.2001, Side 41

Morgunblaðið - 08.08.2001, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001 41 AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R Fasteignasala óskar eftir starfskrafti í samningadeild Umsækjandi þarf að vera skipulagður, vinnu- samur og geta unnið undir álagi. Bókhalds- kunnátta, stúdentspróf, reynsla æskileg en ekki skilyrði. Um er að ræða framtíðarstarf á lífleg- um vinnustað þar sem áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð og ábyrga framkomu gagnvart viðskiptavinum. Áhugasamir sendi upplýsingar til auglýsinga- deildar Mbl. merktar: „Hóll - 2001“. Yfirleikmunavörður Þjóðleikhúsið auglýsir lausa til umsóknar stöðu yfirleikmunavarðar. Umsækjendur þurfa að hafa menntun sem tengist leikhúsi og/eða reynslu úr starfi í leikhúsi. Laun fara eftir kjara- samningi SFR við ríkissjóð. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu Þjóðleik- hússins Lindargötu 7, fyrir 20. ágúst nk. Grunnskólinn í Stykkishólmi Fjölbrautaskóli Vesturlands Stykkishólmi Hér er í boði staða sem vert er að athuga frekar! Í okkar góða hóp vantar hressan kennara. Meðal kennslugreina eru: danska, stærð- fræði og náttúrufræði. Í Stykkishólmi er gott að búa og við mun- um aðstoða með húsnæði. Allar frekari upplýsingar veita Gunnar Svan- laugsson skólastjóri og Eyþór Benediktsson aðstoðarskólastjóri í símum 438 1377, 438 1376 eða 438 1041. Menntaskólinn að Laugarvatni auglýsir eftir kennara í íslensku – 14 kennslustundir Menntaskólinn að Laugarvatni starfar eftir bekkjakerfi og við hann eru starfræktar þrjár námsbrautir: málabraut, náttúrufræðibraut og íþróttabraut. Umsóknarfrestur er til 13. ágúst. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir skóla- meistari í símum 486 1156 (skrifstofa) og 861 5110. Þá má senda fyrirspurnir í tölvupósti til hph@ismennt.is eða pallsku@ismennt.is. Laun og starfskjör eru samkvæmt nýjum kjara- samningi KÍ og fjármálaráðherrra fyrir hönd ríkissjóðs. Frekari upplýsingar um skólann má finna á slóðinni www.ml.is. Vegna mikilla anna framundan óskum við eftir að bæta í hóp okkar góða starfsfólks: ● Framreiðslumönnum. ● Þjónustufólki í veitingasal. ● Starfsfólki í fatavörslu. ● Starfsfólki í uppvask. ● Starfsfólki í dyravörslu (eldri en 25 ára). Krafist er: ● Reglusemi og stundvísi. ● Snyrtimennsku. ● Ath! Broadway er reyklaus vinnustaður. Upplýsingar gefur Jónína á staðnum virka daga frá kl. 10—16. Einnig er hægt að fylla út umsóknareyðublað á netinu á www.broadway.is . Broadway Ármúla 9, 108 Reykjavík. Sími 533 1100. Netfang broadway@broadway.is . Frá Smáraskóla þar sem "menntun og mannrækt" fara saman Smáraskóli er framsækinn skóli, sem byggir á gömlum gildum. Í daglegu starfi skólans er virðing, vöxtur, vizka og víðsýni höfð að leiðarljósi. Í skólastarfinu reynir á faglegt frumkvæði, hugmyndaauðgi, sveigjanleika og velvilja. Við skólann starfa metnaðarfullir og traustir starfsmenn sem vilja að börnin í skólanum nái framúrskarandi árangri á öllum sviðum mannlífsins. Lausar eru til umsóknar tvær kennarastöður sem hér segir: • Staða umsjónarkennara í 1. bekk • Staða skólasafnsfræðings Laun ákvarðast á grundvelli kjarasamnings KÍ og Launanefndar sveitarfélaga. Einnig er laus til umsóknar • • Staða matráðs Laun ákvarðast á grundvelli kjarasamnings Eflingar og Kópavogsbæjar. Nánari upplýsingar veita: Valgerður Snæland Jónsdóttir, skólastjóri 899 7999, Elín Heiðberg Lýðsdóttir, aðstoðarskólastjóri, 861 4645, Gréta F. Guttormsdóttir, deildarstjóri, 692 9185 og Kristín E. Einarsdóttir, deildarstjóri, 866 7105. Starfsmannastjóri KÓPAVOGSBÆR Mosfellsbær Leikskólinn Hlaðhamrar Lausar stöður: ● Staða deildarstjóra á deild 4 og 5 ára barna. ● Staða vegna sérkennslu og stuðnings við barn með einhverfu. ● Almennar stöður leikskólakennara. Leitað er eftir leikskólakennurum, þroskaþjálfa og öðrum áhugasömum einstaklingum. Í leikskólanum er lögð áhersla á gæði í samskiptum og skapandi starf í anda Reggió stefnunnar. Kjör leikskólakennara eru samkvæmt kjarasamningi FÍL og launanefndar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Kjör leið- beinenda eru samkvæmt kjarasamningi STAMOS og Sambands íslenskra sveit- arfélaga. Stöðurnar eru lausar strax eða eftir nán- ara samkomulagi. Upplýsingar um störfin veita undirritað- ar Lovísa Hallgrímsdóttir í vs. 566 6351 og í hs. 566 7282 og Sveinbjörg Davíðs- dóttir aðstoðarskólastjóri í síma 699 7498. Leikskólastjóri. Starfsfólk Veitingahúsið Nings óskar eftir að ráða starfs- fólk í eftirfarandi störf: 1. Vaktstjóri í sal á Suðurlandsbraut. Vinnutími frá kl. 11-22 og unnið er 15 daga í mánuði. Ekki yngri en tvítugt. 2. Starfsfólk við afgreiðslu í sal í aukavinnu. Unnið er aðra hverja helgi og 1-2 kvöld í viku. Vinnutími er frá kl. 17-22. Ekki yngra en tvítugt Hentar vel með skóla eða sem aukavinna. Svör sendist til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Nings“, fyrir 15. ágúst. Sölumaður Innflutningsverslun með kælivélar og skyldan búnað óskar eftir sölumanni. Kröfur: Tæknimenntun eða staðgóð þekking á kælikerfum skilyrði, einnig er góð ensku- og tölvukunnátta nauðsynleg. Umsóknum skal skila til auglýsingadeildar Mbl. merkt: „K — 2001" í síðasta lagi 10. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.