Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 50
MESSUR Á MORGUN
50 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11:00. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11:00. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr.
Jakob Ág. Hjálmarsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur.
Organisti Marteinn H. Friðiksson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarfið
hefst sunnudag kl. 11:00. Guðs-
þjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 10:15. Organisti
Kjartan Ólafsson. Sr. Baldur Rafn
Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnastarf kl. 11:00. Upphaf barna-
starfsins í umsjón Magneu Sverr-
isdóttur. Félagar úr Mótettukór
syngja. Organisti Hörður Áskelsson.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og sr.
Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11:00. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir og Guðrún Helga Harð-
ardóttir. Messa kl. 14:00. Organisti
Douglas A. Brotchie. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir.
LANDSPÍTALI Hringbraut: Guðsþjón-
usta kl. 10:30. Organisti Stefán
Helgi Kristinsson. Sr. Sigfinnur Þor-
leifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11:00. Upphaf barnastarfs.
Dagskrá og efni vetrarins kynnt,
sem og þeir starfsmenn sem munu
sjá um starfið í vetur. Prestur Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti Jón
Stefánsson. Kaffisopi eftir mess-
una. Vetrarstarfið er hafið – sjá
fréttablað og tilkynningar í blöðum.
LAUGARNESKIRKJA: Regnboga-
messa kl. 11:00 tileinkuð börnum
og barninu í okkur öllum. Kirkjutrúð-
ar heilsa í anddyri, kirkjan skreytt
öllum regnbogans litum og hver litur
segir sína sögu um Guð og mann.
Kór Laugarneskirkju syngur. Organ-
isti Gunnar Gunnarsson. Börnin
koma upp og syngja með kórnum
undir stjórn Jónu Hrannar Bolladótt-
ur, sem jafnframt er höfundur regn-
bogamessunnar. Sr. Bjarni Karlsson
þjónar einnig, ásamt Eygló Bjarna-
dóttir, meðhjálpara og hópi öflugra
sunnudagaskólakennara. Í messu-
lok fá börnin blöðrur og messukaffið
bíður okkar allra í safnaðarheim-
ilinu. Messa kl. 13:00 í dagvistar-
salnum Hátúni 12. Þorvaldur Hall-
dórsson syngur við undirleik
Gunnars Gunnarssonar. Margrét
Scheving, sálgæsluþjónn, Guðrún K.
Þórsdóttir, djákni og sr. Bjarni Karls-
son þjóna. Kvöldmessa kl. 20:30.
Djasskvartett Gunnars Gunnarsson-
ar leikur. Kór Laugarneskirkju syng-
ur. Teo van der Weele prestur og sál-
fræðingur talar. Prestshjónin Jóna
Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson
þjóna ásamt Eygló Bjarnadóttur
meðhjálpara. Eftir messuna mun
Teo van der Weele bjóða til fyrir-
bæna ásamt bænahópi kirkjunnar,
en messukaffi verður í boði í safn-
aðarheimili.
NESKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11:00. Líf í öllum regnbog-
ans litum. Kynning barnastarfsins.
Prestur sr. Halldór Reynisson. Org-
anisti Reynir Jónasson. Molasopi
eftir guðsþjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Regn-
bogamessa kl. 11:00. Stund fyrir
alla fjölskylduna. Bjóðum börnin sér-
staklega velkomin til skemmtilegrar
stundar. Starfsfólk barnastarfsins
leiðir stundina. Organisti Viera
Manasek. Sr. Sigurður Grétar Helga-
son. Verið öll hjartanlega velkomin.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjón-
usta kl. 14:00. Barnaleikritið Lóma.
Maul eftir messu.
ÍSLENSKA KIRKJAN ERLENDIS:
GAUTABORG: Fyrsta messa vetrar-
ins verður í norsku sjómannakirkj-
unni 9. sept. kl. 14:00. Prestur sr.
Skúli S. Ólafsson. Fermingarbörn
aðstoða. Við hljóðfærið Tuula Jó-
hannesson. Kirkjukaffi.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna- og
fjölskyldumessa klukkan 11:00. Ein-
söngur Hólmfríður Jóhannesdóttir,
messósópran. Gospeltónleikar
klukkan 14:00.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Kirkjukórinn leiðir safnaðar-
söng. Organisti Pavel Manasek. Sr.
Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir alt-
ari. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta við upphaf barna-
starfs kl. 11. Organisti Sigrún Þór-
steinsdóttir. Hressing í safnaðar-
heimilinu að lokinni guðsþjónustu.
Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Regnboga-
messa fyrir alla fjölskylduna kl.
11:00. Prestur sr. Magnús B.
Björnsson ásamt starfsliði sunnu-
dagaskólans. Upphaf vetrarstarfs í
sunnudagaskólanum. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Kór Digranes-
kirkju B hópur. Máltíð á vægu verði í
safnaðarheimili eftir messu í umsjá
Öldu Breiðfjörð.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Regn-
bogaguðsþjónusta kl. 11:00. Lilja
G. Hallgrímdóttir, djákni sér um þjón-
ustuna. Nýr umsjónarmaður barna-
og unglingastarfs kirkjunnar, Elín El-
ísabet Jóhannsdóttir kynntur. Hún
kynnir svo barnastarf vetrarins. Org-
anisti: Lenka Mátéová.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.
Barnastarfið hefst. Sameiginleg
guðsþjónusta í aðalsal kirkjunnar.
Prestar: Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
og sr. Bjarni Þór Bjarnason prédika
og þjóna fyrir altari. Organisti: Hörð-
ur Bragason. Krakkakór, Barna- og
unglingakór kirkjunnar syngja,
stjórnandi Oddný Þorsteinsdóttir.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Regnbogamessa kl.
11. Guðsþjónusta í regnbogans lit-
um fyrir börn og fullorðna sem mark-
ar upphaf barnastarfs kirkjunnar.
Sögur, brúður og leikir. Sr. Íris Krist-
jánsdóttir þjónar og spilar á gítar.
Leiðtogar í barnastarfi aðstoða við
guðsþjónustuna, kórfélagar kirkjunn-
ar leiða safnaðarsöng. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Kvöldvaka kl.
20:30. Poppmessur fyrri tíma í
Hjallakirkju endurvaktar. Hljómsveit
leikur og stjórnar léttum safnaðar-
söng. Allir hjartanlega velkomnir. Við
minnum á bæna-og kyrrðarstund á
þriðjudag kl. 18. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11:00. Kór Kópavogskirkju syng-
ur og leiðir safnaðarsöng undir
stjórn Julian Hewlett organista. Í
guðsþjónustunni verður frumfluttur
nýr sálmur eftir Bjarna Jónsson
endurskoðanda við lag eftir Julian
Hewlett organista. Sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
SELJAKIRKJA: Fyrsta barnaguðs-
þjónusta vetrarins kl. 11.00. Sögur,
fræðsla og mikill söngur. Allir fá bók
og límmiða þegar þeir mæta. Vel-
komin í barnastarfið. Guðsþjónusta
kl. 14:00. Sr. Ágúst Einarsson pré-
dikar. Organisti Gróa Hreinsdóttir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morg-
unguðsþjónusta kl. 11:00. Fræðsla
fyrir börn og fullorðna. „Líf og starf
Páls postula“ 1. hluti, Friðrik
Schram kennir. Samkoma kl. 20:00
Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Ragnar
Snær Karlsson predikar. Allir vel-
komnir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11:00, léttur hádeg-
isverður á eftir. Bænastund kl.
19:30. Samkoma kl. 20:00, Högni
Valsson predikar, lofgjörð og fyrir-
bænir. Allir hjartanlega velkomnir.
Minni á kynningarkvöld Alfa nám-
skeiðsins miðvikudagin 12. sept. kl.
19:00 og fjölskyldubænastundina,
matinn og fræðsluna á eftir fimmtu-
daginn 13. sept.
KLETTURINN: Almenn samkoma fyr-
ir alla fjölskylduna kl. 11. Mikil lof-
gjörð og tilbeiðsla. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl.
16:30, lofgjörðarhópur Fíladelfíu
leiðir söng. Ræðumaður Ásmundur
Magnússon. Vekjum athygli á breytt-
um samkomutíma. Allir hjartanlega
velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Bænasam-
koma kl. 19:30. Hjálpræðissam-
koma kl. 20. Kafteinn Trond Are
Schelander talar. Allir hjartanlega
velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík - Kristskirkja í Landakoti:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10:30:
Messa á ensku kl. 18:00. Alla virka
daga: Messa kl. 18:00.
Reykjavík - Maríukirkja við Rauf-
arsel: Sunnudaga: Messa kl. 11:00.
Laugardaga: Messa á ensku kl.
18:30. Virka daga: Messa kl.
18:30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa
kl. 17:00.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Laug-
ardaginn 8. september: Messa kl.
14:00. Barnafræðsla hefst. Sunnu-
daga: Messa kl. 10:30. Miðviku-
daga: Messa kl. 18:30. Laugardag-
inn 15. september. Messa kl. 18:30
á þýsku.
Karmelklaustur: Sunnudaga:
Messa kl. 08:30. Virka daga:
Messa kl. 8:00.
Keflavík - Barbörukapella: Skóla-
vegi 38: Sunnudaga: Messa kl.
14:00. Sunnudaginn 9. september:
Messa kl. 16:00 á pólsku. Fimmtu-
daga: skriftir kl.19:30. Bænastund
kl. 20:00.
Garður: Sunnudaginn 9. september:
Messa kl. 12:30.
Grindavík: Laugardaginn 8. septem-
ber: Messa kl. 18:00 í Kvennó.
Akranes: Messa sunnudaginn 16.
september kl. 18:00. Skriftir
kl.17:00.
Borgarnes: Messa sunnudaginn 16.
september kl. 15:00. Skriftir kl.
14:00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7:
Sunnudaga: Messa kl. 10:00.
Grundarfjörður: Laugardaginn 15.
september: Messa kl. 19:00, skrift-
ir kl.18:00.
Ólafsvík: Laugardaginn 15. septem-
ber: Messa kl. 16:00. Skriftir kl.
15:00.
Ísafjörður - Jóhannesarkapella:
Sunnudaga: Messa kl. 11:00.
Bolungarvík: Sunnudaga: Messa kl.
16:00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa
kl.19:00.
Flateyri: Laugardaginn 8. septem-
ber: messa á ensku kl. 16:00 og
messa á pólsku kl. 18:00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturs-
kirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugar-
daga: Messa kl. 18:00. Sunnudaga:
Messa kl. 11:00.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 16.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Kl. 11 Upphitun sunnudagaskóla
með fjölskylduguðsþjónustu. Við
höldum hátíð með Litamessu þar
sem táknfræði kirkjunnar verður
túlkuð með litum. Hressilegir og
góðir söngvar, starfsfólk sunnudaga-
skólans kynnt, sérstök fararbless-
un. Foreldrar eru hvattir til að mæta
með börnum sínum, þröngt mega
sáttir sitja. Kl. 14 guðsþjónusta
með væntanlegum fermingarbörn-
um og foreldrum þeirra. Fundur með
þeim í safnaðarheimilinu strax á eft-
ir. Prestarnir hlakka til að hefja nýj-
an vetur með fermingarbörnunum.
Guðsþjónustunni verður útvarpað á
Útvarpi Vestmannaeyja FM104. kl.
20 Fyrsti æskulýðsfundur Landa-
kirkju og KFUM&K í safnaðarheim-
ilinu. Unglingar í 8.-10. bekk eru
hjartanlega velkomnir. Kynntir verða
helstu áhersluþættir vetrarins, góð
upphitun að góðu vetrarstarfi.
LÁGAFELLSKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00.
Prestur sr. Kristín Þórunn Tómas-
dóttir, djákni Þórdís Ásgeirsdóttir og
Sylvía Magnúsdóttir guðfræðinemi
þjóna. Sóknarprestur.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Natalia
Chow. Félagar úr kór Hafnarfjarðar-
kirkju leiða söng. Prestur sr. Gunn-
þór Þ. Ingason.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Sr. Gunnar Krist-
jánsson prófastur setur sr. Braga J.
Ingibergsson inn í embætti sókn-
arprests Víðistaðasóknar. Kirkju-
kaffi verður í safnaðarheimili Víði-
staðakirkju að messu lokinni.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Fríkirkjan
í Hafnarfirði, barnasamkoma kl. 11.
Fyrsta samverustund vetrarins.
Kvöldvaka kl. 20. við upphaf ferm-
ingarstarfs. Foreldrar fermingar-
barna leiða helgihald ásamt prest-
um kirkjunar. Kór kirkjunar leiðir
söng undir stjórn Þóru Guðmunds-
dóttur organista og Arnar Arnarsson-
ar tónlistarmans. Faðir fermingar-
barns, Magnús Pálsson, flytur
hugleiðingu um gildi fermingarinnar.
Léttar veitingar í safnaðarheimili að
lokinni kvöldvöku.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Kirkjukórinn leiðir sönginn
undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar,
organista. Kenndur nýr sálmur í til-
efni símenntunarviku. Sr. Friðrik J.
Hjartar þjónar. Allir velkomnir. Prest-
arnir.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudaginn 9. september kl.
14:00. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn organistans, Frank Herlufsen.
Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Að guðs-
þjónustu lokinni fer fram skráning í
fermingarfræðsluna og fermingarat-
hafnir vorsins 2002. Skráningin fer
fram í þjónustuhúsi safnaðarins við
Kálfatjarnarkirkju og ætti að verða
lokið kl. 16:00. Fermingarbörnin og
foreldrar þeirra eru hvött til að taka
þátt í guðsþjónustunni. Allir vel-
komnir! Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Minnt er á inn-
ritun fermingarbarnanna þriðjudag-
inn 11. september kl. 15:00-18:00 í
Álftanesskóla.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árd. Prestur Ólafur Oddur
Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syng-
ur. Organisti Hákon Leifsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11.
Morguntíð sungin kl. 9 frá þriðjudegi
til föstudags. Kaffi og brauð að
henni lokinni. Tónleikar þriðjudag kl.
20:30. Foreldrasamvera kl. 11 á
miðvikudögum. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
14. Sóknarprestur.
STRANDAKIRKJA: Þakkargjörðar-
messa kl. 14. Rútuferð frá Grunn-
skólanum í Þorláksöfn kl. 13. Sókn-
arprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11.
Jögvan Purkhús, framkvæmdastjóri
Gídeon, prédikar. Tekin verða sam-
skot til styrktar stafi Gídeonfélag-
anna á Íslandi. Sóknarprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta fyrir allt prestakallið
sunnudag kl. 11 f.h. Barn verður
borið til skírnar. Léttir söngvar fyrir
alla fjölskylduna. Guðsþjónustan
markar upphaf vetrarstarfs kirkjunn-
ar. Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
Morgunblaðið/Ómar
Eyrarbakkakirkja
Guðspjall dagsins:
Miskunnsami
Samverjinn.
(Lúk. 10.)
FRÉTTIR
MEÐFYLGJANDI ályktun var
samþykkt á fundi Félags íslenskra
atvinnuflugmanna 5. sept. sl.:
„Félag íslenskra atvinnuflug-
manna lýsir yfir áhyggjum flug-
manna af því að upptökur af fjar-
skiptum, svo og upptökur úr
vinnuumhverfi flugumferðarstjóra,
séu á torg bornar í fjölmiðlum. Flug-
menn gera alvarlegar athugasemdir
við birtingu þeirra og beina því til
samgönguyfirvalda að skoða til
hvaða ráða þurfi að grípa til að koma
í veg fyrir að upptökur úr flugritum
og upptökubúnaði flugumferðar-
stjórnar verði söluvara fjölmiðla.
Í kjölfar hins hörmulega flugslyss
í Skerjafirði í ágúst á sl. ári hafa
birst fjölmargar blaðagreinar um
starfshætti Flugmálastjórnar og
Rannsóknarnefndar Flugslysa.
Flugmenn hafa skilning á viðleitni
aðstandenda hinna látnu til að fá alla
orsakaþætti slyssins krufna til
mergjar. Með birtingu í fjölmiðlum á
útskrift af fjarskiptum flugturnsins í
Reykjavík kveður hins vegar við nýj-
an tón. Tilgangur með upptökum
sem þessum er eingöngu til rann-
sóknar á flugslysum og -atvikum, en
ekki hugsað sem lestrarefni fyrir al-
menning til að velta fyrir sér mann-
legum viðbrögðum á ögurstundu.
Birting þessara upptaka hlýtur að
skoðast með tilliti til laga um rann-
sóknir á flugslysum og 11. kafla fjar-
skiptalaga sem fjallar um leynd og
vernd fjarskipta.“
Upptökur
af fjarskipt-
um verði
ekki birtar
SELVOGSGATA verður gengin á
morgun 9. september á vegum
Ferðafélags Íslands. Leiðin er 15–
17 km. löng og gangan tekur 5–7
klukkustundir.
Leiðin er forn og fyrrum fjölfarin
þjóðleið milli Hafnarfjarðar og Her-
dísarvíkur. Gengið er frá Lækjar-
botnum yfir Mygludali og Grinda-
skörð og komið niður hjá Hlíðarvatni
við Herdísarvík. Fararstjóri er
Trausti Pálsson.
Verð er 2200 en 1900 fyrir fé-
lagsmenn F.Í. Brottför frá BSÍ
(austan megin) kl 10.30 með viðkomu
í Mörkinni 6. og austan við kirkju-
garðinn í Hafnarfirði.
Selvogsgata
gengin
SAFNAST verður saman í Þingvalla-
kirkju klukkan 13.00 á sunnudag og
gengið þaðan um Þingvöllinn að Öx-
arárfossi í Stekkjargjá. Gangan endar
á fallegum útsýnisstað við Langastíg.
Gangan tekur um tvo tíma.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins er
ókeypis og öllum opin. Nánari upplýs-
ingar um dagskrá þjóðgarðsins í
haust má fá hjá landvörðum í þjón-
ustumiðstöð þjóðgarðsins.
Þingvallaganga
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing
frá skólastjóra Árbæjarskóla.
„Skólayfirvöld, kennarar og
nemendur Árbæjarskóla þakka
þeim nágranna okkar sem hafði
samband við lögregluna þegar
honum varð ljóst að verið var
að brjótast inn í skólann aðfara-
nótt s.l. fimmtudags.
Okkur finnst þessi nágranni
okkar hafa sýnt viðbrögð sem
eru til eftirbreytni og fyrir-
myndar.“
Þakkir
frá Árbæj-
arskóla
♦ ♦ ♦