Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isKvennalandsliðið mætir því ítalska/B1 Róbert laus mála hjá Bayer/B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r8. s e p t e m b e r ˜ 2 0 0 1 BÆNHÚS í anda 12. aldar verður vígt á bænum Efri-Brú í Grímsnesi klukkan 13 í dag. Sr. Anna Sigríð- ur Pálsdóttir, prestur í Grafarvogi, mun helga húsið, en á Efri-Brú, þar sem rekin er ferðaþjónusta, fer fram þing 37 norrænna kvenpresta um þessa helgi. Böðvar Guðmundsson, bóndi á Efri-Brú, segir að í kaþólsku hafi verið bænhús á staðnum og að síð- asta sumar hafi sér dottið í hug að reisa bænhús við bæinn eftir göml- um teikningum. Hann segir að í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín segi að á Efri-Brú hafi verið bænhús svo lengi sem menn muni og að þar hafi heimilisfólk fengið sakramenti. Bænhúsið hafi verið aflagt hálfri öld áður en þeir Árni og Páll rituðu bókina árið 1708. Hafist var handa við byggingu bænhússins í vor og var unnið fram á kvöld í gærkvöldi til að leggja lokahönd á húsið. Hann segir að teikningarnar sem húsið er byggt eftir hafi einnig verið notaðar í Brattahlíð á Grænlandi. „Ég hef alla tíð haft áhuga á sögu þjóð- arinnar og lífinu í landinu og hvernig fólk komst af, á hverju það lifði og hvernig húsakynni þess voru. Mér hefur alltaf fundist torf- bærinn skemmtilegur og falla vel að landslagi, það gerði það að verk- um að ég ákvað að prófa að byggja eitt stykki bænhús, eins og það hef- ur væntanlega litið út til forna. Það má náttúrlega kalla þetta dellu, en ég hef sagt við kunningja mína, sem hafa kannski það mark- mið að kaupa stóran og dýran jeppa, að þetta sé minn Patrol eða Pajero,“ segir Böðvar. Hann segir það mikla tilviljun að norrænir kvenprestar hafi valið að halda þing sitt á Efri-Brú. Hóp- urinn hafi pantað tímanlega og hann hafi stefnt að því að bænhúsið yrði tilbúið þegar þær kæmu. Böðvar segist ekki gera sér neinar hugmyndir um hvort bænhúsið muni nýtast í ferðaþjónustunni. „En þetta er fallegt og svolítið sérstakt og stendur hérna við heimreiðina,“ segir hann. Böðvar segir bænhúsið öllum opið til skírna og brúðkaupa, það eina sem ekki sé hægt að framkvæma þarna sé að taka fólk til altaris. Einnig segir hann að erfitt yrði að koma líkkistu inn í bænhúsið, en gólfflöt- urinn er sex fermetrar. Bekkir eru með hvorri hlið og tekur bænhúsið um 15 manns í sæti, að sögn Böðv- ars. Bænhús með 12. aldar sniði verður vígt á Efri-Brú í Grímsnesi í dag „Þetta er minn Patrol eða Pajero“ Morgunblaðið/Þorkell Iðnaðarmenn voru að leggja lokahönd á bænhúsið síðdegis í gær. Byrjað var á smíði hússins í vor. ALÞÝÐUSAMBÖND Vestfjarða og Austurlands standa sameiginlega að útgáfu bæklings á pólsku, sérstaks vegvísis á vinnumarkaði á Íslandi fyrir pólskt verkafólk. „Við vonum að þetta komi fólki að gagni og vísi á eitthvað meira í fram- tíðinni, á meiri þjónustu við þetta fólk sem kemur hingað að vinna fyrir okkur,“ sagði Helgi Ólafsson, starfs- maður á skrifstofu verkalýðsfélag- anna á Ísafirði og formaður Verka- lýðsfélags Hólmavíkur. Töluvert mikið er af pólsku verka- fólki bæði á Vestfjörðum og á Aust- urlandi. Að sögn Helga hleypur fjöldinn á hundruðum og hafa starfs- menn verkalýðsfélaga fundið fyrir því að þörf sé fyrir bækling af þessu tagi. Í bæklingnum, sem er alls 40 blað- síður, er að finna upplýsingar um réttindi verkafólks á pólsku. „Við höfum nú grun um að á öðrum stöð- um sé skyldunum meira haldið að þeim en réttindunum þannig að við einbeitum okkur að þeim,“ sagði Helgi. Í bæklingnum er m.a. að finna kafla um lífeyrissjóði, skatta, trún- aðarmenn, öryggismál, atvinnu- og dvalarleyfi, húsnæðismál, skóla og orlof. „Það er líka lögð áhersla á að vísa fólki á hvar það getur náð sér í frekari upplýsingar um þessa hluti,“ sagði Helgi. Aftast í bæklingnum er ennfremur nokkurra síðna íslensk-pólskur orða- og hugtakalisti þar sem farið er yfir ýmis orð sem tengjast efni bæklings- ins. „Farið er yfir algeng orð í frysti- húsavinnu, starfsmannaheiti, heiti á fisktegundum, töluorð, daga og svo framvegis,“ sagði Helgi. Bæklingur um réttindi verkafólks gefinn út á pólsku ÚTGJÖLD um það bil helmings framhaldsskóla landsins og fjöl- margra sjúkrastofnana voru um- fram fjárheimildir fjárlaga á sein- asta ári samkvæmt ríkisreikningi ársins 2000. Þá kemur fram í reikningnum að kostnaður vegna heimssýningarinnar í Hannover fór 198 millj. kr. fram úr fjárheim- ild fjárlaga á síðasta ári. Hæstu umframgjöld í fram- haldsskólum voru hjá Menntaskól- anum í Kópavogi eða 122 milljónir umfram fjárheimildir ársins og í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þar sem rekstrargjöldin voru 98 millj. kr. umfram heimildir fjár- laga 2000. Fram kemur í nýbirtum ríkis- reikningi fyrir árið 2000 að gjöld flestra skóla á framhaldsskólastigi hefðu lækkað á milli ára og rekja megi það til áhrifa af verkfalli framhaldsskólakennara. Rekstrar- gjöld margra framhaldsskóla voru engu að síður umfram fjárheim- ildir á síðasta ári. Gjöld Myndlista- og handíðaskólans fóru 56 millj. kr. umfram fjárheimild, Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra 38 millj. kr., Borgarholtsskóla 36 millj. kr., Fjölbrautaskólans í Ármúla 36 millj. kr., Listdansskólans 38 millj. kr., Fjölbrautaskóla Vesturlands 37 millj. kr., Flensborgarskóla 23 millj. kr., Verkmenntaskólans á Akureyri 28 millj. kr. og Mennta- skólans við Sund 21 millj. kr. um- fram fjárheimildir fjárlaga á síð- asta ári, skv. ríkisreikningi ársins. Gjöld Tækniskólans 102 millj. umfram fjárheimildir Heildargjöld Tækniskóla Íslands námu samtals 334 millj. kr. í fyrra, hækkuðu um 38 millj. kr. milli ára og fóru 102 millj. kr. fram úr fjár- heimildum síðasta árs. Á árinu 1999 fóru rekstrargjöld Tækniskólans 12 millj. kr. umfram fjárheimild fjárlaga. Ríkisendur- skoðun gerði á síðasta ári, við end- urskoðun ríkisreiknings 1999, at- hugasemdir við fjárhagsstöðu skólans. Taldi stofnunin stöðu á eigin fé hans óviðunandi og að gera yrði róttækar ráðstafanir til að laga fjárhagsstöðu skólans. Útgjöld ríkisins vegna sjúkra- húsaþjónustu námu 35,3 milljörð- um kr. í fyrra og hækkuðu þau milli ára um 1.157 milljónir kr. Fram kemur í ríkisreikningi að gjöld Landspítala – háskólasjúkra- húss (LSH) voru samtals 18,9 milljarðar kr. og fóru 371 milljón kr. fram úr fjárheimildum ársins. Gjöld Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri námu rúmum 2,2 millj- örðum, hækkuðu um 157 millj. kr. á milli ára og fóru 46 milljónir kr. fram úr fjárheimildum í fyrra. Út- gjöld St. Jósefsspítalans í Hafn- arfirði fóru tæpar 44 millj. kr. fram úr heimildum ársins, Heil- brigðisstofnunin á Suðurnesjum fór tæpar 60 millj. kr. fram úr fjár- heimildum og gjöld Heilbrigðis- stofnunarinnar á Akranesi voru 90 millj. kr. umfram heimild fjárlaga. Þá kemur fram í ríkisreikningi að gjöld Tryggingastofnunar rík- isins námu alls 663 milljónum kr. í fyrra, höfðu hækkað um 19 millj- ónir á milli ára og voru 70 millj. kr. umfram fjárheimild fjárlaga. Gjöld Landlæknisembættisins jukust einnig í fyrra eða um 31 millj. kr. milli ára, námu samtals 161 millj. kr. og fóru rúmlega 41 millj. kr. fram úr fjárheimild ársins. Útgjöld utanríkisráðuneytisins sem færð eru undir liðinn ,,gjöld vegna ýmissa verkefna“ í ríkisbók- haldi hækkuðu um 230 millj. kr. á síðasta ári frá árinu á undan. Í rík- isreikningi kemur fram að rekja megi hækkunina til kostnaðar við þátttöku Íslendinga í heimssýning- unni í Hannover. Skv. ríkisreikningi námu útgjöld vegna heimssýningarinnar í fyrra 342 millj. kr., sem er 198 millj. kr. umfram fjárheimild fjárlaga ársins 2000. Kostnaður vegna heimssýn- ingarinnar á árinu á undan nam hins vegar 74 milljónum kr. Við opnun sýningarinnar í Hannover í maí árið 2000 var áætlað að kostn- aður Íslendinga vegna hennar yrði 280–285 millj. kr. Heildarkostnað- ur vegna sýningarinnar hefur hins vegar orðið samtals um 417 millj. kr. á síðustu tveimur árum eða 132 millj. kr. umfram áætlaðan kostn- að. Kostnaður vegna heimssýningar 198 millj. umfram fjárlagaheimild í fyrra Margir skólar og sjúkrahús fóru fram úr fjárheimildum SJÖ mál eru enn til umfjöllunar hjá ríkissáttasemjara. Þar af eru tvö vegna kjarasamninga nokkuð stórra hópa, þ.e. sjúkraliða annars vegar og tónlistarkennara hins vegar, en hin málin varða mun smærri hópa, sam- kvæmt upplýsingum Þóris Einars- sonar, ríkissáttasemjara. Hann sagði að samningar við sjúkraliða og tónlistarkennara hefðu ekki mjakast svo neinu næmi lengi. Staðan væri erfið og um hálfgert þrátefli að ræða. Fundur var með tónlistarkennur- um og viðsemjendum þeirra á þriðjudaginn var og er næsti fundur boðaður 14. september næstkom- andi. Sjúkraliðar og viðsemjendur þeirra voru einnig á fundi nú í vik- unni og er næsti fundur í kjaradeilu þeirra boðaður á mánudaginn kem- ur, 10. september. Sjö mál hjá ríkissátta- semjara ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.