Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 58
DAGBÓK 58 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Bold og Kinsho Maru koma í dag., Brand Polaris fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Arnar og Tjaldur komu í gær. Langenes fór í gær. Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Haustlitaferð verður þriðjudaginn 25. sept- ember kl. 13. Ekið um Kjósarskarð til Þing- valla. Farið um Grafn- ing og Línuveg heim. Kaffihlaðborð í Nesbúð. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Ganga frá Hraunseli kl. 10, rúta frá miðbæ kl. 9.50. Félagsmiðstöðin er opin alla daga frá kl. 13–17. Innritun á myndlistarnámskeið hjá Rebekku. Greiða þarf á mánudag dagsferð 13. sept. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Opið hús verður í dag laugardag- inn 8. september kl. 13.30 í Ásgarði Glæsibæ þar sem félagsstarfið verður kynnt. Söngur, danssýning, leik- starfsemi o.fl. Sunnudagur: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dans- kennsla Sigvalda fellur niður. Þriðjudagur: Skák kl. 13, allir vel- komnir. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Haustfagnaður FEB og ferðakynning Heimsferða verða hald- in föstudaginn 14. sept- ember. Húsið opnað kl. 18.30, veislustjóri Sig- urður Guðmundsson, matur, Ekkókórinn syngur, leikarar úr Snúð og Snældu skemmta, ferðakynn- ingar, happdrætti, Hjördís Geirs og Guð- mundur Haukur sjá um dansinn. Haustlitaferð til Þingvalla 22. sept- ember, kvöldverður og dansleikur í Básnum. Leiðsögn Pálína Jóns- dóttir og Ólöf Þórarins- dóttir. Skráning hafin. Farið verður til Kan- aríeyja 20. nóvember á sérstökum vildar- kjörum. Upplýsingar og skráning á skrifstof- unni. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10– 16 s. 588-2111. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Vetrardag- skráin er hafin. Bók- band verður á mánudögum, þriðjudög- um og miðvikudögum. Útskurður og smíði verður á fimmtudögum og föstudögum. Leir- listar- og glerskurð- arnámskeið verða á fimmtudögum. Almenn handavinna byrjar um miðjan september og verður alla mánu- og miðvikudaga. Leikfimin verður á mánu- og mið- vikudögum kl. 11. Frjáls spilamennska verður á þriðjudögum. Hárgreiðslustofa er með síma 553-6046 og fótaaðgerðarstofan er með síma 588-2232. All- ar nánari upplýsingar og skráning á námskeið er í síma 553-6040. Allir velkomnir. Félagsstarf aldraðra Garðabæ, miðvikudag- inn 12. sept kl. 14. í Kirkjuhvoli verður kynning á félags- og tómstundastarfinu í haust. Opið verður í vinnustofum og leið- beinendur útskýra vetr- arstarfið. Skráð í vetr- arklúbba, námskeið, vinnustofur og leikfimi. Fulltrúi frá Strætó kynnir nýtt leiðakerfi. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað verð- ur á Listatúni í dag, laugardag, kl. 11. Mæt- um öll og reynum með okkur. Farið verður í Reykjarétt á Skeiðum laugardaginn 15. sept- ember. Farið verður frá Gjábakka kl. 9 og Gull- smára kl. 9.15. Boðið verður upp á kjötsúpu í ferðinni. Væntanlegir þátttakendur skrái sig sem fyrst á þáttökulista í Gjábakka, sími 554 3400 og í Gullsmára, sími 564 5260 Félag fráskilinna og einstæðra. Fundur í kvöld kl. 21 í Konna- koti, Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Gerðuberg, Sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug á vegum ÍTR á mánudögum og fimmtudögum kl. 19.30, umsjón Edda Bald- ursdóttir íþróttakenn- ari. Boccia á þriðjudög- um kl. 13 og föstu- dögum kl. 9.30, umsjón Óla Kristín Freysteins- dóttir. Kóræfingar hjá Gerðubergskór eru á mánudögum og föstu- dögum kl. 14, stjórn Kári Friðriksson. Þriðjudaginn 11. sept. byrjar glerskurður, um- sjón Helga Vilmund- ardóttir. Miðvikudaginn 3. okt. byrja gamlir leikir og dansar, um- sjón Helga Þórarins- dóttir, föstudaginn 5. október byrjar bók- band, umsjón Þröstur Jónsson. Allar veitingar í veitingabúð Gerðu- bergs. Upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Gullsmári Gullsmára 13. Miðvikudaginn 12. september kl. 14 verður kynning á vetr- arstarfseminni í Gull- smára. Félagsheimilið, Félag eldri borgara í Kópavogi, Hana-nú ásamt ýmsum áhuga- mannahópum munu kynna starfsemi sína. Skráning á námskeið verða á kynningunni. Leikfimin er á mánu- dögum og mið- vikudögum kl. 9.05, að- eins einn hópur í september. Allir vel- komnir. Norðurbrún 1. Leir- námskeið hefst fimmtu- daginn 5. október, frá kl. 10–15. Innritun stendur yfir, takmark- aður fjöldi. Upplýsingar í síma 568-6960. Vitatorg. Öll starfsemi í stöðinni er hafin og skráning í eftirfarandi námskeið stendur yfir, bókband, bútasaumur, glerbræðsla, gler- skurður, körfugerð, leirmótun og smíði. Vitatorgskórinn byrjar æfingar 5. september kl. 15.30, nýir félagar velkomnir. Vesturgata 7. Kóræfingar hefjast mánud. 17. sept. Tréút- skurður hefst miðviku- daginn 12. september. Almenn handavinna er byrjuð eftir sumarleyfi. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Fimmtudag- inn 13. september verð- ur farið frá kirkjunni kl. 10 að Moldnúpi und- ir Eyjafjöllum, kaffi- veitingar þar, ekið til Víkur í Mýrdal, komið við á Skógum. Far- arstjóri Pálmi Eyjólfs- son. Verið velkomin. Upplýsingar veitir Dag- björt í s. 510-1034 eða 561-0408. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra Kópavogi. Æfing- ar/haustkynningar verða í Digraneskirkju 11. og 13. september kl. 11.15. GA-fundir spilafíkla, eru kl. 18.15 á mánu- dögum í Seltjarnar- neskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁÁ, Síðu- múla 3–5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laug- ardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir alla mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12, Reykjavík. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Minningarkort Líknarsjóður Dóm- kirkjunnar, minning- arspjöld seld hjá kirkjuverði. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði, til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í síma 456-2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafn- arfirði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blóma- búðinni Burkna. Í dag er laugardagur 8. september, 251. dagur ársins 2001. Maríumessa hin s. Orð dagsins: Glatt hjarta veit- ir góða heilsubót, en dapurt geð skrælir beinin. (Orðskv. 17, 22.) K r o s s g á t a 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... SJALDAN hafa íslenskir knatt-spyrnuunnendur, og jafnvel hinir líka, beðið með eins mikilli eftirvænt- ingu eftir einum leik og leik íslenska karlalandsliðsins á móti Norður-Írum í Belfast. Ástæðan er vitanlega stór- kostleg frammistaða liðsins á Laug- ardalsvellinum gegn snillingunum frá Tékklandi um síðustu helgi. Að sjálf- sögðu hleypur mönnum kapp í kinn við slík úrslit og á slíkum stundum virðist allt hægt og enginn ósigrandi. Með því hugarfari var farið í tví- sýnan útileik á móti liði skipuðum at- vinnumönnum sem leika í hinum mjög svo sterku og erfiðu deildum í Englandi. Ég er þó ekki viss um að ís- lensku leikmennirnir hafi verið svona sigurvissir. Þeir þekktu alveg and- stæðinga sína og hvaða getu þeir búa yfir. En aðrir, íslenska þjóðin sem fylgdist svo spennt með, var komin á flug og þegar það gerist þá fær ekk- ert stoppað hana. Væntingarnar verða þá svo yfirmáta óraunhæfar og pressan svo mikil að jaðrar við ósann- girni í garð „strákanna okkar“. Sjáið bara hvaða kröfur við gerum ætíð til handboltalandsliðsins. Sættum okkur ekki við annað en að leika á hverju einasta heimsmeistaramóti og ólymp- íuleikum. Á slíku flugi skipta jarðbundnar staðreyndir eins og hversu fámenn þjóðin er okkur engu. Hversu miklu færri eru gjaldgengnir í íslenska landsliðið en nær öll önnur sem það etur kappi við. Auðvitað er alltaf sárt að tapa. Við megum samt ekki gleyma því í sárindunum hversu magnað það er að liðinu okkur takist yfir höfuð að standa uppi í hárinu og jafnvel ná að yfirbuga miklu fjölmennari þjóðir – þjóðir sem eru í hópi þeirra fremstu í heiminum. x x x Í ÖLLU svekkelsinu yfir leiknumvið Norður-Íra þá er ömurlegt að horfa upp á að fólk er svo gott sem bú- ið að gleyma afrekinu um síðustu helgi. Þegar litið verður til baka mun það hinsvegar standa upp úr sem eitt hið stórkostlegasta í sögu íslenskrar knattspyrnu. Það er gefið. Við meg- um ekki gleyma að gefa strákunum sem unnu það hressilegt klapp á bak- ið. Þeir eiga það svo sannarlega skilið og það núna, en ekki með einhverri viðhöfn eftir þrjátíu ár þegar þeir þurfa síður á því að halda. Og íþróttafréttamenn velta nú fyrir sér hvað farið hafi úrskeiðis? Eitt ein- falt svar er að íslensku strákarnir hafi einfaldlega ekki átt góðan dag. Annað að óeðlilega mikil pressa hafi verið á þeim. Munurinn á Tékkaleiknum og þeim í Belfast er nefnilega sá að pressan var á andstæðingunum í hin- um fyrri en Íslendingum seinni. Og því á íslenskt knattspyrnulandslið vart að venjast – allrasíst á útivelli, móti „alvöru“ landsliði skipuðu nafn- kunnum atvinnumönnum. Störf Atla Eðvaldssonar landsliðs- þjálfara verða sjálfsagt sett enn eina ferðina undir smásjána. Var rétt ákvörðun að nota óbreytt lið frá því á móti Tékkum? Lét hann strákana æfa of stíft á milli svo þéttskipaðra og þýðingarmikilla leikja? Beitti hann þá ekki nægilegum aga? Átti Guðni að vera með? Átti að skipta öðrum leik- mönnum inn á og það fyrr? Eða seinna? Léku þeir of mikinn sóknar- leik eða of lítinn? Þetta eru spurn- ingar sem Atli þarf vafalítið að svara. En enginn spurði þeirra eftir leikinn á móti Tékkum. Þá fannst öllum hóp- urinn á vellinum sá eini rétti og leik- stíllinn einnig. Þá saknaði enginn Guðna eða velti fyrir sér hvort of mik- ið eða lítið hafi verið æft fyrir leik. Þá var Atli málið. x x x ÞAÐ að strákarnir hafi náð að halainn 13 stigum í svo sterkum riðli má ekki léttvægt gera. Fjórða sætið í riðlinum er staðreynd og því er öllum fyrir bestu að njóta leiksins á móti Dönum. Pressan verður á þeim. ÞAÐ vekur óneitanlega undrun mína öll þessi um- ræða þrýstihópa um að lækka beri vexti tafarlaust – og að skella eigi allri skuld á Seðlabankann og kenna honum alfarið um að nokkur fyrirtæki séu að fara í gjald- þrot. Ég man ekki betur en þessir sömu menn sem nú eru hágrátandi yfir of háum vöxtum hafi í áraraðir verið að dásama góðærið í landinu og hvað það væri nú gott að hafa svona góða ríkisstjórn við stjórnvölinn. Vissulega hefur ríkis- stjórn síðustu ára séð fyrir góðæri í landinu þótt það hafi ekki náð til allra. En á ekki að nota áralangt góð- æri til þess meðal annars að baktryggja sig fjárhagslega og vera viðbúinn smá mót- læti ef illa árar. Þessir þrýstihópar sem hafa hvað hæst núna hafa greinilega haldið að góðærið væri endalaust og óþarfi væri að hafa einhverja fyr- irhyggju og sjá nú ástæða til að kenna öðrum um ófarir og óstjórn sína. Ég spyr því þessa þrýsti- hópa: Hvað varð um allt góðærið hjá ykkur? Hverjir bera ábyrgð á ástandinu í dag nema þið sjálfir. Lalli. Hvar er fólkið? GUÐRÚN hafði samband við Velvakanda og bað um aðstoð við að leita að fólki. Segir hún að í bruna á Njálsgötunni hafi fundist kassi með myndaalbúmum og fleira sem tilheyrði henni og hafi þetta fólk komið þessum munum til hennar. Hún var ekki heima þegar kassinn kom og langar henni að færa þessu fólki þakklæti sitt og biður það að hafa samband við sig í síma 554-1432. Góð þjónusta hjá Toyota VIÐ hjónin keyptum okkur notaðan bíl hjá Toyota um- boðinu og fylgdi bílnum 6 mánaða ábyrgð. Lentum við í því að bílinn bilaði og leit- uðum við til Toyota með við- gerð. Fengum við alveg frá- bæra þjónustu hjá þeim og reyndist Jón Vikar í deild notaðra bíla alveg frábær- lega. Viljum við koma á framfæri þakklæti okkar fyrir góða þjónustu. Haraldur og Úlla. Góð þjónusta MIG langaði til að láta vita af mjög góðri þjónustu í Bókabúð Jónasar. Þannig var að ég pantaði þar bækur á þriðjudagsmorguninn. Ég bý á Selfossi þannig að ég bað afgreiðslukonuna um að senda mér þær, ekkert mál, ég sendi þær strax var svar- ið sem ég fékk, frá þessari mjög svo almennilegu konu. Morguninn eftir var svo bankað hjá mér og fyrir ut- an var pósturinn með bæk- urnar. Tæpum sólarhring seinna! Þetta fannst mér al- veg frábær þjónusta! Og vil þakka kærlega fyrir. A.S. Dýrahald Svört læða týndist í Hafnarfirði ÁRSGÖMUL svört og svo- lítið loðin læða, ómerkt, týndist frá Háholti 14 í Hafnarfirði þar sem hún var í heimsókn. Þeir sem hafa orðið hennar varir í hverfinu vinsamlega hafi samband í síma 849-1810. Tapað/fundið Úlpa í óskilum BLÁ Regatta-útivistarúlpa karlmannsstærð hefur verið í óskilum á göngudeild krabbameinslækninga, Landspítalanum við Hring- braut síðan í vor. Uppl. í síma 560-1201. Svart seðlaveski týndist SVART seðlaveski tapaðist sl. mánudag á leiðinni frá hraðbanka í Hamraborg að Kjarrhólma í Kópavogi. Veskið er merkt Haraldi Marteinssyni. Skilvís finn- andi hafi samband í s: 564- 0375 gsm: 691-2475 Afturhleri týndist AFTURHLERI af fólks- bílakerru frá Víkurvögnum (galvaniseraður) stærð: 113x40 cm. tapaðist á leið- inni Reykjavík(miðbær)- Stykkishólmur að kvöldi 21. ágúst sl. Finnandi vinsam- legast látið vita í síma 438- 1236 eða 438-1191. Hvítur plastpoki týndist 17. júlí tapaðist hvítur plast- poki merktur Vinnufata- búðinni, líklega á Laugaveg- inum. Í pokanum var grár stakkur og bolur. Skilvís finnandi hafi sambandi í síma 462-1221 eða 862-3848. Svartur leðurjakki týndist SVARTUR leðurjakki (karlmanns) týndist í miðbæ Reykjavíkur sl. laugardag. Í jakkanum var gsm-sími og lyklar. Skilvís finnandi hafi samband í síma 588-1983. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Hvað varð um góðærið? LÁRÉTT: 1 akfeita, 8 nær í, 9 krús, 10 fugls, 11 mæta, 13 rödd, 15 fáks, 18 krossa yfir, 21 snák, 22 matar- skeið, 23 kjáni, 24 spar- semi. LÓÐRÉTT: 2 laumuspil, 3 manna, 4 bál, 5 munnum, 6 mynn- um, 7 at, 12 smábýli, 14 æsti, 15 ræma, 16 óhreint vatn, 17 afkomandi, 18 svívirða, 19 láns, 20 pen- inga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 rölta, 4 holds, 7 tetur, 8 ólmur, 9 sef, 11 nánd, 13 orri, 14 ýlfur, 15 fals, 17 Frón, 20 ari, 22 taðan, 23 lít- ur, 24 kerla, 25 tíran. Lóðrétt: 1 rætin, 2 látún, 3 aurs, 4 hróf, 5 lemur, 6 sorti, 10 elfur, 12 dýs, 13 orf, 15 fátæk, 16 lúður, 18 rætur, 19 nýrun, 20 anga, 21 illt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.