Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 24
ERLENT 24 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKUR hermaður kastar sér gegnum logandi hringi og brýtur með höfðinu viðarplanka. Afrekið vann hann í gær á minningarhátíð í Tongduchon, um 80 km frá Seúl í Suður-Kóreu, en þá var minnst harðra bardaga í Kóreustríðinu fyrir réttum 50 árum. Um 200 bandarískir uppgjafahermenn tóku þátt í samkomunni. Reuters Minningarhátíð í Suður-Kóreu NORSKI Verkamannaflokkurinn mælist í nýjustu skoðanakönnun- unum fyrir þingkosningarnar á mánudaginn með 21-25% fylgi, en gangi þessar spár eftir yrði það í fyrsta sinn frá því árið 1924 sem kjörfylgi flokksins færi niður fyrir 30%. Í síðustu kosningum fékk flokkurinn 35% atkvæða og urðu þau úrslit þáverandi forsætisráðherra og formanni Verkamannaflokksins, Thorbjørn Jagland, tilefni til að af- sala sér völdum þar sem úrslitin þýddu fylgistap frá kosningunum þar á undan. Að mati norska stjórnmálafræð- ingsins Bernt Aardal, sérfræðings í kosningarannsóknum, mun Jens Stoltenberg forsætisráðherra gefa frá sér tilkall til að halda áfram um stjórnartaumana fái flokkurinn ekki að minnsta kosti 25% atkvæðanna, þegar talið hefur verið upp úr kjör- kössunum. Við þessar svörtu spár um fylgið við Verkamannaflokkinn á landsvísu bættust í gær niðurstöður skoðana- könnunar í Ósló, sem sýndu að fylgið við flokkinn í höfuðborginni væri komið svo langt niður, að bæði Hægriflokkurinn og Sósíalíski vinstriflokkurinn voru komnir upp fyrir hann. Slíkt hefur aldrei áður gerzt frá því farið var að kanna fylgi norskra stjórnmálaflokka – það hef- ur komið fyrir áður að Verkamanna- flokkurinn tapi stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í Ósló í hendur Hægriflokksins, en að jaðarflokkur á vinstri vængnum fari fram úr honum líka þykir tíðindum sæta. Í leiðara Aftenposten eru þessar niðurstöður sagðar votta það, að kosningabarátta Stoltenbergs for- sætisráðherra – sem miklar vonir voru bundnar við er hann tók við embætti eftir fall minnihlutastjórnar miðflokkanna snemma árs í fyrra – hafi verið misheppnuð. Nú verði hann að binda vonir við að þessar töl- ur verði til þess að fyrri kjósendur Verkamannaflokksins „sjái að sér“ og forði sínum gamla flokki frá allt of niðurlægjandi kosningaósigri. Verkamanna- flokknum spáð hruni Kosningarnar í Noregi ANDRES Pastrana, forseti Kólumbíu, full- yrti á fimmtudag að herferðin gegn eitur- lyfjum hefði mistekist að mestu leyti. Pastr- ana tók þannig undir með þeim fjölmörgu sem telja að nýrra að- ferða sé þörf á alheims- vísu til að eiga við eit- urlyfjavandann. Kólumbía er eitt helsta framleiðsluríki fíknilyfja í heiminum, en Pastrana hefur ver- ið náinn bandamaður Bandaríkjastjórnar í stríðinu gegn útbreiðslu þessarar helstu útflutningsafurðar þjóðar sinnar. „Útlitið er ekki bjart. Svo virðist sem eiturlyfjasala sé stærsti eða næststærsti iðnaður í heimi,“ sagði Pastrana á fréttamannafundi. Hann kvað eiturlyfjaiðnaðinn í heim- inum velta um 500 milljörðum Bandaríkjadala á ári og sagði fíkni- efnabarónana sífellt finna nýja markaði og leiðir til að koma fram- leiðslunni á framfæri. Almenningur helsta fórnarlambið Þeirri skoðun vex nú fylgi að við- teknar aðferðir til að berjast gegn eiturlyfjasölu geri meiri skaða en gagn. Margir áhrifamenn í Kólumbíu hafa gagn- rýnt stefnu stjórnvalda í þessum efnum og knú- ið á um lögleiðingu fíkniefna, er væri að þeirra mati skásta lausnin á vandanum. Margt bendir til að almenningur í Kólumb- íu sé helsta fórnarlamb stríðsins gegn eiturlyfj- um, en ekki fíkniefna- barónarnir sjálfir. Æ fleiri taka undir þá skoðun að það sé ein- mitt bannið sem geri barónana öfl- uga, því í skjóli þess geti þeir safnað gríðarlegum auðæfum og áhrifum. Bent er á að bannið ali beinlínis á spillingu og ofbeldi, en á undanförn- um tveimur áratugum hafa hundruð stjórnmálamanna, dómara, lögreglu- manna og hermanna týnt lífi fyrir að bjóða eiturlyfjabarónunum birginn. Þá hefur gagnrýni farið vaxandi á afskipti Bandaríkjastjórnar af fíkni- efnaframleiðslunni í Kólumbíu. Þús- undir hektara af kókaplöntu- og val- múaökrum eru eyðilagðir árlega með úðun eiturefna úr lofti, fyrir fjármagn frá Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að Bandaríkjastjórn segi úð- unina hættulausa fyrir umhverfið fullyrða ýmsir að úðunarflugvélarn- ar varpi einnig eiturefnum á venju- lega akra og gróðurlendi og ræni þannig fátæka bændur lífsbjörginni. Eiturlyfjabannið viðheldur borgarastríðinu Þá er ljóst að eiturlyfjabannið hef- ur átt þátt í að viðhalda borgara- stríðinu í Kólumbíu, því skæruliða- hreyfingarnar fjármagna starfsemi sína að mestu leyti með eiturlyfja- smygli og með því að gæta eiturlyfja- akra og smyglleiða. „Frá níunda áratugnum hefur hagur skæruliðanna vænkast veru- lega vegna tekna af eiturlyfjasmygli. Bannið er orðið helsta stoð smygls- ins,“ hefur The Financial Times eftir Viviane Morales, sem á sæti á kól- umbíska þinginu og hefur lagt fram frumvarp um lögleiðingu fíkniefna. Gustavo Socha, forstöðumaður kólumbísku fíkniefnalögreglunnar, hefur sagt í fjölmiðlum að lögleiðing eiturlyfja myndi „vera svik við fórnir þeirra hundraða sem týnt hafa lífi í baráttunni við eiturlyfjabarónana“. En Morales er ekki á sama máli. „Við getum ekki haldið áfram að nota tölu þeirra sem féllu í fortíðinni til að réttlæta mannfall framtíðar- innar. Við verðum að binda enda á þetta stríð, og það án tafar“. Kólumbíumenn leita nýrra leiða í fíkniefnamálum Pastrana segir her- ferðina hafa mistekist Bogota. AP. Andres Pastrana STJÓRNVÖLD í Zimbabwe hétu því í gær að veita „fullar og sanngjarnar“ bætur til hvítra bænda samkvæmt nýrri umbóta- áætlun, og verður það fólk, sem sest hefur að á bújörðum með ólöglegum hætti, flutt burt af jörðunum, að því er utanríkis- ráðherra landsins, Stan Mud- enge, greindi frá. „Þeir sem eru á landi sem stjórnvöld hyggjast ekki taka eignarnámi munu flytjast til þeirra bújarða sem stjórnin hef- ur nú þegar eignast með lögleg- um hætti,“ sagði Mudenge. Á fundi í Abuja í Nígeríu á fimmtudag samþykkti Zimb- abwestjórn að láta af ólöglegri setu á bújörðum, gegn því að Bretar, sem áður voru nýlendu- herrar landsins, reiddu fram „umtalsverða fjárupphæð“ til að standa straum af kostnaði við umbætur á bújörðum. Sagður marka þáttaskil Embættismenn á fundinum voru í sjöunda himni yfir sam- komulaginu, sem forseti Níger- íu, Olusegun Obasanjo, hafði milligöngu um. Sögðu þeir samninginn „marka alger þátta- skil“ eftir að upplausn og óeirðir hafa staðið í landinu í hálft ann- að ár. Herskáir stjórnarliðar hafa síðan í mars í fyrra sest að á rúmlega 1.700 bújörðum sem voru í eigu hvítra bænda, í kjöl- far baráttu stjórnarinnar fyrir því að taka eignarnámi 4.600 bú- jarðir í eigu hvítra og láta í hendur svörtum. Að minnsta kosti níu hvítir bændur og fjöldi stuðningsmanna stjórnarand- stöðunnar hafa látið lífið síðan í júní. En Mudenge neitar því að ríkisstjórnin beri ábyrgð á óeirð- unum. Samkvæmt samkomulaginu fallast Bretar og fleiri þjóðir á að greiða fyrir bæturnar sem hvítum bændum verða veittar. Þróunarhjálp Sameinuðu þjóð- anna mun starfa með stjórninni í Zimbabwe við að koma á „raun- hæfum og sjálfbærum umbót- um“. Þá er ennfremur kveðið á um víðtækari stjórnmálaumbætur í Zimbabwe, m.a. um tryggingu á tjáningarfrelsi og „aðgerðir gegn ofbeldi og ógnunum“. Chinotimba segir hvíta valda öllum vandræðunum En í Zimbabwe efast margir um að stjórnin ætli í raun og veru að ganga í það að flytja landtökumennina, sem margir eru fyrrverandi hermenn og jarðnæðislausir bændur, brott af bújörðum hvítra. Leiðtogi fyrrverandi her- manna, Joseph Chinotimba, sem farið hefur fyrir ofbeldisaðgerð- um og innrásum á jarðir hvítra, sagði í gær að stuðningsmenn sínir myndu ekki verða á brott af jörðunum þrátt fyrir sam- komulagið. Chinotimba var spurður hvort hann ætlaði að hefjast handa við að flytja fólkið á brott. Hann neitaði því, og hélt áfram: „Hvítu bændurnir eru þeir sem valda öllum vandræðunum. Okk- ar fólk hefur fengið land með löglegum hætti. Ég veit ekkert um neitt samkomulag í Abuja. Ég hlusta ekki á fréttir í útvarp- inu. Ég er að bíða eftir að utan- ríkisráðherra minn komi aftur og segi mér frá,“ sagði Chinot- imba. Samið á fundi Samveldisríkja um bújarðir í Zimbabwe Jarðtökumenn segjast hvergi vera á förum Abuja. AP, AFP. RÁÐHERRAR efnahagsmála og fjármála í Danmörku hóta nú að stjórnarsamstarfinu verði slitið og boðað til kosninga ef ekki náist við- unandi málamiðlun um fjárlög. Stjórn jafnaðarmannsins Pouls Ny- rups Rasmussens forsætisráðherra er í minnihluta á þingi. Efnahagsmálaráðherrann er Marianne Jelved úr miðjuflokki Radikale Venstre. Hún segir að hægrimenn, þ.e. Íhaldsflokkurinn og Venstre, verði að slaka á kröfum sínum en sama eigi við um Eining- arflokkinn, sem er vinstra megin við jafnaðarmenn. Ekki er að sögn Berlingske Tid- ende mikið deilt um það hvernig fénu skuli varið heldur tekjuöfl- unina. Hægrimenn vilja að útgjöld til þróunaraðstoðar verði minnkuð og féð notað m.a. til að efla heil- brigðiskerfið en Einingarflokkurinn er einkum á móti því að aflað verði fjár með auknum umhverfisvernd- arálögum, „grænum sköttum“. Seg- ir hann þau munu lenda þyngst á láglaunafólki. Pia Gjellerup fjármálaráðherra, sem er jafnaðarmaður, tók í hörðum umræðum á þingi undir með Jelved og sagði ríkisstjórnina ekki mundu sætta sig við að fjármögnun ríkis- útgjalda yrði leyst með þeim hætti að hún gæti kynt undir þenslu. Tek- ið hefði mörg ár að treysta efnahag Danmerkur í sessi. „Ef það fjarar undan stöðugleika í efnahagslífinu verður það hvorki með vilja né þátt- töku ríkisstjórnarinnar,“ sagði Gjellerup, sem var í forsvari fyrir stjórnina í umræðunum í gær. Jelved hótar slitum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.