Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra er undr- andi á málflutningi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra í sambandi við fé- lagslegar íbúðir í Reykjavík. Hún segir m.a. að ástandið hvað þær varðar sé algerlega óvið- unandi og gera verði þá kröfu til ríkisvaldsins að það efni fyrirheit um úrbætur í þessum efn- um í formi stofnstyrkja vegna byggingar fé- lagslegra leiguíbúða og hækkunar húsaleigu- bóta. Félagsmálaráðherra segir að málflutningur borgarstjóra sé ekki rökstuddur. Það sé tví- mælalaus skylda sveitarfélaganna að sjá þeim fyrir húsnæði sem ekki geti það með öðrum hætti, þ.e. vegna fátæktar, fötlunar eða ann- arra þvílíkra þátta. Ríkið standi ekki í og eigi ekki að standa í því að reka leiguhúsnæði. Það sé hlutverk sveitarfélaga. Hins vegar vilji rík- ið auðvelda sveitarfélögum að koma upp leigu- íbúðum og að breyta innlausnaríbúðum í leiguíbúðir og ýmislegt hafi verið gert í því efni. Reykjavíkurborg hafi alltaf fengið já- kvæð svör frá Íbúðalánasjóði, lánsloforð sam- kvæmt framlögðum umsóknum, en um hafi verið að ræða 100 íbúðir á ári. Að sögn Páls Péturssonar hefur verið ákveðið að breyta ekki lánum á innlausnar- íbúðum til sveitarfélaga. Það þýði að innleysi sveitarfélag félagslega eignaríbúð, sem sveit- arfélög séu í mörgum tilfellum skyldug til að gera, geti það yfirtekið lánið, hvort sem það sé á 1% eða 2,4% vöxtum, og greitt af því á sömu kjörum út lánstímann en fengið auk þess við- bót á hærri vöxtum þannig að lánstíminn verði 50 ár. Í öðru lagi segir hann að ákveðið hafi verið að breyta ekki vöxtum á þegar teknum lánum. Í skuldabréfunum standi að þau séu með breytilegum vöxtum og hægt sé að taka ákvörðun um að hækka vextina eins og fyrir- rennarinn í ráðherrastól, Jóhanna Sigurðar- dóttir, hafi gert á sumum lánaflokkum. Í þriðja lagi hefur verið ákveðið að halda áfram að niðurgreiða vexti á ákveðnum fjölda íbúða, sem sveitarfélögin muni byggja eða kaupa. Páll segir að árlega verði 400 íbúðir með niðurgreiddum vöxtum eða 3,5%, en þess- ar íbúðir séu handa fólki sem er innan skil- greindra tekju- og eignamarka. Við það borð sitji sveitarfélögin, hússjóður Öryrkjabanda- lagsins og til dæmis námsmenn. Páll Pétursson segir ljóst að mikill skortur sé á leiguhúsnæði í Reykjavík og leigan of há í mörgum tilfellum. Því hafi verið ákveðið að ríkið hafi forgöngu um sérstakt átak til að fjölga leiguíbúðum handa fólki án tillits til tekna, því almenningur þurfi að eiga þess kost að komast í leiguhúsnæði. Verið sé að reyna að koma þessu í gang í samstarfi við lífeyr- issjóðina. Þeir hafi lengi aðstoðað fólk við að koma sér í eigið húsnæði og með þessu móti geti þeir líka hjálpað fólki að komast í leigu- húsnæði. Samið hafi verið um að Búseti ríði á vaðið í þessu efni og komi upp og reki 300 leiguíbúðir í fyrsta áfanga, en á lánum til þess- ara íbúða verði niðurgreiddir vextir eða 4,5% vextir. Að sögn ráðherra er hér um að ræða 550 íbúða fjölgun á leigumarkaðnum á ári en átak- ið á að standa næstu fjögur árin. Verði spurn eftir lánum til leiguíbúða meiri verði lánað út á þær en á þeim kjörum sem Íbúðalánasjóður geti lánað á hverjum tíma. „Það er því ekki hægt að segja annað en að ríkisvaldið geri sitt til að laga stöðuna á leigumarkaðnum og það eru engin rök fyrir þessu tali borgarstjóra. Jafnframt kennir hún því um að þessi spenna sem myndast núna og langur biðlisti sé vegna breytinga á húsnæðislöggjöfinni en það er nú aldeilis ekki, því aldrei hefur annað eins bæst við af félagslegu húsnæði og aldrei hefur verið meiri félagsleg hjálp í húsnæðismálum handa tekjulitlu fólki en síðustu tvö ár.“ Páll Pétursson segir að gamla félagslega eignaríbúðakerfið hafi verið lagt niður í fyrra en í staðinn tekið upp nýtt kerfi með viðbótar- lánum en þeir sem taki þau lán eigi rétt á sam- tímagreiddum vaxtabótum. Kjörin séu því mjög góð á þessum lánum. „Það er mjög ósanngjarnt og ómaklegt að kenna nýju lög- unum um þessa stöðu sem upp er komin,“ seg- ir ráðherra og bætir við að það sé mikil fjar- stæða að sveitarstjórnarmenn skuli láta slíkt sér um munn fara vegna þess að löggjöfin hafi verið sett í sérstöku samráði við sveitarfélögin í landinu. Páll Pétursson félagsmálaráðherra vísar ummælum borgarstjóra á bug Sveitarfélögum auðveldað að koma upp leiguíbúðum FJÖLDI fyrirtækja og stofnana hér á landi hefur að undanförnu fengið sent bréf á íslensku þar sem óskað er eftir því að fyr- irtækið sendi dauðveikum dreng í Belgíu nafnspjald frá fyrirtæk- inu og sendi svo bréfið áfram til tíu annarra fyrirtækja. Á vef netfyrirtækisins Snerpu segir að drengurinn sé orðinn heill heilsu, og valdi það honum og fjölskyldu miklum vandkvæð- um, að hann fær hundruð bréfa á degi hverjum. Á heimasíðu Snerpu segir að starfsmönnum fyrirtækisins hafi tekist að hafa uppi á kunn- ingja fjölskyldunnar og fengið frá honum bréf þar sem hann biður þá um að aðstoða sig við að stöðva keðjubréfið. Þá segir í svarbréfi kunningjans, sem ekki vill láta nafns síns getið, að faðir drengsins hafi beðið hann um að gera allt sem í hans valdi stæði til að stöðva keðjubréfið. Haft er eftir föður drengsins að nágranni fjölskyldunnar hafi komið keðjubréfinu af stað í jan- úar 1998. Fjölskyldan þurfi að opna hundruð bréfa á hverjum degi til að fullvissa sig um að þau séu ekki að henda öðrum bréf- um en þeim sem innihalda nafn- spjöld. Þá segir í bréfi kunningj- ans að drengurinn hafi aldrei verið haldinn ólæknandi sjúk- dómi. Einnig kemur fram á vef Snerpu að fyrirtækinu hafi bor- ist keðjubréfið um Steve frá Póst- og fjarskiptastofnun, og því hafi fylgt áskorun frá Rauða krossi Íslands. Á vefnum segir að samgönguráðuneytið, Lands- bankinn og Eimskip séu meðal þeirra fyrirtækja sem hafi sent bréfið áfram. Þórir Guðmundsson, upplýs- ingafulltrúi Rauða kross Ís- lands, staðfestir að bréfið hafi verið sent til tíu íslenskra fyr- irtækja og stofnana 13. ágúst. Hann segir það ekki vera venju RKÍ að svara bréfum af þessu tagi en þar sem einungis hafi verið beðið um eitt nafnspjald hafi það verið gert. Þá segir Þór- ir að bréfinu hafi fylgt listi yfir þau fyrirtæki sem þegar hafi verið sent bréfið og fjöldi þeirra hafi verið vel yfir eitt hundrað. Þórir segir að bréfið hafi verið á íslensku þegar það barst. Fyrirtæki og stofn- anir dreifa keðjubréfi ALLS hófu 38 nemendur sl. mánu- dag nám í viðskiptalögfræði við nýja lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst. Nemendurnir voru valdir úr stórum hópi umsækjenda en 2,3 um- sóknir voru um hvert laust pláss í deildinni. Á haustmisseri leggja þeir stund á námsgreinarnar samninga- rétt, lögfræði og lögfræðilega upp- lýsingaleit, lög og rétt, rekstrarhag- fræði, rannsóknaraðferðir og samskipti og tjáningu. Nám í viðskiptalögfræði sam- þættir fjármál, viðskipti og lögfræði með það að markmiði að mennta stjórnendur með sérþekkingu á lagalegum þáttum viðskipta og rekstrar fyrir atvinnulíf og sam- félag. Lögfræðilegur hluti námsins felur í sér þau réttarsvið er lúta almennt að rekstri fyrirtækja, rekstrarformi og rekstrarumhverfi í víðu sam- hengi. Sérstök áhersla er lögð á fjármálamarkaðinn og alþjóðleg við- skipti í því samhengi. Viðskipta- fræðilegi hlutinn tekur á grunnþátt- um hagfræði, stjórnunar og reikningshalds auk sérstakrar áherslu á fjármál og alþjóðavið- skipti. Auk áfanga á sviði lögfræði og viðskipta er leitast við að samþætta þessi svið í blönduðum framhalds- kúrsum en einnig eru kennd grunn- fög á sviði stærðfræði, upplýsinga- tækni, rannsóknaraðferða og sam- skipta. Gert er ráð fyrir að kennsla á síð- asta ári fari að mestu fram á ensku og möguleiki verður einnig að taka árið að hluta til erlendis í sam- starfsháskólum Bifrastar. Námið veitir víðtæka möguleika til framhaldsnáms, m.a. til meistara- gráðu á sviði viðskiptalögfræði (cand. merc. jur.) og viðskiptafræða (cand. merc.) í Skandinavíu og MBA eða meistaragráðu í viðskiptum og lögum frá Bretlandi eða Bandaríkj- unum. Nám í viðskiptalögfræði er víða kennt við erlenda viðskiptaháskóla við mikla aðsókn og þykir hafa gef- ist vel, t.a.m. í Þýskalandi og Dan- mörku. Í frétt frá skólanum segir að mið- að við reynslu erlendis megi gera ráð fyrir að útskrifaðir viðskiptalög- fræðingar starfi m.a. sem stjórn- endur hjá fjármálafyrirtækjum, upplýsingatæknifyrirtækjum og fyrirtækjum er vinna á alþjóðlegum mörkuðum. Þriggja ára BS-nám í viðskiptalögfræði við Viðskiptaháskólann á Bifröst 38 nemar í lögfræði Nemendur í lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst í tíma í kennslugreininni Lögfræði og lögfræðileg upp- lýsingaleit. Allir nemendur eru með fartölvur en Netið og lögfræðileg gagnasöfn eru nýtt í kennslu og námi. PÁLL Sigurðsson, forseti laga- deildar Háskóla Íslands, fagnar samkeppni í lögfræðikennslu og segir að hún sé holl. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær stefnir Háskólinn í Reykjavík að stofnun lagadeildar sem á að taka til starfa næsta haust. Páll Sigurðsson segist telja að kenna megi lögfræði í ýmsum menntastofnunum og gott sé að það sé gert. Sérstaklega sé áhugavert að menntastofnanir setji upp mismunandi áhersluleið- ir en viðbúið sé að Háskólinn í Reykjavík ætli að byggja mikið á viðskiptalögfræði. Það sé reyndar líka gert í lagadeild HÍ. „Ef um samkeppni er að ræða þá er hún holl,“ segir hann. Að sögn Páls er ekki fyr- irsjáanleg þörf á breytingum í lagadeild HÍ vegna samkeppn- innar og á hann því ekki von á slíku. Hann segir að skuldbind- ingar lagadeildarinnar séu allt öðruvísi. Um sé að ræða mjög breitt námsval sem þurfi að halda uppi og ekki sé hægt að einbeita sér að einhverju ákveðnu sviði. Þó hafi meðal annars verið brugðist við þörfum viðskiptalífs- ins með því að setja upp mjög öfl- ugar greinar í viðskiptarétti og því sé boðið upp á mjög góða kosti í þeim efnum í kjörnámi auk þess sem samstarf sé við við- skiptadeild. Nemendur geti tekið greinar í viðskiptadeild og fengið þær metnar sem hluta af embætt- isprófi í lögfræði. „En engu að síður fagna ég því ef aðrir eru að þreifa fyrir sér í þessu en aðal- atriðið, þegar stofnað er til lög- fræðikennslu í ýmsum mennta- stofnunum, er að það sé undirbúið mjög vel í upphafi og vel að því staðið.“ Ekki einkaréttur Háskóla Íslands Háskólanám á háskólastigi heyrir undir almenna háskólalög- gjöf og er undir eftirliti mennta- málaráðuneytisins. Björn Bjarna- son, menntamálaráðherra, segir að semja þurfi við ráðuneytið um fjölda nemenda og annað slíks eðlis, en ráðuneytið líti ekki til inntaks námsins. Þetta sé spurn- ing um hvað viðkomandi skóli ákveði að gera við það fé sem hann fái samkvæmt samningum við menntamálaráðuneytið. Það sé ekkert sem segi að Háskóli Ís- lands eigi að hafa einkarétt á því að kenna lögfræði, en í þessu sambandi má nefna að í vikunni hóf Viðskiptaháskólinn á Bifröst kennslu í viðskiptalögfræði við nýja lögfræðideild skólans. Páll Sigurðsson segir að beri umrædd ákvörðun Háskólans í Reykjavík vott um það að lög- fræði hafi aukið vægi í þjóðfélag- inu og lögð verði meiri áhersla á lögfræði en verið hefur sé það góðs viti því full þörf sé á því. Forseti lagadeildar HÍ fagnar samkeppni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.