Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 1
204. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 8. SEPTEMBER 2001 SAMNINGAMENN á alþjóðlegu ráðstefnunni í Suður-Afríku um kynþáttafordóma reyndu til þrautar í gærkvöldi að koma í veg fyrir að hún færi algerlega út um þúfur vegna deilna um átökin í Miðausturlöndum og kröfu Afríkuríkja um að vest- ræn ríki bæðust afsökunar á þrælasölu og nýlendu- kúgun og greiddu skaðabætur. Ráðstefnunni átti að ljúka í gærkvöldi en ákveðið var að halda henni áfram í dag þar sem ekki hafði náðst samkomulag um lokaályktun. Louis Michel, utanríkisráðherra Belgíu og aðalsamningamaður Evrópusambandsins, kvaðst hafa orðið fyrir von- brigðum með hversu hægt hefði miðað í samninga- viðræðunum. „Þetta hefur verið mjög erfitt í dag. Ég veit ekki hvort samkomulag næst.“ Fyrr í gær samþykktu fulltrúar Evrópusam- bandsins málamiðlunartillögu þar sem skorað er á ríki, sem báru ábyrgð á þrælasölunni, að leita leiða til að „endurvekja reisn fórnarlambanna“. Tals- maður sendinefndar ESB sagði að málamiðlunin jafngilti afsökunarbeiðni en yrði ekki til þess að hægt yrði að höfða skaðabótamál. Afríkuríki kröfðust þess að þrælasölunni og ný- lendukúguninni yrði lýst sem „glæpum gegn mann- kyni“ og að vestræn ríki greiddu skaðabætur. Tals- maður sendinefndar Evrópusambandsins sagði að hún hefði hafnað þessum kröfum. „Samkomulag náðist um hugmyndina um afsökunarbeiðni,“ sagði hann. „Orðalagið er nú þannig að það getur ekki haft lagalegar afleiðingar.“ Patrick Chinamasa, dómsmálaráðherra Zimb- abwe, sagði þó að deilurnar um skaðabætur og kröfuna um að þrælaviðskiptunum yrði lýst sem glæpi gegn mannkyninu hefðu ekki enn verið leyst- ar. Mary Robinson, mannréttindafulltrúi Samein- uðu þjóðanna, sem stjórnaði ráðstefnunni, sagði að lokaályktunin yrði „ekkert til að verða uppveðraður af“ vegna þeirra málamiðlana sem þyrfti til að ná samkomulagi. Arabaríki hafna málamiðlunartillögu Hart var einnig tekist á um kröfu múslímaríkja um að Ísraelar yrðu gagnrýndir harðlega fyrir kyn- þáttafordóma. Fulltrúar múslímaríkjanna íhuguðu í gær að ganga af fundi þar sem þeir töldu orðalag málamiðlunartillögu um átökin í Miðausturlöndum vera of veikt. Arabaríkin höfnuðu sáttatillögu Suður-Afríku- manna en Evrópusambandið, sem hafði hafnað því að tekin yrði afstaða í deilum Ísraela og araba, sam- þykkti hana. „Við höfum ítrekað sagt að textinn sé óaðgengi- legur,“ sagði Nasser al-Kidwa, fulltrúi Palestínu- manna hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Hann bætti þó við að enn væri hægt að ná samkomulagi og að viðræðunum yrði líklega haldið áfram í dag. Deilt um þrælasölu og málefni Miðausturlanda á fundi um kynþáttafordóma Reynt til þrautar að semja um tilslakanir Durban. AP, AFP. AÐ minnsta kosti 30 karlmenn hafa dáið í Þýskalandi eftir að hafa tekið inn getuleysislyfið Viagra frá því að notkun þess var heimiluð í ríkjum Evrópu- sambandsins í september 1998, að sögn þýska heilbrigðisráðu- neytisins í gær. Ráðuneytið greindi ennfrem- ur frá því að í 60 löndum heims, þeirra á meðal ríkjum Evrópu- sambandsins, Noregi og Ís- landi, hefðu 616 manns dáið vegna hugsanlegra aukaverk- ana Viagra. Ráðuneytið sagði að sam- kvæmt opinberum skýrslum hefðu 104 Viagra-notendur í Þýskalandi orðið fyrir „meint- um aukaverkunum“ lyfsins, þar af hefðu 30 dáið, m.a. vegna hjarta- eða blóðrásarvanda- mála. Að sögn ráðuneytisins var ekki hægt að ganga úr skugga um hvort læknar hefðu mælt með notkun lyfsins í öll- um þessum tilvikum. Lyfjafyrirtækið Pfizer, sem framleiðir Viagra, neitaði því að lyfið væri hættulegt. „Það eru engin orsakatengsl milli dauðs- fallanna í Þýskalandi og notk- unar Viagra þar sem notkunar- ráðleggingum hefur verið fylgt,“ sagði í yfirlýsingu frá fyrirtækinu. „Margar rann- sóknir og almenn notkun hafa sýnt að Viagra er öruggt lyf þegar það er notað rétt.“ Frá því í janúar í fyrra hafa þýsk heilbrigðisyfirvöld ráðlagt fólki með hjarta- og blóðrásar- vandamál að nota ekki Viagra. Yfir 600 dauðsföll rakin til Viagra Berlín. AFP. AFVOPNUN albanskra skæruliða í Makedóníu hófst að nýju í gær þegar þeir afhentu hermönnum Atlants- hafsbandalagsins um 160 vopn á knattspyrnuvelli í þorpinu Radusa. Stefnt er að því að hermennirnir taki við 3.300 vopnum af skærulið- unum fyrir 26. þessa mánaðar og rúmlega 1.200 vopn voru afhent í vikunni sem leið. Afvopnunin er lið- ur í friðarsamkomulagi sem á að binda enda á sjö mánaða uppreisn skæruliðanna. Skæruliðar ganga hér fylktu liði í gegnum Radusa. Nokkrir þeirra sögðu eftir afvopnunina að þeir myndu halda uppreisninni áfram ef þörf krefði og kaupa ný vopn. Hundruð Makedóníumanna söfn- uðust saman við þinghúsið í Skopje í gær til að mótmæla aðgerðum NATO og gerðu gys að afvopnuninni með því að afhenda „vopn“ eins og leikfangabyssur, eldhúsáhöld og ávexti. Þeir sögðu að skæruliðarnir ættu miklu fleiri vopn en NATO gerði ráð fyrir og lýstu aðgerðum bandalagsins sem skollaleik. Skæruliðar afvopnast Reuters UM milljón breskra barna tók í gær þátt í tilraun sem fólst í því að nem- endur þúsunda skóla út um allt Bretland hoppuðu upp í loftið sam- tímis til að kanna hvort það myndi valda hræringum sem greindust á jarðskjálftamælum. Jarðskjálfta- fræðingar eru nú að mæla áhrifin og búist er við að niðurstaðan liggi fyrir eftir hálfan mánuð. Börnin hoppuðu í eina mínútu og áætlað er að orkan sem losnaði úr læðingi hafi verið allt að því jafnmikil og í skjálfta sem mælist tæp þrjú stig á Richters-kvarða. Var tilrauninni lýst sem fjölmennustu vísinda- tilraun sögunnar og skipuleggjend- urnir vona að hún verði skráð í heimsmetabók Guinness. Skólabörn í Kent taka hér þátt í tilrauninni. AP Reynt að valda skjálfta Um 700.000 eldislöxum slátrað Portland í Maine. AP. ALLS hefur verið slátrað um 700.000 eldislöxum í Maine í Banda- ríkjunum það sem af er árinu til að reyna að stöðva útbreiðslu hættu- legs og bráðsmitandi veirusjúkdóms, ISA. Hann veldur innvortis blæðing- um og loks dauða en er ekki hættu- legur mönnum. ISA hefur valdið miklu tjóni í lax- eldisstöðvum víða í Evrópu og Kan- ada undanfarin ár. Hann fannst fyrst í Maine í mars og hefur síðan breiðst út. Gert var ráð fyrir að um 130.000 fiskum að auki yrði slátrað í gær. Svæðið sem heitir Cobscook-flói og er austarlega í Maine var sett í sóttkví. Laxinn sem slátrað er hefur verið notaður í mjöl eða urðaður. Að sögn dagblaðsins The Boston Globe er aðgerðunum líkt við ráð- stafanir sem gripið hefur verið til í Evrópulöndum gegn gin- og klaufa- veiki. Þar hefur mörg hundruð þús- und dýrum verið slátrað til að reyna að fyrirbyggja útbreiðsluna. Laxasjúkdómur í Bandaríkjunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.