Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 55
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703. LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir, kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dag- skrá á internetinu: http//www.natgall.is LISTASAFN REYKJAVÍKUR THE REYKJAVÍK ART MUSEUM Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105 ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191 Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista- safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 – 101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net- fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn- @reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu- daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19 Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105 Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista- safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla daga LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag- lega kl. 12–17 nema mán. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er op- ið alla daga nema mánudag kl. 14-17. Upplýsingar í s. 553 2906. LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla mið. kl. 12-18. LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús, Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán.–föst. kl. 10-16. LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er opið á sun., þri., fim og laug. kl. 13-17. MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími 575-7700. MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1. júní til 15. sept. kl. 11-17. MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskóg- um 1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11– 17 til 1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverksmun- um. Kaffi, kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eldhorn.is. MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/ Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S. 567 9009. MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor- steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253. IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550 og 897 0206. MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein- holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum tíma eftir samkomulagi. NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630. NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16. NESSTOFUSAFN. Opið laugardaga , sunnudaga, þriðju- daga og fimmtudaga frá kl. 13-17. NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17. Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heima- síða: hhtp://www.nordice.is. PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn- arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321. RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s. 551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum. Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16. SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sími sýningar 565 4242. Skrifstofa, Lyngási 7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn@nat- mus.is. SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS- SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S. 581 4677. SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl. Uppl. í s: 483 1165, 483 1443. SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10– 18. S. 435 1490. STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suð- urgötu. Handritasýning opin kl. 14-16 þri.-föst. til 15. maí. STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla daga kl. 13–18 nema mánud. er lokað. Opnað fyrir hópa utan þess tíma eftir samkomulagi. Maríukaffi býður upp á gómsætar veitingar á opnunartíma. Til sölu steinar, minjagripir og íslenskt handverk. S. 431 5566. Vefsíða: www.islandia.is/steinariki SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pantað leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í sím- um 861-0562 og 866-3456. ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lokaðar vegna endurbóta á húsnæði. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýn- ingar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga frá kl. 11–17. Sími 545 1400. AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10– 19. Lau. 10–15. LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14– 18. Lokað mán. NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní – 1. sept. Uppl. í s. 462 3555. NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sumar frá kl. 11–17. ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 55 ♦ ♦ ♦ LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi, sem varð á gangbraut við gatnamót Hringbrautar og Lækjargötu, mánudaginn 3. september sl. kl. 16.50. Þarna varð stúlka á reiðhjóli fyrir bifreið. Vitni eru vinsamlega beðin um að hafa samband við lögreglustöðina í Hafnarfirði. Lýst eftir vitnum Í TILEFNI af 10 ára afmæli Fornalundar er þessa dagana haldin fimm daga fræðslu- og kynningarhátíð í söludeild BM- Vallár í Fornalundi við Breiðhöfða 3 undir nafninu „5 dagar í para- dís“.Hátíðin hófst miðvikudaginn 5. september og stendur til 9. sept- ember. Á hátíðinni verður opnaður nýr og afmælisáfangi í Fornalundi þar sem ólíkir straumar og stefnur í garðhönnun mætast auk þess sem ýmsar nýjungar frá BM-Vallá verða kynntar, segir í frétta- tilkynningu. Á boðstólum verður fjöldi fyrirlestra um skipulag garða og eru þeir opnir almenn- ingi. Opið verður frá kl. 10 til 14 á laugardag og kl. 13 til 17 á sunnu- dag. 10 ára afmæli Fornalundar 5 daga fræðslu- og kynningarhátíð UM þessar mundir eru Eldhestar í Hveragerði 15 ára. Eldhestar hafa frá byrjun boðið upp á hestaferðir um landið og hefur starfsemin aukist ár frá ári. „Næsta vor opna Eldhest- ar nýtt sveitahótel. Með því verður svarað auknum fyrirspurnum eftir funda- og ráðstefnustað í friðsælu umhverfi. Eldhestar taka að sér skipulagn- ingu á vinnufundum og ráðstefnum. Á hótelinu verða 10 tveggja manna herbergi búin öllum þægindum og með nettengingum. Í tilefni af afmælinu efna Eldhest- ar til getraunar á hesta- og heim- ilissýningunni í Laugardalshöll. Þeir sem koma á sýninguna geta tekið þátt í getraun þar sem í verðlaun verður hestaferð fyrir 10 manns. Það þýðir að sá sem vinnur getur boðið með sér 9 félögum úr vinahópnum eða af vinnustaðnum. Svara þarf þremur spurningum og skila í bás Eldhesta á sýningunni. Dregið verður úr réttum svörum þann 10. september og haft samband við verðlaunahafa símleiðis,“ segir í fréttatilkynningu. Eldhestar 15 ára HAUSTHÁTÍÐ KFUM og KFUK verður haldin sunnudaginn 9. sept- ember. Þetta er nýlunda í starfi félaganna og markar upphaf vetrarstarfs þeirra sem er í þann mund að hefj- ast. Hausthátíð KFUM og KFUK verður haldin í aðalstöðvum þeirra, Holtavegi 28 og hefst kl. 15:00. Félagar í Sportfélaginu Hvati, sem er nýstofnað félagslið KFUM og KFUK, munu sjá um knattspyrnu og blak og foringjar úr sumarbúð- unum munu sjá um ýmiss konar leiki og uppákomur á útivistarsvæði KFUM og KFUK við Holtaveg. Kl. 17:00 verður fyrsta skóflu- stunga tekin að nýjum leikskóla fé- laganna við austurenda knatt- spyrnuvallarins á svæðinu. Að því loknu verður gengið til fjölskyldu- samkomu í félagsheimili KFUM og KFUK. Aðgangur að allri dag- skránni er ókeypis. Hausthátíð KFUM og KFUK BISKUP Íslands hefur kallað sr. Halldór Reynisson, prest í Neskirkju í Reykjavík, til starfa á Biskupsstofu. Hann mun gegna starfi verkefnis- stjóra fræðslumála, auk þess að sinna upplýsingamálum. Sr. Halldór tekur til starfa 1. októ- ber nk. og er ráðinn til eins árs. Um leið fer sr. Halldór í launa- laust leyfi frá prestsþjónustu í Neskirkju. Sr. Halldór hefur verið prestur í Neskirkju sl. 6 ár en áður var hann sóknarprestur í Hruna. Hann hefur auk guð- fræðimenntunar meistara- gráðu í fjölmiðlun og var við nám í markaðsfræðum við End- urmenntunarstofnun HÍ. Hefur störf á Bisk- upsstofu KÍNAKLÚBBUR Unnar kynnir Kínaferðir sunnudaginn 9. septem- ber kl. 20:00 í veitingahúsinu Shanghæ, Laugavegi 28. Unnur Guðjónsdóttir mun sýna litskyggnur úr fyrri ferðum klúbbs- ins til Kína, jafnframt því að afhenda dagskrá ferðarinnar, einnig verður skyndihappdrætti með kínverskum vinningum. Kínaklúbburinn stendur fyrir tveim ferðum á næsta ári, í maí og september. Eftir að kynningar- fundi lýkur, geta fundargestir fengið sér að borða kínverskan mat. Allir sem hug hafa á að fara til Kína, undir fararstjórn Unnar, eru velkomnir á fundinn, segir í fréttatilkynningu. Kynning á Kínaklúbbi Unnar HEILARINN Patricia Howard verður með helgarnámskeið í Nudd- stofunni Umhyggju á Vesturgötu 32 í Reykjavík, helgina 15. og 16. sept- ember og einkatíma vikuna 10.–14. september. Patricia Howard er útskrifuð úr Barbara Brennan School of Healing í Bandaríkjunum. Hún var hér sl. vor með námskeið ásamt Karinu Becker og Bobbie Hutchinsson. „Á námskeiðunum verður unnið með erfiðleika úr æsku, skoðað hvernig við notum vanabundna hegðun til að skilgreina okkur, nýjar leiðir skoðaðar til þess að finna til ör- yggis og hlusta á okkur sjálf, við lær- um að taka á móti og gefa af okkur í stað þess að stjórna, endur- uppbyggja okkur og finna hvernig við getum notið lífsins,“ segir í fréttatilkynningu. Helgarnám- skeið í sjálfs- uppbyggingu KENNT verður í vetur hjá Dans- íþróttafélagi Hafnarfjarðar í Bjark- arhúsinu við Haukahraun (gamla Haukahúsið). Kennsla hefst mánu- daginn 10. sept. Kennsluönnin er 14. vikur Keppnishópur K og F verða með fastar æfingar þrisvar sinnum í viku. Barna-, unglinga- og hjónahópar fyr- ir byrjendur og framhald. Grétar Berg verður með breaknámskeið. Brynjar Örn verður með freestyle- námskeið. Skólastjóri Dansíþróttafélags Hafnarfjarðar er Auður Haralds- dóttir danskennari. Opið hús verður sunnudaginn 9. sept frá kl. 14:00- 17:00 í Haukahúsinu við Hauka- hraun. Dans í Hafnarfirði MÁNUDAGINN 10. september kl. 14 verður haldið opið málþing í Há- tíðasal Háskóla Íslands um áhrif há- skóla á samfélög. Málþingið fer fram á ensku. Fluttir verða fyrirlestrar og að þeim loknum verða almennar um- ræður. Dagskrá verður sem hér segir samkvæmt fréttatilkynningu: Frum- mælendur: Björn Wittrock, prófess- or við Háskólann í Uppsölum í Sví- þjóð: „The Modern University: The Three Transformations“. Gordon Graham, prófessor við Háskólann í Aberdeen í Skotlandi: „Freedom and Criticism: Recover- ing the University’s Social Role“. Málþingið er öllum opið og er haldið í tengslum við fund stjórnar- nefndar samstarfs rektora nor- rænna háskóla sem haldinn verður í Reykjavík um næstu helgi. Málþing um áhrif háskóla á samfélagið DAGANA 7. - 9. september er haldið Norðurlandamót grunnskólasveita í skák 2001. Skáksveit Hagaskóla vann sér þátttökurétt í mótinu með sigri á Íslandsmóti grunnskólasveita sl.vor. Þátttaka í Norðurlandamótum skólaskákar hefur jafnan verið ríkur þáttur í starfi þeirra aðila sem koma að skákkennslu í skólum og hefur jafnan verið mikið keppikefli að tefla fyrir Íslands hönd á þessum mótum. Íslensk ungmenni hafa jafnan staðið sig með miklum sóma á þess- um mótum og unnið marga Norður- landameistaratitla. Teflt verður í samkomusal Haga laugardag og sunnudag kl. 9:00 og 15:00. Aðangur öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Norðurlanda- mót grunn- skóla í skák GESTAFYRIRLESARI Jarðhita- skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á þessu ári er Hilel Legmann, verk- fræðingur, en hann er markaðsstjóri Ormat Industries Ltd. í Ísrael. Orm- at hefur um árabil verið meðal helstu framleiðenda búnaðar fyrir jarðgufstöðvar í heiminum og í far- arbroddi í framleiðslu tvívökva stöðva. Á síðari árum hefur Ormat í mörgum tilfellum ekki aðeins lagt til vélbúnað í jarðgufuvirkjanir heldur einnig verið aðaleigandi virkjan- anna. Hilel Legmann nam vélaverk- fræði við tækniháskólann í Achen í Þýskalandi og útskrifaðist 1976. Hann hefur starfað hjá Ormat frá 1983 og verið lykilmaður fyrirtæk- isins í fjölmörgum verkefnum, m.a. í Svartsengi, á Nýja Sjálandi, Kína, Skotlandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Dagana 10.-14. september n.k. mun hann flytja fimm fyrirlestra á Sal Orkustofnunar, Grensásvegi 9 (3. hæð) og hefjast þeir kl. 10. „Í fyr- irlestrunum mun hann fjalla um tví- vökva gufuvirkjanir, lýsa eiginleik- um vélbúnaðarins, umhverfisþátt- um, hvernig staðið er að fjármögnun og uppbyggingu virkjana og verk- efnastjórnun. Hann mun nota 60 MW jarðgufuvirkjun í Mokai á Nýja Sjálandi sem dæmi. Fyrirlestranir eru öllum opnir,“ segir í fréttatilkynningu frá jarð- hitaskólanum. Fyrirlestrar um jarðhita „SKÁKÆFINGAR fyrir börn og unglinga hjá Taflfélagi Reykjavíkur, svokallaðar laugardagsæfingar, hefjast að nýju eftir sumarleyfi laug- ardaginn 8. september kl.14:00. Æf- ingarnar eru opnar öllum 14 ára og yngri. Vegna þess að þetta er fyrsta æf- ing vetrarsins verður boðið upp á kók og pizzur, auk þess sem dregin verða út aukaverðlaun. Að venju verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin,“ segir í fréttatilkynningu frá Taflfélagi Reykjavíkur. Skákæfingar fyrir börn og unglinga „FRÉTTAVEFUR Vöku, félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta, hefur verið færður í nýjan búning. Slóð Vöku- vefsins er www.vaka.hi.is. Þar munu í vetur birtast fréttir af hagsmuna- baráttu stúdenta, af starfsemi Vöku og þar verða auk þess auglýstir at- burðir á vegum Vöku, svo sem há- degisfundir og skemmtikvöld,“ segir í fréttatilkynningu. Vökuvefurinn í nýjan búning ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.