Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 59 DAGBÓK Rauðagerði 26, sími 588 1259 NÝTT • HAUST • VETUR 2001 Opið í Rauðagerði 26 frá kl. 10-18 í dag, laugardag. Verið velkomin og fáið frítt eintak af nýja haustlistanum. Dömufatnaður í stærðum 36-48. Glæsileg herralína. Eldri vörur seldar með góðum afslætti. - Visa - Euro - - Verið velkomin - LJÓÐABROT VORHVÖT Þú, vorgyðja, svífur úr suðrænum geim á sólgeisla vængjunum breiðum til Ísalands fannþöktu fjallana heim að fossum og dimmbláum heiðum. Ég sé, hvar í skýjum þú brunar á braut. Ó, ber þú mitt ljóð heim í ættjarðar skaut. Og kveð þar fyr gumum í gróandi dal við gullskæra hörpunnar strengi um þjóðvorið fagra, sem frelsi vort skal með fögnuði leiða’ yfir vengi. Þá vaxa meiðir, þar vísir er nú. – Svo verður, ef þjóðin er sjálfri sér trú. – – – Steingrímur Thorsteinsson STAÐAN kom upp á HM ungmenna sem lauk nýverið í Aþenu. Levon Aronjan (2562) hafði hvítt gegn Gab- or Papp (2291). 25. Hxf7! Rökrétt fórn í yfirburðatafli. 25...Kxf7 26. Dh7! Svarti kóngurinn sleppur ekki úr hremmingum sín- um eftir þetta. 26... Hxd6 Svart- ur yrði mát eftir 26... Kf6 27. Hf1+ Ke5 28. Df5+ Kd4 29. Dd3+ Ke5 30. Hf5#. 27. cxd6 Kf6 28. Hf1+ Ke5 29. d7 Dxd7 30. Df5+ og svartur gafst upp enda fátt til varn- ar. 9. umferð Skákþing Ís- lands, landsliðs- flokki, fer fram 8. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. september kl. 13.00 í íþróttahúsinu við Strand- götu. Þetta er lokaumferðin bæði í landsliðsflokki og kvennaflokki. Áhorfendur eru velkomnir til að fylgjast með spennandi umferð en aðstaða fyrir áhorfendur er ákjósanleg ásamt því að þeirra bíður kaffi og með- læti. Áhugasamir geta einn- ig fylgst með skákunum á netinu. Nánari upplýsingar veitir skak.is. Árnað heilla STJÖRNUSPÁeft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú átt auðvelt með að um- gangast aðra og vera þeim gleðigjafi en mátt ekki gleyma sjálfum þér í öllum vinsældunum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þér gengur vel og fólk dáist að dugnaði þínum og árangri. Mundu bara að nota velgengn- ina sem hvata til að bæta þig en ekki sem afsökun til að slá slöku við. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þótt smáóreiða sé ekki skað- leg, eru hlutirnir undra fljótir að fara úr böndunum, þegar skriðan fer af stað. Haltu því öllu í röð og reglu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú getur alveg framkvæmt þá hluti sem þér eru faldir, þótt þeir virðist flóknir við fyrstu sýn. Byrjaðu bara og svo kem- ur hitt af sjálfu sér. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Einlægni er það sem þú þarft að hafa í huga, þegar þú talar fyrir þeim málefnum, sem þú berð fyrir brjósti. Leikara- skapur fellur bara um sjálfan sig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nú þegar þú hefur lagt að baki erfiða leið að settu marki skaltu leyfa þér að njóta ávaxtanna af erfiði þínu en svo tekur alvaran aftur við. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Byrjaðu bara með það sem þú hefur við hendina og annað mun berast þér eftir því sem við á, þegar verkefninu fer að miða eitthvað. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það hefur eitt og annað gengið á hjá þér að undanförnu en nú virðist þú vera kominn með tök á hlutunum og átt því að sigla lygnan sjó. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þegar um er að ræða val eins og það sem þú stendur frammi fyrir, er algjört skilyrði að gefa sér nægan tíma til þess að velta fyrir sér öllum mögu- leikum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það getur reynst mikil kúnst að segja nei, þegar það á við. Hertu upp hugann, því enda- laus undanlátssemi skilar þér bara örðugleikum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Láttu ekki aðra hrifsa til sín það sem í raun er þinn hlutur. Gættu þess að haga vænting- um þínum alltaf í samræmi við það sem þú veist mögulegt. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Einhverjar breytingar eru á döfinni og þú gerir best í því að mæta þeim með opnum huga því þegar allt kemur til alls hafa þær margt jákvætt í för með sér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt þér finnist margt sækja að þér og þú eigir erfitt um vik skaltu ekki láta hugfallast því þú hefur meira en nógan innri styrk til þess að takast hlutina. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Ljósmynd/Myndrún ehf. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 25. ágúst sl. í Möðru- vallakirkju af sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur Erna Rún Friðfinnsdóttir og Kristinn Hólm Ásmunds- son. Heimili þeirra er í Heiðarlundi 2k, Akureyri. Ljósmynd/Myndrún ehf. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 11. ágúst sl. í Akur- eyrarkirkju af sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttur Guðríður Jónasdóttir og Þorsteinn Hlynur Jónsson. Heimili þeirra er á Brekkusíðu 3, Akureyri. Ljósmynd/Myndrún ehf. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 11. ágúst sl. í Akureyrar- kirkju af sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttur María Sif Sævars- dóttir og Einar Áskelsson. Á myndinni eru börn þeirra, Elín Ása og Viktor Ari. Heimili þeirra er á Vestursíðu 22, Ak- ureyri. TIL að hindrunarsögn skili hlutverki sínu verður hún að koma andstæðingunum í þá stöðu að þeir hafi a.m.k. um tvo kosti að velja og helst fleiri. „Látum þá giska!“ er stundum sagt, en það gildir um ágiskanir að þær eru stundum rangar. Karl Sigurhjartarson hafði þetta lögmál að leiðarljósi í Netleiknum við Dani, en það gerði Paul Clemmensen hins vegar ekki í sömu stöðu: Suður gefur; AV á hættu. Áttum breytt. Norður ♠ 9432 ♥ 7 ♦ KD ♣ 1097654 Vestur Austur ♠ D86 ♠ K10 ♥ ÁK10653 ♥ DG9 ♦ 975 ♦ G6432 ♣D ♣Á83 Suður ♠ ÁG75 ♥ 842 ♦ Á108 ♣KG2 Karl og Jón Baldursson voru í NS gegn Morten Jep- sen og Thorvald Aagaard: Vestur Norður Austur Suður Morten Karl Thorvald Jón -- -- -- 1 lauf 1 hjarta 4 lauf Pass Pass Pass Hindrunin í fjögur lauf heppnaðist fullkomlega. Austur átti þrjá kosti, hann gat passað, doblað eða sagt fjögur hjörtu. Engin ein sögn blasir við og hver og ein getur verið hin „rétta“ í þessu tilfelli. Sem sagt – ágiskun. Thorvald kaus að passa og eftir heldur óná- kvæma vörn endaði Karl einn niður: 50 til Dananna. Á hinu borðinu fór Paul Clemmensen offari: Vestur Norður Austur Suður Matthías Paul Þorlákur H.C. -- -- -- 1 lauf 1 hjarta 5 lauf Dobl Pass Pass Pass Þorlákur á í rauninni að- eins eina sögn við fimm laufum – dobl! Engin ágisk- un og öruggur ágóði. Matthías kom út með hjartaás og skipti yfir í smáan spaða. Sagnhafi drap kóng Þorláks, fór inn í borð á tígul og spilaði laufi á gosann og drottningu vest- urs. Matthías tók þá spaða- drottningu og gaf Þorláki stungu. Þrír niður, 500, og 10 IMPar til Iceland Ex- press, sem vann leikinn með 89 IMPum gegn 65. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Per-Åke óskar eftir íslensk- um pennavinum. Hann hef- ur áhuga á frímerkjum. Per-Åke Boström, Degerängsväg 39, S-67142 Arvika, Sverige. Bernt óskar eftir íslensk- um pennavinum. Hann hef- ur áhuga á frímerkjum. Bernt Hanson, Trollrunan 28, S-423 46 Torslanda, Sverige. Werner óskar eftir ís- lenskum pennavinum. Hann hefur áhuga á frímerkjum. Werner Schestak, Lindenstrasse, D-86836 Klosterlech- feld, Germany. Heather, sem er 31 árs, óskar eftir pennavinum á sínum aldri. Áhugamál hennar eru m.a. ferðalög, lestur, tónlist, íþróttir o.fl. Heather Baker, 18 Edgewood Drive, Mechanicsburg, PA 17055, U.S.A. Pennavinir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.