Morgunblaðið - 12.09.2001, Page 32

Morgunblaðið - 12.09.2001, Page 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jóhann TómasBjarnason fædd- ist á Þingeyri við Dýrafjörð 15. febr- úar 1929. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnun Ísafjarðarbæjar að- faranótt þriðjudags- ins 4. september síðastliðins. For- eldrar Jóhanns voru Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsmóðir, f. á Akri í Staðarsveit á Snæ- fellsnesi 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978, og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson, smiður og verkamaður, f. á Þingeyri 16. september 1898, d. 12. janúar 1971. Systkini Jóhanns eru Bryn- dís Meyer, d. 30. janúar 2001, Hermann, d. 8. janúar 2001, Gunnar, búsettur á Þingeyri, og Gísli, búsettur í Hafnarfirði. Jó- hann kvæntist 27. september 1952 Sigrúnu Stefánsdóttur, fyrrverandi verslunarmanni frá Hólum í Þingeyrarhreppi, f. 27. september 1931. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Ólafía Guð- mundsdóttir frá Lambadal í Dýrafirði, f. 26. september 1897, 1. mars 2001, Jóhann Tómas, f. 17. desember 1989, og Tryggvi Snær, f. 10. ágúst 1995. Jóhann lauk grunnskólanámi frá Barnaskólanum á Þingeyri og hóf ungur störf við Kaupfélag Dýrfirðinga á Þingeyri. Hann stundaði nám við Samvinnuskól- ann í Reykjavík og framhalds- deild Samvinnuskólans á árunum 1947–1951. Hann hélt til Bret- lands 1951 og lauk námi frá Co- operative College, Stanford Hall 1952. Hann starfaði hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga sumarið 1952, var skrifstofu- stjóri hjá Kaupfélagi Hafnfirð- inga september 1952 til maí 1953, kaupfélagsstjóri Kaup- félags Vestmanneyja maí 1953 til ársloka 1956 og kaupfélagsstjóri Kaupfélags Ísfirðinga janúar 1957 til janúar 1972. Jóhann varð fyrsti framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirð- inga, 1. ágúst 1972, og starfaði við það til 31. mars 1995 er hann lét af störfum sökum heilsu- brests. Hann vann við bókhalds og enduskoðunarstörf, átti sæti í stjórnum ýmissa félaga og nefnd- um og vann að fjölmörgum hags- munamálum Vestfirðinga og vestfirskra sveitarfélaga, hann leiddi einnig starf Frímúrara- stúkunnar Njálu á árunum 1976– 1987. Útför Jóhanns fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. d. 29. ágúst 1974, og Stefán Guðmundsson bóndi í Hólum í Dýrafirði, f. á Kirkjubóli í Dýrafirði 14. maí 1881, d. 18. september 1970. Syn- ir þeirra eru: 1) Bjarni Kristinn við- skiptafræðingur, f. 8. ágúst 1953, sambýlis- kona hans er Guðrún Karólína Guðmanns- dóttir viðskiptafræð- ingur, f. 11. maí 1953. Dætur þeirra eru: Sigrún María líf- fræðingur, f. 8. október 1975, í sambúð með Gísla Einari Árna- syni tannlæknanema, f. 23. apríl 1974, sonur þeirra er Egill Bjarni, f. 5. febrúar 2001; og Jó- hanna Bryndís tannlæknanemi, f. 25. apríl 1980, í sambúð með Jó- hanni Hauk Hafstein laganema, f. 2. febrúar 1979. 2) Guðmundur Jónas útgerðartæknir, f. 14. október 1959, d. 17. apríl 1998, eiginkona hans var Aðalheiður Anna Guðmundsdóttir viðskipta- fræðinemi, f. 9. febrúar 1962. Synir þeirra eru Úlfar Óli Sæv- arsson, f. 13. nóvember 1981, dóttir hans er Viktoría Anna, f. Kæri tengdafaðir. Ekki óraði mig fyrir því sunnudaginn 2. september sl. þegar við Bjarni ferðuðumst með ykkur Sigrúnu um Dýrafjörð, geng- um um kirkjugarðinn á Þingeyri, að gröfum foreldra þinna og ömmu, að þetta væri síðasta ferðin þín um Dýrafjörð, sem var þér svo óend- anlega kær frá æskuárunum á Þing- eyri. Þú bentir okkur á túnskika upp með Sandafellinu, sem pabbi þinn sló og þið systkinin hjálpuðuð til við að heyja, við fórum fram í Brekku- dal og út á Arnarnes. Þessi ferð verður dýrmæt perla geymd í stórum sjóði minninga um árin næstum þrjátíu, með þér og fjöl- skyldu þinni. Ég man ennþá þá stund er við hittumst fyrst í kvist- herberginu á Fálkagötu þar sem Bjarni bjó haustið 1974, þú komst óvænt í heimsókn með kleinur eða eitthvað annað til Bjarna að vestan. Þá langaði okkur áreiðanlega bæði jafnmikið til að hverfa niður úr gólf- inu, þú komst alla vega ekki lengra en á þröskuldinn í það skiptið og Bjarni var víst jafnfeiminn. Þú varst alinn upp á Þingeyri á kreppuárunum á fátæku og barn- mörgu heimili, byrjaðir ungur að vinna við Kaupfélagið á Þingeyri og í framhaldi af því varst þú styrktur til náms í Samvinnuskólanum með hjálp góðra manna, sem sáu hvaða efniviður bjó í þér. Margt væri öðru- vísi hér á Vestfjörðum í dag ef þín hefði ekki notið við í forsvari fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga í endalausri baráttu fyrir landshluta, sem undanfarna áratugi hefur átt undir högg að sækja. Þú vannst verk þín í hljóði og skilaðir öllu því, sem þú áttir að skila, hvort sem vinnan tók langan eða stuttan tíma voru hlutirnir kláraðir og settum markmiðum náð. Þú varst sam- viskusamasti og heiðarlegasti mað- ur, sem ég hef þekkt, og þoldir ekki óheiðarleika og undirferli. Þú flíkaðir ekki tilfinningum þín- um, en þú varst afar tryggur fjöl- skyldu þinni og vinum. Ég hef aldrei heyrt þig tala illa um nokkurn mann, þú vildir öllum vel og gerðir allt sem þú mögulega gast fyrir aðra. Undanfarin ár hefur heilsan verið að gefa sig, ásamt því skelfilega áfalli sem þú varðst fyrir í apríl 1998 þegar Guðmundur sonur þinn and- aðist langt um aldur fram, 38 ára að aldri. Þetta ár hefur einnig verið þér þungbært vegna andláts systkina þinna í janúar og systursonar þíns í mars. Öll þessi áföll hafa markað þig og vafalítið flýtt fyrir endalokunum. Um það bil þremur klukkutímum fyrir andlát þitt stóðum við Bjarni hér úti á stéttinni við heimili okkar og töluðum um hvað okkur hafi liðið vel hér á Ísafirði í þau tuttugu ár sem við höfum búið hér í nágrenni við ykkur Sigrúnu. Það vantar mikið í Sætúnið núna þegar þú ert horfinn, en við verðum að venjast því. Hjá ykkur Sigrúnu áttu dætur okkar Bjarna annað heimili meðan þær voru að alst upp, en það eru for- réttindi sem nútímabörnin fara á mis við að alast upp með afa og ömmu og fræðast af þeim um liðinn tíma, forfeðurna og allt það, sem að notum kemur á lífsgöngunni síðar á ævinni. Þú kenndir þeim stafina, bænir og vers og lagðir ríka áherslu á nauðsyn þess að hafa guð með í daglegu lífi, þú leiðbeindir þeim um framtíðina, lífið og allt mögulegt. Margir hlutir voru ræddir í Sæ- túninu um lífið, dauðann og til- veruna svona almennt og ungar sál- ir komu margs fróðari heim. Amma var heima flesta daga þegar þær komu úr skólanum og alltaf gat afi skotist ef þær þurftu á að halda. Að- fangadagskvöld var ekki eins og að- fangadagskvöld eiga að vera ef það var ekki haldið í Sætúni 5 og af þeim 25 aðfangadagskvöldum, sem Sig- rún María hefur lifað, hafa 23 verið haldin hátíðleg í Sætúni 5, hjá afa og ömmu. Kæri Jóhann, ég hugga mig við það að nú ert þú með Gumma, Bryn- dísi, Hemma og öllum hinum, sem eru farin á undan. Ég vil færa þér hjartans þakkir fyrir samfylgdina síðustu 27 árin og allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu og allt það sem þú kenndir mér þegar ég tókst á við störfin hér vestra. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Ég bið algóðan guð að blessa þig og vernda eiginkonu þína og fjöl- skyldu um ókomin ár. Guð styrki ykkur öll. Guðrún. Mér hnykkti við að heyra andláts- fregn Jóhanns T. Bjarnasonar þótt ekki ætti að koma á óvart. Hann átti á síðustu árum við erfiðan sjúkdóm að stríða og enginn má sköpum renna. En alltaf var hann hress í anda og æðrulaus þegar við áttum tal saman rétt eins og áður fyrrum. Með Jóhanni er genginn merkur hæfileikamaður, eftirminnilegur hverjum sem kynntust. Áður en okkar fundum bar sama hafði hann starfað um árabil á vegum sam- vinnufélaganna. Undir það starf var hann vel undibúinn með námi bæði í Samvinnuskólanum hér heima og skóla samvinnuhreyfingarinnar í Englandi. Hann hafði meðal annars verið kaupfélagsstjóri bæði í Vest- mannaeyjum og á Ísafirði. Það var því maður með mikla starfsreynslu sem tók við starfi framkvæmda- stjóra Fjórðungssambands Vest- firðinga þegar samtökin áttu því láni að fagna, réttur maður á réttum stað. Jóhann var óumdeildur í þessu vandasama starfi. Var það ekki að undra því að saman fóru góðar gáf- ur, góðvild, eljusemi og samvisku- semi svo af bar. Hann var vakinn og sofinn fyrir öllu sem verða mátti til að efla Fjórðungssambandið og vestfirskar byggðir. Hann átti sam- vinnu við forystumenn byggðarlag- anna og hafði samband við fólkið í kjördæminu, fylgdist með því sem var á seyði til framfara, reiðubúinn til ráðgjafar og aðstoðar hvar sem við var komið. Hann gerði Fjórð- ungssambandið að öflugum samtök- um þar sem vestfirðingar réðu mál- um sínum og beittu samtakamætti til að ryðja málum sínum braut til almenningsheilla. Hann var maður til átaka og forystu þegar á þurfti að halda. Í eðlislægum grandvarleik var honum lagið með þrautseigju og lagni að koma málum í höfn. Hann hafði ekki launuðu starfsfólki á að skipa. Sjálfur undirbjó hann mál af mikilli kostgæfni þar sem til kom óhemju vinna við hverskonar skýrslugerðir og upplýsingasöfnun sem nauðsyn krafði. Honum féll aldrei verk úr hendi. Hann orkaði því sem enginn má nema af hug- sjónakrafti. Það var á þessum vettvangi sem ég átti nána samvinnu við Jóhann. Það var ómetanlegt fyrir þingmann að eiga hann að og deila með honum áhugamálum og viðfangsefnum sem við var að fást í kjördæminu. Þegar fundum okkar bar saman skorti aldrei á umræðuefni. Það var gott að bera saman ráð sín við hann. Hann var bæði glöggskyggn og heil- ráður. En umræðan gat snúist um fleira en kjördæmismál. Jóhann var víðsýnn maður og fjölfróður. Oft var skeggrætt um þjóðlífið vítt og breitt. En ekki minnist ég þess samt að nokkru sinni snerust samræður okkar um flokkspólitík. Hann gætti þess meira að segja í einkasamtöl- um að gera ekki upp á milli stjórn- málaflokka. Svo mjög þótti honum varða að gæta fullkomins hlutleysis í störfum sínum fyrir Fjórðungs- sambandið enda naut hann trausts allra án tillits til stjórnmálaskoðana. En auðvitað hlaut hann að hafa sín- ar skoðanir í þessum efnum því að maðurinnn var enginn veifiskati. Margs er að minnast. Margt sæk- ir að. En ef ég ætlaði að nefna eitt- hvað sérstakt ætla ég að mér sé efst í huga samstarf okkar Jóhanns við að koma á fót Orkubúi Vestfjarða. Hann var ritari orkunefndar Vest- fjarða og hægri hönd mín. Og við hjálpuðumst að því að koma í fram- kvæmd tilllögu nefndarinnar um stofnun Orkubúsins. Við tveir fórum vítt og breitt um Vestfirði til fund- arhalda með sveitarstjórnum um þessar fyrirætlanir. Ekki var það allt fyrirhafnarlaust eins og þegar við stóðum í því að vaða fannfergið og ýta á undan okkur jeppanum sem ætlað var að flytja okkur yfir Trölla- tunguheiði til næsta fundar. En við vorum ekki týndir og tröllum gefnir. Hvarvetna var stuðningur við stofn- un Orkubúsins samþykktur ein- róma, almenn samstaða sem allir stjórnmálaflokkar stóðu að með heilindum. Við Jóhann yljuðum okk- ur stundum á síðari árum við end- urminninguna um þessa atburði. En efst stendur maðurinn sjálfur, persónuleiki og manngerð. Það var gæf að eiga Jóhann að vini. Það var gefandi að vera samvistum við hann jafnt í leik sem starfi. Ég naut ótæpilega gestrisni á vinalegu heim- ili sem hin ágæta eiginkona, Sigrún Stefánsdóttir, bjó honum. Það er mikið að þakka. Ég votta Sigrúnu og fjölskyldu dýpstu samúð. Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Jóhann T. Bjarnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Vestfirðinga, lést hinn 4. sept. sl. Hann naut mikils trausts í því starfi sem hann gegndi þar í 23 ár. Jóhann var drengskaparmaður, traustur og fylginn sér í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var vakinn og sofinn á verði um hagsmunamál Vestfirðinga. Öllu, sem hann tók að sér á þeim vettvangi, var hægt að treysta að fylgt yrði eftir. Þeim fækkar nú óð- um sem létu að sér kveða innan Fjórðungssambandsins á þessum árum. Ég kynntist Jóhanni allvel í gegnum starf mannsins míns, en þeir voru miklir og góðir samstarfs- menn um árabil á vettvangi sveit- arstjórnarmála á Vestfjörðum. Þeir treystu hvor öðrum fullkomlega, hvort sem var í starfi eða einkalífi. Jóhann leitaði gjarnan til Guðmund- ar með vinnu að verkefnum fyrir Fjórðungssambandið, sem hann þurfti að fá utanaðkomandi aðila til, eftir að stjórnarsetu Guðmundar lauk. Þegar Jóhann hætti störfum fyrir Fjórðungssambandið og leiðir þeirra skildu eftir að við fluttum frá Ísafirði, þá héldu þeir við sambandi með því að hringja reglulega og spyrja frétta af gangi mála. Og við heimsóknir til Ísafjarðar var það eitt af því sem Guðmundur sleppti ekki hversu tímabundinn sem hann annars var, að heimsækja þau Jó- hann og Sigrúnu og þá var ýmislegt rifjað upp og spáð í framtíðina. Þau eru mörg málin sem hægt væri að rifja upp sem Jóhann hafði frum- kvæði að og vann að eftir mætti. Öll snertu þau hagsmuni Vestfirðinga- fjórðungs, og voru til þess fallin að bæta mannlíf, menningu, samgöng- ur og atvinnulíf á Vestfjörðum. Jóhann vann ötullega að því að gjaldskrá síma yrði jöfnuð um land- ið. Hann var einn af helstu frum- kvöðlum að byggingu jarðganga undir Breiðadals- og Botnsheiði og beitti sér mikið í því máli. Hann lét vinna skýrslur sem hann kom á framfæri og fylgdi eftir til stuðnings málflutningi sínum. Samgöngur skipta miklu máli á Vestfjörðum og það vissi Jóhann og í því efni horfði hann langt til framtíðar. Bæði Dýra- fjarðarbrú og Gilsfjarðarbrú voru hans hjartans mál, löngu áður en nokkur þorði að trúa því að það yrði að veruleika. Það væri hægt að telja upp svo ótalmargt sem Jóhann vann að af sínum alkunna dugnaði, en þó án átaka. Hann fór ekki mörgun orðum um það sem hann var að vinna að, því hann var ekki gefinn fyrir að hafa hátt um hlutina. Hann naut hvarvetna virðingar fyrir störf sín á opinberum vettvangi og í stjórnsýslunni, og það veitti málefn- unum brautargengi. Síðustu árin átti Jóhann við sjúk- dóm að stríða, sem gerði að verkum að hann hætti störfum fyrr en ella hefði verið. Hugurinn var þó hinn sami og hann fylgdist vel með öllu því sem hann áður hafði sinnt, og hvernig málum reiddi fram á veg- inn. Á síðasta Fjórðungsþingi sem haldið var á Reykhólum, gat hann ekki mætt sökum lasleika, en bað fyrir kveðjur. Ekki grunaði mig þá að það væri síðasta kveðjan sem ég bæri fundarmönnum Fjórðungs- þings fyrir hans hönd. En svona er lífið, enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Ég vil þakka Jóhanni T. Bjarnasyni fyrir hans mkla og góða starf fyrir Fjórðungssamband Vest- firðinga. Við munum öll njóta verka hans í framtíðinni. Hann vann öll sín verk með hagsmuni fjórðungsins í huga, og Fjórðungssambandið var sterkt með hann sem framkvæmda- stjóra. Ég þakka honum einnig per- sónuleg kynni og vináttu og tryggð til æviloka. Eiginkonu hans, Bjarna syni hans, Guðrúnu og Önnu tengdadætrum hans ásamt öllum barnabörnunum hans, votta ég inni- lega samúð. Ég vona að þau öðlist þann styrk sem við öll leitum að þegar slíkar stundir bera að í lífi okkar. Vestfirðingar hafa misst einn af sínum virtustu sonum. Guð blessi minningu hans. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir. Það verður verk annarra að tí- unda lífshlaup hins ágæta manns, Jóhanns T. Bjarnasonar. Með nokkrum orðum er ljúft og skylt að minnast öðlings, sem með hógværð og ljúfmennsku vann störf sín og ætlaðist aldrei til þakka fyrir. Jó- hann vakti fyrst athygli mína með grein i Sveitarstjórnarmálum árið 1975. Hann fjallaði ítarlega um hug- mynd sína að reisa Stjórnsýsluhús á Ísafirði ofarlega við Hafnarstrætið. Þar skyldi sameina alla stjórnsýslu í Ísafjarðarkaupstað, bæði ríkis og sveitarfélaga, undir einn hatt. Hug- myndin vakti áhuga minn sem og það hve ákveðið en hógvært Jóhann fylgdi henni eftir. Tæpum áratug síðar áttum við samskipti vegna til- veru Skattstofu Vestfjarða í Stjórn- sýsluhúsinu, sem þá hafði verið ákveðið að reisa. Fyrsta skóflu- stungan var tekin áratug eftir að greinin birtist. Húsið var vígt 1988. Skattstofan og skrifstofur Fjórð- ungssambands Vestfirðinga, sem Jóhann vann lengi af miklum trún- aði, voru báðar á fjórðu hæðinni og stutt á milli. Kynni okkar Jóhanns urðu nánari eftir að undirritaður hóf afskipti af bæjarmálum á Ísafirði 1986 og enn óx samstarfið fjórum árum síðar er það varð hlutskipti mitt um eins árs skeið að vera for- maður stjórnar Fjórðungssam- bandsins. Nákvæmari og aðgæzlu- samari mann í fjármálum og samskiptum var erfitt að finna. Að auki miðlaði hann ríkulega af reynslu og mannviti. Eitt hið minn- isstæðasta verkefni er barst á borð Jóhanns á þessum árum tengdist jarðgangagerð á Vestfjörðum. Hann var sá fyrsti er kunnugt var að nefndi möguleika á jarðgöngum með gatnamótum inni í miðju fjalli. Lítið gerði Jóhann úr hugmynd sinni er þó varð að veruleika og hef- ur gefizt vel. Það var eðli Jóhanns að flíka ekki verkum sínum, ræða ekki gerða hluti. Hann var drengur góður og sparaði sig hvergi hvorki í fé- lagsmálum né öðru. Öllu var sinnt af samvizkusemi. Hann leitaði ávallt leiða að markinu og fann þær, án þess að eigna sér heiðurinn. Að leiðarlokum þökkum við Þór- dís góð kynni og vottum Sigrúnu, börnum, tengdabörnum og barna- börnum dýpstu samúð. Góður drengur er genginn. Guð blessi minningu hans. Ólafur Helgi Kjartansson. Með Jóhanni T. Bjarnasyni er mætur maður genginn. Hann átti rætur sínar í vestfirskum jarðvegi og vann meginhluta starfsævi sinn- ar að framfaramálum í sínu byggð- arlagi. Hann var drengskaparmað- JÓHANN T. BJARNASON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.