Morgunblaðið - 25.09.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHaukum spáð Íslandsmeistaratitl-
inum í handknattleik /B11
Skagamenn fögnuðu meistaratitli
í Eyjum B1, B2, B3, B4, B12
12 SÍÐUR40 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
STEFÁN Jónsson,
fyrrverandi forstjóri
og bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í
Hafnarfirði, er látinn,
92 ára að aldri.
Stefán fæddist á
Kalastaðakoti á Hval-
fjarðarströnd hinn 15.
mars árið 1909. For-
eldrar hans voru Jón
Sigurðsson hrepp-
stjóri og Soffía Pét-
ursdóttir húsmóðir.
Stefán ólst upp á
Kalastaðakoti til tíu
ára aldurs en fluttist
þá til Reykjavíkur
ásamt foreldrum sínum og systk-
inum. Hann lauk prófi úr Verzl-
unarskóla Íslands árið 1928 og
stundaði verslunar- og skrifstofu-
störf í Reykjavík á árunum 1928 til
1930.
Eftir það tók hann við störfum
hjá vélsmiðjunni Héðni og varð síð-
ar útibússtjóri vélsmiðjunnar í
Hafnarfirði fram til ársins 1937. Þá
keypti hann ásamt þremur félögum
sínum útibúið og stofnaði Vél-
smiðju Hafnarfjarðar hf. Starfaði
hann þar sem forstjóri lengstan
hluta starfsævi sinnar.
Stefán var einn af stofnendum
Sambands ungra sjálfstæðismanna
(SUS) á Þingvöllum árið 1930 og
var bæjarfulltrúi sjálf-
stæðismanna í Hafn-
arfirði á árunum 1938
til 1982 eða samtals í
44 ár. Þar af var hann
forseti bæjarstjórnar í
Hafnarfirði í sextán
ár. Hefur enginn ann-
ar gegnt starfi bæjar-
fulltrúa í svo langan
tíma samfleytt í einu
bæjarfélagi. Stefán
sat í ýmsum nefndum
og ráðum á vegum
bæjarfélagsins en auk
þess stóð hann að
stofnun ýmissa at-
vinnufyrirtækja í
bænum og sat í stjórnum þeirra.
Þar mætti nefna fyrirtækið Lýsi og
mjöl hf., Bílaverkstæði Hafnar-
fjarðar hf. og Bátafélag Hafnar-
fjarðar. Kom hann þannig víða við í
atvinnusögu bæjarins og sat m.a. í
stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar í
fjöldamörg ár. Auk þess sat hann í
stjórn Íslenska álfélagsins (ÍSAL).
Auk þessa var Stefán í karla-
kórnum Þröstum frá árinu 1932 og
var gerður að heiðursfélaga þar hin
síðari ár.
Stefán kvæntist Ragnheiði
Huldu Þórðardóttur 29. mars 1931.
Þau bjuggu í Hafnarfirði alla tíð og
eignuðust sex börn, nítján barna-
börn og 24 barnabarnabörn.
Andlát
STEFÁN JÓNSSON
ÍSLANDSFLUG hefur ákveðið að
hefja áætlunarflug að nýju milli
Reykjavíkur og Vestmannaeyja frá 1.
október, þegar Flugfélag Íslands
hættir á þeirri leið sem kunnugt er.
Allt stefnir því í harða samkeppni í
Eyjafluginu því flugfélagið Jórvík
áformar einnig flug þangað frá sama
tíma. Svo gæti farið að ferðir á degi
hverjum verði alls sex talsins hjá fé-
lögunum tveimur. Bæjarráð Vest-
mannaeyja samþykkti ályktun á fundi
sínum í gær þar sem ákvörðun Ís-
landsflugs er fagnað en að sögn Guð-
jóns Hjörleifssonar bæjarstjóra
hvöttu bæjaryfirvöld Íslandsflug til
að koma inn á markaðinn. Efasemdir
voru uppi um að Jórvík væri nógu öfl-
ugt félag til að geta sinnt spurn Eyja-
manna eftir áætlunarflugi. Íslands-
flug hefur náð samkomulagi við
Flugfélag Vestmannaeyja um að
samnýta aðstöðu þess á flugvellinum í
Eyjum. Félagið mun áfram kaupa
þjónustu af Flugfélagi Íslands á
Reykjavíkurflugvelli, líkt og það hef-
ur gert vegna flugs til Bíldudals og
Sauðárkróks.
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsflugs, sagði við
Morgunblaðið að vegna þrýstings frá
bæjaryfirvöldum og fleirum hefði
stjórn félagsins tekið þessa ákvörðun,
auk þess sem viðræður við minni flug-
félög um samstarf í fluginu hefðu ekki
skilað árangri. Íslandsflug ætlar að
fljúga til Eyja alla daga vikunnar, 2–3
ferðir á dag, með 19 sæta Dornier-vél.
Vetraráætlun félagsins á aðra staði,
sem tekur gildi 1. október, er svipuð
því sem verið hefur nema hvað flug til
Sauðárkróks á þriðjudögum verður
fellt niður.
„Íslandsflug hefur áður sinnt flugi
milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur
með góðum árangri og frábærri þjón-
ustu. Það er því gleðiefni að rótgróið
og stöðugt fyrirtæki skuli ætla að
taka að sér þessa nauðsynlegu þjón-
ustu,“ segir ennfremur í ályktun bæj-
arráðsins. Guðjón sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa greint forráða-
mönnum Jórvíkur frá því að félagið
þyrfti að hafa öflugra bakland fjár-
hagslega og betri vélakost þótt 19
sæta vélar væru sagðar á leiðinni.
Ákvörðun Íslandsflugs kemur
Jórvíkurmönnum á óvart
Jón Grétar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Jórvíkur, sagði við
Morgunblaðið að sér kæmi ákvörðun
Íslandsflugs verulega á óvart en fé-
lagið ætlaði hvergi að hvika frá sínum
áformum um flug til Eyja. Vonaðist
Jón Grétar til þess að samkeppnin við
Íslandsflug færi þá fram á jafnrétt-
isgrundvelli.
„Við vitum að samkeppni í innan-
landsflugi er almennt mjög ójöfn,
ekki bara á flugleiðum sem eru boðn-
ar út. Annars trúi ég því ekki að Ís-
landsflug ætli að fljúga til Eyja öðru-
vísi en að fá styrki til þess. Ívilnanir til
flugfélaga undir borðið eru í gangi og
kannski er það að gerast í Eyjum líka.
Ég undrast þessa ákvörðun Íslands-
flugs og við munum skoða þessi mál
nánar,“ sagði Jón Grétar.
Jórvík ætlar að bjóða upp á flug til
Eyja þrisvar á dag alla daga vikunnar
og hefur félagið fest kaup á 19 sæta
flugvélum með jafnþrýstibúnaði af
gerðinni JetStream. Að sögn Jóns
Grétars fást vélarnar hins vegar ekki
afhentar strax og fyrsta mánuðinn
mun Jórvík notast við fjórar minni
vélar í áætlunarflugi til Eyja og Hafn-
ar í Hornafirði, en þangað ætlar Flug-
félag Íslands einnig að hætta flugi 1.
október nk. Þá hefur Jórvík verið í
viðræðum við forráðamenn í ferða-
þjónustu á Húsavík um að hefja þang-
að flug eftir þörfum markaðarins.
Verið er að ganga frá ráðningum í
stöður flugmanna og annars starfs-
fólks sem Jórvík auglýsti nýlega eftir.
Íslandsflug í samkeppni við Jórvík um áætlunarflug til Eyja frá 1. október
Bæjaryfirvöld hvöttu fé-
lagið til að hefja flugið á ný
RÚMLEGA þrjú ár eru síðan
bráðabirgðalög voru síðast sett
á Íslandi. Um helgina setti rík-
isstjórnin bráðabirgðalög til að
leysa þann vanda sem upp var
kominn varðandi tryggingar
flugvéla.
Í maí 1998 gaf ríkisstjórnin
út bráðabirgðalög þar sem efa-
semdir höfðu vaknað um gild-
istöku laga um breytingar á
sveitarstjórnalögum en þær
vörðuðu sveitarstjórnakosn-
ingar.
Voru algengari fyrir 1991
Árið 1994 voru tvívegis gefin
út bráðabirgðalög, annars veg-
ar um lyfjalög og hins vegar
voru sett lög sem bönnuðu
verkfall sjómanna. Árið 1993
voru sett bráðabirgðalög um
efnahagsaðgerðir og árið áður
voru sett bráðabirgðalög um
kjaradóm. Frá 1991, þegar
stjórnarskrá var breytt og
heimild ríkisstjórnar til að gefa
út bráðabirgðalög var þrengd,
hafa því verið gefin út sex
bráðabirgðalög.
Fyrir 1991 var mun algeng-
ara að ríkisstjórnir gæfu út
bráðabirgðalög.
Sett sex
bráða-
birgðalög
á tíu árum
BJÖRGVIN Guðmundsson var end-
urkjörinn formaður Heimdallar, fé-
lags ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, á fjölmennasta aðal-
fundi félagsins frá upphafi í gær-
kvöldi. Þetta var í fyrsta skipti í tólf
ár sem fleiri en einn voru í kjöri til
formanns. Um 700 manns voru á
fundinum en alls greiddu 665 at-
kvæði. Úrslit urðu þau að Björgvin
hlaut 385 atkvæði en Andri Ótt-
arsson hlaut 274 atkvæði.
Morgunblaðið/Þorkell
Formaður
endur-
kjörinn
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sakfelldi í gær karlmann á þrítugs-
aldri fyrir tvö rán og tvær ránstil-
raunir, þ. á m. rán sem hann framdi í
maí sl. í bókabúð Máls og menningar
við Laugaveg í Reykjavík. Hann var
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir
brot sín og skilorðsrof.
Í bókabúð Máls og menningar
réðst ákærði að afgreiðslumanni, tók
hann hálstaki aftan frá, rak odd-
hvassan hlut í hnakka hans og
neyddi hann til að afhenda sér um 21
þúsund krónur úr peningakassa
verslunarinnar.
Héraðsdómur sakfelldi manninn
fyrir ránið í versluninni og einnig
fyrir aðra liði í ákæru ríkissaksókn-
ara. Þar á meðal var tilraun til ráns
þegar maðurinn fór síðar sama dag
og hann framdi ránið í bókaverslun-
inni vopnaður lítilli sög inn í versl-
unina Tiffany’s við Óðinsgötu, réðst
á afgreiðslustúlku og reyndi að
neyða hana til að afhenda sér pen-
inga en hörfaði síðan af vettvangi.
Dæmdur fyrir tvö
rán og skilorðsbrot