Morgunblaðið - 27.09.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Námskeið um Aspergersheilkenni
Veldur félagsleg-
um erfiðleikum
GREININGAR- ográðgjafarstöð ríks-ins stendur fyrir
námskeiði um Aspergers-
heilkenni á morgun og
hefst hún klukkan 9 árdeg-
is og stendur til klukkan
16. Námskeiðið, sem ætlað
er aðstendum og kennur-
um, verður haldið í Gerðu-
bergi og hefur Sigrún
Hjartardóttir verið um-
sjónarmaður undirbúnings
ásamt Evald Sæmundsen
sálfræðingi. Sigrún var
spurð hvað fjalla ætti um á
námskeiðinu.
„Þar verður fjallað um
einhverfurófið og Asp-
ergersheilkenni, með sér-
stakri áherslu á hið síðar-
nefnda.“
– Hvað er einhverfuróf?
„Átt er við einskonar litróf og
eru hinir ýmsu greiningarflokkar
þá litbrigðin og er raðað á rófið eft-
ir vægi og alvarleika þeirrar
þroskaröskunar sem um er að
ræða.“
– Hver á rófinu er Aspergers-
heilkenni?
„Aspergersheilkenni tilheyrir
vægari einhverfueinkennum. Ef
við sjáum rófið fyrir okkur frá
vinstri til hægri þá myndi Asperg-
ersheilkennið vera nokkuð til
hægri.“
– Hvers konar þroskaröskun er
þetta?
„Hún hefur svipuð einkenni og
einhverfa, það sem aðgreinir í
megindráttum er að ekki er um
umtalsverða seinkun í málþroska
að ræða og börn með Aspergers-
heilkenni eru ekki greindarskert.
Þau eiga hins vegar í erfiðleikum
með félagsleg samskipti og fé-
lagslega notkun málsins. Það get-
ur valdið alvarlegum árekstrum og
miklum félagslegum erfiðleikum,
t.d. í skólum.“
– Hvað á að ræða um á ráðstefn-
unni þessu tengt?
„Þar verða Aspergersheilkenni
skilgreind og síðan farið í sögu
þessarar þroskaröskunar, orsakir
hennar og tíðni o.fl. Síðan verður
fjallað um rannsóknarniðurstöður
þar sem greint er frá hvað er sam-
eiginlegt með Aspergersheilkenni
og einhverfu og einnig hvað skilur
þessar þroskaraskanir að. Einnig
verður rætt um mikilvægi þess að
upplýsa einstaklinginn um ástand
sitt, hvenær tímabært er að gera
það og hvaða leiðir er hægt að fara
í því sambandi. Eftir hádegi verð-
ur farið í hin hagnýtari atriði. Þá
verður talað um börn með Asp-
ergersheilkenni í almennum
grunnskóla og hvernig skólarnir
geti komið sem best til móts við
sérþarfir þeirra. Rætt verður um
mismunandi þarfir á mismunandi
skólastigum. Fjallað verður um
ákveðnar leiðir í kennslu varðandi
félagsfærni, svo sem félagshæfni-
sögur. Að lokum verður sagt frá
reynslu annarra þjóða, svo sem
lýsingu á starfsemi þverfaglegs
teymis í Svíþjóð, sem hefur þjónað
m.a. börnum með Aspergersheil-
kenni. Að síðustu mun
einstaklingur með
Aspergersheilkenni
segja frá sinni reynslu
af þessari þroskarösk-
un. Fyrirlestra á nám-
skeiðinu halda auk mín Evald Sæ-
mundsen sálfræðingur, Sólveig
Sigurðardóttir barnalæknir, Sig-
ríður Lóa Jónsdóttir sálfræðingur,
Ásgerður Ólafsdóttir sérkennari
og Laufey Gunnarsdóttir þroska-
þjálfi.“
– Um hvað ræðir þú í þínum fyr-
irlestri?
„Ég mun taka fyrir barnið með
Aspergersheilkenni og skólann og
ganga þá út frá eftirfarandi meg-
inspurningum: Hvernig getur
barnið aðlagast sem best skólan-
um, náms- og félagslega? Og hvaða
forsendur þurfa að vera fyrir
hendi til að það heppnist sem best?
Ég reyni að skýra út hverjir eru
helstu erfiðleikarnir, þ.e. erfiðleik-
ar á hinu félagslega sviði, og benda
á mikilvægi þess að efla þekkingu
kennara, foreldra og annarra á
þörfum þessara einstaklinga.
Fræðslan er aðalatriðið.“
– Hvernig er staða barna með
Aspergersheilkenni innan skóla-
kerfisins núna?
„Hún er mjög slæm og þá eink-
um vegna þess að þessi hópur hef-
ur setið nokkuð á hakanum hvað
varðar þjónustu. Þroskaröskun
þessara barna greinist yfirleitt
seinna en þeirra sem eru með
dæmigerða einhverfu, stór hópur
hefur greinst jafnvel eftir að þau
eru komin inn í grunnskólann. Það
er mjög mikilvægt að skólinn viti
af þessum börnum og sé undirbú-
inn undir komu þeirra, svo að hægt
sé að mæta þörfum þeirra sem
best. Það er ljóst að það þarf að
koma til mun meira fjármagn svo
að hægt sé að sinna eftirfylgd og
ráðgjöf vegna þessara einstak-
linga.“
– Er hægt að lækna þessa
þroskaröskun?
„Nei, það er ekki hægt því hún
er af líffræðilegum toga
en það er hins vegar
hægt að hafa heilmikil
áhrif á vandamál ein-
staklinganna í gegnum
kennslu og þjálfun og
þá sérstaklega hvað varðar hin fé-
lagslegu atriði.“
– Hver er orsök Aspergersheil-
kennis?
„Orsakir Aspergersheilkennis
eru lítt þekktar en einkennin
benda til meðfæddra víðtækra
truflana á starfsemi heilans og nú
er almennt talið að þessi þroska-
röskun eigi sér margar lífræðileg-
ar orsakir.“
Sigrún Hjartardóttir
Sigrún Hjartardóttir fæddist
að Tjörn í Svarfaðardal vorið
1952. Hún lauk leikskólakenn-
araprófi 1973 og fór í sér-
kennsluháskóla í Osló sem hún
lauk prófi frá 1978. Einnig var
hún í starfsþjálfun 1992 í háskól-
anum í Chaperhill í Norður-
Karolínufylki í greiningu og ráð-
gjöf um einhverfu. Hún hefur
starfað sem sérkennari og ráð-
gjafi, mest með börnum og ung-
lingum með einhverfu og Asp-
ergersheilkenni. Frá árinu 1998
hefur hún starfað sem ein-
hverfuráðgjafi hjá Greiningar-
og ráðgjafarstöð ríksins. Sigrún
er gift Jóni Karli Friðriki Geirs-
syni prófessor við HÍ og eiga þau
einn son.
Almenn
fræðsla er
aðalatriðið
Uss, þú bara öfundar okkur af því að við erum fagmenn, Lúlli minn.
JÓAKIM Danaprins og Alexandra
prinsessa fóru í skoðunarferð um
Reykjavík í gær, á öðrum degi
heimsóknar í boði forseta Íslands.
Þau heimsóttu Stofnun Árna Magn-
ússonar, Listasafn Íslands og Lista-
safn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu.
Þá snæddu þau hádegisverð í
veitingahúsinu Apótekinu þar sem
íslenskir fatahönnuðir kynntu verk
sín. Á myndinni til vinstri koma þau
til hádegisverðarins ásamt Ólafi
Ragnari Grímssyni forseta Íslands
og Dorrit Mousaieff, heitkonu hans.
Síðdegis kynntu þau sér starf-
semi fyrirtækjanna Íslenskrar
erfðagreiningar og Össurar hf.
Myndin til hægri er tekin í bæki-
stöðvum Íslenskrar erfðagrein-
ingar og er Kári Stefánsson, for-
stjóri ÍE, með gestunum á
myndinni.
Í dag fara þau í skoðunarferð um
Suðurland. Þau munu m.a. snæða
hádegisverð með Davíð Oddssyni
forsætisráðherra og konu hans á
Þingvöllum. Heimsókn þeirra lýkur
á laugardag.
Morgunblaðið/Kristinn
Danskir
gestir í
skoðunar-
ferð um
borgina
Morgunblaðið/Golli