Morgunblaðið - 27.09.2001, Síða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
sonar sem er í leyfi frá störfum.
Hún sagði það tilviljun að þessi
staða væri uppi hjá dómnum að
konur væru þar eingöngu við störf.
Hins vegar ætti konum örugglega
eftir að fjölga verulega í dóm-
arastétt. Það væri eðlileg afleiðing
þess að konur sæktu í æ ríkari mæli
nám við lagadeild Háskólans og
taldi að jafnmargar konur og
ALLAR stöður Héraðsdóms Suður-
lands eru um þessar mundir skip-
aðar konum og verður svo fram á
næsta sumar. Hjá dómnum eru
fimm starfsmenn, dómstjóri, dóm-
ari, löglærður aðstoðarmaður dóm-
ara og tveir dómritarar.
Ingveldur Einarsdóttir verður
sett dómstjóri frá 1. október nk. í
fjarveru Ólafs Barkar Þorvalds-
karlar stunduðu þar nú nám.
Á myndinni eru konurnar fimm
sem eru starfandi við Héraðsdóm
Suðurlands. Ingveldur Einarsdóttir
héraðsdómari , Þorgerður Erlends-
dóttir settur héraðsdómari, Ragn-
heiður Thorlacius aðstoðarmaður
dómara, Elín Arnoldsdóttir dómrit-
ari og Guðrún Sveinsdóttir dómrit-
ari.
Konur í öllum stöðum dómsins
Morgunblaðið/Sig. Jónss.
Selfossi. Morgunblaðið.
LYFJASTOFNUN og Hollustu-
vernd ríkisins hafa í sameiginlegri yf-
irlýsingu gert athugasemd við aug-
lýsingar íslenska fyrirtækisins
Ensímtækni á húðáburðinum Penzím
og telja þær ólögmætar þar sem bent
sé á lækningamátt efnisins í auglýs-
ingum og kynningum til neytenda.
Ágreiningur milli þessara aðila um
skilgreiningu á vörunni hefur staðið
yfir í tæpt ár. Jón Bragi Bjarnason,
prófessor og eigandi Ensímtækni,
mótmælir því harðlega að fyrirtækið
hafi bent á lækningamátt áburðarins
og undrast yfirlýsingu stofnananna.
Sigurbjörg Gísladóttir, forstöðu-
maður eiturefna- og hollustuverndar-
sviðs hjá Hollustuvernd, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að stöðvun á
dreifingu eða kynningu vörunnar sé
meðal þeirra leiða sem stofnanirnar
séu að skoða í samráði við lögfræð-
inga, þar sem ekki hafi verið orðið
með fullnægjandi hætti við tilmælum
þeirra. Kynning á vörunni brjóti í öllu
falli gegn reglugerð um snyrtivörur.
Í yfirlýsingunni segja Lyfjastofn-
un og Hollustuvernd að engin vís-
indaleg gögn hafi borist þeim sem
sýna fram á virkni húðáburðarins
gegn sjúkdómum eða einkennum
þeirra. Samkvæmt bréfi Ensímtækni
til Lyfjastofnunar sé áburðurinn
snyrtivara og því sé ólöglegt að full-
yrða um lækningamátt efnisins í
beinum eða óbeinum auglýsingum til
neytenda.
Síðan segir í yfirlýsingunni:
,,Lyfjastofnun hefur ítrekað bent
framleiðandanum á ólögmæti þess-
ara auglýsinga. Hið sama gildir um
reynslusögur einstaklinga um lækn-
ingamátt vörunnar sem eru birtar á
vegum framleiðandans í auglýsinga-
skyni. Lyfjastofnun er kunnugt um
dæmi þess að tafir hafi orðið á að
sjúklingar hafi fengið rétta meðferð
vegna villandi upplýsinga um áhrif
Penzíms. Stofnanirnar vilja einnig
benda á að notkun áburðar á opin sár,
brunasár eða slímhúð (t.d. vegna
sveppasýkingar) getur verið varasöm
og meðal annars valdið ígerð, ef
áburðurinn uppfyllir ekki ströngustu
gæðastaðla um framleiðslu. Lyfja-
stofnun og Hollustuvernd ríkisins
vekja athygli á að notkun villandi
upplýsinga í auglýsingum til að auka
sölu á snyrtivöru getur verið skað-
leg.“
Pétur Gunnarsson, sviðsstjóri upp-
lýsingasviðs hjá Lyfjastofnun, segir
Ensímtækni hafa fengið áminningu
en fyrirtækið hefði sinn andmæla-
rétt. Búið sé að benda ítrekað á að
ekki megi mæla með snyrtivörunni
við notkun gegn sjúkdómum. Að sögn
Péturs er ætlunin að senda ítarlegri
orðsendingu til allra lyfjaverslana í
landinu. Þær beri einnig ábyrgð í
málinu með því að mæla jafnvel með
snyrtivörunni í lækningaskyni.
„Við viljum ekki stöðva jafn ágætt
sprotafyrirtæki og Ensímtækni er,
fullur vilji er til þess að leysa málið.
Menn verða bara að læra að spila eft-
ir þeim leikreglum sem gilda þegar
komið er inn á þennan markað. Við
gætum þess vegna komist að þeirri
niðurstöðu að skilgreina áburðinn
sem lyf en þá yrði sala hans líka
stöðvuð samdægurs og sækja þyrfti
um leyfi upp á nýtt. Við teljum að
hægt sé að finna aðra lausn,“ segir
Pétur.
Upplýsingar fjarlægðar af
umbúðum og bæklingum
Jón Bragi Bjarnason hjá Ensím-
tækni segir engin áform uppi að svo
stöddu um að fá Penzím skráð sem
lyf. Til þess þurfi frekari læknis-
fræðilegar rannsóknir sem kosti gríð-
arlegar fjárhæðir. Hann segir yfirlýs-
inguna koma sér spánskt fyrir sjónir
þar sem Ensímtækni hafi verið í sam-
ráði við Lyfjastofnun. Fyrirtækið
hafi orðið við óskum um að fjarlægja
vissar upplýsingar af umbúðum og
kynningarbæklingum, sem Jón Bragi
segir að séu sannar niðurstöður úr
rannsóknum á tilraunastofu.
,,Við erum ekki að selja húðáburð-
inn sem lyf heldur bendum fólki að-
eins á að til greina komi að nota
áburðinn á ýmsa vegu. Við höfum
hvorki leyfi né vilja til að selja vöruna
sem lyf en vitum um fjölmörg dæmi
þess að áburðurinn hafi komið fólki til
góða sem ekki hefur náð bata af sín-
um kvillum með öðrum hætti. Lyfja-
stofnun gerði athugasemdir við um-
sagnir einstaklinga í okkar
kynningarbæklingi og kærði til Sam-
keppnisstofnunar síðastliðið vor.
Stofnunin hefur svo nýlega komist að
þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til
að gera athugasemdir. Því kemur
eitthvert upphlaup núna hjá Lyfja-
stofnun og Hollustuvernd mér algjör-
lega í opna skjöldu,“ segir Jón Bragi.
Aðspurður um lausn á deilunni
segir hann það möguleika að fyrir-
tækið hætti að auglýsa vöruna, ef það
auki hugarró Lyfjastofnunar. Einnig
megi láta á það reyna fyrir dómstól-
um hvort hér sé rétt eða rangt að far-
ið.
Lyfjastofnun og Hollustuvernd telja auglýsingar á íslenskum húðáburði ólögmætar
Stöðvun á dreifingu
vörunnar til skoðunar
UNDANFARNAR vikur hefur
jörð skolfið á Kötlusvæðinu, eink-
um undir suðvesturhorni Mýrdals-
jökuls, þar sem kölluð er Goða-
bunga. Skjálfti rétt undir þremur
á Richter mældist í Goðabungu að-
faranótt miðvikudags en flestir
skjálftanna hingað til hafa verið
tveir á Richter eða minni.
Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur segir að hér sé
árstíðabundin skjálftavirkni að
hefjast.
„Skjálftavirknin eykst jafnan í
Goðabungu á haustin. Við köllum
þetta hausthrinur og byrjuðu þær
um miðjan júlí en hafa verið að
aukast,“ segir Ragnar. „Þetta
tengist því þegar snjófargi léttir af
jöklinum þegar líður á sumarið og
fram eftir hausti. Þá breytist
snjórinn í vatn og rennur af jökl-
inum.“
Skýringin á þessari virkni er að
sögn Ragnars sennilega tengd
vökvaþrýstingi undir jöklinum.
Þegar bráðnun jökulsins verði sem
mest fari bræðsluvatnið niður í
gegnum jökulinn og niður í jarð-
skorpuna en þar vaxi þrýstingur í
berginu. Þetta ferli valdi að vísu
ekki skjálftum, eftir sem áður sé
það eldstöðin sjálf sem geri það, en
það hleypi þó að öllum líkindum
skjálftunum af stað.
„Við höfum ekki orðið vör við
þetta annars staðar og aðalástæða
fyrir þessu er ekki að farginu léttir
af. Grundvallarástæðan er sú að
það er kvika þarna undir á frekar
litlu dýpi og þegar þrýstingurinn
breytist á fjallinu þá þenst kvikan
út og sprengir sig inn í glufur og
sprungur í berginu,“ segir Ragn-
ar.
Skjálftavirkni í Goðabungu var
óvenjumikil í september í fyrra og
mældust þar nær tvö hundruð
skjálftar, flestir á bilinu tveir til
þrír á Richter og var það mesta
virkni á svæðinu í um áratug. Í
septembermánuði árið 1999 mæld-
ust hins vegar ekki nema um 30
skjálftar á þessu svæði en það sem
af er hrinunni nú hafa færri en
tuttugu mælst.
Ragnar segir að almennt dragi
mjög skart aftur úr skjálftavirkni
þarna snemma í desember, en þá
hafi snjóað og farg á jöklinum auk-
ist aftur. Hann segir einnig að þó
að bráðnunin í jöklinum veki upp
þessar hræringar sé hún ekki aðal-
orsök þeirra.
Ragnar segist telja að aðstæður
þarna myndu breytast verulega
áður en búast mætti við gosi.
„Maður sér engin merki þess nú að
kvikan sé á leiðinni upp. Það er því
síður von á gosi á þessum slóðum.
Maður býst frekar við gosi á sjálfu
Kötlusvæðinu og það er allt frekar
rólegt þar. En þessi aukning núna
gerir það að verkum að við þurfum
að vera vel á verði. Við höfum verið
með sérstakan viðbúnað á þessu
svæði síðustu ár vegna þess að við
erum ekkert viss um að Katla geri
boð á undan sér og alveg eins lík-
legt að viðvörunartími verði ekki
langur. Við fylgjumst því sérstak-
lega með Kötlusvæðinu, bæði með
jarðskjálftamælingum auk þess
sem fylgst er með vatnavöxtum og
hvort leiðni er í ánum, þ.e. hvort
mikið jarðhitavatn er í þeim. Það
má því segja að þó að allt sé rólegt
núna þá hafa þær hræringar sem
orðið hafa þarna á síðustu árum
gert það að verkum að sérstök
ástæða er til eftirlits,“ segir Ragn-
ar.
Hægt að vara við stórgosi og
-hlaupi með fyrirvara
Mjög rólegt hefur verið við
Kötlu sjálfa upp á síðkastið en allt-
af þó einhverjir smáskjálftar.
Hættan við Kötlugos er að sögn
Ragnars þau gífurlegu hlaup sem
geta komið í kjölfar goss og farið
yfir Mýrdalssand. „Það er því
mjög mikilvægt að geta varað við
þeim, sérstaklega hvað varðar um-
ferð á þessu svæði,“ segir Ragnar.
Hann telur þó enga ástæðu til þess
nú enda telji vísindamenn að jarð-
hreyfingar verði undanfari stór-
goss og stórhlaups og því verði
hægt að vara við slíku með nokk-
urra klukkutíma fyrirvara.
Viðbúnaðarstig hefur stundum
verið sett á svæðinu undir Mýr-
dalsjökli þegar miklar jarðhrær-
ingar hafa verið. Ákvörðun þar að
lútandi er ávallt tekin á fundi al-
mannavarnanefndar Mýrdals-
hrepps að höfðu samráði við jarð-
vísindamenn. Þegar til slíks kemur
er notast við sérstakt almanna-
varnakerfi í tengslum við umbrot á
Kötlusvæðinu. Skiptist það í þrjú
stig; viðbúnaðarstig, hættustig og
neyðarstig.
Stór skjálfti
í Goðabungu
Jarðhræringar undir Mýrdalsjökli
ÚRSKURÐARNEFND um upplýs-
ingamál hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að dómsmálaráðuneytinu
beri að veita Jóhönnu Sigurðardóttur
alþingismanni umbeðinn aðgang að
fjárlagatillögum lögreglustjórans í
Reykjavík fyrir árin 2000 og 2001,
ásamt gögnum og rökstuðningi er
þeim fylgdu. Ráðuneytið hafði synjað
þingmanninum um gögnin og kærði
Jóhanna þá niðurstöðu til úrskurðar-
nefndarinnar.
Jóhanna leitaði eftir því með tölvu-
bréfi nefndasviðs Alþingis til dóms-
málaráðuneytisins 23. júní sl. að fá að-
gang að fjárlagatillögunum. Eftir
ítrekun fékk þingmaðurinn svo svar
9. ágúst þar sem beiðninni var hafnað,
að fenginni umsögn frá fjármálaráðu-
neytinu. Var litið svo á að um vinnu-
skjöl væri að ræða sem tengdust fjár-
lagabeiðnum einstakra stofnana og
væru þar með undanþegin ákvæðum í
upplýsingalögum. Fjármálaráðuneyt-
ið taldi að það gæti unnið gegn grunn-
hugsuninni að baki ramma fjárlaga-
gerðar ef fjárlagabeiðnir einstakra
stofnana yrðu opinber plögg.
Jóhanna sætti sig ekki við þessi
svör í kæru til úrskurðarnefndar um
upplýsingamál og taldi að aðgangur
að gögnunum væri til þess fallinn að
stuðla að opinni og gagnrýnni um-
ræðu um fjárþörf einstakra stofnana
og stuðlaði að auki að vandaðri til-
lögusmíð frá stofnunum ríkisins.
Í niðurstöðu sinni bendir úrskurð-
arnefndin á að gögn sem séu send frá
einu stjórnvaldi til annars teljist ekki
vinnuskjöl og óumdeilt hafi embætti
lögreglustjóra sent dómsmálaráðu-
neytinu tillögurnar. Úrskurðarnefnd-
in bendir einnig á að Alþingi og stofn-
anir þess falli utan gildissviðs
upplýsingalaga og því sé til að dreifa
þegar alþingismaður óski eftir upp-
lýsingum frá einstökum ráðherrum
og ráðuneytum þeirra innan vébanda
Alþingis, til dæmis í formi fyrirspurn-
ar. Hins vegar sé ekkert því til fyr-
irstöðu að alþingismaður óski eftir að-
gangi að gögnum hjá stjórnvöldum,
þ.á m. ráðuneytum, á grundvelli upp-
lýsingalaga eins og hver annar.
Er það niðurstaða úrskurðarnefnd-
arinnar, sem í sitja Eiríkur Tómas-
son, Elín Hirst og Valtýr Sigurðsson,
að ráðuneytinu beri að verða við ósk
þingmannsins. Í því skipti einnig máli
að um sé að ræða gögn sem varða
undirbúning að gerð frumvarpa til
fjárlaga sem hafa verið lögð fram og
samþykkt á Alþingi.
Fjárlagatillögur lögreglustjórans í Reykjavík
Ráðuneyti ber að
veita umbeðin gögn