Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 11 BREIÐDALSÁ endar líklega með milli 230 og 240 laxa sam- kvæmt mati Þrastar Elliðasonar, en ánni verður lokað nú um helgina. Þröstur sagði um 230 laxa komna á land, en lítið hefði verið reynt að veiða allra síðustu daga. „Menn sjá þó nokkuð af laxi. Ég hefði viljað sjá hærri tölur, en þetta er samt mun betri útkoma en síðustu sumur, alveg hundrað löxum meira en t.d. í fyrra. Þetta er vonandi allt í áttina og e.t.v. verður næsta sumar enn betra. Sjóbleikjuveiðin hefur líka verið mjög góð. Hún byrjaði mjög snemma, var góð strax í júní og það hafa verið fjölmörg frábær skot,“ bætti Þröstur við. Vopnafjörðurinn sterkur Veiði er lokið í laxveiðiám Vopnafjarðar og var útkoman mjög góð. Betri veiði var í Hofsá og Vesturdalsá en í fyrra, í Hofsá veiddust milli 910 og 920 laxar, en í fyrra veiddust í ánni 803 laxar. Vesturdalsá var með um 230 laxa sem er mun betri útkoma en í fyrra. Selá var ögn lakari, með 1110 laxa á móti 1360 löxum í fyrra, en talan sú þótti afburðargóð og 1110 laxar þykir vera mjög góð útkoma í Selá. Svo virðist sem nokkuð gott hlutfall stórlaxa hafi verið í aflan- um. Stórir urriðar í Ytri-Rangá Þröstur Elliðason sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þrátt fyr- ir metlaxveiði í Ytri-Rangá í sum- ar hefði veiði á urriða í efsta hluta árinnar verið með besta móti. „Það gengu um þúsund laxar upp fyrir Árbæjarfoss samkvæmt telj- ara og það varð til þess að fleiri vanir menn fóru upp fyrir og reyndu kannski víðar og betur en áður. Það skilaði sér í þokkalegri laxveiði og einnig veiddust fleiri boltaurriðar heldur en veiðst hafa nokkuð lengi,“ sagði Þröstur. Hann bætti við að botninn virist hafa dottið úr sjóbirtingsveiðinni í Ytri-Rangá í bili, hins vegar yrði enginn sjóbirtingstími til 10. októ- ber þetta árið, menn yrðu af illri nauðsyn að einbeita sér alfarið að því að ná laxi í klak strax eftir mánaðamótin. „Það kemur því ekki til með að breyta neinu í veið- inni hvort hann skilar sér eða ekki. Birtingsveiðin var annars óvenjugóð lengi framan af sumri, en einhverra hluta vegna hefur hún fjarað út,“ bætti Þröstur við. Mun betri veiði í Breiðdalsá Þessi gríðarlega fallega 5 punda sjóbleikja veiddist ný- verið í Brunná í Öxarfirði. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? RÍKISSAKSÓKNARI krafðist þess í gær að Hlynur Freyr Vigfússon, varaformaður Félags íslenskra þjóð- ernissinna, sem ákærður er fyrir ummæli sín í DV í febrúar sl., yrði dæmdur til refsingar í héraðsdómi. Verjandi ákærða krafðist hins vegar aðallega sýknu og furðaði sig á ákærunni. Hlynur sætir ákæru fyrir að ráð- ast opinberlega með háði, rógi og smánun á hóp ónafngreindra manna vegna þjóðernis, litarháttar og kyn- þáttar þeirra. Hann sagði m.a. í við- talinu við DV, að ekki þyrfti snilling eða erfðafræðivísindamann til að sýna fram á hver munurinn væri á afríkunegra með prik í hönd og Ís- lendingi. Vestrænar þjóðir vor- kenndu Afríkubúum sem gætu þó framleitt sex sinnum meira af mat en þeir þyrftu ef þeir nenntu. Svipuð ummæli refsiverð í Danmörku Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur að loknum munnlegum málflutningi í gær. Sigríður Frið- jónsdóttir, fulltrúi ríkissaksóknara, telur brot Hlyns varða við 233. gr. a. almennra hegningarlaga og kom fram í sóknarræðu hennar, að ekki hefur reynt á þetta lagaákvæði fyrir dómstólum hérlendis. Því eru ekki dómafordæmi í slíkum málum hér- lendis, en hún benti á að í Danmörku hefðu dómstólar sakfellt sakborn- inga fyrir svipuð ummæli og þau sem Hlynur viðhafði. Sækjandi sagði að með því að líða ummæli Hlyns í DV yrði stuðlað að því að slíkar skoðanir yrðu viður- kenndar, sem gæti leitt til upplausn- ar í samfélaginu. Hún benti á að 70 þúsund tilvik í Bretlandi, allt frá eignaskemmdum til alvarlegra af- brota, væru rakin til kynþáttafor- dóma og nauðsynlegt væri að hefta málflutning kynþáttahatara. Í þessu ljósi væri réttlætanlegt að skerða tjáningarfrelsi fólks enda væru þær skorður í þágu réttinda og mannorðs annarra. Örn Clausen, verjandi ákærða, sagðist í varnarræðu sinni vera furðu lostinn yfir því að ákæruvaldið skyldi rjúka upp í „taugaveiklun“ með því að ákæra út af ummælum Hlyns. Hann sagði að með ummæl- um sínum hefði Hlynur ekki gengið of langt í að svara spurningum blaða- manns DV og að ummælin væru ekki nógu „krassandi“ til að geta talist refsiverð. Hann sagði að fara ætti varlega í að skerða tjáningarfrelsi fólks og ítrekaði að Hlynur hefði ver- ið að lýsa því sem hann sá í sjón- varpsþættinum „Heimsálfan sem svaf yfir sig“ á RÚV. Ummæli hans hefðu ekki verið til þess fallin að æsa fólk upp hvert gegn öðru. Örn sagði að bíða þyrfti eftir gleggra dæmi um kynþáttahatur, en saksóknari taldi þvert á móti enga ástæðu til þess enda þyrfti að taka strax í taumana áður en ofbeldi færi að fylgja við- horfum sem styðja kynþáttahatur. Hjördís Hákonardóttir héraðs- dómari kveður upp dóm í málinu 17. október. Krafist refs- ingar yfir þjóðernissinna MEÐLIMIR Falun Gong hreyfing- arinnar ganga nú víða um heim til að vekja athygli á þeim ofsókn- um sem meðlimir Falun Gong þurfa að sæta í Kína um þessar mundir. Gengið er víða um lönd, m.a. í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Japan og víða í löndum Evrópu og kallast gangan „Global Rescue Walk“. Þrír meðlimir Fal- un Gong af kínverskum uppruna, sem búsettir eru í Boston í Bandaríkjunum, hófu í gær hér á landi göngu þar sem ætlunin er að ganga 3.500 kílómetra í ýms- um löndum næstu fjóra mán- uðina. Athygli vak- in á ofsókn- um í Kína Morgunblaðið/Ásdís KANADÍSKA móðirin og látið barn hennar á sjötta aldursári sem komu með farþegaflugvél British Airways til landsins í fyrradag voru í gær send með Flugleiðavél til Halifax í Kan- ada en þar munu ættingjar konunnar taka á móti henni og fylgja henni til Toronto. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær lenti far- þegavél frá British Airways, sem var í áætlunarflugi frá Lundúnum til Toronto, á Kefla- víkurflugvelli í fyrradag með móðurina og barnið sem hafði látist á leiðinni. Fjórir læknar meðal farþega Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu á Kefla- víkurflugvelli voru móðirin og barnið að koma úr fríi frá Afr- íkuríkinu Ghana en talið er að barnið hafi veikst þar og látist síðan af völdum sjúkdómsins á leiðinni heim. Sigfús B. Ingva- son, sóknarprestur í Reykja- nesbæ, fylgdi móðurinni til Kanada. Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu voru á fjórða hundrað farþegar með flugvél British Airways þegar barnið lést og þar á meðal voru fjórir læknar. Þeir gátu veitt barninu aðhlynningu þegar því fór að hraka á leiðinni en allt kom fyrir ekki. Farin af landi brott TÍSKUDAGAR hefjast í Kringlunni í dag og standa fram til 30. septem- ber. Í fréttatilkynningu frá Kringl- unni segir að tískudagarnir hefjist með tískusýningu klukkan 20:30 og er um að ræða eina stærstu tísku- sýningu sem haldin hefur verið hér á landi. Alls munu 23 verslanir í Kringlunni sýna haust- og vetrar- tískuna. Tískusýning Kringlunnar verður haldin í Borgarleikhúsinu þar sem blandað verður saman tísku, tónlist, leik- og danslist með nýstárlegum hætti eins og segir í fréttatilkynn- ingu. Á tískudögum verður síðan það nýjasta í haust- og vetrartískunni á boðstólum í öllum fata- og skóversl- unum Kringlunnar sem og það nýj- asta í snyrtivörum og rafmagnstækj- um. Tískudagar í Kringlunni vill ekki fara nákvæmlega út í kröfur sjúkraliða en segir að þess sé m.a. krafist að byrjunarlaun sjúkraliða verði við lok samningatímabilsins – árið 2004 eða 2005 – um 150 þúsund krónur á mánuði. Nú séu þessi byrj- unarlaun um 89 þúsund krónur á mánuði. Innt eftir því hvort viðsemjendur þeirra hafi eitthvað komið til móts við þessar kröfur segir hún svo ekki vera. „Við höfum í raun fengið fáránleg til- boð miðað við það sem aðrar stéttir hafa fengið,“ segir hún og vísar m.a. til þess að lögreglumenn hafi fengið að meðaltali um 40% hækkun launa sinna í sínum kjarasamningum. Kristín bendir á að kjarasamning- ar sjúkraliða hafi runnið út um mán- aðamótin október/nóvember á síðasta ári. Þrátt fyrir það hafi samninga- nefndir sjúkraliða ekki verið kallaðar á samningafund fyrr en málinu hafi verið vísað til Ríkissáttasemjara, í byrjun apríl sl. „Það er ekki fyrr en við erum búin að vísa málinu til rík- issáttasemjara að boðað er til fyrsta fundarins sem var haldinn í apríl.“ Samningar ganga erfiðlega Kristín segir að í sumar hafi lítið miðað áfram í deilunni og af þeim sökum séu sjúkraliðar nú orðnir vantrúaðir á að deilan leysist nema með verkfallsaðgerðum. Hún segir að það hafi verið fundað stíft að undan- förnu sem beri e.t.v. vott um að vilji sé fyrir hendi af hálfu viðsemjend- anna að leysa deiluna en þó hafi ekki komið fram nein gagntilboð við kröf- um sjúkraliða sem sátt geti náðst um. Gunnar Björnsson, fulltrúi í samn- UM 250 sjúkraliðar mættu á almenn- an félagsfund Sjúkraliðafélags Ís- lands í gær að sögn Kristínar Á. Guð- mundsdóttur, formanns félagsins, en á fundinum kom að sögn Kristínar fram mikill stuðningur við kjarabar- áttu forsvarsmanna félagsins. „Það var mikilll stuðningur við það sem kjaranefnd félagsins er að gera,“ sagði Kristín í samtali við Morgun- blaðið eftir fundinn. Enn ber mikið í milli í kjaradeilu sjúkraliða og viðsemjenda þeirra, þ.e. ríkisins, Reykjavíkurborgar, sveitar- félaga og sjálfseignarstofnana. Samninganefndir sjúkraliða funduðu í fyrradag með samninganefnd rík- isins annars vegar og samninganefnd sjálfseignarstofnana hins vegar en án árangurs og sömuleiðis báru fundir fyrr í vikunni með samninganefnd launanefndar sveitarfélaga engan ár- angur. Takist ekki að leysa deiluna fyrir mánaðamótin hefjast þrjú þriggja daga verkföll um átta hundruð sjúkraliða sem starfa hjá sjúkrahús- um og heilsugæslustöðvum víða um land en auk þess taka í gildi um eitt hundrað uppsagnir sjúkraliða hjá rík- inu. Næsti fundur í deilunni við ríkið hefur verið boðaður í dag en að sögn Kristínar stranda samningaviðræður nú aðallega á launalið samningsins. 150 þúsund kr. byrjunarlaun Aðspurð um kröfur sjúkraliða seg- ir Kristín að þeir krefjist þess m.a. að fá „leiðréttingu launa sinna í sam- ræmi við það launaskrið sem orðið hafi hjá öðrum stéttum, til að mynda hjá lögreglunni og tollvörðum.“ Hún inganefnd ríkisins, segir eins og Kristín að enn beri mikið í milli í kjaradeilu sjúkraliða og ríkisins. Þeg- ar Gunnar er inntur eftir helstu ágreiningsatriðum segir hann: „Kröf- ur sjúkraliða eru að lágmarki 55% launahækkun strax. Það er ljóst að við getum ekki orðið við þeim kröfum í ljósi þeirra samninga sem við höfum þegar gert við aðrar stéttir.“ Gunnar bætir því við að sjúkraliðar séu eina stéttarfélagið sem ríkið eigi eftir að semja við en ítrekar að ekki sé hægt að verða við kröfum þeirra þar sem samið hafi verið um allt aðrar tölur við aðrar stéttir sem starfa hjá ríkinu. „Samningar við sjúkraliða ganga því miður mjög erfiðlega miðað við að samningar eru búnir að vera lausir í nær ár,“ bætir hann við. Inntur eftir því hvort hann sé þó þrátt fyrir allt bjartsýnn á að samn- ingar náist fyrir mánaðamót segist hann vera það. „Maður verður að vera það. Það verður reynt til þraut- ar.“ Enn enginn úrskurður Eins og kunnugt er hefur Sjúkra- liðafélag Íslands sent kæru til Kæru- nefndar jafnréttismála þar sem leitað er álits á hvort ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla hafi verið brotin við ákvörðun launa til handa félagsmönnum. Hefur Kristín Á. Guðmundsdóttir m.a. bent á í því sambandi að lögreglumenn og tollverðir, sem séu karlastéttir, njóti betri kjara en sjúkraliðar sem séu að miklu leyti kvennastétt. Að sögn Kristínar hefur kærunefndin enn ekki úrskurðað í því kærumáli. Um 250 manns mættu á almennan félagsfund sjúkraliða Styður aðgerðir kjaranefndar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.