Morgunblaðið - 27.09.2001, Page 18

Morgunblaðið - 27.09.2001, Page 18
SUÐURNES 18 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                                ÞEGAR opnuð verður sýning á skipaflota Gríms Karlssonar í Duus- húsunum í Keflavík verður um leið veitt innsýn í líf og starf sjómanna. Byggðasafn Suðurnesja er byrjað að undirbúa þá sýningu. Reykjanesbær á Duus-húsin og standa yfir viðgerðir á þeim. Byggðasafn Suðurnesja sem er í eigu Reykjanesbæjar fær húsin til afnota. Bærinn hefur eignast báta- líkön Gríms Karlssonar og verður opnuð sýning á þeim í vor, vænt- anlega 1. maí. Sigrún Ásta Jóns- dóttir, forstöðumaður Byggðasafns- ins, segir að á einum stórum vegg í þessum sal verði myndir, frásagnir og fróðleiksmolar um líf og starf sjó- manna, einkum um borð í skipunum. Ætlunin sé að fara inn í hafnir og í vita, en helst ekki lengra inn í land- ið, og skapa þessari sýningu sér- stöðu með því móti. Skipin sem líkönin eru af eru flest frá því um miðbik síðustu aldar en þar eru einnig eldri skip, þau elstu frá lokum nítjándu aldar. Ætlunin er að huga sérstaklega að þeim tíma við uppsetningu sjómannasýning- arinnar. Starfsfólk Byggðasafnsins og ráð- gjafar á vegum þess eru byrjaðir að viða að sér efni á sýninguna. Sigrún Ásta segist hafa áhuga á að komast í samband við sjómenn, fá upplýs- ingar eða myndir frá þeim sjálfum, til þess að sýna hvernig líf sjómanna er í raun og veru. Unnið að skráningu Starfsmenn Byggðasafnsins nota vetrarmánuðina einnig til að sinna því óendanlega verkefni að skrá muni safnsins og myndir. Sigrún Ásta segir að talsvert sé eftir að skrá og að koma þeim skráning- argögnum sem til eru í einn sam- ræmdan gagnagrunn. Byggðasafnið er í húsinu Vatns- nesi í Keflavík. Þar er hefðbundið byggðasafn og er opin sýning á munum safnsins. Vegna þess hversu húsið er lítið og mikið til af munum hefur vinnuaðstaða ekki verið nógu góð en heldur hefur rýmkast við það að skjöl safnsins voru flutt í skjala- geymslu Reykjanesbæjar. Ekki hefur verið ákveðið hvernig starfsemin verður í Vatnsnesi eftir að Byggðasafnið fær nýja sýning- arsali í Duus-húsunum. Hún segir raunar að meta þurfi heildstætt starfsemina í öllum menningar- húsum Reykjanesbæjar. Poppminjasafn og herminjasafn Sigrún Ásta segir að þótt Byggða- safn Suðurnesja verði áfram al- mennt byggðasafn sé mikilvægt að það geti líka verið landssafn á ákveðnum sviðum. Nýta verði vel dýrmætt geymslupláss í söfnum landins með því að skipta verkum milli þeirra, móta söfnunarstefnu hvers einasta safns í landinu. Þetta eigi ekki síst við um muni frá 20. öld- inni. Sýning á líkönum Gríms Karls- sonar og sjómannasýningin er fyrsti liðurinn í því að gera landssafn. Poppminjasafn Íslands verður vænt- anlega næsta verkefnið. Sýningu með því heiti var komið upp á veit- ingastaðnum Glóðinni í Keflavík og fékk Byggðasafnið munina til varð- veislu þegar sýningin var tekin nið- ur. Á þessari sýningu var mest af munum frá svæðinu en eins og nafn- ið bendir til er markið sett hærra. Sigrún Ásta vonast til að hægt verði að safna fleiri munum og setja upp veglega sýningu á poppminjum af öllu landinu, frá Hljómum til okkar daga, í sal sem er við hliðina á báta- líkanasýningunni. Hún segir einnig eðlilegt að her- minjasafni verði komið upp á Suð- urnesjum. Það yrði að vera sam- vinnuverkefni fleiri sveitarfélaga og krefðist samvinnu við varnarliðið. Segir Sigrún Ásta að vilji sé til að varðveita þessa sögu en eftir sé að ræða fyrirkomulagið, hvort þetta verði sjálfstætt safn eða hluti af þeim söfnum sem fyrir eru. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Magnús Jónsson og Sigrún Ásta Jónsdóttir vinna að skráningu muna Byggðasafns Suðurnesja í Vatnsnesi. Reykjanesbær Safna munum fyrir sjómannasýningu „VIÐ erum búnir að koma okkar sjónarmiðum á framfæri. Ríkisvaldið veit af áhyggjum okkur Suðurnesja- manna vegna þessa máls,“ segir Skúli Þ. Skúlason, formaður Sam- bands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS), eftir fund stjórnarinnar með iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Stjórn SSS lagði nokkrar spurn- ingar fyrir iðnaðar- og viðskiptaráð- herra og óskaði eftir fundi með hon- um í kjölfar útgáfu nýs byggðakorts þar sem fjögur sveitarfélög á Suð- urnesjum lenda undan þess svæðis sem heimilt verður að styðja með byggðastyrkjum til fyrirtækja. Skúli segir að það hafi komið fram á fundinum með Valgerði Sverris- dóttur og embættismönnum að ráðu- neytið hafi lagt til að miðað yrði við landsbyggðarkjördæmin og höfuð- borgarkjördæmin við skiptingu landsins en ESA ekki fallist á það vegna þéttleika byggðar í sveitar- félögunum á Suðurnesjum. Þá segir hann að komið hefði fram hjá ráð- herra að breytingin ætti ekki að hafa áhrif á samstarf Byggðastofnunar og Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar um atvinnuþróun á Suðurnesjum eða þátttöku Byggða- stofnunar í Eignarhaldsfélagi Suð- urnesja. Hafa áhyggjur „Óneitanlega hef ég áhyggjur af því, þegar litið er lengra fram í tím- ann, að Byggðastofnun, sem ekki hefur úr miklum peningum úr að spila, noti þetta sem ástæðu til að líta framhjá Suðurnesjum. Það er erfitt að tryggja slíkt núna en við erum búnir að koma okkar sjónarmiðum á framfæri,“ segir Skúli. Ríkið veit af áhyggjum okkar Suðurnes STOFNANIR, fyrirtæki og félög í Reykjanesbæ eru aðilar að norrænu samstarfsverkefni sem miðar að því að efla verslun og þjónustu á svæð- inu. Fengist hefur styrkur til þátt- töku í verkefninu. Það eru markaðs- og atvinnu- málaskrifstofa Reykjanesbæjar, Miðstöð símenntunar og Verslunar- mannafélag Suðurnesja auk fulltrúa verslunar og þjónustu á svæðinu sem munu á næstu mánuðum vinna að undirbúningi norræna sam- starfsverkefnisins. Nú þegar hefur fengist styrkur til að vinna að und- irbúningi sem, ef vel tekst til, verð- ur til þess að hægt verður að fram- kvæma áætlanir. Í fréttatilkynningu frá MOA kemur fram að verkefnið er danskt að uppruna og uppbygging þess miðar að því að efla verslun og þjónustu á tilteknum svæðum með markvissri uppbyggingu og endur- menntun starfsmanna. Í heild mun verkefnið vera fjögur ár í vinnslu en á þeim tíma verður sett upp heima- svæði á vefnum sem gagngert er smíðað í þeim tilgangi að efla sam- stöðu minni verslunar- og þjónustu- aðila. Þá munu þátttakendur sitja endurmenntunarnámskeið sem hjálpa þeim að byggja upp við- skiptamannahóp, auka sölu og bæta ímynd sína. Aðrar þjóðir sem taka þátt í und- irbúningi auk Dana eru Svíar og Norðmenn. Undirbúningsnefnd Ís- lendinga skipa þau Helga Sigrún Harðardóttir frá MOA, Guðjónína Sæmundsdóttir frá MSS, Guð- brandur Einarsson frá VS og Þor- steinn Marteinsson, Pennanum- Bókabúð Keflavíkur. Taka þátt í norrænu samstarfsverkefni Efla verslun og þjónustu Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.