Morgunblaðið - 27.09.2001, Qupperneq 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 19
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500
AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070
Model 6834
Gifsskrúfvél 470 W O = 4 x 57 mm
Tilboðsverð
30.000,-
NÝ MYND mánaðarins verður af-
hjúpuð í Kjarna, Hafnargötu 57 í
Keflavík, mánudaginn 1. október
næstkomandi, klukkan 18. Myndin
er eftir Ástu Pálsdóttur og verður
síðasta verkið í kynningu á mynd-
listarmönnum Reykjanesbæjar.
Mynd mánaðarins er heiti á kynn-
ingarátaki á myndlistarmönnum
Reykjanesbæjar á vegum markaðs-
og atvinnumálaskrifstofu Reykja-
nesbæjar og Félags myndlist-
armanna. Mánaðarlega hefur nýr
listamaður verið kynntur og verk
hans ásamt upplýsingum á ensku og
íslensku verið til sýnis í Kjarna í
einn mánuð og farið svo næsta mán-
uð á Hótel Keflavík. Átakið hófst í
nóvember á síðasta ári og er þetta
tólfta og jafnframt síðasta myndin í
bili, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá menningarfulltrúa.
Ásta Pálsdóttir fæddist á Sauð-
árkróki 2. febrúar 1938 en flutti til
Keflavíkur 1954 og hefur búið þar
síðan. Ásta hefur stundað myndlist-
arnám víða, m.a. hjá Námsflokkum
Hafnarfjarðar, Handíða- og mynd-
listarskólanum og einnig var hún
lengi í myndlistardeild Baðstof-
unnar í Keflavík. Aðalkennari
hennar þar var Eiríkur Smith.
Ásta hefur lengi verið einn af
virtustu listamönnum bæjarins og
tekið þátt í mörgum sýningum bæði
hér heima og erlendis.
Ásta Pálsdótt-
ir listamaður
mánaðarins
Ásta Pálsdóttir myndlistarmaður við mynd mánaðarins.
Reykjanesbær
FÉLAG talkennara og talmeinafræð-
inga (FTT) heldur landsfund sinn í
fundaraðstöðu Skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar í Kjarna næstkom-
andi laugardag. Í tengslum við fund-
inn verða haldnir nokkrir fyrirlestrar
sem eru opnir almenningi.
FTT á tuttugu ára afmæli í ár og
bauð Skólaskrifstofa Reykjanesbæj-
ar félaginu að halda landsfundinn á
skrifstofu sinni. Eiríkur Hermanns-
son fræðslustjóri og Kristinn
Hilmarsson talmeinafræðingur munu
kynna starfsemi Skólaskrifstofunnar,
starfsaðstöðu og þjónustu við íbúa.
Að loknu þinghaldi, frá kl. 14 til 16,
býður FTT upp á fjóra stutta fyrir-
lestra sem allir tengjast lestri. Fyr-
irlestrarnir eru hugsaðir jafnt fyrir
þá sem vinna með börnum og for-
eldra. Þeir verða á Skólaskrifstofunni
í Kjarna, Hafnargötu 57 í Keflavík,
eins og aðalfundurinn.
Fyrsta fyrirlesturinn, „Hvernig
lesum við fyrir börn“, flytur Bjartey
Sigurðardóttir, talkennari við leik- og
grunnskóla á Álftanesi. „Slök heyrn-
ræn úrvinnsla“ nefnist framlag Val-
dísar B. Guðjónsdóttur talmeinafræð-
ings sem vinnur bæði á Skóla-
skrifstofu Hafnarfjarðar og á eigin
stofu í Hafnarfirði.
Ásthildur Bj. Snorradóttir, tal-
meinafræðingur hjá Talþjálfun
Reykjavíkur, sem einnig vinnur fyrir
Snæfellsbæ og Akranes fjallar meðal
annars um tengsl hljóðkerfisvitundar
við lestur. Síðasta erindið flytur
Elmar Þórðarson sem starfar við
Grundaskóla á Akranesi og er ráð-
gjafi við nokkra skóla á Vesturlandi
og Vestfjörðum. Kallast erindi hans:
„Lestrargreining og nefning“.
Fyrirlestrar
fyrir almenn-
ing um lestur
Reykjanesbær