Morgunblaðið - 27.09.2001, Síða 26
LISTIR
26 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIGDÍSI Finnboga-
dóttur var fagnað á ís-
lensku, spænsku,
þýsku, dönsku, ensku,
portúgölsku, sænsku,
pólsku, rússnesku og
frönsku af nemendum
Austurbæjarskóla á
Evrópska tungumála-
deginum í gær. Nem-
endur skólans efndu
til dagskrár á skóla-
lóðinni, þar sem sung-
ið var og lesið á þeim
fjölmörgu tungum
sem nemendur skól-
ans eiga að móður-
máli. Vigdís Finn-
bogadóttir var
heiðursgestur hátíða-
haldanna, og í ávarpi
sínu brýndi hún fyrir
börnunum mikilvægi og dýrmæti
þess að eiga tungumálið, sem nota
má til að segja hvað sem mann lang-
ar til, ræða við fólk og orða hugsanir
sínar. Hún sagði að með því að læra
önnur tungumál værum við að opna
dyr út í heiminn. Krakkarnir gerðu
góðan róm að máli Vigdísar og nutu
þess að fá hjá henni kennslu í því
hvernig segja á „Ég elska þig“ á
mörgum tungumálum. Fjörið náði
hámarki þegar 2001 blöðru var
sleppt til himins í tilefni dagsins.
Iðunn Jónsdóttir sex ára, var
mjög ánægð með daginn. „Ég kann
að segja svolítið á spænsku,“ sagði
hún, „ef ég ætla að segja halló þá
segi ég bara ola, og svo kann ég að
telja,“ og Iðunn lék sér að því að
telja langt yfir tíu á spænsku fyrir
agndofa blaðamanninn. Halla Björg
Sigurþórsdóttir í þriðja bekk sagði
að það væri gott að hafa tungumála-
dag. „Ég veit samt ekki alveg til
hvers við höfum hann. En ég kann
að segja bonjour og merci beaucoup
á frönsku, og veit hvað það þýðir.“
Halla ætlar að læra dönsku þegar
hún er orðin stór. Ágústa Rut Skúla-
dóttir, Steinunn Skúladóttir, Sól
Margrét Bjarnadóttir og Anna
Fríða Gísladóttir í sjötta bekk voru í
miklu stuði á tungumálahátíðinni.
Þær svöruðu einum rómi að franska
væri málið sem þær langar til að
læra. „Hún er mjög flott, en samt er
alltaf eins og Frakkar séu að rífast
þegar þeir eru að tala.“
40 milljónir ferna
með skáldskap barna
Að skemmtuninni lokinni var efnt
til blaðamannafundar þar sem Guð-
laugur Björgvinsson forstjóri Mjólk-
ursamsölunnar kynnti Fernuflug,
örsagna og ljóðasamkeppni sem
Mjólkursamsalan efnir til á tungu-
málaárinu í samstarfi við mennta-
málaráðuneytið, Íslenska málnefnd
og Samtök móðurmálskennara.
Unglingum í þremur efstu bekkjum
grunnskólans er boðið að spreyta sig
á því að skrifa ljóð eða örsögur til
birtingar á mjólkurfernum. Ef vel
tekst til má gera ráð fyrir því að allt
að 64 textar eftir jafnmarga höfunda
verði valdir til birtingar. Guðlaugur
segir að þeir textar sem verða valdir
verði notaðir í tvö ár, og gera megi
ráð fyrir að hver texti verði birtur
um 600 sinnum, og alls verði um 40
milljónir mjólkurferna undirlagðar
af skáldskap barnanna á þessum
tíma. Frá því að Mjólkursamsalan
hóf að birta málfarsábendingar og
texta á mjólkurfernum, fyrir um sjö
árum, hafa um 150 milljón slíkar
mjólkurfernur ratað inn á íslensk
heimili. Vigdís Finnbogadóttir verð-
ur formaður og sérstakur verndari
keppninnar, en hún er jafnframt
sendiherra tungumála hjá
UNESCO, menntunar-, vísinda- og
menningarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna. Í ávarpi sínu lýsti Vigdís
aðdáun sinni á framtaki Mjólkur-
samsölunnar og afstöðu fyrirtækis-
ins til móðurmálsins. „Ég hef verið
snortin af því að þið skylduð beita
ykkur fyrir því að auðga og dýpka
orðaforða landsmanna. Þetta er
fjarskalega gott fyrir unga fókið og
átakið til fyrirmyndar.“ Vigdís sagði
það líka til sérstakrar fyrirmyndar
að þau börn sem eigi sér annað móð-
urmál en íslensku stæðu jafnfætis
hinum og fengju að skrifa á sínu
móðurmáli. „Við erum að verða fjöl-
menningarþjóð og það er brýnt að
þeir sem tala erlend tungumál sitji
við sama borð og þau börn sem eru
borin og barnfædd hér.“
Vigdís sagðist ekki hafa orðið vör
við svipuð verkefni erlendis. „En
það er endalaust verið að nefna Ís-
land við mig sem fordæmi í varð-
veislu tungumálsins. Það er mjög lit-
ið til okkar um málvernd og
málsköpun, þetta erum við þekkt
fyrir.“ Vigdís sagði sérstaklega gott
hvað mjólkurfernurnar hefðu hjálp-
að fólki að rifja upp merkingu orða-
tiltækja sem tengjast fornum at-
vinnuháttum. „Ef við missum tengsl
við þessi orðatiltæki þá missum við
líka tengsl við bókmenntirnar; –
stórar bókmenntir eins og Laxness,
að ég tali ekki um Biblíuna.“ Guð-
laugur sagði börn alla tíð hafa sýnt
mjólkurfernutextunum mikinn
áhuga, og því væri við hæfi að gefa
þeim nú sérstakt tækifæri til þess að
tjá sig á þessum vinsæla og víðlesna
miðli.
Ágústa Rut, Steinunn, Sól Margrét og Anna Fríða ætla að læra frönsku. Vigdís Finnbogadóttir ræðir við börnin á evrópska tungumáladeginum.
Dýrmæti og mikilvægi tungunnar brýnd fyrir skólabörnum á degi evrópskra tungumála
Börn skálda
á fernur
Morgunblaðið/Þorkell
Iðunn telur reiprennandi upp að tuttugu á
spænsku og segir svo „ola“!