Morgunblaðið - 27.09.2001, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 29
Nýjar haustvörur
Mörg þúsund pör
20—50%
afsláttur
Margar gerðir
Verð kr. 5.500 — 1.000 — 2.000
ALLT Á AÐ SELJAST
Kringlan sími 568 6062
ERSLUNIN
HÆTTIR
Nýjar haustvörur - Mörg þúsund pör
20-50%
afsláttur
Margar gerðir
Verð frá kr. 1.000 — kr. 2.000
ALLT Á AÐ SELJAST
FJÖLDI gesta sótti hátíðardagskrá
íslenskudeildar Manitoba-háskóla í
Winnipeg um helgina í tilefni 50 ára
afmælis deildarinnar. „Viðbrögðin
fóru fram úr björtustu vonum,“ segir
David Arnason, deildarforseti.
„Deildin fékk góða kynningu og við
fengum gesti víðs vegar að.“
Eftir að David Arnason hafði kynnt
dagskrána fyrir gestum hófust
þriggja daga hátíðarhöld við Mani-
toba-háskóla í Kanada með því að
Haraldur Bessason, fyrrverandi rekt-
or Háskólans á Akureyri og áður
deildarforseti íslenskudeildar Mani-
toba-háskóla í 31 ár, opnaði sýn-
inguna „Heimskautslöndin unaðs-
legu: Arfleifð Vilhjálms Stefáns-
sonar“ og flutti síðan erindi um
Vilhjálm. „Ég hef oft hlustað á Harald
og yfirleitt hefur hann verið góður en
aldrei betri en nú,“ segir Neil Bardal,
kjörræðismaður Íslands í Manitoba,
og David Arnason tekur í sama
streng, en Haraldur var sérstakur
heiðursgestur. „Um 110 manns
hlustuðu á hann og skemmtu sér vel
en í hópnum voru margir fyrrverandi
nemendur Haraldar.“
Eiður Guðnason, aðalræðismaður
Íslands í Winnipeg flutti ávarp áður
en boðið var til móttöku á vegum ís-
lenskudeildarinnar og íslensku ræð-
ismannsskrifstofunnar í Winnipeg.
Á öðrum degi voru sýndar tvær
myndir eftir kandadíska kvikmynda-
gerðarmenn af íslenskum ættum og
nokkur ung skáld lásu úr verkum sín-
um. David Arnason las kafla úr nýrri
bók sinni, King Jerry, Freyja Arna-
son söng þjóðlög og John Samson, að-
alsöngvari rokkhljómsveitarinnar
The Weakerthans, söng nokkur lög.
Yfir hátíðarkvöldverði ræddi David
Arnason um íslensku deildina og dr.
T. Kenneth Thorlakson, læknir og
formaður söfnunarnefndarinnar Met-
ið íslenska nærveru, Valuing Ice-
landic Presence, sem stóð að söfnun
til að treysta stöðu íslenskudeildar-
innar og íslenska bókasafnið við
Manitoba-háskóla, talaði um stofnun
deildarinnar. Þess má geta að faðir
hans, dr. Paul Henrik Thorbjorn
Thorlakson, átti stóran þátt í að safn-
ið og deildin urðu að veruleika á sín-
um tíma. Þórarni Eldjárn var boðið til
hátíðarinnar og las hann úr verkum
sínum við þetta tækifæri.
Á þriðja degi flutti annar gestur frá
Íslandi, Hallgerður Gísladóttir, deild-
arstjóri þjóðháttadeildar Þjóðminja-
safns Íslands, erindi um sérkenni ís-
lenskra matarhátta og ætlaði spurn-
ingum aldrei að linna í kjölfarið.
Þórarinn og Hallgerður héldu síðan
til Gimli og Árborgar þar sem þau
endurtóku leikinn.
„Við erum mjög ánægð með hvern-
ig til tókst. Fólk kom akandi frá ná-
grannabyggðunum og fjöldi manns
flaug hingað frá stöðum eins og Van-
couver og Montreal til að minnast
tímamótanna með okkur,“ segir Dav-
id og bætir við að hátíðinni verði fylgt
eftir með ýmsum uppákomum í vetur.
50 ára afmæli íslenskudeildar Manitoba-háskóla í Winnipeg í Kanada
Ljósmynd/Kristín M. Jóhannsdóttir
Fyrrverandi nemendur Haraldar Bessasonar heiðruðu hann með
nærveru sinni á fyrirlestri hans, en hér situr hann fyrir framan þá.
Góð kynning og fjöldi gesta
JPV-útgáfa gefur út ljóðabækur
og skáldsögur fimm höfunda á
þessu hausti.
Guðbergur
Bergsson sendir
frá sér ljóðabók-
ina Stígar en
ekki hefur komið
út ljóðabók eftir
Guðberg síðan
Flateyjar-Freyr
kom út 1978.
Stígar er að
sögn útgefanda
óvenjulega per-
sónuleg ljóðabók
þar sem ljóðin
mynda áhrifa-
mikla heild þótt
þau séu skrifuð
á ýmsum tímum.
Bók um skáld-
skapinn, ævina
og hugmynd-
irnar.
Flóttinn er
önnur skáldsaga
Sindra Freys-
sonar en hann
hlaut Bók-
menntaverðlaun
Halldórs Lax-
ness fyrir fyrstu
skáldsögu sína.
Flóttinn fjallar
um Þjóðverja
sem örlögin
leiða til Íslands í
þann mund sem
seinni heims-
styrjöldin brýst
út. Þegar Bretar
hernema Ísland
er honum kastað
út í hringiðu æv-
intýralegs flótta
í harðbýlu landi.
Þórunn Valdi-
marsdóttir fékk
DV-verðlaunin
og tilnefningu til
Bókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs fyrir síðustu skáld-
sögu sína. Nú sendir hún frá sér
skáldsöguna Hvíti skugginn. Þar
segir frá fólki sem opnar synda-
pokann sinn á fundum í Hljóm-
skálanum og skriftar á vefsíðum.
Um leið og þau segja eigin sögu á
vegum félagsskaparins, fer saga
þeirra í gang.
Ljóðtímaleit er ellefta ljóðabók-
in sem Sigurður Pálsson sendir
frá sér og er annað bindi ljóð-
tímasafns sem hófst með Ljóð-
tímaskyni.
Jónas Þorbjarnarson sendir frá
sér ljóðabókina Hliðargötur en
það er sjötta ljóðabók hans.
Þrjár
skáldsögur
og tvær
ljóðabækur
Sigurður
Pálsson
Þórunn Valdi-
marsdóttir
Sindri
Freysson
Guðbergur
Bergsson
JPV-útgáfa
Í TJARNARSAL Ráðhússins
stendur yfir sýningin Mynd og
málstaður og er þar stiklað á
stóru í sögu herstöðvarand-
stöðu frá stríðslokum með
áherslu á myndlist og þá eink-
um þann þátt hennar sem kall-
ast pólitískar teikningar. Þessi
listgrein er vinsæl erlendis en
hefur einkum birst í skrípa-
myndum af stjórnmálamönn-
um hér á landi.
Á sýningunni er tekið þver-
snið af því sem sem ýmsir
listamenn hafa lagt fram til
herstöðvaandstöðu og friðar-
mála.
Sýningin stendur til 7. októ-
ber og er opin alla daga. Að-
gangur er ókeypis.
Pólitískar
teikningar í
Ráðhúsinu