Morgunblaðið - 27.09.2001, Side 34

Morgunblaðið - 27.09.2001, Side 34
UMRÆÐAN 34 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ H austboðinn ljúfi: pyngjan léttist og léttist og léttist. Ekki það að þyngsli hafi verið til vandræða, en þegar haust- laufin falla þarf jafnan að fjár- festa í ýmsum nauðsynjum vegna skólagöngu barnanna, borga fyrir handbolta- og fimleikaæfingar, a.m.k. fram að jólum, píanó- og blokkflaututíma, blak og frúar- leikfimi húsmóðurinnar og bumbubolta eiginmannsins. Við förum í Námsflokkana og Endur- menntunarstofnun að vanda, á alls lags föndur-, smíða- og mat- reiðslunámskeið, kaupum okkur að sjálfsögðu áskriftarkort í öll leikhús sem bjóða upp á slíkt og árskort á Ís- landsmótið í handbolta og körfubolta. Haustferð yfir hafið er líka bráðnauðsyn- leg, og öruggast er að panta strax og borga pláss við jólahlaðborð, allar helgar á aðventunni. Síðast en ekki síst þarf vita- skuld að endurnýja allt í fata- skápnum fyrir veturinn. Enginn getur látið sjá sig í sömu fötunum og í sumar, að ég tali nú ekki um úreltu druslunum sem klæðst var í fyrravetur. Haust- og vetrartískan er kom- in í flestar verslanir og fjölmargt sem gleður augað. Að vanda hafa tískuhönnuðir sótt innblástur sinn víða, t.d. til fatnaðar hefð- arkvenna fyrri alda. Rykkingar á skyrtum og yfirhöfnum eru áber- andi og sömuleiðis blúndur og púffermar. Áhrifa pönk-, hippa- og diskómenningar liðinnar aldar gætir víða í bland við her- mannatísku. Gallafatnaður af öllum gerðum heldur enn velli og er hann nú snjáður og skreyttur sem aldrei fyrr. Loðkragar, flauel, ekta skinn og breið belti eru í tísku og einnig skartgripir úr dökkum steinum og perlum í miðaldastíl. Þar sem ritsmíð þessi tengist á engan hátt Háskóla Íslands hyggst ég ekki reyna að draga dul á það að síðustu 19 línurnar á und- an þessari málsgrein eru bein til- vitnun í Morgunblaðið frá því 31. ágúst, enda tel ég mér heimilt að nota textann að vild. Ég tapa sem sagt ekki svefni þó ég hafi fengið nokkrar línur lán- aðar. Annað mál er með tískuna; hún hefur kostað margar and- vökunætur. Það er enda ekkert grín að ákveða hverju skal klæð- ast að morgni; hvað er í tísku þann daginn? Útvíðar buxur eða þröngar, tvíhneppt jakkaföt eða einhneppt? Bindi eða slaufa? Hálsklútur? Á ég kannski að vera með hatt? Belti eða axlabönd? Þegar maður vill tolla í tískunni, eins og ég hef alltaf lagt mikla áherslu á, er ekkert grín að fara að sofa; í blaðinu í fyrramálið gæti verið frétt um nýja tískustrauma sem ekki er að finna í skápnum mínum og þá verður hlegið að mér í vinnunni. Ég man þá dýrðardaga áður en ég gerðist þræll tískuheimsins; svarta bestúlpan hékk á stólnum á hverjum morgni, einar flauels- buxur og bláa peysan mín. Eftir á að hyggja held ég þetta hafi dug- að öll menntaskólaárin. Að auki átti ég trefil sem stundum var dreginn fram og íþróttaskór þóttu þægilegir. Það hefur valdið mér miklum heilabrotum að reyna að rifja upp hvenær ég varð að þessu tísku- trölli sem raun ber vitni. Niðurstaðan, eftir mikla rann- sóknarvinnu, er að atburður sem átti sér stað kvöld eitt á unglings- árunum, þegar ég var á leið í kvik- myndahús, hafi ráðið úrslitum, þó ekki fyrr en nokkrum misserum síðar. Við erum sem sagt nokkur á leið saman í bíó, hittum fleiri krakka og tökum tal saman. Þá tekur stúlka í hópnum eftir því að loksins, loksins eru allir í hópnum komnir í gallabuxur. Þetta var sama daginn og við mamma fór- um í Drífu og keyptum buxurnar. Ég var auðvitað í svörtu best- úlpunni og undan henni sköguðu sem sagt þessar glæsilega bláu gallabuxur; vinnubuxur, eins og amma kallaði þær alltaf. Ég var ægilega montinn með nýju buxurnar og að vera loksins kominn í heldri manna tölu. Stúlkan gengur þá skyndilega að mér – ég átti von á faðmlagi, jafn- vel kossi; ég segi ekki bónorði – en þá sviptir hún upp úlpunni, rýnir á rassinn á mér og stynur síðan upp setningu, sem þjakaði mig árum saman: „Oj, ekki Lívæs.“ Ég held það hafi verið strax morguninn eftir sem ég sagði mömmu að buxurnar væru óþægi- lega þröngar í mittið og líklega best að geyma þær handa yngri bróður mínum. Þetta skýrir e.t.v. uppreisnina gegn tísku á menntaskólaárunum. Eftir að ég flutti að heiman tví- tugur tók ég svo strax aðra stefnu í lífinu. Síðan hefur alltaf verið haustlegt í veskinu; ég geng ein- ungis í dýrum og fínum merkja- fötum, snerti aðeins dýrustu vín og reyki bara handvafða vindla frá Kúbu. Ferðast aldrei nema á viðskiptafarrými, ek ætíð um á flottustu fáanlegu bílum og nota bara dýrustu farsíma. Enda er ég umvafinn kvenfólki. Og það fór eins og mig grunaði; mér hefnist fyrir snobbið. Komið hefur í ljós að tískuáhuginn er ættgengur. „Pabbi, paþþar þetta þaman?“ spurði yngsta dóttir mín í fyrra- vetur, þá þriggja ára, einn morg- uninn. „Hvað sagðirðu?“ spurði ég á móti, annars hugar, þar sem ég sötraði teið mitt og gluggaði í blaðið okkar allra. „Paþþar þetta þaman?“ sagði hún aftur, með miklum alvöru- þunga í röddinni, og þegar ég leit upp sá ég hvar hún bar rauðan stuttermabol upp að bláum galla- buxum. Í vetur erum við Sara eins klædd á hverjum degi: Rykkingar á skyrtum og yfirhöfnum eru áberandi og sömuleiðis blúndur og púffermar. Áhrifa pönk-, hippa- og diskómenningar lið- innar aldar gætir víða í bland við hermannatísku. Og bæði berum við jafnan skartgripi úr dökkum steinum og perlum í miðaldastíl. Pönk og púffermar Þegar maður vill tolla í tískunni, eins og ég legg áherslu á, er ekkert grín að fara að sofa; í blaðinu í fyrramálið gæti verið frétt um nýja tískustrauma sem ekki er að finna í skápnum mínum. VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is HINN 30. septem- ber nk. verður haldið upp á Alþjóðahjarta- daginn hér á landi, eins og í yfir 100 öðr- um löndum. Þetta er í annað sinn, sem þessi dagur er haldinn há- tíðlegur hér og munu Landssamtök hjarta- sjúklinga, Hjarta- vernd, SÍBS, HL-stöð- in í Reykjavík, Rauði krossinn og einstök fé- lög hjartasjúklinga gangast fyrir hjarta- göngum þennan dag og fleiri uppákomum. Meðal annars munu þessir aðilar standa fyrir dagskrá í Mjódd, í göngugötunni á Akureyri og í Vest- mannaeyjum þar sem gestum og gangandi verður boðið upp á blóð- fitu- og blóðþrýstingsmælingu, mælingu á líkamsþyngdarstuðli (BMI), veitt ráðgjöf og fleira sér að kostnaðarlausu. Allt þetta leiðir hugann að því hversu mikils virði það er að eiga heilbrigt hjarta og njóta þess ævi- langt. Þessi litli vöðvi, sem aldrei sefur eða hvílist, er okkur svo mik- ils virði að flest fer úr lagi þegar hann verður þreyttur eða lasinn. Þess vegna er svo mikilvægt að huga að því meðan allt er í lagi að leggja ekki óþarflega mikið á hann og gera það sem við vitum að er skynsamlegt til að hjálpa til við að halda hjartanu heilbrigðu, eins og t.d. að hreyfa sig reglulega, borða holla fæðu og reykja ekki. Sem bet- ur fer búum við Íslendingar við heilbrigðisþjónustu, sem hjálpar mikið þegar eitthvað fer úrskeiðis. Þannig eigum við hjartalækna, bæði skurð- og lyflækna, sem eru meðal þeirra færustu í heiminum og gera oft kraftaverk þegar eitthvað bjátar á. Þó það sé jafnan alvarlegt að greinast með hjartasjúkdóm, og mikið áfall þeim sem fyrir verður, er það þó síður en svo dauðadómur. Þótt hjartasjúkdómar leggi því mið- ur fjölda landa okkar að velli á hverju ári eru samt sem áður ennþá fleiri sem fá hjálp í tæka tíð og geta lifað góðu lífi um áraraðir með aðstoð okkar frábæru lækna og lyfja sem stöðugt verða fullkomnari. Sí- fellt yngra fólk verður fyrir barðinu á þessum sjúkdómi, sem birst getur í mörgum mynd- um. Það gefur auga leið að skynsamlegra er að fylgjast með ástandi sínu og láta skoða sig reglulega og mæla þá áhættuþætti sem helstir eru og lifa eins heilbrigðu lífi og mögulegt er án þess að vera í nokkru meinlæti. Með þessu móti er hægt að koma í veg fyrir marga sjúkdóma, ekki bara hjartasjúkdóma. Það getur einnig orðið til þess að sjúkdóm- urinn uppgötvast á fyrstu stigum. Þegar það gerist eru meiri líkur á að læknar geti gripið inn í atburða- rásina og hjálpað út úr vandanum. Þegar ég fékk hjartaáfall fyrst, þá rúmlega fertugur, fannst mér í byrjun að flest sund væru lokuð. Þetta var mér ekki síður andlegt áfall. Ég hafði aldrei kennt mér neins meins og taldi mig vera í mjög góðu líkamlegu formi. Ég náði mér þó vel með aðstoð lækna og hjúkrunarliðs og ekki síst með dvöl á Reykjalundi, þar sem ég fékk þjálfun og hjálp til að skilja sjúk- dóminn og hvernig réttast væri að bregðast við. Þetta var fyrir rúmum tíu árum og síðan hef ég raunar mátt þola bæði opna hjartaaðgerð og nú síðast laseraðgerð til að hjálpa lélegu hjarta mínu. Það er því miður svo að einn alvarlegasti áhættuþáttur okkar er erfðaþátt- urinn. Hann leikur suma grátt. Enn er ekkert við erfðaþættinum að gera en verður vonandi í framtíð- inni enda vinna vísindamenn, m.a. okkar, af fullum krafti að því að finna þá erfðagalla sem valda hjartaáföllum og kransæðasjúk- dómum. Mér hefur lærst að þótt það sé vissulega áfall að fá hjarta- sjúkdóm, þá er það þó langt í frá það versta sem fyrir getur komið. Hjartasjúklingar, flestir hverjir, lifa góðu og innihaldsríku lífi. Menn hafa verið aðvaraðir og þeim gefið nýtt tækifæri til að njóta lífsins. Það gera flestir og eiga eftir bestu ár lífsins, þar sem hverrar stundar er notið á annan og kannski fyllri hátt en áður var. Landssamtök hjartasjúklinga beita sér fyrir hagsmunamálum hjartasjúklinga. Samtökin hafa meðal annars beitt sér mjög fyrir bættum tækjakosti á Landsspítal- anum og víðar. Þau hafa einnig að- stoðað við að koma upp HL-stöðv- um og æfingaaðstöðu víða um land. Hafa samtökin í þessu sambandi safnað og afhent tæki og peninga á undanförnum árum fyrir hundruðir milljóna króna, sem hafa komið sér vel í baráttunni við þennan skæða nútíma sjúkdóm. Ég hvet fólk til að taka þátt í hjartadeginum n.k. sunnudag og nota tækifærið t.d. til að láta mæla blóðfitu og blóðþrýsting. Það eitt gæti orðið til þess að bjarga lífi þínu. Heilbrigt hjarta ævilangt Þorbjörn Árnason Hjartadagurinn Ég hvet fólk til að taka þátt í hjartadeginum nk. sunnudag, segir Þorbjörn Árnason, og nota tækifærið t.d. til að láta mæla blóðfitu og blóðþrýsting. Höfundur er hjartasjúklingur og varaformaður Landssamtaka hjartasjúklinga. EINS og kunnugt er á Háskóli Íslands 90 ára afmæli á þessu ári. Afmælisins hefur þegar verið minnzt með ýmsu móti en vikan 30. september til 6. október verður sérstaklega helguð af- mælinu með fjöl- breyttri og vandaðri dagskrá. Má þar nefna málþing um áhrif háskóla á sam- félagið, opinn háskóla fyrir grunnskólabörn á landsbyggðinni, af- mælissýningu Lista- safns Háskóla Ís- lands, þjóðarátak Stúdentaráðs HÍ, svo fátt eitt sé talið. Dag- skráin verður síðar kynnt í heild. Hollvinasamtökum Háskóla Ís- lands er það sérstök ánægja að taka þátt í afmælishátíðinni. Gera þau það einkum með þrennu móti. Í fyrsta lagi hafa Hollvinasamtök- in samstarf við Stúdentaráð HÍ vegna þjóðarátaks í þágu Háskóla Íslands. Í öðru lagi munu Holl- vinasamtökin standa fyrir stofnun minningarsjóðs HÍ og í þriðja lagi munu samtökin standa fyrir hátíð- ardansleik í lok afmælisvikunnar. Vil ég nú víkja að síðari þáttunum tveimur. Listamaðurinn Eiríkur Smith hefur af örlæti sínu afhent Holl- vinafélagi heimspekideildar og Hollvinasamtökum HÍ birtingar- rétt að tveimur verka sinna, Nátt- úruöflum frá 1997 og Úr landslagi frá sama ári. Ákveðið hefur verið að gefa annað kortið út sem samúðarkort og hitt sem tækifær- iskort. Af því tilefni verður þriðjudaginn 2. októ- ber stofnaður sjóður sem andvirði minning- argjafa rennur til en nánar verður tilkynnt síðar hvernig nálgast má kortin á skrif- stofum og vefslóðum. Hollvinasamtök Há- skóla Íslands tóku að sér að sjá um sérstak- an hátíðardansleik í lok afmælisvikunnar og verður hann á Hót- el Íslandi laugardaginn 6. október. Dansleikurinn er haldinn í sam- starfi við Félag prófessora, Félag háskólakennara og starfsfólk stjórnsýslu HÍ, enda mjög góð reynsla af samstarfi um háskóla- böll hin síðari ár. Dansleikirnir hafa notið sívaxandi vinsælda og því ljóst að hátíðardansleikurinn útheimti stærra húsnæði en áður hefur staðið til boða þar sem nú er miðað við að ekki mæti einungis starfsfólk Háskólans heldur eldra og yngra háskólafólk, afmælisk- andídatar og hollvinir. Það er von okkar, sem að dansleiknum stönd- um, að sem flestir þeirra sem átt hafa náms- og/eða starfsferil sinn að einu eða öðru leyti innan veggja Háskóla Íslands noti þetta tæki- færi til þess að endurnýja gömul kynni og treysta vinabönd á góðri skemmtun. Hollvinasamtökin hafa að und- anförnu hvatt einstök hollvinafélög og fulltrúa afmæliskandídata til þess að nota tækifærið til að hafa samband við gamla félaga og sinn gamla skóla, gleðjast og láta gott af sér leiða. Hollvinafélögin hafa mörg hver á undanförnum árum staðið þétt við bakið á deildunum en þörfin fyrir margháttaðan stuðning er sí- felld. Ekki eru tengsl eldri kandíd- ata og deildanna aðeins á annan veginn heldur hefur mörgum þótt það mikils virði að hafa tækifæri til þess að sækja málþing og fá fjölþættar upplýsingar um hina lif- andi starfsemi Háskóla Íslands og einstakra deilda hans. Að lokum vil ég hvetja alla holl- vini Háskóla Íslands til þess að fagna 90 ára afmæli hans og sýna hug sinn til þjóðskóla okkar í verki. Hollvinir á 90 ára afmæli Háskóla Íslands Sigríður Stefánsdóttir Tímamót Við hvetjum hollvini skólans til þess, segir Sigríður Stefánsdóttir, að koma og fagna 90 ára afmæli HÍ á hátíðardansleik hinn 6. október. Höfundur er framkvæmdastjóri Hollvinasamtaka Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.