Morgunblaðið - 27.09.2001, Side 38

Morgunblaðið - 27.09.2001, Side 38
MINNINGAR 38 FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Steinunn Berg-þóra Pétursdótt- ir fæddist á Eyrar- bakka 7. október 1912. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 20. september síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Elísa- bet Jónsdóttir, f. í Dagverðarnesi á Rangárvöllum 4. desember 1878, d. 23. nóvember 1969, og Pétur Guðmunds- son, kennari og skólastjóri á Eyrarbakka, f. á Votumýri á Skeiðum 17. maí 1858, d. 8. maí 1922. Systkini Steinunn- ar eru: Jón Axel, f. 1898, Steinunn, f. 1901, lést á ellefta ári, Nellý, f. 1903, Guðmundur, f. 1904, Ásgeir, f. 1906, Auður, f. 1907, Tryggvi, f. 1909, Ásta, f. 1915, Pétur, f. 1918, einn eftirlifandi af systkinahópn- um, og Bergsteinn, f. 1920, lést tíu mánaða gamall. Systkini þeirra samfeðra voru Petronella, f. 1890, og Haraldur, f. 1895. Hinn 7. júní 1941 giftist Stein- unn Þormóði Jónassyni húsgagna- smið, f. á Auðólfsstöðum í A-Húnavatnssýslu 1. ágúst 1908, d. 3. júní 1989. Þau bjuggu á Grettisgötu 43 alla sína búskap- artíð. Börn þeirra eru þrjú: 1) Hilmar Pétur, f. 19. mars 1942, kvæntur Björgu Atla- dóttur. Þau eiga tvo syni, Atla Örn og Steinþór Óla. Sam- býliskona Steinþórs Óla er Hjördís Hrönn Backmann og eiga þau soninn Hilmar Ársæl. 2) Ásgeir, f. 20. september 1945, kvæntur Valgerði Ólafsdóttur. Þau eiga þrjá syni, Ásgeir Þór, sem á dótturina Val- gerði Ýri; Pétur, sam- býliskona hans er Sól- ey Ástudóttir og eiga þau dótturina Ástu; og Ólafur Ást- þór, unnusta hans er Guðrún Jóns- dóttir. 3) Áslaug, f. 14. mars 1953, gift Páli Björgvinssyni. Þau eiga tvö börn, Þormóð Inga og Stein- unni Björk. Á heimili þeirra Stein- unnar og Þormóðs ólst einnig upp systursonur hennar, Ástþór Pétur Ólafsson, f. 15. mars 1938, d. 23. ágúst 1978. Þar bjuggu og Elísa- bet, móðir Steinunnar, og tengda- móðir hennar, Steinunn Jónsdótt- ir, f. 21. september 1888, d. 9. maí 1973. Steinunn Bergþóra bjó á Grett- isgötunni til 1998. Hún var vist- maður á Droplaugarstöðum frá því í apríl 1999. Útför Steinunnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Telpan Steinunn, á áttunda ári, situr við rúm föður síns ásamt yngri systur sinni. Hann er veikur. Þær greiða hár hans. Hann kennir þeim ensk orð, nose, forehead, eye, og hann kallar Steinunni, með fal- legu bláu augun, Blástjörnuna sína. Veikindi hans vara á þriðja ár og að honum látnum flytur móðir hennar, þá fjörutíu og fimm ára, til Reykjavíkur með yngri börnin fimm, að frumkvæði elstu systk- inanna fjögurra, sem voru farin þangað á undan. Tvö voru þá látin úr þessum ellefu systkina hópi. Eyrarbakkaárunum var lokið. Telpa á tíunda ári horfir þremur áratugum síðar út um gluggann í risinu heima hjá sér, á Grettisgötu 27. Hún sér stundum ganga hjá bláklædda, laglega konu með ljós- skolleitt, liðað hár og falleg stór, blá augu, sem allt virðast sjá og skilja. Stundum gengur konan arm í arm með eiginmanni sínum, myndarlegum húsgagnasmið með dökkt hrokkið hár. Þau eiga heim- ili sitt á Grettisgötu 43, við sömu gangstétt og telpan. Hún er feimin við þau, því það kemur í ljós að þau eru foreldrar athafnasams og skemmtilegs bekkjarfélaga hennar, sem hún hafði tekið betur eftir en öðrum. Þetta voru tilvonandi tengdaforeldrar mínir þau Stein- unn og Þormóður. Milli þeirra ríkti ást og eindrægni alla tíð. „Þarna kemur Björg litla tengdadóttir,“ heyrði ég að hún hefði sagt í gamni heima hjá sér er ég gekk hjá í sendiferðum fyrir heimili foreldra minna. Og ég kom. Við Hilmar Pétur, frumburður þeirra, fluttumst með stuðningi foreldra okkar inn í risherbergi hjá þeim hjónum 1959. Við þá nýgift með skriflegu foreldra- og forseta- leyfi, sautján ára að aldri. Og átt- um von á barni. Er við fluttum frá þeim af Grettisgötunni haustið 1963 áttum við orðið tvo syni, þriggja og eins árs, sem voru mikl- ir gleðigjafar hjá afa og ömmu. Við höfðum útskrifast stúdentar þá um vorið. Var það ekki síst sigur Steinunnar, sem ekki sparaði hvatninguna er mest þurfti með og auðvelt hefði verið fyrir okkur að láta deigan síga. Hún leiddi mig inn í leyndardóma jólakökunnar og kenndi mér að sjá við dyntum bak- araofnsins á loftinu. Hún fól mér þá þegar ýmis trúnaðarviðvik, sem mér var ljúft að rækja. Þá hófust kynni okkar tengdamóður minnar sem einkenndust af gagnkvæmri virðingu, og stóð vinátta okkar í fjörutíu og tvö ár eða allt til þess að hún kvaddi þetta líf tæplega 89 ára gömul. Við Steinunn áttum margt sam- eiginlegt, höfðum gaman af að „lyfta fæti“, eins og hún kallaði það, syngja og sprella. Hún tók mig alltaf alvarlega þótt ég kæmi svona ung inn í fjölskylduna og virtist telja mér nánast flest fært, nema þá helst er ég fór rúmlega fimmtug á smíðanámskeið. Þá var hún að vísu áhugasöm en spurði of- ur varlega: „Og vita mamma þín og pabbi það?“ Hún vissi, sem var – eiginkona smiðsins – að trésmíða- vélar gátu verið skeinuhættar. Tengdamóðir mín hafði ung stúlka farið á leiklistarnámskeið, verið í enskunámi, lært vélritun og lært að spila á orgel. Hún starfaði á skrifstofu hjá Fiskimálanefnd. Eftir að hún gifti sig vann hún þar áfram um hríð og var það nokkuð óvenjulegt á þeim árum. Naut hún þá dyggrar aðstoðar tengdamóður sinnar, Steinunnar Jónsdóttur, og alla tíð síðan eða til dauðadags hennar 1973. Amma Stein fluttist á Grettó sama ár og við í risið og bjuggum við ungu hjónin með henni í íbúð. Tengdaforeldrar mínir tóku inn á heimili sitt móður Steinunnar, Elísabetu Jónsdóttur, ömmu Ebb, þá 63 ára, með dótturson sinn, Ást- þór Pétur, á fjórða ári, sem hún hafði gengið í móðurstað. Hafði drengurinn bundið þær Steinunni sterkum böndum er móðir hans lést frá honum tíu vikna gömlum. Þau amma Ebb og Addó fluttu fyrst af öllum inn í nýja íbúðar- húsnæðið á Grettisgötunni og bjuggu „fyrir handan“, eins og það var kallað, í tveimur herbergjum, hún til æviloka, örugg í skjóli tengdaforeldra minna, og lést þar tæplega 91 árs gömul árið 1969. Heimili Steinunnar og Þormóðs stóð alla tíð á Grettisgötu 43 og fór vel um þau í því húsi. Þar eign- uðust þau börnin sín þrjú, sem þau studdu með ráðum og dáð. Og með tímanum eignuðust þau allt húsið. Við fráfall hjartkærs eiginmanns síns í júní 1989, eftir 48 ára sam- búð, þráði tengdamóðir mín það heitast að eiga þar áfram heima eins lengi og unnt væri. Fyrir at- beina sona sinna tókst henni að halda heimili til 86 ára aldurs uns hún datt þar heima og lærbrotnaði í júlí 1998. Að endurhæfingu lok- inni varð ljóst að hún gæti ekki tekið upp þráðinn á „Grettó“ að nýju og bauðst henni þá vist á Droplaugarstöðum í apríl 1999. Starfsfólkið hafði orð á því, hvað hún væri jákvæð, glaðvær og skemmtileg, og þótti henni vænt um vinsemd þess. Miklar annir voru á stóru og myndarlega reknu heimili tengda- foreldra minna. Þangað var gott að koma og þangað lögðu margir leið sína. Þurfti húsmóðirin bæði að vera forsjáll og aðsjáll fram- kvæmdastjóri og einnig reyndi mikið á diplómatahæfileika hennar þar sem tilfinningar manna voru heitar og málafylgjan mikil. Á Grettisgötuárum mínum sé ég tengdamóður mína á sprettinum við að framreiða mat og á sama tíma fylla bitabox af fallega smurðu brauði og listilega heima- bökuðum kökum ásamt því að hella nýlöguðu kaffi í brúsa fyrir tvo til fjóra. Allt þetta á innan við klukkustund og stundum rekið á eftir. Hún sinnti ungum og göml- um, svaraði í síma, tók á móti gest- um, stjórnaði innkaupum, lagaði mat, bakaði og þvoði þvotta. Hélt öllu hreinu. Hennar vettvangur var innan veggja heimilisins. Þrátt fyr- ir það hafði hún lag á að brjóta upp annir hversdagslífsins og gera tilveruna skemmtilega, ekki bara með góðu á borði heldur líka í leik, sprelli, spilum, eftirhermum og til- vitnunum í hugleikin bókmennta- verk. Íslandsklukkan stóð hjarta hennar næst. Auk þess kunni hún firnin öll af ljóðum og lögum og mundi fram á síðustu daga. Hún lofaði ástina, og fannst ást milli karls og konu það fallegasta í líf- inu. Hún var vel máli farin, kjarn- yrt og skýrmælt og brá oft fyrir sig orðtökum og málsháttum. Steinunn var ekki allra en kapp- kostaði að eiga gott samfélag við fólk. Ekki vildi hún vera „herská,“ eins og hún kallaði það, og taldi sig hafa séð að slíkt væri ekki farsælt. Hún var tilfinningarík, hafði stóra persónulandhelgi og vildi hvorki láta: „yfirheyra“ sig né „ráðstafa“ sér „eins og böggli“. Svaraði þá kannski í sumartunglið og í hálf- kveðnum vísum ef henni þótti full- nærri farið. Hún var vel gefin, næm og skemmtileg kona sem sagðist oft lofa skaparann fyrir að hafa gætt sig léttri lund. Söngur var Steinunni í blóð bor- inn og hafði hún hljómmikla og sterka rödd. Hún settist löngum við orgelið og gat spilað sér og öðr- um til ánægju öll Grettisgötuárin. Þar sameinaði hún fjölskylduna á góðum stundum í söng. Fyrsta mynd mín af henni í hlutverki org- anistans var „fyrir handan“ á Grettó, þar sem hún spilaði og söng með móður sinni, systkinum, mágfólki og systkinabörnum, auk heimilisfólksins. Og gólfið titraði. Önnur mynd: Við þrjár, amma Ebb, Steinunn og ég við orgelið að syngja í röddum „Hin fegursta rós- in er fundin“. Og seinna, hún og fyrsta barnabarnið, þá á þriðja ári, sitja saman við orgelið. Þau syngja „nýja lagið“, sem hann lærði í Laufásborg þann daginn og enda svo á uppáhaldslaginu hans „Blátt lítið blóm eitt er“. Þetta varð að venju. Síðasta myndin, Steinunn að spila „Heims um ból“ á jólum 1999 á orgelið heima hjá okkur og fjöl- skyldan sameinast enn á ný með henni í söng. Steinunn tengdamóðir mín talaði ávallt hlýlega um bernskuárin sín á Eyrarbakka. Hún var á ellefta ári er hún fór þaðan. Hún komst svo að orði, að sér þætti „alltaf eitt- hvað svo mikið við það að koma á Eyrarbakka“. Henni varð þá oftast hugsað til föður síns og sagðist þakka algóðum himnaföðurnum fyrir að hafa gefið sér þennan góða pabba. Eftir ferðina okkar til Eyr- arbakka sumarið 2000, ásamt elsta ömmu- og langömmubarninu, hafði hún á orði að nú langaði hana svo mikið að Eyvindarmúla í Fljótshlíð – vegna hennar mömmu sinnar. Sú ferð varð því miður ekki farin því nú hefur Blástjarnan lagt á nýja braut himinvíddanna. Blessuð sé minning hennar. Björg Atladóttir. Í dag fimmtudaginn 27. sept- ember kveð ég ástkæra tengda- móður mína með söknuði og eft- irsjá en hún lést hinn 20. september síðastliðinn. Hún valdi góðan dag til að yfirgefa þennan heim því á þessum degi fyrir 56 ár- um eignaðist hún soninn Ásgeir sem er maðurinn minn. Kynni okk- ar Steinunnar hófust fyrir rúmum 30 árum þegar ég rúmlega tvítug, nýorðin mamma og pabbinn í Sví- þjóð, fór að venja komur mínar með soninn á Grettisgötuna. Þar var alltaf gott að koma og vel tekið á móti okkur. Þá var setið og rifjað upp hvernig Ásgeir var á þessum aldri, hvenær hann fékk fyrstu tönnina og svo framvegis. Steinunn fæddist á Eyrarbakka árið 1912 og ólst þar upp hjá for- eldrum sínum. Við andlát heim- ilsföðurins Péturs, flutti fjölskyld- an til Reykjavíkur. Eyrarbakki var Steinunni alltaf mjög kær og þaðan átti hún margar góðar minningar. Hún bjó í Vesturbænum á ung- lingsárum og fékk ég oft að heyra frá mæðrum vinkvenna minna sem voru henni samtíma að hún hefði verið algjör fegurðardís. Steinunn var söngelsk og Dómkirkjan var hennar söngskóli. Hún kunni sálmabókina utan að og síðustu vikurnar sem hún lifði vantaði ekk- ert upp á þá kunnáttu. Sem ung kona hóf hún störf hjá Fiskimála- nefnd. Mátti hún vélrita skýrslur og önnur fylgiskjöl allt upp í átta eintök og þá var eins gott að geta slegið fast á takkana svo að allt færi í gegn. Þá voru ekki til raf- magnsritvélar, hvað þá tölvur. Oft var unnið langt fram eftir nóttu því ekki mátti láta skipin bíða. Þar hitti hún Þormóð sinn í fyrsta sinn. Það var í stiganum, en hann var að koma með húsgagnasendingu í húsið og þar blossaði upp sú ást sem þau báru hvort til annars alla tíð. Þau gengu í hjónaband 7. júní 1941 og hófu búskap á Grettisgöt- unni. Með þeim flutti Elísabet móðir Steinunnar með dótturson sinn, Ástþór Pétur. Nokkru seinna flutti Steinunn tengdamóðir henn- ar einnig inn á heimilið og bjuggu þær á Grettisgötunni við gott at- læti til dauðadags. Steinunn og Þormóður áttu fal- legt og vinalegt heimili sem stóð öllum opið og mikið var um gesta- gang. Alltaf var heitt á könnunni og Steinunn ekki lengi að snara upp veisluborði. Allt sem hún reiddi fram varð girnilegt í hönd- unum á henni. Enginn bakaði betri pönnukökur eða skonsur en hún. Eftir gott kaffi og spjall í eldhús- inu settist Steinunn oft við orgelið og spilaði. Söng þá hver sem betur gat. Þar lærðu drengirnir okkar Ásgeirs mörg af sínum barnalög- um. Steinunn og Þormóður höfðu verið gift í nær 50 farsæl ár þegar Þormóður lést. Það var erfiður tími sem fór í hönd. Að standa eftir ein þegar maðurinn sem hún hafði deilt með bæði gleði og sorg í svo langan tíma var horfinn. Þau voru svo náin. Þormóður kom alltaf heim í matar- og kaffitímum. Var þá oft glatt á hjalla og mikið spjall- að. Steinunn var mikil húsmóðir og eins og hvítur stormsveipur alltaf að verki. Hún hafði gaman af út- saumi og unnu þau hjónin saman að því að gera heimilið fallegt. Hann smíðaði borðstofusettið og reyndar öll húsgögn heimilisins, hún saumaði í setur og púða. Steinunn hafði góða námshæfi- leika og kom það sér vel síðar meir þegar hún hjálpaði börnum sínum við nám þeirra. Hún taldi ekki eftir sér að sitja klukkutímum saman og fletta upp í orðasöfnum ef enskan eða þýskan var ekki alveg á hreinu. Hún hafði gott vald á ís- lenskri tungu og krossgátur og myndagátur vöfðust aldrei lengi fyrir henni. Um jólin var oft skipst á símtölum til að spyrja um orð sem vantaði í jólagáturnar. Steinunn hélt heimili á Grett- isgötunni, þar til fyrir þremum ár- um að heilsan leyfði það ekki leng- ur. Hún fluttist þá á Droplaug- arstaði og bjó þar til dauðadags. Það var gaman að finna hvað hún tók því vel, alltaf ljúf og í góðu skapi og fannst allir svo góðir við sig. Fyrir hálfum mánuði var Stein- unn orðin lasin. En þrátt fyrir veikindin söng hún „Allir krakkar“ og klappaði saman lófunum, geisl- andi af gleði, fyrir yngsta meðlim fjölskyldunnar, þriggja mánaða stúlkubarn sem var í heimsókn hjá langömmu með foreldrum sínum. Þetta var hún, þannig mun ég minnast hennar. Valgerður Ólafsdóttir. Hjá ömmu á Grettó var mitt annað heimili. Foreldrar mínir bjuggu fyrstu búskaparár sín „uppi á loftinu“ svo það var stutt niður til ömmu og afa jafnvel þótt úti væri snjór og ég berfættur. Þar beið mín sultubrauð (les: sultubau), mjólkurglas og mjúkur handlegg- ur. „Amma, ég er svangur,“ hljóm- aði dýrlega í eyrum hennar. Og fátt fórst henni betur úr hendi en að gleðja svanga munna á Grettó. Sultubrauð stóð ekki öðrum til boða og það fékk ég ekki heldur annarsstaðar. Í bítið á morgnana var kaffi því afi fór jafnan snemma til vinnu inn í Áhaldahús Reykjavíkurborgar þar sem hann var verkstjóri. Hann taldi ekki eftir sér að skeiða þrisv- ar heim til Öggu sinnar yfir daginn í matar- og kaffitímum. Það var einsog lífið snerist um þessa sam- veru í litla eldhúsinu. Það var morgunkaffi, hádegismatur, síð- degiskaffi, kvöldmatur og kvöld- kaffi. Þetta fengu allir heimilis- menn samviskusamlega á hverjum degi og heimilið var stórt. Fyrir utan ömmu og afa og börnin þrjú og Addó, systurson ömmu, bjuggu tvær langömmur á Grettó. Og það gekk mikið á hjá ömmu Öggu við að „uppvarta“ alla. Hún var á sí- felldum þönum og ekki man ég eft- ir að hafa séð hana unna sér hvíld- ar, fleygja sér í sófann og fá sér lúr. Alltént ekki meðan barnabarn- ið var á staðnum og næstum örugglega svangt! Það þurfti að fara til Þorbjörns í Borg og ná í sviðakjamma og í Alþýðubrauð- gerðina að sækja mjólk og brauð. Hún bakaði vöfflur, kleinur, randa- línur og rúllutertur, svo fátt eitt sé nefnt. Amma Stein var betri en enginn og skaust einsog elding út í búð ef eitthvað vantaði. Í eldhúsinu var samkomustað- urinn. Þar var hlegið dátt enda húsráðendur miklir húmoristar. Og stundum lá mönnum hátt rómur ef umræðuefnið var heitt. Svo var gripið í spil. Að taka „rúbertu“ í eldhúsinu voru ær og kýr ömmu og afa. Þetta var alvörukeppni og stigin samviskusamlega punktuð niður. Það var spilað Rommí og barist um hvern slag. Og „lokað“ með skelli í borð. „Heldurðu að þú sért einhver stjarna?“ sagði afi þegar amma hafði komist yfir og hann lokaði óvænt. Þannig liðu mín uppvaxtarár og ég var næstum jafn mikið hjá ömmu og heima hjá mér, þótt ég flytti út á land um skeið og lengra yrði í mjúkan handlegg. En alltaf var jafn gaman að koma á Grettó. Amma Agga og amma Stein um- vöfðu mig ást og hlýju og ég leið aldrei skort af neinu tagi. En amma Agga gaf sér tíma í fleira en að troða mat í blessað barnið. Þegar ég kom lítill drengur heim úr Laufásborg settist hún niður við orgelið og við æfðum lög- in sem ég hafði lært á barnaheim- ilinu. Í sérstöku uppáhaldi hjá okk- ur voru lögin Ef væri ég söngvari og Blátt lítið blóm eitt er sem voru sungin oft og mikið. Hún sagði mér sögur og fór með kvæði. Og með vísur langömmu, ömmu Ebb, fór hún reglulega allt til æviloka. Það slitnaði aldrei sambandið milli okkar ömmu. Þegar ég eltist urðum við enn meiri vinir. Rauða húsið á Grettisgötunni varð heimili mitt á ný á fullorðins aldri. Ég bjó nú á ný í risinu og við amma höfð- um dagleg samskipti og samveru. Hún fylgdist vel með. Við gátum rætt hvaðeina saman. Og gert grín og hermt eftir. Þegar maður hugs- ar um það eftir á er ótrúlegt hvað okkur lynti vel saman því hálfrar STEINUNN B. PÉTURSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.