Morgunblaðið - 27.09.2001, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.09.2001, Qupperneq 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 39 aldar aldursmunur var jú á okkur. En amma var óvenjuleg hvað þetta varðaði. Hún átti mjög auðvelt með að umgangast fólk á öllum aldri og var lífleg, opin og skemmtileg. Nokkrir kunningja minna kynntust henni og þótti gaman að spjalla við hana. Fólk sem annaðist hana þar sem hún bjó síðasta æviskeiðið hafði á orði hvað hún væri létt í lund og skemmtileg. Þessir eðl- iskostir hennar voru áberandi allt undir það síðasta. Svo hress var hún vikuna fyrir andlátið að ég var þess fullviss að ég færi á undan henni yfir móðuna miklu. Það var ekki fyrr en um síðustu helgi að ég áttaði mig á því að hún væri á för- um næstu daga. Ég var undir það búinn. Maður gat ekki verið svo eigingjarn að ætlast til þess að fá að njóta samvista hennar endalaust í þessu jarðlífi. Og ég áttaði mig á því að amma Agga var ekkert að fara frá mér. Hún er og verður alltaf hluti af mér og minn betri helmingur. Það er ekki slæmt. Atli Örn Hilmarsson. Í dag er kvödd hinstu kveðju frú Steinunn Pétursdóttir, lengi til heimilis á Grettisgötu 43. Hún var ekkja eftir Þormóð Jónasson hús- gagnasmið, sem lést árið 1989, en Steinunn og Þormóður voru miklir vinir foreldra okkar, Guðrúnar Einarsdóttur og Árna J. Árnason- ar. Þessi vináttutengsl gengu í arf til þeirrar kynslóðar sem á eftir kom. Það var alltaf mikil gleði hjá okkur á Mánagötu 24, þegar Stein- unn og Þormóður komu í heimsókn til okkar með börnin. Þá var ekki sími á hverju heimili og því vissum við að jafnaði ekki fyrr en knúið var dyra og á tröppunum stóðu Steinunn og Þormóður með hópinn sinn. Og auðvitað voru heimsókn- irnar gagnkvæmar og því eigum við margar ljúfar minningar frá hinu fagra og hlýlega heimili á Grettisgötu 43. Það hvarflar að okkur að á þessum löngu liðna tíma hafi vináttutengsl verið þeim mun betur rækt sem þau voru minna trufluð af sjónvarpi, bílferð- um, símtölum og öllu því tilstandi öðru sem fylgir lífi nútímafólks. Okkur systkinunum sýndi Stein- unn ævinlega mikinn kærleika og gjafmildi og má segja að hún hafi umgengist okkur eins og værum við hennar eigin börn. Á hverjum aðfangadegi biðum við spennt eftir jólapakkanum frá Steinunni og Þormóði og það brást aldrei að hann skilaði sér áður en hátíðin gekk í garð. Steinunn Pétursdóttir var föngu- leg kona og hvar sem fólk var sam- ankomið var hún ævinlega hrókur alls fagnaðar. Röddin var björt og falleg og frásagnargáfan í besta lagi, og það fór ekkert á milli mála að hún hafði gott auga fyrir því skoplega og skemmtilega í tilver- unni. Þegar við hugsum til hennar á kveðjustund, þá er eins og við heyrum ennþá óminn af björtum hlátri hennar. Steinunn var orðlögð fyrir þrifnað og snyrtimennsku og heimili hennar bar þessum eigin- leikum fagurt vitni. Og hér má bæta því við að ljúfmennið Þor- móður, sá góði smiður og mikli eljumaður, var óþreytandi við að fegra og bæta hús og heimili. Steinunn og Þormóður voru einkar samrýnd og í okkar fjölskyldu gekk hún alltaf undir nafninu „Steinunn hans Þormóðs“. Árið 1949 lést faðir okkar, Árni J. Árnason húsgagnasmiður, langt um aldur fram. Við munum aldrei gleyma því hvernig nærvera og vinátta Steinunnar og Þormóðs urðu okkur öllum til stuðnings á þessum erfiðu tímamótum fyrir rúmlega hálfri öld. Móðir okkar, Guðrún, lést í hárri elli árið 1995 og hélst vinátta hennar við Stein- unni óbreytt til hinstu stundar. Að leiðarlokum biðjum við Stein- unni Pétursdóttur blessunar Guðs um leið og við systkinin þökkum henni og hennar fólki áratuga tryggð og vináttu. Börnum Stein- unnar og öðru ættfólki sendum við innilegustu samúðarkveðjur. Inga og Steinunn Árnadætur. ✝ Eva SigríðurBjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 30. ágúst 1931. For- eldrar hennar voru Björn Jónsson vél- virkjameistari, f. 8. okt. 1905, d. 23. jan. 1981, og Anna Lilja Jónsson, fædd Jen- sen, f. 15. júní 1905, d. 28. maí 1975. Eva var næstelst í systk- inahópnum en þau voru fimm talsins. Elst var Guðrún Ester, f. 1928, d. 2000, Aðalheiður, f. 1934, Hrafn- hildur Steingerður, f. 1940, og Björn Haraldur, f. 1946. Hinn 6. október 1953 gekk Eva í hjónaband með Gísla Hauki Jó- hannssyni, f 14. feb. 1933. For- eldrar hans voru Jóhann Bene- diktsson, f. 6. janúar 1886, d. 4. júlí 1962, og Halldóra Gísladóttir, f. 5. ágúst 1895, d. 12. ágúst 1968. Synir þeirra eru Steinar fulltrúi, f. 30. desember 1954, kvæntur El- ísabetu Ólafsdóttur skólaliða og eiga þau saman soninn Hauk Örn, rafvirkja og nema í Tækniskól- anum, f. 1979. Fyrir átti Elísabet tvö börn, Ólaf Þór og Ragnheiði. Arnar viðskiptafræðingur, f. 9. desember 1959, kvæntur Svan- hvíti Axelsdóttur lögfræðingi og eiga þau þrjár dætur, Unni Evu, nema í Verslunarskólanum, f. 1982, Jóhönnu Jór- unni, f. 1987, og Mar- gréti Halldóru, f. 1990. Eva lauk almennu barnaskólanámi og hóf byrjunarnám við Menntaskólann í Reykjavík. Hún sótti nám í gegnum kvöld- skóla KFUM og K. Einnig var hún sum- arlangt ásamt nokkr- um öðrum íslenskum stúlkum við almennt nám á Sture Restrup Husmandsskole við Limafjörð í Danmörku og hélt góðu sambandi gegnum árin við danska og íslenska skólafélaga. Á sínum yngri árum vann hún mest við handverk eins og töskugerð og saumaskap hjá þekktum fyr- irtækjum þeirra tíma. Lengst af sinnti Eva og hlúði að heimili fjöl- skyldunnar og studdi Gísla mann sinn heilshugar í starfi hans. Eva lagði mikla rækt við ömmubörnin sín fjögur og áttu þau öll ótal- margar ánægjustundir á heimili ömmu og afa. Auk þess hafði Eva mikla ánægju af að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi á vegum Rauða krossins síðustu tuttugu árin með afgreiðslu í sölubúð á Landspítalanum. Útför Evu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (I.S.) Kæra systir. Ég kveð þig með trega og söknuði. Allar yndislegu stundirnar sem við áttum saman og sú vinátta sem þú hefur alltaf sýnt mér hefur verið mér ómetanleg. Allt frá því að við lékum okkur saman í æsku til dagsins í dag höfum við safnað saman ógleyman- legum minningum sem munu lifa með okkur að eilífu. Nú er komið að kveðjustund. Ég sendi Gísla, Stein- ari, Arnari og fjölskyldum ykkar mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið algóðan Guð að veita ykkur styrk á erfiðum tímum. Þín systir Aðalheiður. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Í dag kveð ég móðursystur mína Evu Sigríði Björnsdóttur, eða Evu eins og hún var jafnan kölluð. Í mín- um huga var Eva ákaflega hjartahlý og góð kona sem ég kveð með mikl- um söknuði. Þegar hugurinn reikar til baka man ég hversu gott það var að koma í heimsókn í Háagerðið til ykkar. Það var alltaf tekið hlýlega og vel á móti mér. Þegar foreldrar mínir þurftu að láta passa mig vildi ég helst hvergi annars staðar vera en hjá Evu og Gísla í Háagerðinu því þar leið mér alltaf vel. Þegar faðir minn lést man ég hvað þú reyndist okkur vel og fyrir það verð ég alltaf þakklátur. Einnig koma upp í hugann ættar- mótin í Skorradalnum þar sem oft var glatt á hjalla og naut Eva þess að vera innan um barnabörnin og öll litlu frændsystkinin enda var hún með eindæmum barngóð kona. Þrátt fyrir erfið veikindi lét Eva sig ekki vanta síðastliðið sumar, heldur mætti með bros á vör til að hitta ættingjana og eiga með þeim glaða stund. Í veik- indum sínum háði hún hetjulega bar- áttu við erfiðan sjúkdóm og kvartaði aldrei. Í mínum huga voru það for- réttindi að eiga hana að sem frænku. Ég vil þakka þér fyrir allar gleði- stundirnar og alla þá væntumþykju sem þú sýndir mér. Minningin um þig mun lifa í huga mínum, minning um góða umhyggjusama konu sem nú er horfin á brott. Við viljum að lokum votta Gísla eigmanni hennar, Steinari, Arnari og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Brynjar, Katrín og fjölsk. Það er margs að minnast þegar maður hugsar til Evu. Hún hefur alltaf verið hluti af tilveru minni, hún var bæði einstök persóna og frænka. Það var alltaf svo frábært að koma í Háagerðið til Evu og Gísla þar sem þau bjuggu lengst af. Þar hafði Eva búið Gísla og sonunum tveimur, Steinari og Arnari, fallegt heimili. Maður hlakkaði alltaf til að fara til Evu hvort sem það var í pössun eða í heimsókn. Augnablikin koma hratt upp í hugann, góðu smákökurnar hennar og dótið sem stóru strákarnir hennar höfðu átt. En það var eitt- hvað miklu meira, það voru í raun forréttindi að eiga Evu sem frænku, hún var næstum því eins og önnur mamma, alltaf í góðu skapi, hlý, góð og yndisleg. Árin liðu og alltaf var Eva manni ofarlega í huga hvort sem var á afmælisdaginn, þegar ég fór ut- an sem skiptinemi eða við skólaút- skriftir, hún samgladdist alltaf. Eva var einstök og gefandi persóna sem börn löðuðust að. Þegar við eignuðumst fyrri son okkar fyrir nokkrum árum varð Eva strax vinkona hans og komu þá upp ýmsar minningar um yndislega konu sem hafði 25–30 árum áður veitt mér sömu vináttu. Það lýsir Evu best hve sonur okkar hændist að henni og spurði hann okkur oftar en ekki af hverju hún Eva passaði hann ekki. Það eru ekki nema þrjár vikur síðan sonur okkar var búinn að hringja í bestu vini sína og bjóða þeim í fimm ára afmælið sitt en segir svo: „Pabbi, við gleymdum einni, við gleymdum að bjóða Evu vinkonu minni.“ Því miður komst Eva ekki enda var hún orðin mjög veik og barðist hetjulegri baráttu við erfið veikindi, en hún kvartaði ekki þótt fársjúk væri. Hún lét sér fátt fyrir brjósti brenna þegar kom að börnunum hvort sem var að veita þeim hlýju eða dansa „break- dans“ úti í náttúrunni eins og hún gerði fyrir tveimur árum á ættar- mótinu. Á þeirri stundu hefði okkur ekki dottið í hug að við værum að skrifa þessar línur nú. Það kemur margt upp í hugann og miklu meira en þessar fáu línur. Okk- ur langar til að minnast einstakrar frænku og vinkonu með eftirfarandi orðum: Einstakur er orð sem notað er, þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. Einstakur lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. Einstakur á við þá sem eru dáðir og dýr- mætir. Og hverra skarð verður aldrei fyllt. Einstakur er orð sem lýsir þér. (Terri Fernandez.) Mestur er söknuðurinn hjá Gísla eiginmanni hennar, sonunum, tengdadætrum og barnabörnum en þau ylja sér við bjartar minningar eins og við öll. Guð varðveiti þau og styrki í sorginni. Ingvar, Guðrún og synir. Með þessum fáu orðum viljum við kveðja vinkonu okkar Evu Sigríði Björnsdóttur. Við kynntumst fyrir hálfri öld þeg- ar við fórum fjórar frá Íslandi á sum- arskóla í Store Restrup í Danmörku. Við vorum fyrsti hópurinn sem sótti skólann héðan og kynntumst þar góðum skólasystrum og afbragðs kennurum, þeirra á meðal skóla- stjórahjónunum Bergljótu og Sven Höjgaard. Þau hafa alla tíð haft sam- band við íslenska nemendur sína og bæði þau og aðrir kennarar hafa komið oft í heimsókn til Íslands. Kynni okkar þriggja hafa haldist síð- an og vinátta Evu er okkur mikils virði. Það er ómetanlegt að fá að eiga vináttu svo góðrar manneskju, sem var svo prúð, kurteis, tillitssöm og glaðleg. Við sáum okkur til huggunar og uppörvunar hvað hún var æðru- laus í veikindum sínum og hvernig þau Gísli maður hennar studdu hvort annað sem alltaf fyrr. Við skulum ekki vera hrædd þegar við mætum dauðanum. Við skulum trúa á Guð, við skulum trúa á Jesúm. Þegar Jesús kvaddi vinkonur sínar og vini og borðaði með þeim kvöld- máltíð í síðasta sinn huggaði hann þau. Hann sagðist fara burt til að búa þeim stað og svo myndi hann koma aftur og sækja þau. Hann gæti ekki hugsað sér annað en hafa þau alltaf hjá sér. Það er nóg pláss í húsi Guðs, sagði hann, og ég er vegurinn þangað. Og Marta frá Betaníu mundi þá það sem hann hafði sagt henni. Hann sagði: Ég er upprisan og líf- ið, þau sem trúa á mig munu lifa þótt þau deyi. Þess vegna getum við haldið áfram að lifa þótt við missum, þakka fyrir allt sem var svo gott, fyrir alla vinátt- una, horfa á fugla himinsins og tré haustsins, þakka Guði fyrir lífið og treysta því. Ragnhildur Smith og Yrsa Ingibjörg Vilhjálmsdóttir. Það var upp úr miðjum fjórða ára- tugnum að ungar fjölskyldur voru að flytja í „nýju verkó“ og hún Reykja- vík var að taka miklum breytingum. Nokkrar smátelpur fylgdust með og horfðu feimnislega hver á aðra. En feimnin var fljót að víkja og vinátta myndaðist sem haldist hefur ævi- langt. „Af bernskuglöðum hlátri strætið ómar...“ kvað Tómas. Ein í hópnum var Eva, mín ævivinkona, sem nú er með söknuði kvödd. Það er mér mikilsvert að hafa átt vináttu hennar. Eva var kona fríð og föngu- leg, stillt, og talaði ávallt yfirvegað. Orðaval hennar var ætíð í samræmi við hógværð hennar og skapaði jafn- framt þá eftirsóknarverðu og traustu persónu, sem hún var. Þessa kosti gjafvaxta stúlkunnar sá ungur sveinn, sem bjó fyrir „austan læk“, og í fyllingu tímans festu þau ráð sitt og hafa síðan í huga okkar verið eitt og alltaf „Eva og Gísli“. Nú á kveðjustund leitar hugurinn til baka. Við minnumst allra skíða- ferðanna, veiðiferðarinnar eftir- minnilegu í Eldvatnið, sem og allra samverustundanna hérlendis sem erlendis. Vegna starfs Gísla sem framkvæmdastjóra Danfoss á Ís- landi urðu Danmerkurferðir þeirra hjóna ófáar og varð þeim þar vel til vina, og oftar en ekki hittumst við á danskri grund. Það fer því vel á sorg- arstund að hverfa til danskrar speki, þar sem segir: „Livet, det er ikke de dage, der er gået, men de dage, man mindes.“ Það kom okkur mjög á óvart þegar Eva tjáði okkur fyrir hartnær fjórum mánuðum að hún hefði greinst með ólæknanlegan sjúkdóm og skammt væri til vistaskipta. Þá kom hennar sterki persónuleiki í ljós og hversu æðrulaus hún mætti því, sem ekki varð umflúið. Sannaðist þá hið forn- kveðna að sá sem lifað hefur vel, þor- ir einnig að deyja. Blessuð sé minn- ing Evu Sigríðar Björnsdóttur. Auður Albertsdóttir, Jón R. Steindórsson. Ég sit hér norður í landi, hnípin, eftir að hafa fengið þá fregn, að góð samferðakona okkar hjóna er fallin í valinn. Vinskapurinn hefur staðið í rétt tæp fjörutíu ár og alltaf jafn ljúfur. Minningarnar renna eins og kvik- mynd í gegnum hugann. Ég sé fyrir mér allar skemmtilegu tjaldútileg- urnar á meðan börnin voru lítil. Um nánast hverja helgi var veðrið kann- að á landinu og lagt af stað þangað sem sólin átti að skína hvað glaðast. Saumaklúbburinn, þar sem við hittumst hálfsmánaðarlega yfir vet- urinn, í fyrstu sem myndarlegar ung- ar konur með handavinnu, er síðar breyttist í spjallklúbb, þar sem við púuðum vindla og sáum vart hvor aðra fyrir reyk, þetta vakti okkur kátínu því hvorug okkar reykti nema við þessi tækifæri. Í eina utanlands- ferð fór saumaklúbburinn, til Dan- merkur. Nutum við þess að fara út að borða og eyða dönsku krónunum í stórmörkuðunum. Gleðin í kringum dansskóla Her- manns Ragnars, þar sem við vorum í námi og leik, tókum þátt í danssýn- ingum og nutum þess sem þar var í boði. Nýársfagnaðirnir sem við héldum í góðra vina hópi, ár hvert, til margra ára. Öllu þessu fylgdi gleði sem ég held að ekkert okkar hefði viljað missa af. Nú allra síðustu árin höfum við sést sjaldnar, barnabörnin hafa þurft sinn tíma og aldurinn færst yfir okk- ur hægt og hægt, úthaldið minna til skemmtana, sambandið samt aldrei rofnað. Ef eitthvað hefur staðið til hjá okkur hafa Eva og Gísli ætíð verið með þeim efstu á gestalistanum. Fal- legt var heimili þeirra hjóna, enda Eva einstaklega natin og hafði næg- an tíma þar sem hún starfaði ekki ut- an heimilis, fyrr en nú síðustu árin, að hún starfaði sem sjálfboðaliði fyrir Rauða krossinn og afgreiddi í versl- un Landsspítalans við Hringbraut. Eva og Gísli ferðuðust mikið, þá var Danmörk þeim sérstaklega hug- leikin og fóru þau margar ferðir þangað. Hef ég haft það á tilfinning- unni að Danmörk hafi verið eins og þeirra annað land, þar áttu þau marga vini sem þau heimsóttu og sem sóttu þau heim. Ég heyrði á Evu, að þau nutu þess að gera vel við þessa vini sína og voru stolt af fallega landinu okkar. Skyndilega er klukkan stöðvuð, en minningin um góða konu verður ekki frá okkur tekin. Gísli minn, við Garðar vottum þér okkar dýpstu samúð, megir þú öðlast þann styrk sem mildar harm og söknuð. Steinari, Arnari og fjölskyldunni allri biðjum við Guðs blessunar á erf- iðri stundu. Jóhanna G. Halldórsdóttir. EVA SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.