Morgunblaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 43
VATNADÍSIRNAR sýna listir sínar
og stúlknakór syngur í Laugardals-
lauginni á vegum Orkuveitu
Reykjavíkur og Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur fimmtu-
dagskvöldið 27. september kl. 20.
Vatnadísirnar eru stúlkur á aldr-
inum 13–15 ára og ætla þær að sýna
listdans í vatni. Þjálfari stúlknanna
er Rosmary Kajioka. Vatnadans er
ekki keppnisgrein hérlendis en er
aftur á móti ólympugrein. Þá mun
stúlknakór syngja undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur.
Áhorfendur eru beðnir að koma
vel klæddir því dagskráin fer fram
utandyra. Aðgangur er ókeypis,“
segir í fréttatilkynningu.
Vatnadís-
irnar í Laug-
ardalslaug
FULLTRÚAR Fegurðarsam-
keppni Íslands, þær Íris Björk
Árnadóttir, Íris Dögg Oddsdóttir og
Svanhildur Björk Hermannsdóttir
eru farnar til keppni erlendis. Íris
Dögg og Svanhildur Björk keppa í
Ungfrú Skandinavia í Finnlandi 5.
október, en Íris Dögg í Miss Int-
ernational, sem fram fer í Tókýó 4.
október. Fram að keppninni munu
þær annast ýmis kynningar- og aug-
lýsingastörf ytra, auk æfinga fyrir
lokakvöldin.
Í fegurðar-
keppni erlendis
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá þingflokki
Frjálslynda flokksins:
„Niðurstaða meirihluta hinnar
svokölluðu „sáttanefndar“ er víðs
fjarri loforðum stjórnarherranna
fyrir síðustu kosningar. Þeir lofuðu
þjóðinni því að ná sátt um fiskveiði-
stjórnina.
Þess í stað er niðurstaðan óbreytt
kvótabraskkerfi sem Íslendingar
munu aldrei sætta sig við. Við öðru
var ekki að búast vegna þeirra mála-
liða ríkisstjórnarinnar sem valdir
voru í nefndina.
Niðurstaða meirihlutans tekur í
engu á þeim augljósu alvarlegu
ágöllum sem eru á fiskveiðistjórn-
inni og bitna á rekstri útgerðarfyr-
irtækja, smárra sem stórra, sjó-
mönnum og verkafólki.
Ekki er heldur brugðist við hern-
aði stjórnvalda gegn lífsvon sjávar-
byggða um allt land. Með kvótasetn-
ingu nýrra fisktegunda á smábáta er
veiðikerfi smábátanna gert ófram-
kvæmanlegt. Brottkast afla mun við
áformaðar stjórnvaldsaðgerðir auk-
ast enn frekar og var þó óbærilegt
fyrir.
Frjálslyndi flokkurinn telur að
þau ólög, sem meirihluti nefndarinn-
ar vill viðhalda eftir fyrirmælum
stjórnarherranna, muni bitna harka-
lega á lífskjörum þjóðarinnar. Þjóðin
þarf að reka af höndum sér ríkis-
stjórn sem stendur vörð um slík
ólög.“
„Óbreytt kvótabraskkerfi“
LÖGFRÆÐINGAFÉLAG Íslands
stendur fyrir málþingi í ráðstefnusal
Hitaveitu Suðurnesja við Bláa lónið
föstudaginn 28. september nk.
Umfjöllunarefni þess er: Mörk lög-
gjafarvalds og dómsvalds – er hlut-
verk dómstóla að breytast?
„Talsvert hefur verið fjallað um
þetta álitaefni undanfarin misseri og
þá ekki síst í tengslum við niðurstöð-
ur einstakra dómsmála. Ýmsir hafa
tjáð sig um málefnið og komið hafa
fram mismunandi kenningar og ólík-
ar skoðanir,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Lögfræðingafélag Íslands ákvað að
leita til lögfræðinga, bæði innlendra
og erlendra, til þess að skiptast á
skoðunum og varpa ljósi á stöðu og
þróun þessara mála hér á landi og í al-
þjóðlegu samhengi. Málþingsstjórn-
andi verður Eiríkur Tómasson pró-
fessor.
Dagskrá málþingsins er eftirfar-
andi: Kl. 11.15 brottför með rútu frá
BSÍ. 12 hádegisverður í veitingasal
Bláa lónsins. 13.20 setning – Ragn-
hildur Arnljótsdóttir, skrifstofustjóri
og formaður Lögfræðingafélags Ís-
lands.
13.30 Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra: Valdheimildir löggjafans og
úrskurðarvald dómstóla.
13.50 Niels Pontoppidan, fyrrver-
andi forseti Hæstaréttar Danmerkur:
Mörk lagasetningarvalds og dóms-
valds í ljósi réttarþróunar í Dan-
mörku. 14.15 Jón Steinar Gunnlaugs-
son hrl.: Um valdmörk dómstóla.
14.40 kaffihlé.
15 Sigurður Líndal prófessor: Um
lagasetningarvald dómstóla.
15.30 Hrafn Bragason hæstarétt-
ardómari: Er hlutverk dómstóla að
breytast.
16 Ragnhildur Helgadóttir dokt-
orsnemi: Þróun síðustu ára á úr-
skurðarvaldi um gildi laga gagnvart
stjórnarskránni.
16.30 umræður og fyrirspurnir.
Í pallborði sitja: Niels Pontoppid-
an, fyrrverandi forseti hæstaréttar
Danmerkur, Jón Steinar Gunnlaugs-
son hrl., Sigurður Líndal prófessor,
Ragnhildur Helgadóttir doktors-
nemi, Ástráður Haraldsson hrl. og
Þorgerður K. Gunnarsdóttir, alþing-
ismaður og formaður allsherjar-
nefndar Alþingis.
17 málþingi slitið – léttar veitingar.
18.30 brottför rútu.
Málþingið er öllum opið – þátttaka
tilkynnist Lögfræðingafélagi Íslands.
Þátttökugjald er kr. 7.000,“ segir í
fréttatilkynningu frá Lögfræðinga-
félagi Íslands.
Málþing um löggjafar-
vald og dómsvald
FLÖTUR, samtök stærðfræðikenn-
ara, hefur ákveðið að dagurinn í dag,
27. september skuli vera dagur
stærðfræðinnar. Það verður í annað
sinn sem dagurinn er tileinkaður
stærðfræðinni. Að þessu sinni er
þema dagsins stærðfræðin í um-
hverfinu með áherslu á þátt foreldra
í heimanámi barnanna.
Til þess að auglýsa daginn efndi
Flötur í vor til teiknisamkeppni fyrir
nemendur í 1. til 4. bekk. Þátttaka
var mjög góð og bárust um 750
myndir í keppnina. Í fyrsta sæti varð
Magnús Mar Arnarson, Korpuskóla,
í öðru sæti var Hildur María Hólm-
arsdóttir, Oddeyrarskóla, og í þriðja
sæti Kamil D. Szczuka, Bíldudals-
skóla. Verðlaunamyndirnar voru
settar á veggspjald sem gert var til
þess að vekja athygli á deginum.
Þessa viku er sýning á myndum úr
keppninni í Kringlunni, á Akranesi
og á Egilsstöðum.
Í tilefni dags stærðfræðinnar gaf
Flötur út ritið „Dagur stærðfræð-
innar 27. september 2001, Heima-
verkefni í stærðfræði“.
Þá stendur Flötur fyrir fundi í dag
á degi stærðfræðinnar með yfir-
skriftina „Þurfa allir að læra stærð-
fræði?“ Fundurinn verður haldinn í
Odda, stofu 101, og hefst kl. 17:15.
Frummælendur verða: Benedikt Jó-
hannesson, stærðfræðingur og for-
stjóri Talnakönnunar, Hreinn Páls-
son heimspekingur, Jón Torfi
Jónasson, prófessor í uppeldis- og
menntunarfræði, og Sigríður Laufey
Gunnarsdóttir, skólastjóri Baugs-
skólans, segir í fréttatilkynningu.
Dagur stærð-
fræðinnar
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir til
haustlitaferðar í Bása um helgina
28.–30. september. Árleg haustlita-
ferð Útivistar var um miðjan sept-
ember, þá tóku 90 manns þátt í grill-
veislu og annarri dagskrá í Básum
en að þessu sinni er einnig boðið upp
á þessa haustlitaferð. Brottför er á
föstudagskvöld kl. 20 en gist er í
skálum Útivistar í Básum og verða
skipulagðar styttri eða lengri göngu-
ferðir í fylgd fararstjóra og hentar
þessi ferð öllum aldurshópum.
Á sunnudaginn, 30. sept., efnir
Útivist til haustlitaferðar í Botnsdal í
Hvalfirði en kl. 10.30 verður boðið
upp á gönguferð kringum Hvalfell og
kl. 13 gengið að Glym, hæsta fossi
landsins,“ segir í fréttatilkynningu.
Haustlitaferð
Útivistar í Bása
STJÓRN Landssambands íslenskra
útvegsmanna sendi í gær frá sér eft-
irfarandi ályktun vegna tillagna
nefndar um endurskoðun á lögum
um stjórn fiskveiða:
„Stjórn LÍÚ ítrekar þá afstöðu
útvegsmanna að ekki beri að inn-
heimta auðlindagjald vegna nýting-
ar náttúruauðlinda, en útvegsmenn
eru tilbúnir að greiða hóflegt auð-
lindagjald, enda verði það til þess að
skapa stöðugleika í greininni. Stjórn
LÍÚ ítrekar nauðsyn þess að þær
reglur sem sjávarútvegsfyrirtækj-
um eru settar gildi til langs tíma,
enda tefur öll óvissa fyrir nauðsyn-
legri hagræðingu og framþróun.
Stjórn LÍÚ áréttar þá skoðun sína,
að komi til álagningar frekara auð-
lindagjalds á sjávarútveg, þá verði
jafnræðis gætt við skattlagningu
fyrirtækja sem nýta hverskonar
náttúruauðlindir, enda samræmist
skattlagning einnar atvinnugreinar
umfram aðrar ekki jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar.
Stjórn LÍÚ hafnar alfarið hug-
myndum um fyrningarleið og upp-
boð veiðiheimilda enda væri þar um
að ræða þjóðnýtingu á stjórnar-
skrárvörðum atvinnuréttindum út-
vegsmanna. Frá því að aflamarks-
kerfið var tekið upp hafa yfir 80%
veiðiheimilda skipt um eigendur og
þannig hafa þeir sem þær veiði-
heimildir nýta greitt fullt verð fyrir
þær. Uppboð veiðiheimilda myndi
að auki leiða til óvissu og óstöðug-
leika sem gengur þvert á hagsmuni
einstakra byggðarlaga og þjóðar-
hagsmuni.
Tillögur meirihluta
endurskoðunarnefndarinnar
1. Tekið er undir það álit meirihluta
nefndarinnar að nýta beri auð-
lindir sjávar á sjálfbæran hátt
með heildarhagsmuni þjóðarinnar
að leiðarljósi. Hagsmunum al-
mennings, byggða og sjávarút-
vegs verður aðeins borgið ef sjáv-
arútvegurinn er rekinn á
hagkvæman hátt. Því styður
stjórn LÍÚ það álit meirihluta
nefndarinnar að aflamarkskerfið
verði áfram meginstoð fiskveiði-
stjórnunar á Íslandi. Einnig er
tekið undir það sjónarmið að nýt-
ingarstefna fiskistofna verði mót-
uð með hámarksafrakstur í huga.
2. Stjórn LÍÚ styður þá tillögu
meirihluta nefndarinnar að náð
verði betri stjórn á veiðum smá-
báta. Stjórnin varar hins vegar
við hverskonar hugmyndum um
að veita smábátum sérstakar
ívilnanir umfram önnur útgerðar-
form. Þar er átt við þá tillögu
meirihluta nefndarinnar að út-
hluta krókaaflamarksbátum
auknum heimildum í aukategund-
um og veita eigendum tiltekinna
krókabáta fjárhagslega fyrir-
greiðslu, sem öðrum stendur ekki
til boða. Með því er verið að verð-
launa sérstaklega aðila sem fóru
ógætilega í fjárfestingum og
fylgdu ekki þeim markmiðum sem
sett voru um veiðar þessara báta.
3. Stjórn LÍÚ telur að lágmarks-
greiðsla auðlindagjalds skuli taka
mið af núverandi greiðslum veiði-
eftirlitsgjalds sem á síðasta ári
námu 243 milljónum króna. Ekki
er rétt að miða við tímabundnar
greiðslur í Þróunarsjóð sjávarút-
vegsins sem námu 630 milljónum
króna á síðasta ári. Skuldbinding-
ar sjóðsins verða að fullu greiddar
á árinu 2005 þegar lokið er
greiðslu á kostnaði við smíði hins
nýja hafrannsóknaskips.
4. Stjórn LÍÚ hafnar hugmyndum
um að auðlindagjaldi verði varið
til styrktar öðrum atvinnugrein-
um enda skekkja slíkir ríkisstyrk-
ir alla samkeppnisstöðu. Auð-
lindagjald á sjávarútveginn er
fyrst og fremst landsbyggðar-
skattur sem mun draga mátt úr
atvinnulífinu á landsbyggðinni en
auka þenslu í mesta þéttbýlinu.
5. Stjórn LÍÚ er andsnúin hug-
myndum um framsal á aflahlut-
deild frá fiskiskipum til fisk-
vinnslustöðva enda hefur
fiskveiðistjórnunin grundvallast á
rétti útvegsmanna til nýtingar
fiskistofna. Slík breyting myndi
valda erfiðleikum í samskiptum
útvegsmanna og sjómanna.
6. Stjórn LÍÚ styður hugmyndir
nefndarinnar um aðgerðir til að
koma í veg fyrir brottkast.
7. Stjórn LÍÚ tekur undir hug-
myndir nefndarinnar um aukið
frjálsræði í sjávarútvegi er lýtur
að takmörkun á heildareign á ein-
stökum fisktegundum og heildar-
eign aflahlutdeildar.“
Ályktun stjórnar LÍÚ
Hugmyndum um
fyrningarleið hafnað
ENDURMENNTUN HÍ býður
upp á mörg tungumálanámskeið á
haustönn – hvort heldur er starfs-
tengd námskeið eða hnitmiðuð
námskeið sem miða að því að opna
nýja menningarheima.
„Arabíska fyrir byrjendur er
námskeið sem fyllir síðari flokkinn,
en þar er markmiðið að veita inn-
sýn í framandi og gjöfulan heim ar-
abískunnar sem töluð er af 200
milljónum manna í 22 löndum, segir
í fréttatilkynningu. Námskeiðið
hefst 3. október og kennari er Þórir
Jónsson Hraundal, BA í almennum
málvísindum. Gestafyrirlesari er
Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamað-
ur.
Spænska fyrir eldri kynslóðina er
annað menningartengt tungumála-
námskeið sérstaklega sniðið að
þörfum eldri borgara. Námskeiðið
hefst 9. október og kennari er Mar-
grét Jónsdóttir, lektor í spænsku
við HÍ. Eldri borgarar fá 10% af-
slátt af námskeiðsgjaldi.
Þriðja tungumálanámskeiðið þar
sem fléttað er inn umfjöllun um
menningu hefst 29. október og heit-
ir Mál og mannlíf á Ítalíu. Það mið-
ast við að nemendur skilji ítölsku ef
hún er töluð hægt og skýrt. Fjallað
er um sögu, menningu og þjóðlíf á
Ítalíu, þróun ítalskrar tungu og
bókmenntir. Kennari er Mauro
Barindi, stundakennari við HÍ.
Frekari upplýsingar um þessi
námskeið eru á vefsíðunni
www.endurmenntun.is og þar er
jafnframt hægt að skrá sig,“ segir í
fréttatilkynningu.
Arabíska
kennd í Endur-
menntun HÍ
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu, mótmælir
harðlega þeim kostnaðarhækkun-
um sem orðið hafa í heilbrigðis-
kerfinu að undanförnu. Þessar
kostnaðarhækkanir koma verst
niður á öryrkjum og tekjulágu
fólk, segir í ályktun félagsins.
„Ennfremur tekur félagið und-
ir þá yfirlýsingu heilbrigðisráð-
herra að ekki verði tekið upp inn-
ritunargjald á sjúkrastofnanir.
Þeim hugmyndum hafnar félagið
alfarið því ef þær hugmyndir
verða teknar upp, mun bilið milli
ríkra og fátækra aukast enn meir
en nú er. Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra á höfuðborgarsvæðinu skor-
ar jafnframt á öll samtök launa-
fólks að standa einhuga á móti
þessum hugmyndum,“ segir í
ályktuninni.
Mótmæla hækkunum
í heilbrigðiskerfinu