Morgunblaðið - 27.09.2001, Page 49

Morgunblaðið - 27.09.2001, Page 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 49 GLÆSILEGUR KVÖLDFATNAÐUR Gullsmíðaverslun Gömul og rótgróin gullsmíðaverslun við Laugaveg er til sölu. Verslunin er í leiguhúsnæði, en möguleiki er á því að tryggja húsnæðið til lengri tíma á viðunandi kjörum. Lager verslunarinnar er nú í lágmarki og kaup á versluninni því tilvalið tækifæri fyrir unga gullsmiði að hefja eigin rekstur. Versluninni fylgja öll tæki og tól til gullsmíða. Áhugasamir skili inn nafni og símanúmeri merkt: „Gullsmíðaverslun“ til afgreiðslu Morgunblaðsins. Reykjavik Collection Valentiono Jeans Helmut Lang Day Bruuns Bazaar Calvin Klein Base Ahler Whistles Minus Reiss Jigsaw pom’dap fluxa Útsölumarkaður GK REYKJAVÍK hefst á morgun á Skúlagötu 32 útsölumarkaðurinn verður opinn mánudaga til laugardaga frá kl. 12–18 Í BRÉFI Gunnars Stefánssonar, Kvisthaga 16, Reykjavík, til blaðs- ins sl. sunnudag er ég undirritaður sakaður um að hafa misnotað ákveðið lag Sigfúsar Halldórsson- ar, sem áður hefur verið sungið við ljóð Kristmanns Guðmundssonar, með því aðgera íslenskan texta við það. Telur Gunnar mig með því hafa brotið gegn höfundarvernd. Með einu stuttu símtali hefði Gunnar getað leitað eftir réttum staðreyndum málsins. Saga máls- ins er sú, að þegar sönghópurinn M.R. 60, sem ég er í, tók til starfa fyrir sjö árum, sungum við skóla- félagarnir þetta lag við ljóð Krist- manns Guðmundssonar „Sommer- ens sidste blomster“. Lagið kveikti hjá mér hugmynd að texta undir nafninu „Góðar og glaðar stundir“. Í upphafi hugðist ég reyna að gera sjálfur lag við þennan nýja texta. Við Sigfús Halldórsson höfðum um áratuga skeið starfað saman í Lionsklúbbnum Ægi og fylgst með því sem hvor um sig var að fást við. Sigfús bauðst til að semja nýtt lag við texta minn, sem gæti sem hægast verið tileinkaður bæði M.R. 60 og Lionsklúbbnum okkar. Auðvitað leist mér vel á að svo gott tónskáld tæki þessa afurð mína að sér. Hann bauð mér nokkru síðar heim til sín og lék það, sem hann kallaði drög að laginu, en sagði síð- an að sér fyndist eldra lagið betra. Hann væri því hættur við nýja lag- ið því að sínum dómi ætti eldra lagið vel við textann „Góðar og glaðar stundir“ og þannig vildi hann hafa það. Í framhaldinu kviknaði hugmynd um að flytja lagið og textann á næsta þjónustu- degi Lions. Áður en til þess kom varð Sigfús alvarlega veikur og lést. Friðbjörn G. Jónsson flutti síðan lagið með texta mínum á minningartónleikum um Sigfús. Minningartónleikarnir um Sigfús voru fjölsóttir og síðar kom öðrum það í hug að flytja lagið með mín- um texta á geisladiski. Það var aldrei ætlun mín að hann yrði fluttur við lag Sigfúsar að honum forspurðum og þaðan af síður ef hann legðist gegn því. Það var ákvörðun Sigfúsar að þetta lag hans mætti nota jöfnum höndum við ljóð Kristmanns og texta minn. Gunnar Stefánsson kallar þetta smekklaust uppátæki mitt. Ég læt lesendur blaðsins um að dæma um hvað sé smekklaust í þessu máli. ÓMAR Þ. RAGNARSSON, fréttamaður, Háaleitisbraut 39, Reykjavík. Lag Sigfúsar og ákvörðun hans Frá Ómari Ragnarssyni: ÞAÐ HEFUR ekki farið framhjá neinum sem fylgst hefur með frétt- um að undanförnu að síendurteknar árásir hafa verið gerðar á Ísólf Gylfa Pálmason alþingismann vegna kaupa hans á jörðinni Uppsölum í Hvolhreppi. Tilgangur atlögunnar virðist vera sá einn að sverta mann- orð hans. Kjarna málsins hefur verið sleppt í umfjöllun fjölmiðla. Hann er sá að hinir öldnu heiðursmenn sem hafa búið á Uppsölum alla sína ævi hafa sjálfir fengið að ráðstafa föð- urleifð sinni. Þeir keyptu jörðina á sama verði og aðrir í viðlíka stöðu og seldu alþingismanninum á því verði sem þeir vildu. Þeir virðast sam- kvæmt umfjöllun fjölmiðla hafa það til saka unnið að hafa selt jörðina of ódýrt til alþingismannsins. Að minni hyggju er þessi umfjöll- un virðingarleysi við þessa heiðurs- menn sem nýttu sér sinn lagalega og siðferðilega rétt til að ráðstafa jörð- inni til þess manns sem þeir helst óskuðu að fengi hana. Þetta hafa margir gert og engin læti orðið. Það eina sem er að er að kaupandinn er alþingismaður. Óskandi er að aðför þessari að einkalífi heiðarlegs fólks ljúki hið fyrsta og fjölmiðlar snúi sér að ein- hverju þarfara viðfangsefni. LÁRUS BRAGASON, Miðhúsum, Hvolsvelli. Frá Lárusi Bragasyni: Þegar steinum er kastað Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 RIFJÁRN PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 Rifjárn fyrir parmesan, hnetur, súkkulaði o.fl. Verð 1.495

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.