Morgunblaðið - 27.09.2001, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001 51
DAGBÓK
Hlutavelta
LJÓÐABROT
Íslensk vögguljóð
Ég skal vaka og vera góð
vininum mínum smáa,
meðan óttan rennur rjóð
roðar kambinn bláa,
og Harpa sýngur hörpuljóð
á Hörpulaufið gráa.
Stundum var í vetur leið
veðrasamt á glugga;
var ekki einsog væri um skeið
vofa í hverjum skugga?
Fáir vissu að vorið beið
og vorið kemur að hugga.
Sumir fóru fyrir jól,
fluttu burt úr landi,
heillum snauðir heims um ból
hús þeir byggja á sandi.
Í útlöndum er ekkert skjól,
eilífur stormbeljandi.
Halldór Laxness
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
HÆFILEIKINN til að
telja upp á þrettán verður
seint ofmetinn í brids. Það
má líta á spilið í dag sem
létta æfingu í að telja:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K93
♥ KD43
♦ D5
♣ K742
Vestur Austur
♠ D87652 ♠ 10
♥ 62 ♥ 105
♦ 84 ♦ ÁK10976
♣ G93 ♣ Á1086
Suður
♠ ÁG4
♥ ÁG987
♦ G32
♣ D5
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 lauf 1 tígull 1 hjarta
Pass 2 hjörtu 3 tíglar 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur kemur út í lit fé-
laga síns og austur ÁK og
spilar þriðja tíglinum, sem
vestur trompar og blindur
yfirtrompar. Sagnhafi sér
strax að spilið snýst um
spaðann, en þó er möguleiki
á að komast hjá svíningu ef
austur á laufásinn annan eða
þriðja. Alltént er rökrétt að
spila nú laufi að drottning-
unni og svo smáu laufi frá
báðum höndum. Austur tek-
ur þann slag á tíuna og
trompar út. Suður drepur
heima, spilar aftur trompi á
kóng blinds og stingur lauf.
En ekki kemur ásinn.
Á þessum tímapunkti er
rétt að staldra við og telja.
Austur hefur sýnt sexlit í
tígli, fjórlit í laufi, tvö
hjörtu, og þar af leiðandi –
einspil í spaða. Þar með
blasir við að spila spaðaás.
Þegar austur kemur með
tíuna verður svíningin á ní-
unni 100%.
STAÐAN kom upp á at-
skákmóti í Krít sem lauk
fyrir skömmu. Io-
annis Nikolaidis
(2531) hafði hvítt
gegn Dimitry
Svetushkin
(2461). 43. Bxe6!
fxe6 44. Hf8+
Kh7 45. Hf7 Dc8
46. Dg4 Bg5 47.
hxg5 De8 48. Dh5
Kg8 49. g6?? Eft-
ir óaðfinnanlega
taflmennsku
bregst hvítum
bogalistin. 49.
gxh6 hefði tryggt
hvítum sigurinn
þar sem eftir 49...Dxf7 50.
h7+ stendur hvítur til vinn-
ings. Í framhaldinu fjarar
sókn hvíts út og frípeð
svarts rennur upp. 49...a4
50. De2 a3 51. Da2 Db5 52.
Hc7 Dxd3 53. Hc6 og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Morgunblaðið/Þorkell
Þessir duglegu drengir héldu tombólu og söfnuðu kr. 696
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þeir heita Orri Ómarsson
og Björn Steindór Björnsson.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær kr. 6.000. Þær heita Hrefna
Lind Einarsdóttir, HildurÝr Hvanndal og Herdís Ein-
arsdóttir.
Morgunblaðið/Jim Smart
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 27.
september, verður fimm-
tug Þórunn Reykdal. Eig-
inmaður hennar er Þórður
Stefánsson. Þau taka á
móti ættingjum og vinum í
félagsheimilinu Brúarási
laugardaginn 29. septem-
ber frá kl. 21.
BRÚÐKAUP. Gef-
in voru saman 10.
ágúst s.l. í Kirkju
Valencia de Alcant-
ara, Spáni, Elena
Gonzales-Gil og
Richard Jón Ólafs-
son. Heimili ungu
hjónanna er 6,
Croft Close, Bish-
ops Tachbrook,
Lemington Spa,
Warwicks., U.K.
HAUST Í
FLASH
FLAUELSJAKKAR
með og án hettu 5.990
Litir: Svart og ljóst
Stærðir 10-16
Laugavegi 54,
sími 552 5201
NÝTT FRÁ BLOCH
Dragtir, síðir kjólar, dress,
toppar og bolir
Opið
virka daga frá kl. 10 - 18
laugardaga frá kl. 10 - 14
YAZZ - Cartise
Hamraborg 7, sími 544 4406
Einnig dreifingaraðilar
Ný glæsileg sending
Dragtir kr. 9.990
Opið 10-16
Haustfundur - Málþing - Námskeið
Bandalag íslenskra leikfélaga heldur haustfund
í Félagsheimili Kópavogs dagana 29. og 30. september 2001.
Fundurinn verður settur kl. 9.00 laugardaginn 29. september.
Í tengslum við fundinn verður haldið stutt námskeið í stjórnun
leikfélaga föstudagskvöldið 28. september kl. 20.00
og málþing um Leikstjórn í áhugaleikhúsi
laugardaginn 29. september kl. 14.00.
Málþing - Leikstjórn í áhugaleikhúsi
Setning: Einar Rafn Haraldsson, formaður Bandalagsins.
Frummælendur:
1. Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri.
2. Guðjón Sigvaldason, leikstjóri.
3. Þorgeir Tryggvason, áhugaleikhúsmaður.
4. Pétur Einarsson, tilnefndur af Félagi leikstjóra á Íslandi.
Fyrirspurnir og umræður á eftir sem allir eru hvattir til að taka þátt
í. Málþingið er öllum opið og kostar ekkert inn.
Nánari upplýsingar í síma 551 6974 eða á www.leiklist.is
www.leiklist.is
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert lundgóður og ljúfur í
umgengni en ert þó sjálfs
þíns herra og kannt að taka
á málum af festu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt allt virðist ganga nokkuð
átakalaust fyrir sig núna gæti
það breyst í einni svipan ef þú
slakar of mikið á.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú verður að taka ábyrgð á
gjörðum þínum hvernig sem
þér svo líkar það. Því fyrr
sem þú gerir það þeim mun
betra svo hættu að slá hausn-
um við steininn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ákveðið mál þolir ekki lengri
bið svo vertu óhræddur við að
treysta dómgreind þinni og
gakktu strax í að leysa málið
þótt erfitt sé.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt gott sé að losa sig við
gamalt dót skaltu ekki vera of
fljótur á þér því það er aldrei
að vita nema eitthvað sé verð-
mætara en þú heldur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er alltaf ánægjulegt að fá
góða vini í heimsókn og ekki
síðra að fá góðar ábendingar.
Óvænt uppástunga verður
þér til mikillar gleði.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur verið of upptekinn
að undanförnu og ekki gefið
gaum að þeim sem næst þér
standa. Bættu það ærlega
upp og byrjaðu á því að biðj-
ast afsökunar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert afslappaður og í góðu
jafnvægi og ættir því að vera í
stakk búinn til að sýna hvað í
þér býr. Skoðaðu vandlega
þau tilboð sem þér hafa bor-
ist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sýndu samstarfsfólki þínu
meiri sanngirni og umburðar-
lyndi. Að öðrum kosti áttu á
hættu að standa einn uppi í
vandasömu verkefni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú undrast það hversu vak-
andi vinir þínir eru fyrir vel-
ferð þinni. Vertu bara þakk-
látur og mundu að sönn
vinátta snýst um það að gefa
og þiggja.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt í innri baráttu og veist
varla í hvorn fótinn þú átt að
stíga. Refsaðu ekki sjálfum
þér því þú átt allt annað skilið
og þarft bara þinn tíma.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt þú njótir þess að vera í
sviðsljósinu þarftu að draga
þig í hlé og vera einn með
sjálfum þér því öðruvísi
nærðu ekki sambandi við
þinn innri mann.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt þú hafir í mörgu að snú-
ast er nauðsynlegt að líta að-
eins upp og njóta þess sem líf-
ið hefur upp á að bjóða og
rækta um leið mannleg sam-
skipti.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.