Morgunblaðið - 04.10.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isRúnar Kristinsson tilbúinn í slag-
inn í Kaupmannahöfn / B3
Patrekur Jóhannesson leikmaður
mánaðarins í Þýskalandi / B4
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Á FIMMTUDÖGUM
„ÞAÐ er niðurstaða Landsvirkjunar
og ráðgjafa fyrirtækisins af arðsem-
isútreikningum að orkusamningarn-
ir við Reyðarál og þar með arðsemi
Kárahnjúkavirkjunar séu mjög hag-
stæðir. Samningarnir við Reyðarál
munu gera meira en að standa und-
ir lágmarkskröfum, en þær eru að
arðsemin dugi til að standa undir
fjármagnskostnaði bæði af lánsfé og
eigin fé og því eru allar líkur á að
virði fyrirtækisins muni aukast eftir
að samningar hafa náðst til hags-
bóta fyrir eigendur Landsvirkjun-
ar.“
Þetta kemur fram í greinargerð
um efnislega þætti Kárahnjúka-
virkjunar sem Landsvirkjun hefur
sent umhverfisráðuneytinu. Grein-
argerðin er annar hluti kæru
Landsvirkjunar til umhverfisráðu-
neytisins 4. september í framhaldi
af úrskurði ráðuneytisins 1. ágúst
um Kárahnjúkavirkjun. Greinar-
gerðin hefur að geyma upplýsingar
um framkvæmdina, áhrif á um-
hverfið og mótvægisaðgerðir til að
draga úr neikvæðum áhrifum og
þar er einnig að finna kafla um arð-
semi samninganna við Reyðarál.
Stofnkostnaður við alla þætti
virkjunar 100 milljarðar
Stofnkostnaður við alla þætti
beggja áfanga Kárahnjúkavirkjunar
er um 100 milljarðar króna og er
helmingur hans innlendur kostnað-
ur. Stærstu og áhættusömustu
verkþættirnir eru stíflan við Kára-
hnjúka og jarðgöng úr Hálslóni að
stöðvarhúsi í Fljótsdal. Er áætlað
að þessir tveir verkþættir taki til
um 65% kostnaðarins. Talið er að
árlegur rekstrarkostnaður virkjun-
arinnar verði um 600 milljónir
króna.
Í greinargerð Landsvirkjunar
segir að aðferðin við útreikninga á
arðsemi samningsins við Reyðarál
og þar með virkjunarinnar sé svo-
nefnt núvirt sjóðsstreymi sem
byggist á því að tekju- og gjalda-
flæði virkjunarinnar eru reiknuð á
núvirði með ávöxtunarkröfu. Eig-
endur Landsvirkjunar gera kröfu
um 5–6% raunarð af eigin fé.
Landsvirkjun gerir ráð fyrir að eig-
infjárhlutfall í verkefninu verði 25%
og áætlar að raunarðsemi eigin fjár
muni verða 14% miðað við samn-
ingsdrög sem nú liggja fyrir. „Það
er meira en tvöföld sú krafa sem
eigendur gera til fyrirtækisins og
mjög viðunandi ávöxtun ef borin er
saman við arðsemi eiginfjár hjá raf-
orkufyrirtækjum í nágrannalönd-
um,“ segir í greinargerð Lands-
virkjunar.
Þá kemur fram í greinargerðinni
að fyrirtækið Ráðgjöf og efnahags-
spár hafi verið fengið til að meta
hversu miklar líkur séu til þess að
markmiði Landsvirkjunar um arð-
semi verði náð. Er niðurstaða fyr-
irtækisins að um 80% líkur séu til
þess að Landsvirkjun takist að upp-
fylla þær arðsemiskröfur sem stefnt
sé að og hverfandi líkur séu til þess
að arðsemin nái ekki að standa und-
ir vaxtakostnaði af lánsfé.
Greinargerð Landsvirkjunar um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar
Gerir meira en standa
undir lágmarkskröfum
Ísafold mun flytja inn áburð í
lausu og pakka honum í stöðinni.
Einnig munu hráefni til fullvinnslu
verða flutt inn, þeim blandað sam-
an og áburður fullunninn til notk-
unar. Stefán Már sagði að stefnt
væri að því að hefja starfsemi fyrir
næsta vor. Hann sagði að meg-
inþungi starfseminnar yrði 5–6
mánuði á ári og þá þyrfti fimm
menn við pökkunina en einnig
þyrfti fyrirtækið að bæta við sig
sölumönnum.
Hyggjast auka hlutdeild
„Við ætlum að auka okkar hlut á
áburðarmarkaðnum í landinu á
næsta ári og þessi framkvæmd er
liður í því. Við munum færa af-
greiðsluna á áburðinum fyrir Suð-
urland til Þorlákshafnar. Áburður
til annarra landshluta verður flutt-
ur þangað með bílum og skipum.
Þarna verða því töluverð umsvif,“
sagði Stefán Már Símonarson,
framkvæmdastjóri Ísafoldar ehf.
Reisir fullvinnslustöð
á áburði í Þorlákshöfn
NORÐUR-suðurflugbraut Reykja-
víkurflugvallar verður tekin í
notkun í dag eftir endurbætur á
flugbrautinni sem staðið hafa yfir
frá byrjun ársins. Flugbrautin hef-
ur verið lokuð frá því í febrúar, að
því undanskildu að 1.000 metra
kafli við suðurendann var tekinn í
gagnið 7. júlí fyrir minni flugvélar.
Brautin er aðalbraut Reykjavík-
urflugvallar og með betri lending-
arbúnaði en austur-vestur brautin
og því minnka líkur á því að flug-
völlurinn lokist vegna veðurs.
Aðflugsbúnaðurinn kemst reyndar
ekki allur í gagnið strax þar sem
verið er að endurnýja þar hluti, en
það verður mjög fljótlega að sögn
Heimis Más Péturssonar, upplýs-
ingafulltrúa Flugmálastjórnar.
Hann segir það mjög gott að
brautin komist í notkun aftur,
enda um aðalbraut vallarins að
ræða. Auk þess sem veðurað-
stæður loka vellinum síður mun
opnun brautarinnar t.d. hafa í för
með sér að minna aðflug verður
yfir Fossvoginum.
Norður-suðurbraut
aftur í notkun
Morgunblaðið/RAX
Framkvæmdum við norður-suðurbraut á Reykjavíkurflugvelli er nú lokið og brautin verið tekin í notkun.
Selfossi. Morgunblaðið.
PÖKKUNAR- og fullvinnslustöð fyrir áburð verður reist í Þorlákshöfn
og gera áætlanir ráð fyrir að hún rísi á lóð nærri höfninni. Það er fyrir-
tækið Ísafold ehf. á Selfossi sem stendur að þessari byggingu en fyrsti
áfangi verksmiðjuhússins verður um tvö þúsund fermetrar. Stefán Már
Símonarson, framkvæmdastjóri Ísafoldar hf., sagði að hreppsnefnd Ölf-
uss hefði gefið jákvæð svör um lóð handa fyrirtækinu í nágrenni hafn-
arinnar. Ísafold var með 20–25% af áburðarmarkaðnum á þessu ári.
Ísafold ehf. á Selfossi færir út kvíarnar á áburðarmarkaði
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók í gær sextán ára pilt og tvítug-
an mann vegna gruns um aðild
þeirra að ráni í verslun 11–11 í
Skipholti í fyrrakvöld. Hinir hand-
teknu eru grunaðir um að hafa
hirt fjármuni úr peningakössum
verslunarinnar, en ekki liggur enn
ljóst fyrir hversu miklu var rænt.
Tvær afgreiðslukonur voru við
störf í versluninni þegar ræningj-
arnir birtust og munu þeir hafa
haldið konunum og hótað þeim lík-
amsmeiðingum. Hvorugur ræn-
ingjanna mun hafa verið vopnaður
en þeir höfðu e.k. grímur fyrir
andliti.
Tveir hand-
teknir vegna
ráns í 11–11
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ELDUR kom upp í bíl við norð-
urmunna Hvalfjarðarganganna um
tvöleytið í gærdag. Vilhjálmi Birg-
issyni, starfsmanni í gjaldskýli við
munnann, tókst að slökkva eldinn
sem logaði undir bílnum. Marinó
Tryggvason, afgreiðslustjóri Spal-
ar, segir að bíllinn hafi verið með
þunga kerru í eftirdragi sem varð
til þess að hann ofhitnaði með
fyrrgreindum afleiðingum. Bíl-
stjórann, sem var einn í bílnum,
sakaði ekki og var bíllinn ökufær
eftir atvikið.
Eldur í bíl
við Hval-
fjarðargöng