Vísir - 05.01.1980, Síða 6

Vísir - 05.01.1980, Síða 6
Laugardagur 5. janúar 1980 Kröfugerdin mótuö á ráöstefnu Verkamannasambandsins um helgina Verbur faílib frá kröfunnt um veröbætur í krónutöíu? Jón Karlsson Guömundur J. Guömundsson í fréttaljósinu T e x t i: P á 11 Magnússon Þau launþegasamtök sem aöild eiga aö ASt, hafa enn ekki mótaö kröfur sinar vegna komandi kjara- samninga, þrátt fyrir aösamningar þeirra flestra hafi veriö lausir frú og meö áramótum. Astæöan fyrir þessari töf er fyrst og fremst sú, aö á kjaramálaráöstefnu Alþýöusambandsins, sem haidin var í byrjun desember á siöasta ári, náöist ekki samkomulag um stefnuna i kjaramálum. Hugmyndum Verkamannasambands tslands um aö visitölubætur á laun yröu föst krónutala fyrir alla launþega var hafnaö i 44ra manna nefnd, en fuiitrúar á ráöstefnunni voru rúmiega 100. Þegar ljóst var aö samkomulag næöist ekki, var ráöstefnunni frestaö aö beiöni forystumanna VMSÍ, en hún mun koma saman aftur þann 11. janúar næstkomandi. Sú stefna VMSl sem deilt var um á ráöstefnunni felst i þvi aö kaupgjaldsvisitalan veröi notuö til iaunajöfnunar i ákveöinn tima, þannig aösömu veröbætur i krónutölu kæmu á öil laun og væru þær miö- aðar viö miölungslaun. Guöjón Jónsson, formaöur Málm- og skipasmiöasambandsins, Benedikt Daviösson, formaöur Sam- bands byggingamanna og fleiri forystumenn innan ASl, hafa lýst sig andviga þvi aö veröbætur veröi notaöar til launajöfnunar meöan veröbólgan er svo mikil sem raun ber vitni. Einnig hafa þeir haldiö þvi fram, aöslik launajöfnun þyrfti þá aö ná til allra launþega, en ekki bara þeirra sem eru innan ASl. Eins og kunnugt er, hefur BSRB hafnaö veröbótum sem launajöfnunartæki, en telja þó sfnar kröfur jafn- launakröfur. t samtali viö Visi skömmu eftir ráöstefnuna I desember, sagöi Snorri Jónsson forseti ASt, aö raddir innan ASt teldu ,,aö þaö væri réttara aö framkvæma launajöfnun meö misháum grunnkaupshækkun- um”, en krónutölureglunni og aö „enginn ágreiningur væri um þaö, aö nú ætti aö hækka lægstu launin mest”. Um þessa heigi mun Verkamannasambandiö halda sérstaka ráöstefnu og veröur þar rætt um hvort hvikaö skuli frá þeirri stefnu, sem ekki fékkst samþykkt á ASlráöstefnunni. Sú niöurstaöa sem Verka- mannasambandsráöstefnan kemst aö, getur haft afgerandi áhrif á þaö hvort eining næst innan ASt varöandi kröfugeröina fyrir komandi kjarasamninga. Vfsir haföi af þvi tilefni samband viö nokkra af forystumönnum VMSt og spuröi þá hvort stefnan um krónutöluhækkun yröi tekin til endurskoöunar og ef svo yröi ekki, hverjar væru þá likurnar fyrir þvf aö samkomuiag næöist á kjaramálaráöstefnunu ASt þann 11. janúar. Guömundur J. Guömundsson, formaöur Verkamannasam- bands tsiands: „Við komum ekki til meö aö ljá máls á flatri og jafnri prósentuhækkun á öll laun, hærri sem lægri. Þaö er i sjálfu sér hugsanlegt að ná þeim markmiöum sem Verkamanna- sambandiö setti sér meö öðrum leiðum en krónutöluhækkunum, en það verður ekki vikið frá anda þeirrar stefnu sem við höfum mótað. Það er ekki stætt á þvi kerfi sem við lýði hefur verið i þess- um efnum og við verðum að vona að samkomulagið náist innan ASt um breytingar á þvi, til hagsbóta fyrir hina lægst launuðu”. Jón Karlsson, formaður Verka- mannafélagsins Fram á Sauö- árkróki: „Ég geri ráð fyrir aö fram- kvæmdastjórn Verkamanna- sambandsins leggi fram ein- hverjar hugmyndir á þessari ráðstefnu um helgina og þær verði ræddar fram og aftur, en ég get ekkert um það sagt núna hvernig þetta veröur leyst. Ef menn geta komið fram með eitthvað á ASt-ráðstefn- unni sem i raun og veru er launajöfnunarstefna og bent á sæmilega vitrænar leiðir til að ná því markmiði, erum við til viðræðu um það. Ef hins vegar allt verður óbreytt eftir ráð- stefnuna frá þvi sem það var þegar við stóðum upp i des- ember, þá sé ég ekki betur en að þetta gliðni allt i sundur. Ég læt allt ósagt um það hvort ég sé bjartsýnn á að samkomu- lagið náist”. Jón Helgason, formaöur Verka- iýösfélagsins Einingar á Akur- eyri: „Við teljum krónutöluregluna fyrst og fremst leiö i þá átt að Jón Helgason jafna lifskjörin og það er mat mjög mikils hluta félagsmanna launþegasamtakanna, að nú verði að koma til móts við þá lægst launuðu, aðrir verði að biða. Við höfum svo oft dregið vagninn fyrir aðra án þess að fá neitt út úr þvi sjálfir. Ráðstefnan um helgina mun að sjálfsögðu reyna að marka þá stefnu sem við teljum likleg- asta til framdráttar fyrir okkar fólk. Ég hef fundið það á minu fólki sem ég hef rætt við, að það vill gera allt til að standa á fyrri samþykktum Verkamannasam- bandsins. Ef báðir hóparnir standa fast á sinu á kjaramálaráðstefnunni má búast við þvi að fylkingin riðlist, en við ætlumst til að hinir verði svo félagslegir að þeir biði”. MEÐ GESTSAUGUM Telknarl: Krls Jackson -- VIÐ HöfrUA\ EKKI VERJÐ í ALMENNILE&USTRÍÐI 5Í-DAKI A VIKINGflÖED 0& Vl-Ð VEROUAl EINHVERN j VEGIKI A-D FÁ LiTRÁS. í VlÐVERÐUAi fíÐ HAfA^PC ÞETTfi) SvONPij ÞVÍ f)£h- }"Ji}

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.