Vísir - 05.01.1980, Blaðsíða 25
Laugardagur S. janúar 1980
*’ V' i-VftN
25
Nyir réttir
á matsedli
Hótels Holts
Skúli Hansen aö störfum.
Kryddsmjör
Þaö tekur nokkurn tfma aö búa tii góöa sósu, eins og allir sslkerar
vita. Ef litili tfmi er til matartilbúnings, þá er upplagt aö eiga
nokkrar tegundir af kryddsmjöri f Isskápnum. Þaö er I flestum til-
vikum hœgt aö nota kryddsmjör i staöinn fyrir sósu. Auk þess er til-
valiö aö nota kryddsmjör ofan á brauö. Þaö er afskapiega einfalt aö
laga kryddsmjör. Smjöriö veröur aö vera lint svo hœgt sé aö hrœra
kryddinu saman viö þaö. Geymiö smjöriö i Isskápnum. Þaö má
forma þaö aö vild. Upplagt er aö nota glerkrukkur og önnur fiát
undan matvœlum, sem annars er fleygt. Hér eru nokkrar uppskrift-
ir aö kryddsmjöri.
Hvitlaukssmjör
Pressiö þrjú rif (þrjá báta) af
hvitlauk saman viö 100 gr. af
smjöri. Hræriö þetta vel saman.
Kryddiö smjöriö meö hvitum
pipar og teskeiö af sitrónusafa.
Rauðvinssmjör
Saxiö litinn lauk (2-3 mat-
skeiöar) og sjóöiö i 2 dl. af rauö-
vini viö litinn hita, þar til
helmingurinn af rauövininu er
eftir I pottinum (1 dl.). Sigtiö þá
laukinn frá rauövininu og hrær-
iö þvl saman viö 100 gr. af
smjöri. Kryddiö smjöriö meö
paprikudufti. Upplagt aö bera
rauövinssmjör fram meö nauta-
kjöti.
Maitre D’Hotel smjör
Hræriö saman 3 teskeiöum af
sitrónusafa, 3-4 matskeiöum af
steinselju og 100 gr. af smjöri.
Kryddiö þessa smjörblöndu
meö salti og hvitum pipar. Þetta
smjör á mjög vel viö fiskrétti og
kjúklingarétti.
Paprikusmjör
Kryddiö 100 gr. af smjöri meö
paprikudufti. Vert er aö vekja
athygli á þvl aö til eru margar
geröir af paprikudufti og eru
þær missterkar. Þiö veröiö þvl
aö krydda smjöriö eftir smekk.
Hræriö siöan 1 matskeiö af
tómatkrafti (tómatpure) saman
viö smjöriö.
Jurtasmjör
1 þetta smjör má nota ýmsar
tegundir af kryddjurtum, t.d.
Rósmarin, salviu, basilkum
merian. Athugiö þó, aö nota aö-
eins eina tegund I einu. Salvia
og Rosmarin eru bragömiklar
kryddjurtir. Notiö þvi ekki of
mikiö af þessum tegundum.
Einnig má nota púrrlauk, dill
graslauk. Kryddiö smjöriö meö
hvitum pipar og sltrónusafa.
Nemendur i Hótel og veitingaskóla tslands I tlma.
Vísiskvöld 28. feb. 1980
Fimmtudaginn 2&. febrúar
veröur haldiö „VtSíSKVÖLD' á
Hótel Loftleiöum. Matseöillinn
mun veröa mjög vandaöur.
Meöal rétta á matseölinum
veröur verölauna-forréttur
LenuBergmann. Nú stendur yfir
verölaunasamkeppni á vegum
Sælkerasiöunnar á meöal nem-
enda Hótel ■ og veitingaskóla
Islands. Sælkerasiöan hefur
beöiö nemendurna aö senda inn
uppskrift af góöri Bouillon eöa
seyöi. Urslit keppninnar veröa
birt hér á Sælkeraslöunni
laugardaginn 9, febrúar. Auö-
vitaö veröur verölaunaseyöiö á
matseöli Vísiskvöldsins 28.
febrúar. Viö stefnunj.aö þvl, aö
Vlsiskvöldiö sem nú er veriö aö
undirbúa, veröi sannkölluö
„sælkerahátiö”.
Hótel Holt hefur um árabil
veriö einn albesti veitingastaö-
urinn hér á landi bæöi hvaö
varöar mat og þjónustu. Apk
þess er veitingasalurinn
skemmtilega innréttaöur og á-
valt er unun af aö skoöa hin
stórkostlegu málverk sem
hanga á veggjunum. En þaö var
ekki meiningin aö fjalla um
málaralistina aö þessu sinni
heldur matargeröarlistina.
Matreiöslumeistari á Hótei
Holti er Skúli Hansen. Flestir
sælkerar kannast viö Skúla. En
nú eru sem sagt komnir nokkrir
nýir réttir á matseöiiinn og
kannaöi SÆLKERASÍÐAN þá.
Hörpuskelfiskur i hvit-
vini
Var fyrsti forrétturinn sem
viö brögöuöum á. Hörpusk^l-
fiskurinn er borinn fram i hVit-
vlnssósu meö spergli, sveppum
og er sósan bragöbætt meö~
sýröum rjóma. Fyrir alla þá
sem eru hrifnir af fiskréttum, er
þetta rétti forrétturinn. Sósan er
mild en bragögóö og hún yfir-
gnæfir ekki fiskbragöiö. Þessi
réttur kostar kr. 3.675.-. Sæl-
keraslöan getur mælt meö þess-
um rétti. Annar frábær forrétt-
ur, sem aö vlsu er ekki nýr á
matseölinum, er nr. 16 og nefn-
isthann „Hörpuskelfiskur Tara-
Búllba”. Hörpufiskurinn er vaf-
inn I bacon og þvi næst þræddur
upp á tein. Hann er siöan djúp-
steiktur. Meö þessum rétti eru
borin fram krydduö hrlsgrjón.
Hrisgrjónin eru brúnuö I karrý
og auk þess krydduö meö kln-
verskri Soja-sósu og Tabasco.
Fyrir þá sem eru gefnir fyrir vel
kryddaöan mat, þá er þetta rétti
forrétturinn. Hann kostar kr.
3.675.-.
Ofnbökuð smálúðuflök
— Egill sterki
Er einn af nýju fiskréttunum
ámatseölinum.Flökin eru soöin
i pilsner meö tómat, osti og blá-
skel. Sósan var bragögóö. Þessi
Kryddlegið lamba-
innraiæri
Eöa réttur nr. 46 á matseölin-
um er borinn fram meö pipar-
sósu, soönu hvítkáli og kartöfl-
um „ponf Anna”. Þaö er kart-
öflur, sem eru skornar I skifur
og raöaö I eldfast fat og lauk
stráö yfir hvert lag. Yfir efsta
lagiö er s vo hellt r jóma og slöan
stráö yfir rifnum osti. Þetta er
slöan bakaö I ofni. Þessi réttur
var einstaklega góöur. Kjötiö
var meyrt og bragömikiö. Sæl-
keraslöan mælir meö þessum
rétti, hann kostar kr. 6.575.-.
Annar nýr kjötréttur á matseöl-
inum er réttur nr. 44, sem eru
„Kryddlagöar Grisalundir
Nancy”. I sósunni er Koniak,
Madeira, Worcestershire-sósa,
rjómi, sinnep og sellerisalt auk
þess spergill og sveppir. Þessi
réttur kostar kr. 8.974.-. Annar
nýr réttur á matseölinum er nr.
45, sem er „Léttreyktur Kjúkl-
ingur meö rauövinssósu”. Kost-
ar þessi réttur kr. 8.975.-. Nýr
eftirréttur er nr. 63, „Banana
1S” og er hann búinn til af mat
reiöslumeisturum hússins.
Alþjóðlegt yfirbragð
Einkennir hinn nýja matseöil
Hótels Holts. Auk þess er þaö á-
nægjulegt aö á seölinum eru
réttir, sem búnir eru til úr hrá-
efni, sem viö seljum til útlanda,
á þaö viö um hörpuskelfiskinn
og lambakjötiö. Besta aug-
lýsingin á Islenskum matvælum
eru réttirnir sem eru búnir til úr
þeim og eru fáanlegir á Islensk-
um veitingahúsum og neytt af
tslendingum sjálfum. Ég hygg
aö margir útlendingar veröi
hrifnir af þessum nýju réttum
og vil ég þá nefna sérstaklega
lambakjötsréttinn, sem ég
nefndi hér áöan nr. 46 á mat-
seölinum. Veröiö er sanngjarnt.
Aö lokum óskar SÆLKERA-
StÐAN Skúla Hansen og ööru
starfsfólki Hótels Holts til ham-
ingju meö nýju réttina.
Réttur nr. 46 á matseölinum,
kryddlegiö lambainnralæri.
réttur kostar kr. 4.525.-. Þau
ykkar sem eruö gefin fyrir fisk-
rétti ættuö aö reyna þennan
rétt. Þiö veröiö ekki fyrir von-
brigöum. Annar nýr forréttur á
matseölinum er réttur nr. 19 —
„SKÖTUSELUR SX MICHEL”.
Skötuselurinn er soöinn i rjóma.
Þessi réttur kostar kr. 4.975.-.
sœlkerasíðan
-Í 1 ,