Vísir - 05.01.1980, Page 16

Vísir - 05.01.1980, Page 16
vtsm Laugardagur 5. janúar 1980 vtsnt Laugardagur 5. janúar 1980 /,Ég held nú ekki að barnaárið hafi haft mikii áhrif á það, sem ég hef verið að gera. Þetta hefur veriðaðgerjast í kollinum á mér undanfarin ár og það vildi bara svo til, að það fékk útrás einmitt á þessu ári," sagði Andrés Indriðason, dagskrár- gerðarmaður hjá Sjónvarpinu, þegar blaðamaður Vfsis ræddi við hann einn sfð- ustu daga barnaársins margfræga. Það getur hafa verið fyrir tilviljun, en reyndin er sú, að Andrés hefur sennilega lagt sig manna mest fram um að sinna þörfum barna á menningarsviðinu á ný- liðnu ári. Hann skrifaði verðlaunabókina Lyklabarn, drög að leikhúsverki, ævintýrið „I sjöunda himni", sem kom út á hljómplötu, útvarpsleikrit, sem verður flutt á þessu ári, og einnig verk fyrir sjónvarp. Þá þýddi hann allmargar barnabækur en síðast en ekki síst skrifaði haon handritað kvikmyndinni Veiðiferðinni, sem er gerð fyrir kvikmyndahús, og stjórnaði töku hennar. Ef ævintýrið er undanskilið eru þetta allt verk, sem f jalla um Iff barna f samtíma þjóðfélagi. Að auki hefur fastur þáttur f starfi Andrésar hjá Sjónvarpinu verið stjórnun barnatímans. Aðbyggja brú Þegar viö höföum sett okkur i stellingar I litlu skonsunni hans Andrésar i sjónvarpshúsinu, þar sem teikningar barna og myndir af dætrunum tveim skreyta vegg- ina, varö mér fyrst fyrir aö spyrja hvers vegna hann skrifaöi frekar fyrir börn en fulloröna. Er þaö kannski skemmtilegra? ,,Já, ætli þaö ekki bara. Þau eru svo einlæg og opin og segja manni hug sinn allan. Ef þeim likar ekki eitthvaö fær maöur þaö óþvegiö Annars tel ég mér alltaf trú um, aö ég sé aö skrifa bæöi fyrir börn ritiö og á sama tima skrifaöi hann Lyklabarn. „Ég hef lært þaö i starfi minu hjá Sjónvarpinu aö ganga meö margt i einu. Það má likja þvi við að hafa margar skúffur i kollin- um, sem eru dregnar út eftir hentugleikum og öörum lokaö á meöan. Ég er búinn aö vinna hjá Sjón- varpinu frá upphafi þess. Fyrst vorum viö dagskrárgeröarmenn- irnir aöeins tveir, Tage Ammen- drup og ég. Mestallt innlent efni hvildi þá á okkar herðum og viö vöndumst þvi að fara úr einu I annaö og vera fljótir aö þvi!” — Hvernig stóö á þvi aö þú fórst aö vinna hjá Sjónvarpinu? drýgstan þáttinn I þvi aö islenska sjónvarpiö komst á koppinn. Þetta stúdió var jafnan kallað ITV — Islands TV. I upphafi viss- um við, sem réöumst til sjón- varpsins, harla litiö um þetta allt saman, eins og gefur aö skilja, og sjálfum fannst mér þetta allt flókið framan af. En þegar ég fór svo aö vinna, varö sitthvaö ljós- ara af þvi, sem Danirnir höföu veriö aö kenna mér. Þaö var mikiö lagt á okkur hér fyrstu árin. Maður hugsaöi ekki um það þá, en sér þaö svona eftir á. Viö geystumst áfram af ein- hverjum óskýranlegum krafti og áhuga. Og starfið var skemmti- legt þrátt fyrir allt, þvi allir voru kom þannig til, aö þegar ég var 10 ára söng ég I drengjakór Frl- kirkjunnar. Um þaö leyti átti aö færa upp barnaóperu i Þjóöleik- húsinu, Litla sótarann. Þá vant- aöi krakka til aö syngja og ég varö fyrir valinu meöal annarra. Eftir aö byrjaö var að æfa óper- una, var þó ákveöiö aö hætta við allt saman. Ári seinna var siöan hóaö i mig og ég prófaöur i hlutverk Péturs I Feröinni til tunglsins. Eftir þaö fékk ég aö vera meö I ýmsum sýningum og kynntist þá leikur- um og ööru starfsfólki bak við tjöldin. Þar fékk ég þessa bakteriu, sem maöur hristir ekki svo auö- veldlega af sér.” — Þig hefur kannski langað til aö veröa leikari? „Nei, ég sá strax að þaö ætti ekki við mig. Ég tók þó þátt I Herranóttum á menntaskóla- árunum, en þaö var alltaf undir- búningurinn, sem mér fannst skemmtilegastur. Þegar fariö var aö sýna leikritin fannst mér ekkert gaman lengur. Þaö átti eRki viö mig aö gera þaö sama upp aftur og aftur.” Minnisstætt sumar — Hvaö fannst þér nú skemmti- legast aö fást viö af þessum auka- störfum þinum á siöasta ári? vægt i svona starfi aö stilla sam- an hugina og leggja grundvöll aö góöu og samstilltu andrúmslofti á tökustaö. Samstarfiö viö leikar- ana var lika eins gott og best verður á kosiö og börnunum vil ég lika hrósa fyrir dugnað og góða framkomu meöan á öllu þessu stóö. Svo hófst taka myndarinnar I sumarfriinu i júli. Viö ákváöum I upphafi að hún ætti aö gerast I sól! Við erum miklir bjartsýnis- menn, eins og sjá má. Og viö fengum allar tegundir Islenskrar veöráttu. Þessi júlimánuöur var einhver sá kaldasti, sem veriö hefur á Þingvöllum. Stundum fengum viö öll veöur sama dag- inn. Einn morguninn, þegar viö vöknuöum var snjóföl á jöröu. Um hádegiö var logn og glamp- andi sól, en siödegis fór að rigna. Þaö kom I ljós, sem viö vissum reyndar áöur aö kvikmyndagerö á tslandi byggist að verulegu leyti á þolinmæöi. Maöur mætir kannski á staöinn meö fjöldann allan af fólki og siöan er beöiö eftir glennu, sem stundum kemur alls ekki. Þetta veöurlag hér gerir okkur kvikmyndagerðarmönnum hvaö erfiðast fyrir. Viö vorum tiltölu- lega heppnir, þvi aö I siöari hluta mánaöarins kom einstakur góð- viöriskafli, sem bjargaöi öllu saman. Heföi þessi óvænta veöur- sæld ekki komiö til, heföum viö ekki getaö lokiö tökum myndar- „EG ER EKKl AD PREDIKA NElTTt — SEGIR ANDRES INDRIÐASON, SJONVARPSMAÐUR OG RITHÖFUNDUR í VIDTALI VIÐ HELGARBLAÐIÐ Valgeröur, Andrés og dætur þeirra, Ester og Asta, skoöa fjölskyldu myndirfráliönusumrilmyndsjá á heimili slnu. og fulloröna. í rauninni vakir fyrir mér aö brúa kynslóöabilið. Aö eyöa þessari skiptingu I barna- og fulloröinsmenningu. Ég held aö Lyklabarn höföi alveg eins til fulloröinna. Margir þeirra ættu að geta séö sjálfa sig þar. Eins er um kvikmyndina Veiöi- ferö. Hún er ekki alfariö barna- mynd, heldur er hún alveg eins fyrir fullorðna.” Margar skúffur Fyrsta verkefni Andrésar á sviöi ritstarfa á nýliönu ári var leikrit, sem hann er enn aö vinna aö I samráöi viö Svein Einarsson, þjóöleikhússtjóra. Meö vorinu tók hann svo til viö kvikmyndahand- „Ég var blaöamaöur á Morgunblaöinu i tvö ár eftir stúdentspróf. Þegar Sjónvarpiö var i undirbúningi sóttum viö tveir starfsfélagar um störf þar, Markús Orn I frétta- og fræöslu- deild, ég i lista- og skemmtideild. Viö geröum þetta allt eins I gamni, en fengum báöir starfiö. Ég haföi ekki lært neitt til starf- ans frekar en aörir. Viö vorum allir sendir á námskeiö erlendis. Ég var hjá danska sjónvarpinu vetrarlangt, fyrst I Árósum, þar sem ég var i nokkra mánuöi á stifu námskeiði fyrir dagskrár- geröarmenn og siöan var ég meö tæknimönnunum okkar I Kaup- mannahöfn talsveröan tima, en Danir lögöu okkur til stúdió og lærifeöur i þessum fræöum og aö öörum ólöstuöum áttu þeir Halli og Laddi sitja fyrir I hlutverkum Eyjapeyja viö töku myndar- innar Veiöiferö. Bak viö kvikmyndavélina eru Jón Kjartansson, Val- geröur Ingimarsdóttir, GIsii Gestsson og Andrés Indriöason. ákaflega ánægöir og þakklátir aö fá Islenskt efni á skjáinn. Viö vorum um 30 i byrjun, en nú starfa hér yfir 100 manns. Viö dagskrárgeröarmennirnir I Lista og skemmtideild erum orönir fjórir, en þaö mætti aö ósekju veröa fjölgun i þessarri stétt. Þetta var alveg hörkuspenn- andi timi I byrjun og skemmtileg- ur. Að visu var litiö tóm til aö setjast niöur og móta einhverja skipulega dagskrárgerðarstarf- semi, þvi maöur sá aldrei upp fyrir nefiö á sér. En á móti kom, aö áhuginn var slikur að maöur hugsaöi ekki um annaö.” Bak viðtjöldin — Hvernig kom þaö svo til, aö þú fórst aö fást viö ritstörf? „1 starfi minu viö barnatimann, hef ég oft þurft að gripa til penn- ans, en þar fyrir utan voru leikrit fyrstu verkefnin á þvi sviöi. Ég skrifaöi leikrit fyrir Þjóöleikhúsiö fyrir nokkrum árum, Köttur úti I mýri, og siöar útvarpsleikrit. Þaö hét Elisabet og var i fimm hálf- tima þáttum. Mér fannst mjög gaman aö spreyta mig á útvarps- forminu og vinnan viö þetta verk var ákaflega lærdómsrik. Þætt- irnir fimm voru nokkuö ólikir að forminu til, þvi aö eftir þvi sem ég skrifaöi þá áttaði ég mig betur og betur á möguleikum og takmörk- unum viö gerö útvarpsleikrita. Aö þvi leyti var þetta fyrirtaks þjálf- un. Klemens Jónsson, sem leik- stýröi, var lika óspar á góö ráö, og fyrir þaö er ég honum ákaflega þakklátur. Leikhúsiö hefur alltaf togaö i mig frá þvi ég datt I þann lukku- pott aö fá aö leika i Feröinni til tunglsins sem smástrákur. Þaö „Mér er auövitaö mjög ofar- lega I huga, aö ég skyldi hljóta verölaunin i barnabókasam- keppni Máls og menningar. Þetta var frumraun min á þessu sviöi og ég átti alls ekki von á aö út- koman yrði þessi. En þó held ég aö kvikmyndin sitji nú lengst i mér, þegar fram liöa stundir. Ég fann mest fyrir þvi verkefni. Þessa sumars verð- ur lengi minnst i sögu kvikmynd- anna á íslandi. Þetta var sum- ariö, sem islensk kvikmyndagerö byrjaöi I einhverjum mæli. Ég er þó ekki meö þvi aö kasta rýrö á þá, sem áöur lögöu hönd á plóg- inr.. En aldrei áöur hefur slik gróska veriö i gerö leikinna kvik- mynda hér. Nú er bara að sjá hvort fleiri koma á eftir og hvort þetta er vis- ir aö varanlegri grósku.” Gamall draumur innar, þvi aö vinnan I sjónvarpinu kallaöi á mig I ágústbyrjun, kvik- myndatækin voru bókuð i Land og synir noröur I landi og leikararnir höföu lika öörum hnöppum aö hneppa. Þannig þurfti Pétur Einarsson nauösynlega aö láta klippa sig, þvi aö hann átti að fara að leika i sjónvarpsleikritinu Drottinn blessi heimiliö! Eldmóöur — Hvernig gekk aö fá endana til aö ná saman? „Þegar ég hugsa til baka, þá velti ég þvi fyrir mér hvernig i ó- sköpunum viö fórum að þessu. Viö vorum aöeins fjögur, sem unnum aö gerö myndarinnar á upptökustaö, Gisli Gestsson, sem — Hvernig stóö á þessari kvik- myndagerö ykkar Gisla Gests- sonar? „Þetta var gamall draumur hjá okkur Gisla. Við sóttum um styrk úr kvikmyndasjóöi og þegar viö fengum hann hófumst við strax handa. Ég skrifaöi handritiö I april og maí og I júni hófust æf- ingar. 1 buröarmeiri hlutverkun- um eru atvinnuleikarar. Ahuga- leikarar eru lika i nokkuö stórum hlutverkum og svo koma fjögur börn fram I myndinni. Æfingarn- ar, sem voru flest kvöld og helgar i júni, voru einkum I þvi fólgnar að ræða um verkiö, um persón- urnurnar, hvernig fólk þetta væri og hvaöa áherslur og skilning ætti aö leggja I textann. Stundum ræddum viö um allt aöra hluti, þvi aö þaö er ekki hvaö sist mikil- „Ég tel mér trú um aö ég skrifi fyrir bæöi börn og fulloröna.” stendur aö gerð myndarinnar á- samt mér, kona min, Valgeröur Ingimarsdóttir, Jón Kjartansson, hljóöupptökumaður, og svo ég. Kona Gisla, Geröur Bergsdóttir, sá um útréttingar i bænum meöan við dvöldum á Þingvöllum. Leik- ararnir leyfðu okkur aö fresta greiöslum til sin, og þaö m.a. gerði okkur kleift að gera þetta. Einnig fengum við greiöslufrest i Bretlandi hjá þeim aöilum, sem sjá um ýmiskonar tæknivinnu, sem ekki er hægt að vinna hér á landi. Viö fengum fimm milljón króna styrk úr kvikmyndasjóöi, sem segir svona 1/8 af heildar- kostnaöi við myndina. Styrkurinn dugði til að greiöa hráfilmu og framköllun. Ég vil gjarna geta þess, að viö mættum mikilli vel- vild hjá öllum, sem viö leituöum tilvegna myndgeröarinnar. Ýmis fyrirtæki og einstaklingar veittu okkur ómetanlegan stuöning. Viö þurftum t.d. að fá lánaöa bila, báta, hesta og hund. Meöal ann- ars sýndi sýslumaöurinn i Arnes- sýslu okkur þá vinsemd aö lána okkur lögreglubil i nokkra daga. Með allri þessari hjálp tókst okk- ur þetta. Kvikmyndagerö er mik- iö og kostnaðarsamt fyrirtæki og þaö segir sig sjálft, að viö eigum óuppgert viö marga. Við vonumst nú samt til aö ná endunum sam- an, þegar sýningarnar hefjast. Við erum bjartsýnismenn, viö Gisli! Til þess aö ljúka þessu á einum mánuði, uröum viö aö leggja nán- ast nótt viö dag. Viö vorum aö frá klukkan 7 á morgnana og allt til miönættis. Hvert okkar vann i rauninni margra manna starf, en þaö gerði ekkert til. Þaö var ein- hver eldmóður, sem rak okkur á- fram. Núna er vinnan komin á siöasta stigiö. Magnús Kjartansson hefur lokið viö aö semja tónlistina og nú er veriö aö leggja hana viö mynd- ina og jafnframt er sýningarein- takiö i klippingu úti i Englandi. Viö stefnum aö þvi, aö myndin veröi tilbúin til sýninga i næsta mánuði, en það er enn ekki á- kveðiö hvar hún veröur sýnd.” Margt i pokahorninu — Ertu meö eitthvað fleira i bi- gerö? „Já, ég á margt fleira i poka- horninu, sem ég vona aö ég hafi tima til aö sinna. Ég er enn aö vinna aö leikritinu, en ég vonast til aö ljúka þvi á þessu ári. Svo langar mig til aö skrifa aöra bók, ef einhver vill gefa hana út. En þaö er nú svo, aö islenskir bókaútgefendur sjá tæplega hag sinum borgiö meö þvi aö gefa út islenskar barnabækur, meöan þeir eiga kost á erlendum fjöl- þjóðaútgáfum. Þær eru yfir höfuö ódýrari, skrautlegri og ásjálegri en islensku bækurnar. Auk þess kostar jafn mikið að prenta bók hvort sem hún er fyrir börn eöa fullorðna, en barnabókin veröur að vera mun ódýrari. Ég vil þó ekki vera of svart- sýnn. Islenska barnabókin mun auðvitaö lifa sinu lifi þrátt fyrir allt þetta. Og merki um aö augu útgefenda séu að opnast fyrir islenskum barnabókum er m.a. barnabókasamkeppni Máls og menningar en i hana bárust hvorki fleiri né færri en 29 hand- rit. A þessu ári mun Mál og menning gefa út fimm bækur, sem bárust i samkeppnina og koma þá alls út s jö bækur úr þess- ari samkeppni, þegar bækur okk- ar Armanns Kr. Einarssonar eru taldar meö. Engin alhæfing — Hvaö ertu að segja meö skrifum þinum? Eru þau ádeilu- verk? „Ég reyni aö lýsa samskiptum barna og fullorðinna i nútima þjóðfélagi. 1 Lyklabarni skoöa ég tilveruna frá sjónarhóli 10 ára stúlku, sem á svo önnum kafna foreldra, að þeir gefa henni ekki gaum, heldur varpa mikilli á- byrgð á heröar henni. Ég vil ekki alhæfa og ég er ekki að predika neitt I bókinni. Ég læt aðra um aö draga sinar ályktanir. En i okkar þjóöfélagi bjóöa aö- stæðurnar þvi heim, aö fólk vinni mikiö, sem oft kemur niöur á börnunum. Þaö er stundum talaö um svo- kallaöar „vandamálabækur” og þá i niðrandi merkingu yfirleitt. Þaö eru bækur, sem I hugum sumra eru fram úr hófi siörænar og leiöinlegar. Ég hef orðiö var viö, aö sumir þeir, sem ekki hafa lesiö bókina mina, hafa viljaö setja hana á þessa hillu. Mér finnst þetta ekki alls kostar sann- gjarnt. Bókin er vitaskuld skrifuð með þaö i huga aö vekja til um- hugsunar, en fyrst og fremst lagöi ég áherslu á að hún væri skemmtileg aflestrar og ég vona aö hún sé þaö. Þaö þýöir ekki aö bjóöa börnum leiöinlegar bækur. Þau eru fljót aö leggja þær frá sér. Ég var fljótur aö skrifa bókina og vann aö henni á sama tima og handritinu aö Veiöiferöinni. En söguefniö var lika búiö aö gerjast I mér lengi og þess vegna var það fljótskrifaö. Þó er þessi hraöi ef til vill minn veiki punktur.” Má ekki ganga of langt — Hvernig kemstu yfir öll þessi verkefni meö fullu starfi hjá Sjón- varpinu? „Þaö er nú svo undarlegt, að eftir þvi sem maöur hefur meira að gera, þvi meiri kraft fær maö- ur til aö sinna þessum hlutum. Þó reyni ég aö ganga ekki svo langt i allri vinnunni, aö það komi niöur á fjölskyldunni. Dætur mínar eru núna fjögurra og sex ára og þær þurfa á þvi aö halda aö þeim sé sinnt. Reyndar má vera aö þær eigi sinn þátt i aö koma þessú öllu af staö. En starf mitt hjá Sjónvarpinu er ákaflega krefjandi. Maöur er þar undir sifelldri gagnrýni, ekki sist á sviöi barnaefnis. Ég býst viö, aö þaö sé kominn timi til aö ég fari aö hvfla mig á dagskrár- gerðinni eftir samfellt 14 ára starf. Sannast sagna heföi ég áhuga á aö fá launalaust leyfi hjá sjónvarpinu um eitthvert skeið. Ég hef sótt um starfslaun úr launasjóði rithöfunda til þess aö geta hreinsaö til 1 nokkrum skúff- um og komiö á blaö þeim hug- myndum og drögum, sem ég á i fórum minum. Mér finnst, að fólk I skapandi störfum — eins og t.d. dagskrárgeröarmenn — eigi aö fá tækifæri til aö hlaða sig nýrri orku af og til. Ég vona svo sannarlega, aö ráöamenn stofnunarinnar séu á sama máli! Aö gefa börnum gaum — Hvaö finnst þér annars um barnaáriö? Hefur þaö skilaö árangri? „Ég veit það ekki. Það hafa veriö haldnar margar og miklar ráðstefnur og mikið talaö. Mér finnst þó allar þessar umræöur hafa veriö ákaflega yfirborös- kenndar og litið hafa komiö út úr þeim. Það hafa verið samþykktar ályktanir, sem núna liggja senni- lega einhvers staöar ofan i skúffu. Hitt er annað mál aö mér virö- ist hafa verið lögð áhersla á að foreldrar geri frekar eitthvað meöbörnum sinum, heldur en aö geraeitthvaö fyrirþau. Ef barna- áriö hefur komið þvi til leiðar, hefur það náö tilgangi sinum.” -SJ Sviösmynd úr „Enarus montanus” hjá Herranótt M.R. Taliö frá vinstri eru Tómas Zoega (nú framkvæmdastjóri L.R.), Andrés, Helga Gunnarsdóttir, Stefán Benediktsson og Friörik Sóphusson (aiþingis- maður). Fyrsta leikhlutverk Andrésar var I sýningu Þjóðleikhússins á Ferðinni til tungisins. Myndir: Jens Aíexandersson9 Bragi Guðmundsson o. /I. Viðtat: Sigurveig Jónsdóttir

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.