Vísir - 05.01.1980, Page 31
vtsm
Laugardagur 5. janúi
Skjálftum fer fjölgandi viö
Kröflu og landris heldur áfram.
Þetta bendir til þess að von sé á
umbrotahrinu á svæðinu en hve-
nær hún verður er ómögulegt að
segja til um.
Bryndis á skjálftavaktinni við
Reynihlið sagði i gær að þar
nyrðra tækju þau ekki i mál að
spá um framvindu mála. — SG
Námsmennirnir á fundinum um ferðamálin. Vlsismynd: BG
Peggy Guggen-
heim látin
Peggy Guggenheim lést á
Þorláksmessu, 23. desember s.l. á
heimili sinu nálægt Feneyjum.
Hún var 81 árs að aldri.
Guggenheim var margmilljón-
eri og þótti ákaflega sérvitur.
Hún átti stærsta málverkasafn
heims i einkaeigu og var stofn-
andi Guggenheim-safnsins i
Bandarikjunum. Hún þótti og
mjög iðin við að styrkja ýmsa
listamenn, þ.á.m. Jackson Poll-
ock sem hún uppgötvaði.
Peggy Guggenheim var f jórgift
og var einn eiginmanna hennar
málarinn Max Ernst en aö auki
stóð hún á sinum tima i sambandi
við menn eins og málarann Yves
Tanguey og rithöfundinn Samuel
Beckett. —IJ
Hámsmenn komu meo
SterHng I Ktiairi
Fengu hagstæðara tilboð en irá isienskum liugiéiögum
„Ástæöan fyrir þessum fundi
okkar hér er sú, aö stúdentar i
Kaupmannahöfn og aörir sem bú-
settir eruþarhafa mátt þola dýr-
ustu fargjöld I heimi hingaö til.
Þetta er hreint kjaraspursmál
fyrir námsmenn sem vilja koma
heim t.d. I jólafri”, sagöi Skúli
Thoroddsen, framkvæmdastjóri
Félagsstofnunar stúdenta, I sam-
tali viö Visi.
A fundinum sem Skiili nefnir
var fjallað um feröa og fargjalda-
mál. Hann sátu fulltrúar náms-
manna f Danmörku og Sviþjófy
einnig tveir fulltrúar Stúdenta-
ráös Háskóla Islands og fulltrúar
SINE.
Samband Islendinga- og náms-
mannafélaga I Danmörku og
Sviþjóð leituöu tilboöa um leigu-
flug til tslands nú I haust. Hag-
stæðasta tilboðið kom frá
Sterlingflugfélaginu og kostaöi
farið fram og til baka til Kaup-
mannahafnar 109 þúsund krónur.
Brottfarardagar eru bundnir i
þessum samningi, bæöi heim og
til Kaupmannahafnar
Þetta er i fyrsta sinn, sem
hópur Islendinga á Noröurlönd-
um semur viö erlenda aöila um
flug til tslands en áður hafði verið
samiö við Flugleiöir um þessar
feröir og I eitt skipti við Arnar-
flug.
Flugleiöir veita félögum i
tslendingafélögum á Noröurlönd-
um sérstök kjör. Miðinn gildir i
þrjá mánuði og brottfarardagur
er fastsettur frá Kaupmanna-
höfn. Fargjaldið kostar 151 þús-
und krónur.
Þrjár leiguvélar komu hingað
frá Sterling alls með um 450
farþega, en þeir fara aftur utan
nú um helgina.
Vélarnar fóru aftur tdmar utan,
nema ein en Stúdentaráð fékk til
ráðstöfunar 63 sæti, og kostaöi
fargjaldið 88 þúsund krónur.
A Norðurlöndum reka
stúdentafélög sina eigin ferða-
skrifstofuog samtök stúdenta hér
á landi hafa fullan hug á þvi að
gera slikt hið sama.
KP.
Umbrol
I aðsigl?
Aðalleikarar sjónvarpskvikmyndarinnar „Ct i óvissuna”,
Ragnheiður Steindórsdóttir lengst til hægri.
SlónvarDið Kaupir sjónvarps-
myndina „úi i ðvissuna”
Hugsaniega
sýnd íhessum
mánuDi
„Það er vel hugsanlegt að
sjónvarpsþátturinn „Út I óviss-
una” verði sýndur hér núna I
janúarmánuði” sagði Björn
Baldursson blaðafulltrúi sjón-
varpsins i samtali við VIsi.
Björn sagði að enn rikti þó
nokkur óvissa um það hvort
hægt væriaösýna fyrsta þáttinn
16. janúar eins og fyrirhugað
var, þar sem þættirnir eru ekki
enn komnir til landsins. Alls eru
þættirnir þrir og er hver þeirra
50 minútna langur.
„Framhaldsþátturinn „Ú’t i
óvissuna” er gerður eftir sögu
Demonds Bagley og er hann
tekinn að mestu leyti hér á
landi. tslenskir leikarar eru i
mörgum hlutverkum, þar af
leikur Ragnheiður Steindórs-
dóttir annaö aðalhlutverkið.
Aðrir islenskir leikarar sem
koma við sögu eru Steindór
Hjörleifsson, Harald G.
Haraldsson, Arni Ibsen, Jóna
Sverrisdóttir Lilja Þórisdóttir,
Jón Sigurbjörnsson og Flosi
Ólafsson.
Hala iengið sýnistiorn al lagmetlnu. sem kvarlað var yflr:
Nlðurstðður
efllr 2 vikur
- seglr KJf. Jakotnwskl, sölusQ. mesenkrone I V-Þýskalandl
„Við höfum sent sýnishorn af
þessari vöru til rannsókna og
fáum væntanlega niðurstöðurnar
innan tveggja vikna”, sagði K.H.
Jakobowski, söiustjóri Friesen-
krone, i samtali við Visi. En
Friesenkrone er umboðsaðili
Sölustofnunar lagmetis i Vestur-
Þýskalandi og sá um dreifingu á
þeirri niðursoðnu rækju sem
kvartanir hafa borist um.
Að sögn Jakobowskis hafa
kaupendur einungis kvartað yfir
þeirri lykt sem er af rækjunni, en
engar athugasemdir hafa verið
gerðar við bragðið. Að öðru leyti
vildi Jakobowski ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
Gylfi Þór Magnússon hjá Sölu-
stofnun lagmetis sagöi aö menn
frá Sölustofnuninni væru á förum
til V-Þýskalands nú eftir helgi og
myndu þessi mál væntanlega
skýrast eftir þá för.
Grimur Valdimarsson hjá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins sagði að enn væri ókomið þaö
sýnishorn af rækjufarminum sem
Rannsóknarstofnunin á von á frá
V.-Þýskalandi. „Viö munum gera
okkar prófanir þegar þau berast,
en ég á ekki von á þvi að niður-
stöðurnar verði aðrar en við höf-
um komist að við fyrri prófanir á
samskonar vöru og leiddu engar
skemmdir i ljós”, sagöi Grimur.
Grimur sagði einnig að oft
fyndist eins og væg brennisteins-
lykt þegar dósirmeð niðursoðinni
rækji' væru opnaðar, en það
þyrfti ekki að þýða að varan væri
skemmd.
Þess má geta aö á vegum
sjávarútvegs- og iönaöarráðu-
neytis er nú sameiginlega unnið
að viötækri athugun á öllum þátt-
um lagmetisframleiðslunnar, en
Gisli Einarsson deildarstjóri i
sjávarútvegsráðuneytinu, vildi
ekkert segja um hvenær niður-
stöður henar lægju fyrir. — p.m.
Fundur farandverkafólks á morgun
„Farandverkafólk hefur
undanfarna mánuði háð baráttu
til að fá viöurkennd ýmis réttindi
sin I kjarasamningum og reglu-
gerðum. Barátta þessi hófst i
Vestmannaeyjum i júlimánuði á
siðastaári og hefur verið unnið
ósleitilega að málefnum farand-
verkafólks sföan af sérstökum
starfshópi” segir i fréttatilkynn-
ingu frá Baráttuhópi farand-
verkafólks.
„Nú fer vertið aö hefjast og far-
andverkafólk að halda út á ver-
stöðvarnar, i vinnu til sjós og
lands. Vegna þess hefur verið
boðaöur almennur umræðu-
fundurum málefni farandverka-
fólks i Félágsstofnun stúdenta
sunnudaginn 6. janúar nk., kl. 14.
(Ath., aö hér er um breyttan
fundartima að ræöa frá þvi sem
áður hefur verið auglýsti.A þess-
um fundi gefst tækifæri til að
ræða kröfur farandverkafólks og
þá ekki si'st hvernig best væri að
hrinda þeim iframkvæmd. Vegna
þessa hefur forystumönnum
Alþýðusambands Islands, Verka-
mannasambands tslands og Sjó-
amannasambandsins veriö boðið
sérstaklega á fundinn, og er von-
ast til aö þeir sjái sér fært að
mæta. Ekki sist vegna þess að á
Kjarmálaráöstefnu ASl 11.
janúar nk. verður stefna laun-
þegasamtakanna ákveðin fyrir
komandikjarasamninga. En inn i
þá samnina er nauösynlegt aö
komist ákvæði um réttindi far-
andverkafólks,” segir ennfremur
i tilkynningunni.
Frummælendur á fundinum á
sunnudaginn vera þessir:
Þorlákur Kristinsson ræðir um
kröfur farandverkafólks, Björn
Gislason sjómaður ræðir um hina
daglegu baráttu, Gunnar Karls-
son lektor flytur spjall úr sögu
farandverkafólks, Erla Sigurðar-
dóttir ræðir um Islenskt farand-
verkafólk á Norðurlöndum.