Morgunblaðið - 26.10.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Athyglisbrestur með ofvirkni
Líffræðilegar
orsakir
TVEGGJA daga for-eldranámskeið umathyglisbrest með
ofvirkni verður haldið nú
um helgina. Þetta er
fræðslunámskeið, sem
einungis er ætlað foreldr-
um ofvirkra barna og
standa Foreldrafélag mis-
þroska barna og Fræðslu-
þjónustan Eirð að nám-
skeiðinu, sem haldið er í
safnaðarheimili Háteigs-
kirkju. Foreldrafélagið
fékk styrk frá Velferðar-
sjóði íslenskra barna og
er námskeiðið ókeypis
fyrir félagsmenn.
„Námskeiðin hafa verið
haldin í nokkur ár, yfir-
leitt tvisvar á ári, á haust-
in og aftur að vori,“ sagði
Kristín Kristmundsdóttir
félagsráðgjafi. Fullbókað er á
námskeiðið að þessu sinni en
næsta námskeið verður haldið í
mars-apríl á næsta ári.
– Hvað er boðið uppá á nám-
skeiðunum?
„Námskeiðin byggjast á fyrir-
lestrum og mun Páll Magnússon
sálfræðingur ræða um greiningu,
framvindu og horfur, Ólafur Ó.
Guðmundsson barnageðlæknir
fjallar um orsakir og lyfjameð-
ferð og ég verð með fyrirlestur
um fjölskyldur ofvirkra barna.
Málfríður Lorange sálfræðingur
fjallar um ofvirka ungbarnið og
að þessu sinni mun hún einnig
fjalla um atferlismeðferð fyrir of-
virk börn í stað Sólveigar Ás-
grímsdóttur sálfræðings, sem er
stödd erlendis. Á sunnudag mun
Rósa Steinsdóttir listmeðferðar-
fræðingur flytja fyrirlestur um
meðferð ofvirks barns í máli og
myndum, Sólveig Guðlaugsdóttir
geðhjúkrunarfræðingur mun
fjalla um ofvirka barnið í skipu-
lögðu umhverfi og Sigríður
Benediktsdóttir sálfræðingur
fjallar um ofvirkni hjá unglingum
og loks fjallar Ragna Freyja
Karlsdóttir sérkennari um
kennslu ofvirkra barna í grunn-
skóla.“
– Hvað er athyglisbrestur og
hver eru helstu einkenni?
„Einkennunum er skipt í þrjá
flokka, athyglisbrest, hvatvísi og
hreyfivirkni. Þetta eru börn, sem
eiga erfitt með að einbeita sér að
verkefnum í skóla. Eiga erfitt
með að hlusta, fylgja fyrirmælum
og að skipuleggja athafnir. Þau
truflast auðveldlega af því sem er
að gerast í kring um þau og týna
hlutum sem þau þurfa á að halda.
Hvatvísin kemur fram í að þau
framkvæma hluti án þess að hug-
leiða afleiðingarnar, eiga erfitt
með að bíða eftir að röðin komi
að þeim t.d. í leik og segja það
fyrsta sem þeim dettur í hug.
Hreyfivirkni einkennist af því að
þau eiga oft erfitt með að sitja
kyrr, eru oft með hendur og fæt-
ur á hreyfingu og tala oft mikið
og hátt. Til að greinast með at-
hyglisbrest með ofvirkni þarf að
vera ákveðinn fjöldi
einkenna, sem koma
fram fyrir sjö ára ald-
ur en fyrstu einkenni
eru oft mikil hreyfi-
virkni og geta komið
fram við eins til tveggja ára ald-
ur. Síðan kemur hvatvísin og síð-
ast athyglisbresturinn, sem kem-
ur skýrast fram þegar þau byrja
í skóla.“
– Fer athyglisbrestur með of-
virkni eftir kynjum?
„Hann er mun algengari meðal
drengja en stúlkna eða um þrír
drengir á móti hverri stúlku.
Bandarískar rannsóknir hafa
sýnt að algengi athyglisbrests
með ofvirkni er talið vera 3 til
5%. Rannsóknir benda einnig til
að orsakir séu líffræðilegar en
ekki uppeldislegar.“
– Er athyglisbrestur með of-
virkni læknanlegur?
„Það eru til lyf, sem halda of-
virknieinkennum í skefjum en í
fyrsta lagi verða foreldrar að
beita ákveðnum uppeldisaðferð-
um og í öðru lagi verður að laga
kennsluaðferðir að þöfum þeirra
og svo er það lyfjameðferð.“
– Eldist ofvirkni af þeim sem
greinast?
„Hér áður fyrr var talið að of-
virknin myndi eldast af börnum
þegar þau kæmust á unglingsár.
Rannsóknir hafa hins vegar sýnt
fram á að nokkuð dregur úr ein-
kennum og þá sérstaklega
hreyfivirkni en önnur einkenni,
þ.e. athyglisbresturinn og hvat-
vísin, verða áfram fyrir hendi en
í mismiklum mæli. Þó að þessi
börn geti átt í erfiðleikum má
ekki gleyma því að þau eru oft
hugmyndarík og skemmtileg og
þau hafa mikinn drifkraft sem
þarf að stýra.“
– Er langt síðan farið var að
greina ofvirkni?
„Greining er markvissari í dag
heldur en fyrir tíu árum vegna
aukinnar þekkingar hjá fagfólki
og við vitum betur hverjar þarfir
þessa hóps eru. Það er mjög mik-
ilvægt að greina ofvirkni sem
fyrst hjá barninu til þess að hægt
sé að bregðast við bæði heima og
í skólanum. Þess vegna er mik-
ilvægt að foreldrar viti
hvernig þeir eiga að
bregðast við og ekki
síður kennarinn.
Þetta námskeið um
helgina er fyrst og
fremst ætlað foreldrum, sem eiga
börn sem hafa fengið nýlega
greiningu en hugmyndin er að
bjóða í framtíðinni upp á fram-
haldsnámskeið fyrir foreldra.
Fræðsluþjónustan Eirð hefur
einnig staðið fyrir fræðslunám-
skeiðum fyrir fagfólk, grunn- og
leikskólakennara auk fólks sem
starfar í heilsugæslu og fé-
lagsþjónustu.“
Kristín Kristmundsdóttir
Kristín Kristmundsdóttir fé-
lagsráðgjafi er fædd í Reykjavík
1954. Hún útskrifaðist sem fé-
lagsráðgjafi frá Árósum 1979 og
hóf störf á geðdeild Landspít-
alans 1980. Frá 1987 hefur hún
starfað á Barna- og unglingageð-
deild Háskólasjúkrahúss Land-
spítala við Dalbraut og einnig
hjá Fræðsluþjónustunni Eirð.
Eiginmaður Kristínar er Eyjólf-
ur Einar Bragason arkitekt. Þau
eiga tvö börn, Pétur Örn og
Elísabetu Björtu.
Erfitt með
að einbeita
sér í skóla
Í BRUNAMÁLASTOFNUN er nú
unnið að drögum að reglugerð um
brunavarnir í samgöngumannvirkj-
um og segir Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra að í reglugerðinni,
sem verður sett fljótlega, verði tí-
undað hvaða kröfur skuli vera gerð-
ar til brunavarna, t.d. í jarðgöngum.
„Ég tel að það þurfi að greiða úr
þessum málum, ábyrgðin sé skýr og
kröfur verði settar um hvaða varnir
eigi að vera,“ segir Siv. Hún segir
að göng og önnur samgöngumann-
virki sem verða byggð í framtíðinni
þurfi að lúta þeim reglum sem sett-
ar verða fram í reglugerðinni og
einnig þurfi að skoða hvað hægt er
að gera til að efla brunavarnir í
þeim göngum sem þegar eru risin.
„Að sjálfsögðu þurfa farþegar sem
fara um göngin að búa við eðlilegt
öryggi þegar þeir fara þar um,“ seg-
ir Siv.
Á fundi um brunavarnir á þriðju-
dag sagði slökkviliðsstjóri Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins það ein-
ungis tímaspursmál hvenær
eldsvoði brytist út í göngunum og
að slökkviliðið væri illa búið til að
takast á við eldsvoða þar. Fólksbíll
valt í göngunum á miðvikudag og
um mitt sumar láku tugir bensín-
lítra úr tankbíl sem var á leið um
göngin. Nefnd á vegum dómsmála-
ráðuneytisins fjallar nú um flutning
á hættulegum varningi um göngin.
Krafna um brunavarnir
í jarðgöngum að vænta
ALLS verða 170 gerðir af nýjum bíl-
um til sýnis á höfuðborgarsvæðinu
um næstu helgi þegar bílaumboðin
efna til sameiginlegra bíladaga. Vin-
ir bílsins, regnhlífarsamtök Bíl-
greinasambandsins, umboðanna,
tryggingafélaga og lánafyrirtækja,
standa um þessar mundir fyrir átaki
til að ýta undir jákvæð viðhorf til
bílsins og er sýningin um helgina
sem nefnist bíladagar liður í því.
Bílaumboðin 12, sem hafa umboð
fyrir 30 tegundir bíla, verða með
sýningu hvert á sínum stað og í
Smáralind verða þau með sameigin-
lega sýningu á aldrifsbílum. Bíladag-
ar standa milli kl. 12 og 17 á laug-
ardag og 13 og 17 á sunnudag.
Sýningin byrjar þó í Smáralind í
dag, föstudag, og þar er opið lengur.
Þá standa umboðsmenn bílaumboð-
anna út um land víða fyrir sýningum.
Gestir geta hugsanlega unnið til
verðlauna með því að fá stimpil fyrir
heimsóknir á þrjár sýningar og veitir
hvert umboð um sig slík verðlaun.
Vinir bílsins benda á að bílverð
hafi ekki hækkað í takt við almenn
verðlag og segja þar muna 10%.
Kaupmáttur gagnvart verði nýrra
bíla hafi farið hækkandi og þeir
segja vexti af bílalánum með þeim
lægstu sem bjóðist af neyslulánum.
Bíladagar
hjá öllum
bílaumboðum
um helgina
♦ ♦ ♦