Morgunblaðið - 26.10.2001, Side 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sævarhöfða 2a - 112 Reykjavík
sími 525 9000 - www.bilheimar.is
MEIRIHLUTI þeirra sem stunda
ferðaþjónustu á Norðurlandi, þ.e. á
svæðinu frá Skagafirði til og með
Þingeyjarsýslum, hefur áhuga á því
að sameinast um rekstur markaðs-
skrifstofu.
Ferðamálasetur Íslands hefur að
undanförnu unnið að könnun fyrir
Ferðamálasamtök Norðurlands
eystra, en verkefnissstjóri var Jóna
Jónsdóttir. Niðurstöður könnunar-
innar voru kynntar á fundi nýlega,
en markmið hennar var að fá fram
viðhorf þeirra sem stunda ferðaþjón-
ustu á Norðurlandi til samstarfs um
markaðsskrifstofu fyrir svæðið. Þá
var einnig skoðað hvaða væntingar
menn hefðu til þeirrar þjónustu sem
slík skrifstofa ætti að veita og fá
fram hugmyndir stjórnenda fyrir-
tækja um þátttöku þeirra í starfsem-
inni og fjármögnun hennar.
Áhugi reyndist vera á samstarfi
um rekstur slíkrar markaðsskrif-
stofu, en talið er að það myndi hafa
jákvæð áhrif á sýnileika fyrirtækja
þeirra. Sýndu margir því áhuga að
leggja fram fé til að stofna og reka
slíka markaðsskrifstofu. Skýrt kom
þó fram hjá þeim sem stunda ferða-
þjónustu að áhuginn er ekki fyrir
hendi nema sveitarfélögin taki einn-
ig þátt í fjármögnuninni. Fulltrúar
sveitarfélaganna telja að sveitar-
félögin taki ekki þátt í rekstri mark-
aðsskrifstofu nema ferðaþjónustan
leggi sitt af mörkum.
Markaðsskrifstofu yrði ætlað að
móta sameiginlega stefnu í ferða-
málum fyrir allt svæðið og vinna að
almennri markaðssetningu á þeirri
þjónustu sem í boði er.
Lagt er til að skrifstofan verði á
Akureyri, sem er miðsvæðis og býð-
ur upp á góðar samgöngur. Áætlað-
ur stofnkostnaður er um 2,7 milljónir
króna, en árlegur rekstrarkostnaður
27 milljónir króna.
Skýrsla Ferðamálaseturs Íslands
verður kynnt á fundi Ferðamálasam-
taka Norðurlands eystra 20. nóvem-
ber næstkomandi og verður í fram-
haldi af honum væntanlega tekin
ákvörðun um næstu skref.
Könnun fyrir Ferðamálasamtök Norðurlands eystra
Áhugi á markaðsskrifstofu
ÍSLANDAFUGL ehf. hefur ráðið
Rögnvald Skíða Friðbjörnsson, bæj-
arstjóra í Dalvíkurbyggð, í stöðu
fjármálastjóra fyrirtækisins og
mun hann hefja störf hjá félaginu
að loknu yfirstandandi kjörtímabili
núsitjandi sveitarstjórnar Dalvík-
urbyggðar, en því lýkur næsta vor.
Bæjarstjóri greindi frá þessari
ákvörðun sinni á fundi bæjarráðs
Dalvíkurbyggðar í gær.
Rögnvaldur Skíði baðst undan
því á bæjarráðsfundinum að vinna
að málefnum Íslandsfugls komi þau
til umfjöllunar hjá sveitarfélaginu á
meðan hann gegnir starfi bæjar-
stjóra og varð bæjarráð við þessari
ósk.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson
hóf störf sem bæjarstjóri Dalvík-
urbyggðar í júní 1994 og lýkur því í
vor sínu öðru kjörtímabili í starfi
bæjarstjóra. Áður var Rögnvaldur
Skíði skrifstofustjóri og síðar úti-
bússtjóri Kaupfélags Eyfirðinga á
Dalvík samtals í 22 ár.
Íslandsfugl ehf. er kjúklinga-
framleiðslufyrirtæki sem hóf starf-
semi sl. vetur.
Varphús er stað-
sett á Árskógs-
strönd, eldishús
í landi Ytra-
Holts sunnan
Dalvíkur og
slátur- og
vinnsluhús og
útungunarstöð á
Dalvík. Slátrun
hófst í ágúst síð-
astliðnum og er
slátrað milli 10 og 11 þúsund fugl-
um í hverri viku. Uppbygging Ís-
landsfugls hefur verið hröð og hún
mun halda áfram. Nú er hafin
bygging annars varphúss á Ár-
skógsströnd og er stefnt á að það
verði komið undir þak í desember.
Á fimmta tug starfsmanna eru nú
á launaskrá hjá Íslandsfugli ehf.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, bæjarstjóri á Dalvík
Rögnvaldur
Skíði Frið-
björnsson
Ráðinn fjármála-
stjóri Íslandsfugls
Dalvíkurbyggð
TVEIR ungir menn á Dalvík hafa
verið dæmdir í Héraðsdómi Norður-
lands eystra til að greiða sekt í rík-
issjóð vegna nytjastulds og umferð-
arlagabrots. Skal annar greiða 35
þúsund krónur í sekt eða sæta 7
daga fangelsi ella en hinn 25 þúsund
krónur og kemur 5 daga fangelsi í
hennar stað verði sektin ekki greidd
innan fjögurra vikna.
Mennirnir sem eru 18 og 21 árs
voru ákærðir fyrir nytjastuld og um-
ferðarlagabrot, en þeir tóku í sam-
einingu og heimildarlaust reiðhjól
við verslunina Dallas á Dalvík og tví-
menntu á því um götur bæjarins nótt
eina í maí síðastliðnum. Sá er hjólinu
stýrði var einnig ákærður fyrir að
hjóla undir áhrifum áfengis og að
reiða farþega yfir 7 ára aldri. Hjólið
laskaðist nokkuð eftir ferð þeirra tví-
menninga. Mennirnir játuðu sakar-
giftir. Við ákvörðun refsingar var
m.a. litið til þess að þeir unnu verkn-
aðinn í sameiningu, en einnig til ungs
aldurs og skýlausrar játningar sem
og þess að þeir hafa greitt eiganda
reiðhjólsins skaðabætur.
Sektaðir fyrir að
tvímenna ölvaðir
á reiðhjóli
Bygging menningarhúss á Akureyri
Samið um ráðgjöf
og undirbúning
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum að fela Krist-
jáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra að
ganga frá samningum vegna ráð-
gjafar og undirbúnings að bygg-
ingu menningarhúss. Kristján Þór
sagði að áfram væri unnið að ýms-
um þáttum sem tengjast áformum
um byggingu menningarhúss í
bænum og að m.a. stæðu yfir við-
ræður við ríkisvaldið.
Nokkur umræða hefur verið inn-
an bæjarkerfisins vegna fyrirhug-
aðrar framkvæmdar og varðandi
staðsetningu slíks húss hefur helst
verið horft til uppfyllingar á horni
Strandgötu og Glerárgötu. Bæj-
arráð mælti með því í árslok 1999
að byggt yrði menningarhús sem
gerði ráð fyrir tónleikasal fyrir allt
að 500 áhorfendur ásamt æfingasal
svo og leikhússal fyrir allt að 350
áhorfendur ásamt æfingasal.
Heildarkostnaður við slíka fram-
kvæmd er á bilinu 1,5-2 milljarðar
króna en ráðgert er að hún verði
fjármögnuð sameiginlega af Ak-
ureyrarbæ og ríkinu, auk þess sem
einstaklingar geti tekið þátt í
verkefninu.