Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 27
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 27
TAP Nýherja hf. nam 94 milljónum
króna fyrstu níu mánuði ársins en
félagið skilaði 173 milljóna króna
hagnaði á sama tímabili í fyrra.
Í árshlutareikningi félagsins fyrir
fyrstu níu mánuði ársins kemur
fram að rekstrartekjur voru 2.835
milljónir króna á þessu tímabili og
jukust um 17% á milli ára. Rekstr-
argjöld námu hins vegar 2.866
milljónum króna en voru 2.398
milljónir á sama tíma í fyrra.
Lakari afkomu Nýherja hf. má,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu, að hluta til rekja til
gengistaps sem ásamt verðbótum á
tekjuskattsskuldbindingu nam 77
milljónum króna. Auk þess hefur
umtalsverður kostnaður af þróun
nýrra lausna fyrir SAP-hugbúnað-
inn og kerfisleigu fyrir hann verið
gjaldfærður á árinu og sömuleiðis
kostnaður vegna þróunarstarfsemi
dótturfélaga. Einnig féll til veruleg-
ur kostnaður vegna vinnu við SAP-
tilboð í fjármagns- og mannauðs-
kerfi fyrir ríkissjóð og stofnanir
hans.
Áætlað að hagnaður verði af síð-
asta ársfjórðungi og verkefnastaða
félagsins næstu mánuði er ágæt.
Enn fremur kemur fram í árshlut-
areikningnum að tekjur fyrirtæk-
isins af sölu á vörum og þjónustu
séu áætlaðar um 4 milljarðar króna
á þessu ári.
Afkoma
Nýherja
versnar
vegna þeirra sjúkdóma sem herjað hafa á búfé
undanfarin ár og hefur Marel lausnin töluverða
sérstöðu. Þetta nýja kerfi byggist á flæðilínum
Marel sem notaðar hafa verið í fiskiðnaði til
margra ára. Marel hefur unnið að því að laga
MAREL hf. hefur gert tvo stefnumarkandi
samninga við fyrirtæki í kjötiðnaði í Evrópu og
Bandaríkjunum. Verðmæti samninganna er um
500 milljónir króna.
Annar samningurinn er við norskt fyrirtæki,
Norway Meats, sem kaupir fullkomið kerfi fyr-
ir úrbeiningu nautgripa. „Rekjanleiki afurðar
frá dýri til pakkaðrar vöru er innbyggður í
kerfið.
Aukin krafa er um rekjanleika í kjötvinnslu
þær lausnir að kjötvinnslu með góðum ár-
angri,“ segir í frétt frá fyrirtækinu.
Hinn samningurinn er umfangsmeiri og er
við fyrirtæki í Texas. Kjötvinnslukerfið mun
þjóna verksmiðju sem framleiðir steikur fyrir
um 300 Outback veitingahús í Bandaríkjunum.
Kerfið samanstendur af kjötsnyrtilínum, skurð-
arvélum og hugbúnaði.
Bæði kerfin verða afhent og tekjufærð fyrri
hluta næsta árs.
Marel selur tæki í kjöt-
vinnslu fyrir 500 milljónir
Marel selur bæði til
Noregs og Bandaríkjanna
GENGI íslensku krónunnar
lækkaði um 0,69% í gær. Geng-
isvísitalan var 145,40 stig í lok
dags, en var 144,40 stig við opn-
un. Vísitalan er nú í næsthæsta
lokunargildi sem verið hefur.
Það var aðeins 20. júní í sumar
sem það fór hærra, í 145,75
stig. Veltan á gjaldeyrismark-
aði var um 3,3 milljarðar, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum. Gengi
Bandaríkjadals er nú skráð
105,13 krónur og hefur styrkst
gagnvart krónunni um 0,4% í
gær. Gengi evrunnar styrktist í
dag um 0,91% gagnvart krón-
unni og er nú 94,16 krónur, en
var 93,40 í miðvikudag.
Gengi
krónunnar
lækkar enn
HLUTHAFAFUNDUR hefur verið
boðaður hjá Línu.Neti næstkomandi
þriðjudag. Fyrir liggur að óskað
verður eftir heimild frá stjórn fé-
lagsins til hækkunar á hlutafé um
allt að 350 milljónir króna. Eiríkur
Bragason, framkvæmdastjóri Línu.-
Nets, segir að ekki sé búið að ákveða
hvert gengi bréfanna verður, hversu
mikið hlutaféð verður hækkað eða
hvenær. Heimildin gildir fram til 1.
júní 2004. Aðspurður sagði Eiríkur
að það væri með öllu óráðið hvort
nýir hluthafar kæmu inn nú.
Lína.Net frestaði sölu hlutabréfa í
sumar vegna óvissu á hlutabréfa-
markaði. Eiríkur segir ennfremur
að ekki sé fyrirhuguð nein samein-
ing eða samvinna við önnur félög og
rekstrarform Línu.Nets verði eins
og það er nú.
Lína.Net lauk nýverið stefnumót-
unarvinnu og lögð verður meiri
áhersla á IP-gagnaflutningsþjón-
ustu og fjarskiptaþjónustu um IP-
net. Eiríkur segir að styrkur fyr-
irtækisins liggi á því sviði og þar sé
útlit fyrir mesta vöxtinn á næstu ár-
um.
Sóst eftir heim-
ild til hækk-
unar hlutafjár
Línu.Nets
♦ ♦ ♦