Morgunblaðið - 26.10.2001, Qupperneq 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÁDI-arabíski hryðjuverkaforing-
inn Osama bin Laden keypti milt-
isbrandsgró fyrir andvirði rúmrar
milljónar króna af einkareknum
rannsóknarstofum í Austur-Evrópu
og Suðaustur-Asíu, að sögn félaga í
íslömsku Jihad-samtökunum í
Egyptalandi. Hann segir að bin Lad-
en hafi fengið miltisbrandsgróin og
fleiri hættulegar bakteríur, svo sem
salmonellu og saurgerla, frá rann-
sóknarstofum sem hafi selt sýklana
eftir póstpöntun.
Ahmad Ibrahim al-Najjar, félagi í
Jihad, hélt þessu fram í vitnisburði
fyrir rétti í Egyptalandi þar sem
hann hefur verið dæmdur í lífstíð-
arfangelsi fyrir að reyna að steypa
egypsku stjórninni. Hann var hand-
tekinn í Albaníu árið 1999 og fluttur
til Egyptalands.
New York Post segist hafa fengið
þýðingu á vitnisburði al-Najjars. Þar
heldur hann því fram að bin Laden
hafi keypt sýkla af rannsóknarstof-
um í nokkrum löndum. Rannsóknar-
stofur í Austur-Evrópu, meðal ann-
ars Tékklandi, hafi selt útsendurum
hans sýkla eftir póstpöntun og að-
eins sett það skilyrði að þeir greiddu
andvirði 750.000 króna fyrirfram.
Ekki hafi verið kannað hverjir kaup-
endurnir voru. Samstarfsmenn bin
Ladens eru einnig sagðir hafa keypt
miltisbrandsgró fyrir andvirði
370.000 króna af rannsóknarstofu í
Suðaustur-Asíu. Al-Najar segir að
Íslamska Moro-fylkingin í Indón-
esíu, sem er í nánum tengslum við
bin Laden, hafi keypt miltis-
brandsgró af sömu rannsóknarstofu.
Embættismenn í Hvíta húsinu og
nokkrir þingmenn í Washington hafa
sagt að grunur leiki á að miltis-
brandsgróin, sem send hafa verið í
pósti í Bandaríkjunum, tengist bin
Laden og hryðjuverkasamtökum
hans, al-Qaeda, þótt það hafi ekki
verið sannað.
Aðeins þrjú ríki gátu
framleitt aukefnin
The Washington Post hafði eftir
sérfræðingum í gær að miltis-
brandsgróin sem send voru í pósti á
skrifstofu Thomas A. Daschle, meiri-
hlutaleiðtoga demókrata í öldunga-
deild Bandaríkjaþings, hafi verið
meðhöndluð með svo háþróuðum
aukefnum að aðeins þrjú ríki hafi
getað framleitt þau.
Að sögn blaðsins eru Bandaríkin,
Sovétríkin fyrrverandi og Írak einu
ríkin sem vitað er að hafi framleitt
aukefnin. Þessi efni eru nauðsynleg
til að gróin haldist lengi í loftinu og
dreifist á stærra svæði en ella. Þau
auka því líkurnar á því að fólk andi
gróunum að sér og sýkillinn er þá
hættulegri.
Hvert þessara ríkja beitti sinni
eigin aðferð við vinnslu þessara efna
og hugsanlegt er því að efnarann-
sóknir, sem þegar hafa verið hafnar,
geti varpað ljósi á uppruna þeirra.
The Washington Post hafði eftir
bandarískum embættismanni að all-
ar þær upplýsingar, sem nú liggja
fyrir, bendi enn til þess að ólíklegt sé
að miltisbrandsgróin hafi verið
ræktuð í Sovétríkjunum fyrrverandi
eða Írak. Jafnvel þótt efnarannsókn-
in leiði í ljós hvaðan aukefnin komu
kunni að verða erfitt að svara þeirri
spurningu hverjir hafi sent gróin því
óljóst sé hvort þau hafi verið í
öruggri geymslu í þessum ríkjum
síðustu árin.
Bin Laden sagð-
ur hafa keypt
miltisbrandsgró
NÆR 10.000 Bandaríkjamenn
hafa tekið inn sýklalyf að
beiðni yfirvalda til að fyrir-
byggja miltisbrandssýkingu,
að sögn bandarískra embættis-
manna í gær. Ekki er vitað
hversu margir hafa tekið inn
lyf við miltisbrandi án samráðs
við yfirvöld.
Bandarísk heilbrigðisyfir-
völd skýrðu ennfremur frá því
í gær að náðst hefði samkomu-
lag við framleiðanda sýklalyfs-
ins Cipro, sem hefur reynst
vel við miltisbrandi, um að
Bandaríkjastjórn keypti 100
milljónir taflna af lyfinu.
Tommy Thompson heilbrigðis-
ráðherra sagði að stjórnin ætti
að greiða 95 sent fyrir hverja
töflu, eða helmingi minna en
hún hefur yfirleitt greitt til
þessa.
Fleiri miltisbrandsgró
í byggingu Daschle
Skýrt var frá því í gær að
miltisbrandsgró hefðu fundist í
vörulyftu í einni af byggingum
öldungadeildar Bandaríkja-
þings, sömu byggingu og bréf,
sem innihélt miltisbrandsgró,
var opnað. Rannsóknarmenn
höfðu áður fundið miltis-
brandsgró á tveimur hæðum
byggingarinnar. Thomas A.
Daschle, meirihlutaleiðtogi
demókrata, er þar með skrif-
stofu og bréfið var sent hon-
um. Bandarískir embættis-
menn segja að hugsanlega hafi
miltisbrandsgró verið í fleiri
bréfum sem send hafa verið í
bygginguna.
Bandarískir embættismenn
sögðu í fyrrakvöld að frétta-
kona í Washington hefði fengið
sýklalyf vegna gruns um að
hún hefði andað að sér milt-
isbrandsgróum. Hún var fyrir
utan skrifstofu Daschle þegar
bréfið var opnað. Læknar eru
enn að rannsaka hvort konan
hafi andað að sér sýklinum.
Sýklum komið
í matvæli?
Demókratar í fulltrúadeild
þingsins lögðu í gær fram
frumvarp þar sem gert er ráð
fyrir að sjö milljörðum dala,
andvirði rúmra 700 milljarða
króna, verði varið til barátt-
unnar gegn sýklaárásum. Féð
verður meðal annars notað til
að kaupa bóluefni og sýklalyf,
bæta heilbrigðiseftirlitið, verja
matvæli og vatnsbirgðir og
herða eftirlit við landamæri.
Öldungadeildarþingmaður-
inn Bill Frist, sem er skurð-
læknir, sagði í gær að hryðju-
verkamenn kynnu næst að
setja sýkla í matvæli sem seld
eru í Bandaríkjunum. Hann
sagði að aðeins 1% innfluttra
matvæla væri skoðað í Banda-
ríkjunum og matvælaeftirlits-
mennirnir væru alltof fáir.
800.000 póstmenn
fá grímur
Bandaríska póstþjónustan
kvaðst í gær ætla að bjóða
800.000 starfsmönnum sínum
grímur og hanska vegna milt-
isbrandsógnarinnar og sagði
að verið væri að leita leiða til
þess að dauðhreinsa póst í
Bandaríkjunum.
Miltisbrandurinn í
Bandaríkjunum
Nær
10.000
hafa tek-
ið inn
sýklalyf
Washington. AP.