Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 34

Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VIÐUNANDI VINNUAÐSTAÐA FYRIR BÖRNIN OKKAR ENN UM ÖRYGGI Í HVALFJARÐARGÖNGUM Fréttir í Morgunblaðinu í gær afslysum í St. Gotthards- ogHvalfjarðargöngum eru óneitanlega til þess fallnar að vekja á ný umræðu um öryggi í þessum lengstu jarðgöngum á Íslandi og til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til að draga úr líkum á alvarlegu slysi ef þar kæmi upp eldur. Einnig þarf að huga betur að öryggi í öðrum jarð- göngum á Íslandi, því í frétt blaðsins á miðvikudag var t.d. greint frá því að Ólafsfjarðargöngin væru fóðruð með eldfimu efni sem kvikna myndi í ef fólksbifreið brynni. Vegagerðin hef- ur þó lýst yfir vilja til að gera end- urbætur á fóðringunni í samræmi við kröfur Brunamálastofnunar og verð- ur það vonandi sem fyrst. Þó að bílveltan í Hvalfjarðargöng- unum í fyrrakvöld hafi ekki valdið manntjóni, þá leiddi slysið samt til töluverðrar hættu vegna bensínleka og er það í annað sinn á stuttum tíma sem slík hætta skapast. Eldsvoði í jarðgöngum er afar erfiður viður- eignar eins og sannaðist í St. Gott- hards-göngunum nú, þar sem tveir flutningabílar urðu valdir að slysi svo eldur varð laus með skelfilegum af- leiðingum. Eldsvoðar í jarðgöngum í Evrópu hafa vakið ugg manna á und- anförnum árum og eru Mont Blanc- göngin í Frakklandi t.d. enn lokuð eftir mjög alvarlegt slys af þeim toga, en þar í landi greinir menn á um við- unandi öryggisráðstafanir svo hægt sé að opna göngin á ný. Í frétt Morgunblaðsins sl. miðviku- dag, var haft eftir Hrólfi Jónssyni, slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins, að „nauðsynlegt væri að komast út úr þeim vítahring sem skapast hefur í tengslum við ör- yggismál í Hvalfjarðargöngunum“. Hrólfur segir það aðeins tímaspurs- mál hvenær eldsvoði brýst þar út, en enginn hafi enn tekið að sér að leiða vinnu við að yfirfara viðbragðsáætl- anir í kjölfar bensínleka úr flutninga- bíl í göngunum sl. sumar. Hann greindi jafnframt frá því að Slökkvi- lið höfuðborgarsvæðisins væri ekki í stakk búið til að bregðast við alvar- legu slysi í göngunum vegna skorts á viðeigandi tækjabúnaði. Þessum ummælum Hrólfs ber að taka af mikilli alvöru. Það er að sjálf- sögðu óforsvaranlegt ef ekki er snar- lega brugðist við því er fagaðilar á borð við slökkviliðsstjóra benda með svo ótvíræðum hætti á fyrirsjáanlega hættu. Ljóst er að ef ekki hefði verið búið að grípa til ákveðinna öryggis- ráðstafana í St. Gotthards-göngunum hefðu mun fleiri farist. Þar er t.d. öfl- ugt reyklosunarkerfi og neyðarbyrgi með 250 metra millibili, þar sem margir leituðu skjóls þar til hjálp barst. Hér á landi hefur m.a. komið til tals að koma upp vegriði á milli akreina í Hvalfjarðargöngunum í öryggis- skyni. Vegrið gæti komið í veg fyrir hættulegan framúrakstur og dregið úr umferðarhraða sem vissulega er fyrirbyggjandi slysavörn. En jafn- framt er ástæða til að meta hvort ekki sé of hættulegt að leyfa flutninga á gasi og eldsneyti um göngin, sem og á öðrum farmi sem valdið gæti miklum skaða ef til eldsvoða kæmi. Fyrsta skrefið í umbótaátt í öryggismálum Hvalfjarðarganga er þó að ganga endanlega frá því hvaða aðilar bera ábyrgð á brunavörnum og -eftirliti og sjá til þess að sá tækjakostur sem nauðsynlegur er sé til staðar. Fyrir nokkru þurfti að loka skóla-stofu í Brekkuskóla á Akureyri vegna þess að húsnæðið hélt hvorki vatni né vindi auk þess sem skordýr höfðu tekið sér bólfestu í bygging- unni þar sem sagginn var mestur. Það var Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra sem dæmdi skólastofuna ónot- hæfa eftir að hafa gefið frest til úr- bóta allt frá því síðasta vor svo að hægt væri að nota sumarið til að ráða bót á vandanum, en allt kom fyrir ekki. Aðrar stofur skólans virðast heldur ekki standast sanngjarnar kröfur til skólahúsnæðis því foreldrar barna í einum bekk fundu sig knúna til að mála sjálfir skólastofu barna sinna. Nú berast fréttir af því að húsnæði Víðstaðaskóla í Hafnarfirði sé einnig illa úr sér gengið. Þar er leki, óvið- unandi salernisaðstaða og lélegur húsbúnaður, auk þess sem aðstaða 1. til 7. bekkjar til að matast er engin, en það er í ósamræmi við ákvæði grunnskólalaga. Af viðtölum Morgunblaðsins við Guðríði Friðriksdóttur, fram- kvæmdastjóra Fasteigna Akureyrar- bæjar og Halldór Árnason, fram- kvæmdastjóra stjórnsýslu og fjármálasviðs Hafnarfjarðarbæjar, má ljóst vera að þeim er sjá um við- hald skólahúsnæðis í báðum þessum bæjarfélögum hefur verið fullkunn- ugt um ástand viðkomandi skóla- bygginga um nokkurt skeið. Þó hefur lítið verið aðhafst til að ráða bót á vandanum þannig að það húsnæði sem börnum í þessum skólum er ætl- að að vinna sín daglegu störf í sé við- unandi. Báðir aðilar bera það fyrir sig að einsetning grunnskólanna hafi haft þann forgang að aðrir hlutir hafi setið á hakanum, en þar fyrir utan hlýtur að vera ljóst að það fé sem áætlað hefur verið til eðlilegs við- halds þessara húseigna hefur verið vanmetið lengi. Sá tími sem í stjórnsýslunni virðist stuttur þegar ráða þarf bót á aðbún- aði barna í skólum getur verið langt tímabil í grunnskólagöngu þeirra ein- staklinga sem mynda hvern árgang. Með það í huga sem og þá staðreynd að börn eru ekki sterkur þrýstihópur er afar brýnt að sveitarfélögin sjái sóma sinn í því að halda skólahúsnæði sínu við og mynda þannig viðeigandi umgjörð fyrir það starf er leggur grunninn að menntun barnanna og þar með framtíð samfélagsins alls. BAUGUR hf. tilkynnti áVerðbréfaþingi í gær aðfélagið ætti í viðræðumvið Arcadia Group um kaup á öllum útistandandi bréfum í Arcadia. Viðræðurnar eru sagðar á frumstigi og óljóst hvort þær muni leiða til þess að Baugur geri tilboð í bréfin. Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, segir að ef til þess komi þá muni Baugur sækjast eftir að eign- ast allt hlutafé í Arc- adia Group, alls um 189 milljónir hluta- bréfa. Baugur á nú 20,1% hlutabréfanna, um 38 milljónir bréfa, og sækist því eftir um 151 milljón bréfa til viðbótar. Tilgangur yfirtökunnar mundi, að sögn Jóns Ásgeirs, verða að endurskipuleggja reksturinn og gera breytingar á félaginu í kjölfar hennar, ef allt gengur eftir. Hann segist ekki geta tjáð sig um við- ræðurnar við Arcadia en segir við- líka tilkynningar ekki sendar út á breskum hlutabréfamarkaði nema um sé að ræða mjög ákveðnar við- ræður. Kostar 63–67,5 milljarða Tilkynnt hefur verið að verðhug- myndir Baugs séu á bilinu 280-300 pens á hlut og um staðgreiðslukaup verði að ræða, sem þýðir að Baugur þyrfti að greiða 63 til 67,5 milljarða króna fyrir hluti annarra hluthafa. Erlendir fjölmiðlar fjölluðu mik- ið um málið í gær, þar á meðal Fin- ancial Times, Wall Street Journal og BBC. Í þeim síðastnefnda er haft eftir John Baillie, sem starfar við fyrir- tækjagreiningar hjá SG Securities, að verðið sé of lágt og 350 pens væru nær lagi. Í Wall Street Journal kemur svipað sjónarmið fram hjá Iain McDonald, sem vinn- ur við fyrirtækjagreiningar hjá Numis Securities. Þá segir Reuters líka að þeir sem starfi við greiningu telji verðið of lágt. Jón Ásgeir segir ekki koma til greina að hækka verðtilboð um- fram uppgefið verðbil. „Ég tel þetta sanngjarnt verð fyrir bréfin miðað við hvernig markaðurinn er í dag og hvernig félagið er gírað. Það eru góðir hlutir inni í Arcadia en það eru líka hlutir sem þar og munu kosta peninga.“ Þ hann á að verð bréfanna h 38 pens fyrir 12 mánuðum Jón Ásgeir segist ekki g upp á þessu stigi málsin muni standa á bakvið fjá kaupanna. Augljóslega sé lendir aðilar að baki svo st mögnun, íslenskir aðilar þátt nema að litlu leyti. Hafa ekki aukið hlut Hann segir að Baugur aukið við hlut sinn í gær tilboð gert þá verði það ger bréf allra annarra hlutha Það muni þó ekki geras næstu dögum enda langt f kvæmt reglum breska hlu markaðarins. Verði svo sta boð sent út þá hafi hluthaf til að svara slíku tilboði. H undir stjórn Arcadia kom hluthafar taki tilboðinu en í Bretlandi að stjórnir fy taki slíkar ákvarðanir. Vi ar standi því um það hvort muni mæla með við hlutha boði Baugs verði tekið. Hvað varðar ársuppgjör segir Jón Ásgeir niðurs Verð hlutabréfa í Arcadia hækkaði um 22,5% í gær þegar tilkynnt var um áhuga Baugs á að eign Baugur í vi um yfirtöku Afkoma Arcadia var kynnt í gær en heildartap félagsins nam 10,5 millj- örðum króna á síðasta fjárhagsári en tæplega átta milljarða króna hagnaður var af rekstri þess fyrir skatta og óreglulega liði. Baugur hefur lýst áhuga á að eignast öll hlutabréf í Arcadia en eignarhlutur hans nú er 20,1%.  7 8 9 : ; < =   %  !41@  A?(   , !?@ 6A% !   B? @? C?> %?@@ , @( %?>@ ,   * D   % @( , @@ Markaðsvirði Arc- adia er þrefalt til fjórfalt markaðs- virði Baugs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.