Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 35
ÁSMUNDUR Tryggvasson hjá
Greiningu Íslandsbanka segir að
fréttirnar af hugsanlegu yfirtöku-
tilboði Baugs í Arcadia séu að
sjálfsögðu stórtíðindi. Arcadia sé
félag sem metið er á yfir 500 millj-
ónir punda, velti um 1.900 millj-
ónum punda og starfræki yfir
2.600 verslanir í 13 löndum. Hins
vegar sé erfitt að leggja mat á
áhrif hugsanlegra kaupa þar sem
flest sé enn á huldu varðandi
framkvæmd kaupanna, t.d. fjár-
mögnun, og þá liggi ekkert fyrir
um hvernig Baugur sjái framtíð-
arásýnd félagsins. Varðandi hækk-
un á gengi Arcadia segir Ásmund-
ur að gengið hafi tekið að hækka í
kjölfar góðra afkomutalna félags-
ins og tilkynning Baugs, þar sem
fram kom að yfirtökuverð yrði á
bilinu 280–300 pence, hafi svo leitt
til enn frekari hækkana. Verði
ekki af yfirtöku á Arcadia sé því
líklegt að hækkunin gangi að ein-
hverju leyti til baka. Ásmundur
segir að óvissan endurspeglist í
gengisþróun Baugs í gær en gengi
félagsins var óbreytt, það bendir
til að óvissa ríki um hvernig túlka
beri fréttirnar og að markaðurinn
bíði frekari upplýsinga.
Öðruvísi erlend fjárfesting
Í morgunpunktum Kaupþings
segir að ef af kaupunum verði sé
um mjög spennandi tækifæri fyrir
Baug að ræða og myndu kaupin
gjörbreyta uppbyggingu, áhættu
og ásýnd félagsins. Með kaup-
unum yrði velta Baugs um 300
milljarðar á næsta ári sem sam-
svari veltu 12 stærstu félaga á
Verðbréfaþingi Íslands miðað við
veltu á síðasta ári.
Esther Finnbogadóttir hjá
greiningardeild Kaupþings segir
að það sé tvennt sem sé athygl-
isvert í þessu sambandi. Annars
vegar sé stærð fjárfesting-
arinnar mjög mikil og hins vegar
sé áhugavert að íslenskt fyr-
irtæki sé að fjárfesta í tísku-
vörukeðju. Hér sé á ferðinni önn-
ur áhersla en hingað til í útrás
íslenskra fyrirtækja. „Þetta er
því einnig áhugavert í því ljósi,“
segir Esther.
Skráning á erlendan
markað framundan?
Katrín Friðriksdóttir, sérfræð-
ingur hjá Búnaðarbankanum
Verðbréfum, segir að ef af kaup-
unum verði sé um 60 milljarða
króna fjárfestingu að ræða.
„Virði Baugs á markaði í dag er
um 19 milljarðar,“ segir Katrín.
Ekkert hefur verið gefið upp um
mögulega fjármögnun fjárfest-
ingarinnar en ef gert er ráð fyrir
óbreyttri skuldsetningu myndi
lántaka Baugs nema 36 millj-
örðum króna og aukning eigin
fjár 24 milljörðum. Miðað við
gengi bréfa í Baugi að und-
anförnu þyrfti að gefa út nýtt
hlutafé að nafnvirði 2 milljarða
króna. Nafnvirði hlutafjár í
Baugi er í kringum 1,7 millj-
arðar í dag. Kaupendur hluta-
fjárins gætu þar með eignast
meirihluta í sameinuðu félagi.
Þetta eru gríðarlegir fjármunir á
íslenskan mælikvarða og í ljósi
erfiðra markaðsaðstæðna og
óvissu í efnahagsmálum er ólík-
legt að fyrirtæki skráð á Verð-
bréfaþingi Íslands geti aflað
þeirra með einföldum hætti.
Fjármögnunin hlýtur því að
koma að mestu eða öllu leyti er-
lendis frá og líklegt er að Baug-
ur hafi þegar leitað eftir sam-
starfi við fjársterka aðila. Í
framhaldinu er eðlilegt að velta
fyrir sér hvort skráning Baugs á
erlendan hlutabréfamarkað sé
ekki skammt undan,“ segir Katr-
ín Friðriksdóttir hjá Bún-
aðarbankanum Verðbréfum.
Spurning hvort þetta
er rökrétt skref
Jónas G. Friðþjófsson, hjá
Landsbankanum-Landsbréfum,
segir að fyrirhuguð kaup Baugs
á Arcadia séu mjög áhugaverð,
en þar sem nánari upplýsingar
séu af skornum skammti sé erfitt
að leggja mat á kaupin. „Baugur
hefur verið í miklum vexti og út-
rás erlendis, en spurningar
vakna hvort þetta sé rökrétt
skref hjá félaginu, enda er Arc-
adia margfalt stærra félag en
Baugur. Enn hafa ekki borist
upplýsingar um hvernig fjár-
mögnun kaupanna verður hátt-
að, með lánsfé eða útgáfu hluta-
bréfa í Baug. Engu að síður er
ljóst að ef af verður, þá mun
Baugur verða gjörbreytt fyr-
irtæki í kjölfarið, sem mun ekki
eiga sér neina hliðstæðu á meðal
íslenskra fyrirtækja. Þá verður
áhugavert að sjá hvort félagið
verður áfram skráð á Verð-
bréfaþingi, hvort það verður
skráð erlendis, eða hvort
tveggja. Gera má ráð fyrir að
forráðamenn Baugs sjái fram á
mikil samlegðaráhrif og hagræð-
ingarmöguleika, einkum hvað
varðar hagstæðari innkaup og
hugsanlega losun eigna hjá Arc-
adia,“ segir Jónas. G. Frið-
þjófsson.
Markaðurinn bíður
frekari tíðinda
HAGNAÐUR Arcadia
fyrir skatta og óreglulega
liði á fjárhagsári félags-
ins, sem lauk í lok ágúst,
var 53,3 milljónir punda,
sem samsvarar tæpum 8
milljörðum íslenskra
króna. Til samanburðar
varð 8,5 milljóna punda
tap af sömu liðum fjár-
hagsárið 2000.
Óreglulegir liðir námu
101,9 milljónum punda
eða rúmum 15 milljörðum
króna og skattar 17,9
milljónum punda. Greidd-
ur arður nam 3,5 millj-
ónum punda á árinu og er
heildarafkoma ársins því
tap upp á 70 milljónir
punda eða um 10,5 millj-
arða íslenskra króna.
Haft er eftir forsvars-
mönnum félagsins í
fréttatilkynningu frá
Arcadia að þær aðgerðir
sem farið var í fyrr á
árinu til að snúa rekstri
félagsins til betri vegar
hafi heppnast vel.
Þau vörumerki sem til
stóð að selja hafi nú verið
seld, skilvirkni hafi verið
aukin, skuldir félagsins
hafi verið lækkaðar og
birgðastjórnun tekin föst-
um tökum.
Hlutdeild Baugs í
afkomu Arcadia 700
milljónir króna í ár
Þegar hlutdeild Baugs í
afkomu Arcadia er skoð-
uð er litið til þess að
reikningsár fyrirtækj-
anna skarast. Þannig lýk-
ur reikningsári Arcadia
31. ágúst, en reikningsár
Baugs miðast við alman-
aksárið. Við þetta bætist
á þessu reikningsári að
Baugur telur Arcadia
ekki til hlutdeildarfélags
fyrr en í byrjun apríl, því
fram að þeim tíma var
hlutdeild hans í félaginu
innan við 20%. Á tíma-
bilinu frá fyrsta apríl til
loka ágúst skilaði Arc-
adia hagnaði og gert er
ráð fyrir að frá byrjun
september og út árið
verði einnig hagnaður af
rekstrinum. Þetta veld-
ur því að þrátt fyrir að
Arcadia hafi verið gert
upp með tapi á nýliðnu
reikningsári er reiknað
með því að hlutdeild
Baugs í afkomu Arcadia
muni verða jákvæð á yf-
irstandandi reikningsári
Baugs. Áætlanir Baugs
gera ráð fyrir að þessi
hlutdeild verði jákvæð
um 700 milljónir króna í
ár.
Verslunum fækkað
umtalsvert
Fjallað er sérstaklega
um sölu þeirra vöru-
merkja og verslanakeðja
þeim tengdum, sem ekki
töldust til kjarna-
starfsemi fyrirtækisins í
tilkynningunni frá Arc-
adia. Vörumerkin Princ-
iples, Warehouse, Rac-
ing Green og Hawks-
head voru nýlega seld
Rubicon Retail Ltd. með
manni og mús fyrir 35
milljónir punda, eða um
milli ára.
Þá hefur birgðahald
kjarnastarfseminnar
dregist saman um 10,5%
á árinu og markvisst
hefur verið unnið að því
að auka sveigjanleika
aðfangakeðjunnar,
stytta afgreiðslutíma og
gera samskipti við
birgja skilvirkari.
Sala kjarnastarfsem-
innar jókst um 3% á
árinu á meðan versl-
unarrými minnkaði um
9%, nýting versl-
unarrýmis jókst um
12,8%. Salan í heild
dróst hins vegar saman
um 3%.
Á heildina litið eru
umskipti reksturs Ar-
cadia samkvæmt áætl-
unum, að því er segir í
tilkynningunni. Á fyrstu
átta vikum nýja fjár-
hagsársins, sem hófst í
lok ágúst, jókst heild-
arsala þeirra sex vöru-
merkja sem eftir sitja
hjá félaginu um 6,8%
þrátt fyrir að versl-
unarrýmið hafi dregist
saman um 4%.
Haft er eftir Stuart
Rose, forstjóra Arcadia,
að síðan milliuppgjör
var birt í apríl sl. hafi
markaðurinn í heild vax-
ið í fyrsta skipti í tvö ár.
Hann segir vöxtinn nær
eingöngu í kvenfatnaði.
Hins vegar sé enn óvíst
um áhrif atburðanna í
Bandaríkunum í nánustu
framtíð, sér í lagi á jóla-
söluna.
5,2 milljarða króna.
Wade Smith var selt
upphaflegum stofnanda
í vor fyrir 6,7 milljónir
punda, eða um einn
milljarð króna. Þá var
hluti starfsemi netversl-
unarinnar Zoom nýlega
seldur Easynet fyrir 850
þúsund pund, eða tæpar
127 milljónir króna.
Alls hefur verslunum
Arcadia Group verið
fækkað um 402 en áætl-
anir gerðu ráð fyrir að
fækkað yrði um 370
verslanir.
Enn á eftir að ganga
frá fækkun um 50 versl-
anir til viðbótar. Eftir
það er ekki gert ráð fyr-
ir frekari aðgerðum
hvað þetta varðar, að því
er fram kemur í tilkynn-
ingu.
Félagið stefnir að því
að reka áfram þær sex
vörumerkjakeðjur sem
eftir standa; Dorothy
Perkins, Burton, Evans,
Wallis, Topshop/
Topman og Miss Sel-
fridge.
Skuldir minni og veltu-
hraði birgða eykst
Skuldir Arcadia hafa
dregist saman um 117
milljónir punda, eða um
17,5 milljarða króna og
námu skuldir félagsins í
lok fjárhagsársins 140
milljónum punda eða 21
milljarði króna. Stefnt
er að enn frekari lækkun
skulda. Heildarkostn-
aður lækkaði um 5,6% á
Tap Arcadia 10,5
milljarðar króna
rf að laga
Þá minnir
hafi verið
.
geta gefið
ns hverjir
ármögnun
éu þó er-
tórri fjár-
taki ekki
t sinn
hafi ekki
en verði
rt í hluta-
afa í einu.
st á allra
ferli sam-
utabréfa-
aðfest til-
far 21 dag
ann segir
mið hvort
da tíðkist
yrirtækja
ðræðurn-
t stjórnin
afa að til-
r Arcadia
stöðuna í
samræmi við væntingar Baugs.
„EBITDA-hagnaður félagsins er
22 milljarðar króna og félagið hef-
ur náð að gíra sig niður í skuldum,
sem er mjög jákvætt. Þetta er allt
í góðum farvegi. Auk þess er góð-
ur stjórnendahópur um borð.“
Um hvort Baugur sé ekki að
færast of mikið í fang með yfirtöku
á Arcadia segir hann: „Við værum
varla að fara út í þetta nema við
teldum okkur ráða við
þetta.“ Hvað stjórn-
unarlegu hliðina
varðar segir hann að
notuð verði sama að-
ferðafræði og notuð
hefur verið við rekst-
ur Bonus Stores í Bandaríkjunum,
þ.e. að láta færum þarlendum að-
ilum eftir daglega stjórnun.
Markaðsvirði Baugs
18,9 milljarðar króna
Þess má geta að markaðsvirði
Baugs hf. miðað við gengi hluta-
bréfanna á Verðbréfaþingi Ís-
lands, er áætlað um 18,9 milljarð-
ar króna.
Baugur á nú 20,1% hlutafjár Ar-
cadia Group og er stærsti hluthaf-
inn. Aðrir hluthafar eru allir minni
en um er að ræða ýmsa fagfjár-
festa, banka og verðbréfafyrir-
tæki. Næststærsti hluthafinn er
Barclays Global Investors með
10,1% og sá þriðji stærsti er Arc-
adia með 8,1%. Aðrir hluthafar
eiga undir 4% eins og sést á með-
fylgjandi töflu.
Hlutafé Arcadia samanstendur
af 189 milljónum bréfa. Markaðs-
virði Arcadia miðað við lokagengið
á miðvikudag var um 413 milljónir
punda eða um 61,7 milljarðar
króna. Gengi hlutabréfanna hækk-
aði verulega í gær, eftir að uppgjör
félagsins var birt og fréttir af
hugsanlegu yfirtökutilboði birtust.
Var lokagengið í gær 268 pens sem
er 22,5% hækkun frá fyrra degi og
markaðsvirðið því um 507 milljónir
punda eða um 75,6 milljarðar ís-
lenskra króna.
Ferli eins og það sem Baugur og
Arcadia eru hugsanlega á leið inn í
er afar formlegt í Bretlandi. Bæði
félög hafa bréf sín skráð í kauphöll,
Baugur á Verðbréfaþingi Íslands
og Arcadia Group í Kauphöllinni í
Lundúnum, London Stock Ex-
change. Nauðsynlegt
er að upplýsingar sem
gefnar eru út séu þær
sömu á báðum mörk-
uðum.
Í breskum reglum
um yfirtökur kemur
fram hvaða upplýsingar má gefa á
hverju stigi máls. Baugur hefur
ekki enn lýst yfir ásetningi um að
gera tilboð í Arcadia, heldur aðeins
lýst því yfir að það sé hugsanlegt.
Þegar ásetningi hefur verið lýst yf-
ir, mega ekki líða fleiri en 28 dagar
áður en nákvæmt tilboð er sett
fram. Eftir að tilboðið liggur fyrir
er hluthöfum til að byrja með gef-
inn 21 dagur til að taka afstöðu til
tilboðsins. Sá tími gæti orðið lengri
ef fleiri koma hugsanlega að mál-
inu, þ.e. aðrir tilboðsgjafar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
nast öll hlutabréf í félaginu. Meðal vörumerkja Arcadia-keðjunnar er Top Shop.
iðræðum
á Arcadia
> # !?@
Í erlendum fjöl-
miðlum er rætt
um að tilboð
Baugs sé of lágt