Morgunblaðið - 26.10.2001, Page 40

Morgunblaðið - 26.10.2001, Page 40
UMRÆÐAN 40 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ hafa eflaust ýmsir rekið upp stór augu, þegar ríkissjón- varpið sýndi loftmyndir af því gríðarlega grjót- námi sem þegar hefur átt sér stað í Geldinga- nesi. Frá landi sést ekki nema örlítið brot af sárinu sem sprengt hef- ur verið í nesið. Megin- svæðið er falið bak við jarðvegsvegg, sem virð- ist heill en er í raun lík- ari tjöldum fyrir þess- ari gífurlegu grjót- námu. Uppsprengt sárið er eftir 240 þús- und rúmmetra af stór- grýti sem búið er að fjarlægja. Kvartmilljón rúmmetra hefur verið ekið burt, en það er þó aðeins fjórðungur af því magni sem áætlað er að sprengja, því leyfið hljómar upp á heila milljón! Sárið, sem áhorfendum kom á óvart í sjónvarpsfrétt- unum, er sem sagt að- eins fjórðungur af því sem koma skal. Til hvers er verið að þessu? Jú, það er verið að rýma til fyrir nýju hafnarsvæði. Sumum þykir nóg um hvað Reykjavíkurhöfn breiðir þegar úr sér frá ósum Elliðaáa út á Laug- arnesið og spyrja hvort þessa sé virkilega þörf. Öll þessi fallega strandlengja fer undir höfnina og ekki nóg með það, því til viðbótar er verið að sprengja fyrir nýrri höfn í Geldinganesi! Bæði innlendir og er- lendir sérfræðingar eru sammála um að ekki verði þörf fyrir þá höfn fyrr en eftir 40 til 50 ár, ef þá nokkurn tímann, því margt mun breytast í flutningamálum og samgöngum á þeim tíma – og auk þess má reikna með sameiningu sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu. Nágrannar okkar eiga líka hafnir sem geta nýst fleirum í framtíðinni. En nei, ekki er ráð nema í tíma sé tekið, segir R-listinn, og best að byrja strax að sprengja. Auk þess vantar byggingarland fyrir íbúðir og helsta hugmyndin er að búa til landfyllingu utan við Eið- isgranda. Það er sem sagt verið að sprengja upp byggingarlandið í Geld- inganesi og aka því á vörubílum gegnum alla Reykjavík til að henda því í sjóinn utan við granda. Ákjós- anlegt byggingarland í næsta ná- grenni við byggðina í Grafarvogi er eyðilagt og notað í uppfyllingu vestur í bæ. Hvað skyldi þetta kosta? Reyk- víkingar ættu að velta því fyrir sér, því þeir borga reikninginn. Sjáið fyrir ykkur endalausa bílalestina, lesendur góðir, þar sem hún stendur í þessum landflutningum. Hvernig hefði verið að nota byggingarlandið þar sem það var statt: í Geldinganesinu? Byggingarland á vörubílum Guðrún Pétursdóttir Grjótnám Ákjósanlegt bygging- arland í næsta nágrenni við byggðina í Graf- arvogi, segir Guðrún Pétursdóttir, er eyði- lagt og notað í uppfyll- ingu vestur í bæ. Höfundur er varaborgarfulltrúi í Reykjavík. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I ,,Amma" óskast Óskum eftir barngóðri manneskju til að sækja 17 mánaða dreng kl. 14.00 og gæta hans til kl. 17.00 næstu 3 mánuði. Upplýsingar í símum 897 6224 og 562 2462. Háskóli Íslands Líffræðistofnun Hjá Líffræðistofnun Háskólans er laust til umsóknar starf rannsóknarmanns á sviði sameindaerfðafræði baktería. Umsækjandi þarf að hafa M.S. próf í líffræði eða sambærilegt próf og reynslu af rannsókn- um í sameindaerfðafræði. Starfið krefst frum- kvæðis og sjálfstæðra vinnubragða. Umsækj- endur þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi hlutaðeig- andi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember næst- komandi og skulu umsóknir sendar til starfs- mannasviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað og umsækj- endum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Eggerts- son prófessor í síma 525 4603. Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans. http://www.starf.hi.is . R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu eða sölu mjög snyrtilegt 260 m² atvinnuhúsnæði til leigu/sölu á 2. hæð í Ármúla 22. Hentugt fyrir skrifstofur, heildsölur, læknastofur, léttan iðnað o.fl. Innkeyrsludyr frá Síðumúla. Laust strax. Upplýsingar í síma 553 6448. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Kjördæmisráð norðausturkjördæmis Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins í norðausturkjör- dæmi verður haldinn á Hótel Húsavík laugardaginn 3. nóvem- ber og hefst kl. 14.00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Samgöngumál. Gestur fundarins verður Guðmundur Hall- varðsson, form. samgöngunefndar Alþingis. Stjórn kjörndæmisráðs. HÚSNÆÐI ERLENDIS Barcelona Nýstandsett íbúð til leigu, 85 m², tvennar svalir. Upplýsingar gefur Ragnheiður, raggais@visir.is . TILBOÐ / ÚTBOÐ Forval Utanríkisráðuneytið, f.h. varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, auglýsir hér með eftir aðilum til að taka þátt í forvali vegna útboðs á rakara- þjónustu (hárskeri) innan varnarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn er til eins árs með möguleika á framlengingu fjórum sinnum, til eins árs í senn. Tilkynning þessi tekur einungis til íslenskra lögaðila. Forvalsgögn fást hjá umsýslustofnun varnar- mála, Grensásvegi 9, Reykjavík og á varnar- málaskrifstofu, ráðningardeild á Brekkustíg 39, Reykjanesbæ. Þau ber að fylla út af um- sækjendum og áskilur forvalsnefnd utanríkis- ráðuneytisins sér rétt til að hafna forvalsgögn- um sem ekki eru fullnægjandi. Ekki verður tekið við upplýsingum frá þátttakendum eftir að for- valsfrestur rennur út. Umsóknum skal skilað til fyrir kl. 16:00 mánu- daginn 5. nóvember nk. til umsýslustofnunar varnarmála, Grensásvegi 9, Reykjavík eða varn- armálaskrifstofu, ráðningardeild á Brekkustíg 39, Njarðvík. Utanríkisráðuneytið. TILKYNNINGAR Eskfirðingar/Reyðfirðingar í Reykjavík og nágrenni Munið vetrarkaffið í félagsheimilinu Drangey, Stakkahlíð 17, Rvík, sunnudaginn 28. okt. kl. 15. Kaffikonurnar. Auglýsing Deiliskipulag frístundabyggðar við Efri- Markabraut og Hvammabraut í landi Vaðness, Grímsness- og Grafningshreppi Samkvæmt 25. gr. laga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir athugasemdum við deiliskipulag frí- stundabyggðar við Efri-Markabraut og Hvammabraut í landi Vaðness í Grímsness- og Grafningshreppi. Skipulagstillögur liggja frammi á skrifstofu Grímsness- og Grafnings- hrepps frá 26. október til 24. nóvember 2001. Skriflegum athugasemdum við skipulagstillög- urnar skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 10. desember 2001. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni. Sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps, Guðmundur Rúnar Svavarsson. Tillaga að deiliskipulagi Hveravalla, Svínavatns- hreppi Sveitarstjórn Svínavatnshrepps auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Hveravalla skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73.1997 m.s.br. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir lóð fyrir ferðamannamiðstöð, nýjum að- komuvegi, bílastæði, tjaldstæði, göngustígum og uppgræðslu á svæðinu. Deiliskipulagstillagan verður til sýnis hjá Skipu- lagsstofnun og hjá oddvita Svínavatnshrepps í félagsheimilinu Dalsmynni frá og með 26. okt. til 26. nóv. 2001 á skrifstofutíma alla daga nema laugardaga og sunnudaga. Þeim sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillög- una. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 11. des. 2001. Skila skal athugasemd- um á skrifstofu Svínavatnshrepps í félagsheim- ilinu Dalsmynni. Þeir sem ekki gera athuga- semdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni. Oddviti Svínavatnshrepps. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1  18210268  Dd. I.O.O.F. 12  18210268½  Ma. Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Samkoma kl. 20.00 með Åke Calsson frá Livets Ord í Svíþjóð. Allir hjartanlega velkomnir. Á morgun laugardag verður kennsla frá kl. 10.00 til 15:00 og samkoma kl. 20.00 sem hann mun einnig þjóna á.                  Í kvöld kl. 21 heldur Kristján Kristjánsson erindi „Um Aristo- teles” í húsi félagsins, Ingólfs- stræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjón Úlfs Ragnars- sonar. Á sunnudögum kl. 17-18 er hugleiðingarstund með leiðbein- ingum fyrir almenning. Hug- ræktarnámskeið Guðspekifé- lagsins hefst fimmtudaginn 1. nóvember kl. 20.30 í umsjá Sig- urðar Boga Stefánssonar, sem mun fjalla um hugleiðingu al- mennt. Á fimmtudögum kl. 16.30-18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bókmennta. Guð- spekifélagið er 122 ára alþjóðlegt félag um andleg mál, hið fyrsta sem byggði á hugmyndinni um algert frelsi, jafnrétti og bræðralagi meðal mannkyns. www.gudspekifelagid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.