Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 42

Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 42
Á SUNNUDAG hefjast Tónlist- ardagar Dómkirkjunnar í Reykjavík í 20. sinn. Í þessari árvissu veislu fyrir áhugafólk um kirkjulega tónlist er enn á ný boðið upp á frumflutning á nýju verki. Jafnframt því sem Tónlistardagarnir eiga 20 ára afmæli, eru þetta fyrstu Tón- listardagarnir á nýjum aldatug og því vel við hæfi að frum- flutta verkið er rafrænt, en tónskáldið er fyrrverandi fé- lagi í kórnum, nú tónskáld á Ítalíu, Þuríður Jónsdóttir. Verk hennar, Rauður hring- ur, er jafnframt skrifað fyrir blandaðan kór og þrjá ein- söngvara og verður frumflutt á setningartónleikum Tónlist- ardaganna sunnudaginn 28. október kl. 17 í Dómkirkjunni. Á þeim tónleikum verður einn- ig vígður nýr flygill kirkjunnar og flytur Dómkórinn auk Alinu Dubik verk eftir Fauré og Men- delsohn við undirleik Hrefnu Eggertsdóttur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Þá um morguninn er sérstök hátíðarmessa í tilefni Tónlist- ardaganna og verður þar flutt Litla orgelmessan eftir Joseph Haydn. Veg og vanda af skipulagn- ingu tónlistardaganna hefur Marteinn H. Friðriksson dóm- organisti. Þuríður Jónsdóttir tónskáld er stödd á Íslandi í tilefni frumflutnings verks hennar. Hér á eftir fer dagskrá Tón- listardaganna árið 2001 í heild. Sunnudaginn 28. október: Kl. 11: Hátíðarmessa á kirkju- vígsludegi. Prestur: sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Organisti: Marteinn H. Friðriksson. Flutt verður „Litla orgelmessa“ eftir J. Haydn. Flytjendur: Dómkór- inn, Hulda Björk Garðarsdóttir og hljóðfæraleikarar. Kl. 17: Setning Tónlist- ardagaAlina Dubik syngur ein- söng. Dómkórinn syngur lög eftir Mendelssohn og Fauré. Frumflutt verður tónverk eftir Þuríði Jónsdóttur fyrir ein- söngvara, kór og raftónlist. Flytjendur: Magnea Gunn- arsdóttir, Anna Sigríður Helga- dóttir, Guðlaugur Viktorsson, Dómkórinn og Marteinn H. Friðriksson. Aðgangur: 1.000 kr. Laugardaginn 3. nóvember: Kl. 17: Orgeltónleikar Marteinn H. Friðriksson leikur. Aðgang- ur ókeypis. Sunnudaginn 4. nóvember: Kl. 20.30: Tónleikar tónlist- arfólks úr nágrenni Dómkirkj- unnar. Meðal flytjenda: Kjartan Óskarsson, Hrefna Eggerts- dóttir, Laufey Sigurðardóttir og Oddur Björnsson. Aðgangur ókeypis. Sunnudaginn 11. nóvember: Kl. 20.30: Ljóðakvöld í Dóm- kirkjunni. Umsjón hefur Þór- arinn Eldjárn. Ragnheiður Haraldsdóttir leikur á blokk- flautu og Marteinn H. Frið- riksson á sembal. Aðgangur ókeypis. Miðvikudaginn 14. nóvember: Kl. 20.30: Tónleikar Dómkórs- ins í Kristskirkju. Flutt verður tónlist eftir Hjálmar H. Ragn- arsson, Knut Nystedt, Benjam- in Britten og kantata nr. 172 eftir J.S. Bach. Flytjendur: Marta Guðrún Halldórsdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir, Finnur Bjarnason, Ólafur Kjartan Sigurðarson, kamm- ersveit, Dómkórinn og Mar- teinn H. Friðriksson. Aðgang- ur: 1.500 kr. Miðasala. Aðgöngumiðar eru seldir í Dómkirkjunni alla virka daga á milli kl. 10 og 17. Athugið sérstaklega að miðar á tónleikana í Kristskirkju 14. nóvember verða einungis seldir í Dómkirkjunni. Miðapantanir. Hægt er að panta miða á Tónlistardaga með því að senda tölvupóst á domkorinn@domkirkjan.is. Til- greina þarf á hvaða tónleika pantað er. Miðar á setningu Tónlistardaga verða afhentir við innganginn. Pantaðir miðar á tónleika í Kristskirkju 14. nóvember verða afhentir í Dómkirkjunni alla virka daga á milli kl. 10 og 17. Dómkirkjan í Reykjavík. Tónlistardagar Dómkirkjunnar í 20. sinn UMRÆÐAN 42 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ UNGIR jafnaðar- menn halda landsþing sitt um helgina og hefj- ast herlegheitin á föstudagskvöldið kl. 20 í húsnæði Eflingar í Sætúni 1. Þrátt fyrir ungan aldur hefur fé- laginu tekist að marka sér skýra stefnu og vakið athygli fyrir virka þátttöku sína í þjóðfélagsumræðunni m.a. á heimasíðu sinni, politik.is. Í tilefni landsþingsins er ekki úr vegi að líta lauslega yfir nokkur áhersluat- riði Ungra jafnaðar- manna og byrjum við að líta á yf- irskrift landsþingsins, sem er Ísland í Evrópusambandið. Ísland í ESB Ungir jafnaðarmenn vilja að Ís- land hefji aðildarviðræður við ESB og beri síðan aðildarsamninginn undir þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem íslenska þjóðin mun eiga síðasta orðið. Ungir jafnaðarmenn gera sér grein fyrir því að inngöngu Íslands í ESB fylgja margir kostir og stað- festir nýleg Evrópuúttekt Samfylk- ingarinnar það. Viðskiptaumhverfi íslenskra fyrirtækja myndi gjör- breytast, tollar falla niður, viðskipti og fjárfestingar stóraukast. Kjör neytenda myndu batna stórlega með lækkuðu verði á nauðsynjavörum og samkeppni aukast á heimamarkaði. Með evrunni lækka gengiskostnaður og vextir, sem eru þrefalt hærri hér á landi en hjá evrulöndunum. Með auknum stöðugleika minnkar verð- bólga sem er hæst hérlendis af öllum ESB-löndunum. Fjárhagslegur ávinningur af aðild Íslands að ESB hleypur því á tugmilljörðum króna. Það hefur verið margstaðfest, m.a. af yfirmanni sjávarútvegsmála ESB, að Ísland sæti eitt ríkja að kvóta ís- lensku landhelginnar þar sem ekkert ríki ESB hefur veiðireynslu í ís- lenskri lögsögu undanfarin 20 ár. Sömuleiðis er hægt að koma í veg fyrir að hagnaður veiða fari úr landi með því að krefja útgerðarfyrirtæki um raunveruleg efnahagsleg tengsl við hagkerfi viðkom- andi lands. Bretar hafa nú staðfest að kvóta- hopp er ekki vandamál þar lengur. Ef málið er skoðað er sjávarút- vegsstefna ESB bein- línis hagstæð Íslend- ingum. En innganga í ESB snýst ekki bara um fjárhagslegan ávinn- ing, þótt vissulega sé hann mikill. ESB legg- ur einnig mikla áherslu á að efla m.a. vísinda- og rannsóknastarf, menningarmál, menntamál og mann- réttindamál hvers konar. Þá leggur ESB gríðarlega áherslu á vandaða umhverfis- og vinnulöggjöf. Grunnstoðir réttláts þjóðfélags er öflugt mennta- og velferðarkerfi sem allir hafa frjálsan aðgang að. Þá er brýnt að gæta þess að engum sé mis- munað og að allir séu jafnir fyrir lög- um og þjóð. Ungir jafnaðarmenn vilja að gripið sé til sérstakra að- gerða til að útrýma allri mismunun og þá með sérstakri áherslu á menntakerfið sem jöfnunartæki. Ungir jafnaðarmenn fagna því fjölmenningarsamfélagi sem hér vex og blómstrar en harma þau vand- kvæði sem fordómar og fáfræði hafa valdið í því sambandi. Fordómar spretta af fáfræði og eina lækningin við fáfræði er fræðsla. Það er nauð- synlegt að stjórnvöld beiti sér fyrir aukinni fræðslu meðal almennings, bæði innan menntakerfisins og utan, og leggi sérstaka áherslu á umburð- arlyndi og virðingu gagnvart öðrum. Ungir jafnaðarmenn sætta sig aldrei við kynbundinn launamun og telja að konur og karlar skuli alltaf búa við jafnrétti. Veruleiki sam- félagsins endurspeglar ekki þessa stefnu og því vilja Ungir jafnaðar- menn að sjónarmið jafnréttis verði samþætt inn í alla stefnumótun og ákvarðanatöku ríkis og sveitarfé- laga. Allir eiga að vera frjálsir til að velja sér maka og stofna til fjöl- skyldu. Ungir jafnaðarmenn vilja að réttur samkynhneigðra para sé full- komlega til jafns við rétt gagnkyn- hneigðra para. Þar með talið rétt til frumættleiðingar og gervifrjóvgunar á opinberum sjúkrastofnunum. Lýðræði á borði en ekki bara í orði Ungir jafnaðarmenn vilja að sett verði skýr lög um fjárreiður stjórn- málaflokka og telja það rétt kjós- enda að vita hverjir standi að baki þeim flokkum sem eru í framboði. Með þessu móti er hægt að koma í veg fyrir að fjársterkir aðilar hafi óeðlileg áhrif á stefnu og starfsemi lýðræðislega kjörinna stjórnmála- flokka. Það telst seint lýðræðislegt þegar atkvæði eru misvæg eftir búsetu hvers einstaklings en sú er því miður raunin á Íslandi. Því vilja Ungir jafn- aðarmenn gera landið að einu kjör- dæmi. Með þessu væri tryggt að at- kvæði allra séu jafngild og að slegið verði á allt kjördæmapot. Ungir jafnaðarmenn vilja tryggja rétt kjósenda til þjóðaratkvæða- greiðslu í stjórnarskrá. Gerðar yrðu kröfur um að ákveðinn lágmarks- fjöldi kjósenda gæti krafist þjóðarat- kvæðagreiðslunnar en í stjórnar- skránni eru engin bein ákvæði um rétt kjósenda til slíks. Þetta er alvar- legur ljóður á íslenskri lýðræðisskip- an og snertir grundvallaratriði í stjórnarháttum lýðveldisins. Þetta eru aðeins nokkur af stefnu- málum Ungra jafnaðarmanna og hvetjum við alla áhugasama sem og forvitna til að mæta á landsþingið en allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á politik.is. Mætum og höf- um gaman af. Ísland í ESB – landsþing Ungra jafnaðarmanna Bryndís Nielsen Jafnaðarmenn Við hvetjum alla áhuga- sama og forvitna, segir Bryndís Nielsen, til að mæta á landsþingið. Höfundur er stjórnarmaður í framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna og ritari UJR. KIRKJUSTARF KVENNADEILD Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands var stofnuð 12. desem- ber 1966 og heldur því upp á 35 ára afmæli sitt nú um þessar mundir. Það er ánægjuleg til- viljun að geta fagnað slíkum tímamótum nú á ári sjálfboðaliðans. Kvennadeildin er deild innan Reykjavík- urdeildarinnar. Til- gangurinn með stofnun kvennadeildar var að fá konur til að vinna að sérstökum málum inn- an deildarinnar, svo sem með heimsóknum og aðstoð við aldraða og sjúka á heimilum þeirra, vinnu á sjúklingabókasöfnum sjúkrahúsanna, rekstri sölubúða á sjúkrahúsum og fleiru. Þessum störfum höfum við sinnt allar götur síðan og einnig sérstökum verkefn- um þegar aðstoðar hefur verið þörf. Má þar til dæmis nefna viðbrögð kvennadeildarinnar þegar eldgos hófst á Heimaey í janúarmánuði 1973. Kvennadeildin starfar með einkunnarorð Rauða krossins að leiðarljósi, það er grundvallarmark- miðin um mannúð, hlutleysi, óhlut- drægni og sjálfboðna þjónustu. Kvennadeildin rekur um þessar mundir sölubúðir í þremur sjúkrastofnunum borg- arinnar og bókasafns- þjónustu, þar sem einnig er boðið upp á afnot hljóðbóka, á fimm stöðum. Frá upp- hafi hefur öllum tekjum kvennadeildar- innar af rekstri sölu- búðanna verið varið til líknarmála, meðal ann- ars til kaupa á ýmsum lækninga- og rann- sóknartækjum og til stuðnings félögum sem starfa að umönnun sjúkra. Á síðasta ári gátum við lagt fram 6 milljónir króna í þessum til- gangi. Tekjum, sem við höfum aflað með árlegum basar og kökusölu, er varið til bókakaupa fyrir bókasöfnin. Félagsstarf innan deildarinnar er mjög virkt. Við höldum fræðslu- og skemmtifundi og förum saman í sumarferð á hverju ári. Föndurhóp- ur kemur saman í hverri viku og vinnur að gerð fallegra, handunnina muna sem seldir eru á basarnum. Konurnar sem starfa innan kvennadeildarinnar eru sjálfboðalið- ar og erum við stærsti einstaki sjálf- boðaliðahópurinn innan Rauða kross Íslands. Nú eru um það bil 250 kon- ur virkar í starfinu. Starfinu er skipt þannig niður að hver kona skilar tveggja til fjögurra stunda vinnu vikulega eða jafnvel aðra hverja viku. Við Kvennadeildarkonur komum úr ýmsum áttum og með ólíkan bak- grunn en eigum það allar sameig- inlegt að vilja láta gott af okkur leiða og að vera til staðar þegar hjálpar er þörf. Flestar konur, að minnsta kosti þær sem lokið hafa barnaupp- eldi, ættu að geta fundið tíma til að starfa með okkur. Það er góð tilfinn- ing að geta lagt öðrum lið, ekki síst þegar við vitum og verðum áþreif- anlega varar við að starf okkar skiptir máli. Hefur þú tíma til að leggja öðrum lið? Hulda Ó. Perry Sjálfboðaliðar Við kvennadeildarkonur komum úr ýmsum átt- um, segir Hulda Ó. Perry. Við erum til stað- ar þegar hjálpar er þörf. Höfundur er formaður Kvennadeild- ar Reykjavíkurdeildar RKÍ. Háteigskirkja. Samverustund eldri borg- ara kl. 13 í umsjón Þórdísar, þjónustufull- trúa. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45- 7.05. Mömmumorgunn kl. 10-12 í umsjá Eyglóar Bjarnadóttur, meðhjálpara. Kaffi- spjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Ath. í dag er starfsdagur kennara í Laug- arnesskóola. Af því tilefni er kirkjan opin og krakkarnir í hverfinu undirbúa hæfileika- keppni sem fram fer undir stjórn sr. Bjarna kl. 16. Fulltrúar foreldrafélags Laugarnes- skóla sitja í dómnefnd. Foreldrar hvattir til að fjölmennna kl. 16 og sjá börn sín koma fram. (Sjá síðu 650 í Textavarpi) Neskirkja. Félagsstarf aldraðra á morgun, laugardag, kl. 14. Jónína Benediktsdóttir, forstjóri Planet Pulse keðjunnar, kynnir bók sína Dömufrí. Hvalsneskirkja. Helgistund í Miðhúsum kl. 12. Boðið upp á léttan málsverð gegn vægu gjaldi. Landakirkja Vestmannaeyjum. Í dag kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðisstofnun, dagstofu 3. hæð. Heimsóknargestir hjart- anlega velkomnir. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom- ur alla laugardaga kl. 11-12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Barna- og unglingadeildir á laug- ardögum. Létt hressing eftir samkomuna. Allir velkomnir. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl. 10.Guðsþjónusta kl. 11. Safn- aðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón- usta kl. 11. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna- eyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjónusta/ biblíufræðsla kl. 11. Safnaðarstarf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.