Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 43
✝ Erlingur BjarniMagnússon
fæddist á Miðjanesi í
Reykhólasveit 7.
október 1931 og ólst
upp lengst af í Bæ í
Króksfirði. Hann
lést 20. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru þau
Magnús Ingimund-
arson, fyrrum
hreppstjóri og vega-
vinnuverkstjóri í
Reykhólasveit, f.
6.6. 1901, d. 13.8.
1982, og kona hans,
Jóhanna Hákonardóttir hús-
freyja, f. 16.8. 1901, d. 12.07.
1937. Erlingur á fimm alsystkini:
1) Sigríður, húsmóðir í Reykjavík,
fyrri maki Friðgeir Sveinsson
kennari sem lést ungur og seinni
maki Sigurður Sveinsson raf-
virkjameistari sem er látinn og á
hún fimm börn. 2) Lúðvík, búsett-
ur í Reykjavík og á hann tvær
dætur. 3) Arndís, búsett í Garða-
bæ, maki Stefán Guðlaugsson
húsasmíðameistari sem er látinn
og eru börn þeirra þrjú. 4) Há-
kon, húsasmíðameistari í Reykja-
vík, nú látinn, var fyrst kvæntur
Unni Jónsdóttur en síðar í sam-
búð með Sigurlín Ellý Vilhjálms-
dóttur og átti hann sex börn. 5)
Ragnar Sævar, f. 4.4. 1958, bú-
settur í Reykjavík og á hann
þrjár dætur. 3) Höskuldur Geir, f.
7.10. 1960, búsettur í Reykjavík
og á hann tvö börn. 4) Hinrik, f.
23.9. 1962, d. 23.11. 1989 og átti
soninn Erling Bjarna. 5) Guð-
björg Erna, f. 14.11. 1964 búsett í
Garðabæ, gift Marinó Pálmasyni
og eiga þau tvo syni. 6) Ellen Ás-
dís, f. 4.8. 1970, búsett í London,
sambýlismaður hennar er Sigur-
steinn Gunnarsson og eiga þau
þrjár dætur. 7) María Erla, f. 8.1.
1972 búsett í Hafnarfirði, sam-
býlismaður hennar er Kristinn
Guðmundsson og eiga þau tvo
syni.
Erlingur stundaði nám við Hér-
aðsskólann í Reykjanesi og við
Héraðsskólann á Reykjum í
Hrútafirði, stundaði síðan nám
við Handavinnukennaraskóla og
lauk prófi þaðan 1955. Erlingur
kenndi tvo vetur við Vistheimilið
í Breiðuvík, auk þess stundaði
hann smíðar en starfaði lengst af
sem vörubifreiðastjóri á eigin
vegum í Reykhólasveit. Erlingur
og kona hans stofnuðu nýbýlið
Melbæ úr landi Bæjar 1959 og
bjuggu þar til 1974. Þau fluttu til
Reykjavíkur 1976 þar sem hann
stundaði einnig vörubílaakstur.
Erlingur varð fyrir slysi 1986 og
hætti þá akstrinum. Hann hóf þá
störf sem sölumaður hjá Húsa-
smiðjunni og starfaði þar til
dauðadags.
Útför Erlings fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Ingimundur, húsa-
smíðameistari á Sel-
tjarnarnesi, nú látinn,
maki Sjöfn Smith og
eignuðust þau fjögur
börn. Hálfbræður Er-
lings eru Ólafur Jón
Magnússon, bensínaf-
greiðslumaður í
Reykjavík, og Gunn-
laugur Magnússon,
húsasmiður og örygg-
isvörður við Seðla-
banka Íslands, búsett-
ur á Seltjarnarnesi,
kvæntur Guðríði
Gýgju og eiga þau tvo
syni. Uppeldissystir Erlings er
Hulda Pálsdóttir, húsmóðir í
Hafnarfirði, fyrri maki Hafliði
Guðmundsson sem lést ungur og
eignuðust þau sex börn en seinni
maki er Halldór Jónsson versl-
unarmaður. Erlingur kvæntist
8.6. 1957 Ásdísi Helgu Höskulds-
dóttur, f. 18.7. 1937, d. 13.6. 1991,
húsmóður. Hún var dóttir Hösk-
uldar Jóhannessonar, bílstjóra í
Reykjavík og Kópavogi, og konu
hans Guðbjargar Þórðardóttur
húsmóður frá Firði í Múlasveit.
Erlingur og Helga eignuðust sjö
börn. Þau eru: 1) Jóhanna, f. 7.1.
1957, býr í Kópavogi og á hún
tvær dætur en sambýlismaður
hennar er Páll Garðarsson. 2)
Elsku yndislegi pabbi minn,
hetjan mín. Mér þykir svo innilega
sárt að þurfa að kveðja þig núna.
Ég þakka guði fyrir að hafa náð að
koma til Íslands eftir að mér var
tilkynnt að þú hefðir fengið slæmt
hjartaáfall. Þú gafst mér dýrmæt-
asta tíma í lífi mínu, þegar ég fékk
tækifæri til að vera hjá þér á
sjúkrahúsinu síðustu dagana. Það
var svo gott að vera hjá þér og
halda í hönd þína. Innst inni í
hjarta mínu hélt ég að þú myndir
vakna og allt yrði eins og áður. Það
er nú bara vegna þess að það er svo
margt sem hefur komið fyrir þig,
elsku pabbi, og alltaf hefur þú rifið
þig upp og staðið uppi sem hetjan,
enda ertu hetjan mín og okkar
barnanna þinna. Ég minnist þess
líka að þú hafir sagt við mig nýlega
að þú ættir níu líf eins og kettirnir.
Og ég get svo svarið það að það er
satt og þú ert búinn að nota þau öll
til fullnustu. Ekki nóg með að þú
sért búin að ganga í gegnum erfið
veikindi og slys síðustu fimmtán ár
þá ertu líka búinn að missa svo
mikið, fyrst var það Hinni okkar
sem dó af slysförum og svo
skömmu seinna dó mamma. En ég
ætla nú bara að trúa því að þú sért
kominn á betri stað og þá auðvitað
til mömmu og Hinna. Þar hefur þú
örugglega mikilvægum verkefnum
að gegna.
Elsku pabbi minn, það er svo
margt sem mig langar að þakka
þér fyrir og ég ætla ekki að fara að
telja það allt upp hér heldur vil ég
frekar segja takk fyrir allt. Ég veit
að þú hefðir ekki getað verið ham-
ingjusamari þegar þú kvaddir
þennan heim því þú varst nýbúinn
að halda upp á sjötugsafmælið og
ég veit að þar voru allir sem þér
þótti vænst um. Öll barnabörnin
þín fimmtán eiga alveg örugglega
eftir að muna um ókomin ár eftir
afa sínum með hlýju armana og
helst vildu þau bara sofna í fanginu
þínu því þar var hlýtt og rólegt að
vera.
Elsku pabbi, ég á eftir að sakna
harmoniku- og orgelhljómanna
þinna en ég veit að það verður allt-
af þannig að þegar ég heyri þessa
hljóma þá verður þú ljóslifandi í
hjarta mínu. Þegar þú spilaðir á
harmonikuna þína þá var það svo
mikil unun fyrir þig og þá sagðir þú
í eitt skipti við mig að þegar að þú
dæir þá yrði það vonandi þegar þú
værir að spila á nikkuna þína. Ég
veit núna að þú varst búin að vera
að spila allan daginn á harmonik-
una með helsta harmonikuspilara
landsins rétt áður en þú fékkst
hjartaáfallið. Ég er svo þakklát
fyrir að vita, að það var með því
síðasta sem þú gerðir.
Elsku pabbi minn, nú ertu kom-
inn til mömmu og Hinna. Faðmaðu
þau og kysstu þau frá okkur hinum
í fjölskyldunni. Það er orðið svo
tómlegt allt án ykkar en þið eruð
öll í harta okkar uns við hittumst á
ný.
Elsku Dísa frænka, mig langar
svo mikið að þakka þér fyrir að
gera lífið okkar systkinanna auð-
veldara með nærveru og hjálp
þinni á þessum erfiðu tímum, sem
og alltaf. Þú ert ljóslifandi engill
sem okkur þykir svo vænt um.
Elsku Gulli frændi, mig langar líka
að þakka þér fyrir nærveru þína á
sjúkrahúsinu, það var svo styrkj-
andi og gott að hafa þig þar.
Guð blessi þig, elsku pabbi minn.
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið. Sofðu rótt.
(Jónas Hallgr.)
Ellen Ásdís Erlingsdóttir.
Elsku pabbi, nú farinn ertu mér
frá, þín er sárt saknað.
Vinarskilnaður okkar er við-
kvæm stund.
Faðir minn, í hjarta mínu hvíla
minningar, trú, traust, virðing og
sterkt samrýnt samband okkar. Í
gegnum lífið mun ég ganga með
allt sem þú kenndir mér. Styrkinn
frá þinni trú, sem faðmur þinn gaf
mér. Elsku faðir, þú varst ljós í lífi
mínu, gættu mín, ég elska þig, ég
aldrei mun gleyma þér minningin
lifir í mér.
Ég fel mig þinni föðurnáð,
minn faðir elskulegi,
mitt líf og eign og allt mitt ráð
og alla mína vegi.
Þú ræður öllu’ og ræður vel
af ríkdóm gæzku þinnar.
Þín stjórn nær jafnt um himins hvel
og hjólið auðnu minnar.
Ég fel mig þínum föðurarm,
er fast mig sorgir mæða.
Þú einn kannt sefa hulinn harm
og hjartans undir græða.
Hið minnsta duft í mold þú sérð
og mælir brautir stjarna,
þú telur himintungla mergð
og tárin þinna barna.
Ég fel mig þinni föðurhlíf,
er fer ég burt úr heimi,
en meðan enn mér endist líf,
mig ávallt náð þín geymi.
Þú yztu takmörk eygir geims
og innstu lífsins parta,
þú telur ár og aldir heims
og æðaslög míns hjarta.
(Vald. Briem.)
Elsku faðir, þökk til þín, þú
þekktir mig, ég veit þú hefur vilja
og mátt að vernda mig um dag og
nótt. Meðan líf í æðum er skal sál
mín aldrei gleyma þér.
Elsku pabbi, elsku mamma,
elsku Hinni bróðir, í hjarta mínu
munuð þið lifa, lifa að eilífu.
María Erla Erlingsdóttir.
Í dag langar mig að kveðja hann
föður minn. Mann sem hafði ein-
staka manngerð að geyma. Hann
skipaði alltaf sérstakan sess í mínu
hjarta. Við hjálpuðum alltaf hvor
öðrum alla tíð eftir bestu getu. Svo
jákvæðum manni var ekki erfitt að
vera sammála. Þú hringdir á hverj-
um degi í mig bara svona til að
rabba og byrjaðir alltaf á að spyrja
„nokkuð nýtt?“. Þessara orða á ég
eftir að sakna mikið.
Þitt einstaka minni og allt sem
þú hafðir að geyma í höfðinu var
með ólíkindum. Það kom mér þó
mest á óvart þegar þú sýndir mér
bréf frá Þjóðminjasafni Íslands.
Þar varstu beðinn um að staðfesta
og segja frá nöfnum á ýmsum
kennileitum, hólum og fjöllum víða
um landið.
Þitt einstaka orgelspil og harm-
ónikkuspil sem uppfullt var af auð-
finnanlegri gleði er algjör forrétt-
indi að hafa alist upp við. Að vera
sjálflærður á orgel og harmónikku
frá sjö ára aldri er ekki hverjum
sem er gefið. Ég þakka þér allt
sem þú kenndir mér á lífsleiðinni
og hjálpina. Guð blessi minningu
svo góðs manns.
Á hjarta mínu sárin svella
er synd og mæða þung mér bjó,
þú veist, hve margt vill hug minn hrella
og helgri svipta von og ró,
ó, snert þú mína önd
með elskuríkri föðurhönd.
(Þ. Þorkelsson.)
Höskuldur Geir Erlingsson.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Þegar ég sest niður til að skrifa
nokkrar línur í minningu frænda
míns, Erlings Bjarna Magnússon-
ar, dettur mér í hug orðatiltækið,
„oft er stutt á milli gleði og sorg-
ar“. 7. október sl. vorum við ætt-
ingjar og vinir að fagna með honum
70 ára afmæli hans þar sem hann
lék á als oddi, því alltaf naut hann
sín vel í góðra vina hópi. Og hvað
hann var ánægður þegar Grettir
Björnsson kom og spilaði á harm-
onikku fyrir okkur, því Erlingur
spilaði bæði á nikku og orgel og
síðar á skemmtara. Viku síðar kom
reiðarslagið. Mamma hringir í mig
þar sem ég var stödd uppi í Borg-
arfirði og segir mér að Erlingur
hafi veikst alvarlega og sé meðvit-
undarlaus. Það líður ekki nema ein
vika til og þá kveður hann okkur
sem erum hérna megin; þetta var
þungt högg.
Frá mínum fyrstu barnsminn-
ingum man ég eftir Erlingi eins og
reyndar öllum hinum systkinum
mömmu sem öll umvöfðu mig ást
og umhyggju. Mér hefur verið sagt
að sjaldan hafi ég sofið betur sem
barn en þegar Erlingur sat á rúm-
stokknum hjá mér og spilaði á
nikkuna sína. Þegar ég var 8 og 9
ára bjuggum við, foreldrar mínir
og bræður, vestur í Breiðuvík. Mér
er minnisstætt þegar Erlingur kom
með Helgu konuna sína og litlu
dóttur þeirra Jóhönnu vestur, þar
sem hann tók að sér að kenna þar,
meðal annars smíðar og skrift. Ég
var svo montin af henni litlu
frænku minni og ég var sko stóra
frænka. Börnin urðu fleiri og ég
varð alltaf stærri og stærri frænka.
Nokkrum sinnum á ári fórum
við, foreldrar mínir og bræður, þeir
Maggi og Gulli, vestur að Melbæ
þar sem Erlingur og Helga höfðu
byggt sér stórt og myndarlegt hús.
Alltaf var okkur tekið opnum örm-
um. Þar var alltaf pláss fyrir gesti,
ekki við öðru að búast eins gestris-
in og greiðasöm sem Erlingur og
Helga voru. Eins var þetta í Bæ og
Hábæ, þar sem aðrir bræður
mömmu bjuggu.
Mér er ógleymanlegt er ég fór í
fyrsta skipti ein í „sveit“ án
mömmu og pabba til að vera hjá
Erlingi og Helgu sumarið sem ég
var 11 ára. Það var mikil tilhlökkun
enda ekki að ástæðulausu, því hjá
þeim var bæði gott og gaman að
vera. Eftir það var gert allt sem
hægt var til að fá að ljúka vorpróf-
unum sem fyrst í skólanum til að
komast vestur og best af öllu var
að komast með frænda í vörubíln-
um hans þegar hann var í vöru-
flutningunum því alltaf var hann
hress og kátur. Auðvitað var svo
ekki hægt að fara heim fyrr en eft-
ir réttir að hausti. Ég minnist
skemmtilegs atviks er átti sér stað
eitt haustið sem ég kom suður. Þá
var Helga í Reykjavík og ég tók
rútuna í bæinn og tók þá með mér
lítinn son þeirra sem var mjög
hændur að mér og hann kallaði mig
oftast mömmu sem hann og gerði í
rútunni. Ég fékk torkennileg
augnaráð því ég var jú aðeins 14
ára þá en mér þótti þetta bara
gaman.
Þó svo ég hafi hætt að koma til
þeirra í sumarvinnu kom ég alltaf
til þeirra á hverju ári og stundum
oft á meðan þau bjuggu fyrir vest-
an. Það fækkaði ekkert ferðunum
þangað eftir að ég var komin með
fjölskyldu, enda leið okkur öllum
vel með þessu frændfólki. Í nóv-
ember 1989 misstu Helga og Er-
lingur son sinn Hinrik í hörmulegu
slysi sem varð þeim mikið áfall,
sem og okkur öllum. En ekki all-
löngu seinna greindist Helga með
krabbamein sem varð hennar bana-
mein og lést hún í júní 1991. Það er
því hörmulega sárt að standa
frammi fyrir því að enn sé tekinn
tollur af þessari góðu fjölskyldu.
Ég og fjölskylda mín, móðir og
bræður, viljum þakka fyrir allar
þær ánægjulegu stundir sem við
áttum saman og ekki efast ég um
að honum hefur verið vel fagnað af
þeim sem áður voru gengnir.
Hjartans samúðarkveðjur til barna
hans og fjölskyldna frá okkur öll-
um.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Jóhanna Kristín Hauksdóttir.
Í dag kveðjum við góðan vin og
starfsfélaga. Erlingur Magnússon
starfaði sem sölumaður hjá Húsa-
smiðjunni frá 1986. Elli hafði starf-
að sem vöru- og flutningabílstjóri
áður og var með ólíkindum hvað
hann þekkti af fólki úr öllum sveit-
um landsins. Hann kunni deili á
flestum ef ekki öllum bæjum og
ábúendum á þeim leiðum sem hann
hafði ekið um. Elli var afskaplega
mannblendinn maður og átti auð-
velt með að kynnast fólki. Hann
kunni ógrynni af skemmtilegum
sögum og hafði gaman af að miðla
þeim til samstarfsmanna sinna. Ég
minnist þess þegar ég hóf störf í
Húsasmiðjunni og var svo heppinn
að fá næsta sæti við Ella, þá fannst
mér ég hafa þekkt karlinn alla ævi
eftir fyrstu vikuna. Það var gott að
geta flett upp í reynslu- og visku-
brunni hans og alltaf var hann boð-
inn og búinn að leiðbeina lærling-
unum og taka þá í „þroskaþjálfun“.
Hann var fljótur að tileinka sér
tæknina og var innra minni hans
litlu síðra en tölvunnar. Hann hafði
einstakt minni, mundi þúsundir
vörunúmera og þekkti rödd hundr-
aða viðskiptavina sem leituðu aftur
og aftur eftir þjónustu hans. Það
var ekki nóg að hann þekkti þá á
röddinni heldur mundi hann kenni-
tölurnar þeirra líka!
Elli var mikill harmoníkuleikari
og músíkant, enda óþreytandi við
að þenja nikkuna. Skemmst er að
minnast haustferðar timbursölunn-
ar í lok september, þar sem hann
fór á kostum og heillaði jafnt gamla
sem unga. Það var sama hvað var
beðið um, allt kunni Elli.
Í byrjun október varð Elli sjö-
tugur og höfðum við á orði að nú
væri kominn tími til að hann færi
að slaka á og njóta lífsins. Engan
grunaði að fríið sem hann tók sér
til að fagna þessum tímamótum
yrði svo langt sem raun ber vitni.
Við kveðjum góðan dreng með
söknuði og vottum aðstandendum
samúð okkar.
F.h. samstarfsmanna í Húsa-
smiðjunni
Einar Sveinsson.
ERLINGUR BJARNI
MAGNÚSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Traust persónuleg
alhliða útfararþjónusta.
Áratuga reynsla.
Símar 567 9110 & 893 8638
utfarir.is