Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 49

Morgunblaðið - 26.10.2001, Síða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 49 ✝ Þrúður Guð-mundsdóttir fæddist á Snæfjöllum á Snæfjallaströnd 2. janúar árið 1907. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Sunnu- hlíð 21. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarney Guðrún Bjarnadóttir og Guð- mundur Jónsson bú- fræðingur. Systkini Þrúðar voru Hinrik, Jón, Valgerður, Kristján, María og Bjarni. Þau eru öll látin. Þrúður giftist 13. ágúst 1934 Gunnari Eggertssyni frá Leirárgörðum, f. 10. nóvember 1907, d. 12. nóvem- ber 1996. Börn þeirra eru: 1) Hrafnhildur, f. 14. mars 1936, giftist Guðmundi Karlssyni, þau skildu. Dóttir þeirra er Erna Þrúður. 2) Hugrún, f. 29. októ- ber 1937, gift Gylfa Guðnasyni og eiga þau soninn Gunnar. 3) Eggert Gautur, f. 27. maí 1940, kvænt- ur Svanhildi Ísól Skaftadóttur og eiga þau dæturnar Völu Nönn og Sigrúnu. 4) Gerður Helena, f. 24.10. 1950, gift Joel Ohlsson. Barna- barnabörnin eru sex. Þrúður og Gunnar bjuggu fyrstu 12 hjúskaparár sín í Reykjavík en reistu sér síðan hús á Þinghólsbraut 65 í Kópavogi og bjuggu þar í 50 ár. Útför Þrúðar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar við frændsystkinin setjumst niður og rifjum upp minn- ingar um hana ömmu. Hún var um margt sérstök kona, en eins og aðrir af hennar kynslóð upplifði hún mikl- ar þjóðfélagsbreytingar á sinni löngu ævi, sem án efa hafa haft mikil áhrif á hana. Þegar amma var um tvítugt sigldi hún til Kaupmanna- hafnar og var þar í vist í á annað ár. Þegar hún kom þaðan settist hún á skólabekk í Héraðsskólanum á Laugarvatni og þar lágu leiðir þeirra afa saman. Það var ekki al- gengt á þessum tíma að ungar kon- ur færu einar síns liðs til útlanda til að vinna eða öfluðu sér menntunar. Hún hafði alla tíð gaman af því að ferðast og síðast fór hún til Gerðar í Svíþjóð þegar hún var níræð og það gerði hún þótt hnén væru slæm og sjónin farin að dala. Amma var alveg einstaklega nýj- ungagjörn alveg fram til hins síð- asta. Í því sambandi koma verslun- arferðir upp í hugann en hún hafði til dæmis gaman af að fara í Kringl- una, kannski af því að á yngri árum var oft þröngt í búi og ekki tækifæri til að kaupa nema nauðþurftir. Ekki var verra ef bæjarferðirnar enduðu á kaffihúsi. Það verður þó að segjast eins og er að þessi áhugi á að prófa nýja hluti til dæmis í eldamennsku vakti nú ekki alltaf hrifningu hjá afa, sem leist oft ekki á það sem hún dró upp úr Hagkaupspokunum til að gæða þeim á. Það gat verið góðmeti af salatbarnum (sem hann var nú ekki mikið fyrir) eða e-ð annað sem leit framandi út og henni fannst að sniðugt væri að prófa. Og víðsýnin teygði sig víðar, þegar hún stóð á sjötugu fór hún með 11 ára sonar- dóttur í bæjarferð og komu báðar heim með götuð eyru og mátti vart á milli sjá hvor var ánægðari að þeim „pyntingum“ afloknum. Amma og afi byggðu hús á Þing- hólsbrautinni fyrir 50 árum og var þetta hús stór hluti af lífi stórfjöl- skyldunnar. Við frændsystkinin vor- um svo heppin að alast upp í næsta nágrenni við þau og var stóri garð- urinn í kringum húsið eilíf upp- spretta leikja, jafnt sumar sem vet- ur og voru ósjaldan flestir krakkar hverfisins þar samankomnir, hvort sem var í boltaleikjum, á skíðum eða við leik í fjörunni – en fjöruleikirnir enduðu nú stundum með blautum fötum frá toppi til táar. Síðan var voða notalegt að koma inn í eldhús til ömmu og fá jólaköku (þá bestu í heimi) kleinur og neyðarbrauð. Í þá daga stóð hún gjarnan við eldavélina eða sat við borðstofuborðið og lagði kapal og var hún þá stundum með vindil í öðru munnvikinu. Það voru margir kaplar lagðir við borðstofu- borðið og yfirleitt var öll aðstoð við lausn þeirra snarlega afþökkuð. Í þessum stóra garði voru líka ræktaðar kartöflur fyrir alla afkom- endurna og það var ómissandi hluti af kartöfluupptökunni á haustin að fá grjónagraut í eldhúsinu hjá ömmu og lummukaffi á eftir. En það var nú ekki bara við þau tækifæri sem fjölskyldan safnaðist saman á Þinghólsbrautinni og drakk kaffi og ræddi þjóðmálin, húsið var einskon- ar fastur punktur í tilverunni og flestar helgar hittumst við öll í kaffi hjá ömmu og afa. Oft var það, þegar við barnabörnin kíktum til þeirra, að amma gaukaði að okkur seðlum og var það undantekningarlaust mikið laumuspil, gjarnan með orðunum „láttu ekki þann gamla sjá þetta“ hvísluðum út um annað munnvikið svo maður flýtti sér að stinga á sig seðlinum um leið og maður gerði sitt besta að hvísla þakkir sem óðar voru þaggaðar niður. Laumuspilið var ekki vegna þess að afi hefði haft nokkurn skapaðan hlut á móti gjöf- inni, svona vildi amma bara hafa það, þetta var bara okkar á milli – milli hennar og þess sem gaukað var að. En níska og nirfilsháttur var eit- ur í hennar beinum og þó að hún hafi stundum getað verið hrjúf á yfir- borðinu, þá mátti hún ekkert aumt sjá og eru mörg dæmi þess hve hún reyndist vel þeim sem áttu erfitt. En eins og með peningagjafirnar þá vildi hún gjarnan halda hlutunum fyrir sig og stundum kom það fyrir þegar verið var að tala við hana í símann að hún skellti á allt í einu, nánast án fyrirvara og vissum við þá að einhver hafði komið í gættina, sem varðaði náttúrlega ekkert um að hún var að tala í símann. Við viss- um hvað klukkan sló og hringdum bara aftur síðar. Amma var búin að lifa langa og viðburðaríka ævi en undir það síð- asta var heilsan farin að gefa sig og þó léttleikinn væri alltaf fyrir hendi þá var hún farin að þrá hvíld. Elsku amma, við þökkum þér samfylgdina í gegnum árin. Minn- ingin um stórbrotna konu mun lifa! Vala Nönn, Gunnar og Sigrún. Þrúður Guðmundsdóttir er látin í hárri elli, eflaust sátt við sitt ævi- starf. Það var ekki hægt að gera það betur. Hún fæddist í byrjun síðustu ald- ar og þekkti vel kreppuárin og harða lífsbaráttu alþýðufólks fyrr og síðar. Þrúður átti sitt fallega menning- arheimili á Þinghólsbraut 65 í Kópa- vogi í fimmtíu ár, en dvaldist í Sunnuhlíð í Kópavogi síðustu árin, þegar heilsan fór að gefa sig. Alla tíð var hún vinstrisinnuð, eins og sagt er. Sannur Íslendingur, sem unni landi sínu og þjóð. Lagði sig alltaf fram um að tala fallegt mál og gefa góð ráð í þeim efnum, ef menn fóru ekki alveg rétt með. Ég var tengdasonur hennar í ald- arfjórðung og gleymi ég aldrei öll- um ánægju- og gleðistundunum, sem ég átti á heimili hennar og Gunnars heitins Eggertssonar hér áður fyrr, og allt fram á síðustu ár, þegar sérstök tilefni gáfust. Það var fastur liður, þegar við mættum á Þinghólsbrautina í gamla daga, að ég settist inn í stofu og lét fara vel um mig, þá birtist Dúdda brosandi með Þjóðviljann, rétti mér blaðið, sagði bara: „Sæll vertu,“ en hefur eflaust hugsað: Honum veitir víst ekki af smálesningu, stráknum. Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber, Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. (Matt. Joch.) Þegar dóttir mín fermdist sendi amma hennar henni þessar fallegu ljóðlínur, og langar mig að ljúka þessum fáu kveðjuorðum til Þrúðar með því að senda henni þær til baka. Nú kveð ég þessa einstöku konu og þakka henni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig. Við Guðbjörg sendum börnum hennar, barnabörnum og öðrum ættingjum innilegar samúðakveðj- ur. Blessuð sé minning hennar. Guðmundur R. Karlsson. Í dag fer fram útför Þrúðar Guð- mundsdóttur, en hún lést 21. þessa mánaðar á sjúkradeild Sunnuhlíðar í Kópavogi á 95. aldursári. Þrúður, eða Dúdda eins og hún var kölluð af vinum sínum og ættingjum, var móðursystir okkar og hefur verið fastur punktur í okkar lífi alla tíð. Ung giftist hún Gunnari Eggerts- syni sem var sérlega mætur maður, þúsundþjalasmiður og framúrskar- andi skemmtilegur. Eftir að þau höfðu búið nokkur ár í Reykjavík reistu þau sér framtíðarheimili í Kópavogi og voru frumbyggjar þar. Bjuggu þau á einum fegursta stað í bænum, áttum við þar margar ánægjustundir ekki síst um áramót en þá efndu þau hjónin til hátíðar- halda, en Dúdda var einmitt fædd um áramót. Þar voru ávallt margir vinir og ættingjar samankomnir, sem flestir eru nú horfnir af sjón- arsviðinu. Dúddu og Gunnari leið ákaflega vel í sinni „Paradís“ og ekki spillti það fyrir að þrjú af fjór- um börnum þeirra áttu heimili í næsta nágrenni, en Gerður dóttir þeirra býr í Svíþjóð og var einstak- lega gott samband milli þeirra allra og foreldranna. Gerður hefur komið minnst tvisvar á ári til Íslands í mörg ár. Voru það ætíð fagnaðar- fundir þegar fjölskyldan var öll sam- ankomin á Þinghólsbrautinni. Nú er langri ævi lokið, við systkinin erum þakklát að hafa átt slíka afbragðs- konu sem Dúddu fyrir frænku og minnumst vel hve samband þeirra systra, hennar og Valgerðar móður okkar, var elskulegt. Við og fjöl- skyldur okkar hugsum með hlýhug til barna hennar en milli okkar hefur ætíð ríkt mikil vinátta, þeirra missir er mikill. Nú að leiðarlokum kveðjum við móðursystur okkar með virðingu og þökkum henni allt gott sem hún gerði okkur á lífsleiðinni. Blessuð sé minning hennar. Bjarney og Jakob Valgerðarbörn. ÞRÚÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Guðrún LovísaSigurðardóttir fæddist 27. júní 1944. Hún lést á heimili sínu fimmtudaginn 18. október síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Margrét Jóna Kristófersdóttir hús- móðir, f. 28. apríl 1915, og Sigurður Sigurðsson bóndi á Maríubakka í V- Skaftafellssýslu, f. 3. ágúst 1895, d. 24. júní 1983. Lovísa var næst- yngst sex systkina en þau eru Guðni, f. 6. október 1936, Krist- ófer, f. 19. september 1937, Guð- laug Edda, f. 9. maí 1940, d. 18. október 1971, Guðbergur, f. 16. febrúar 1942, og Jón, f. 14. sept- ember 1948. Eftirlifandi eiginmaður Lovísu er Friðrik Axel Sveinsson, f. 8. júní 1947. Foreldrar hans voru Lína Arngrímsdóttir húsmóðir, f. 13. ágúst 1912, d. 8. apríl 2001, og Sveinn Hjálmarsson bóndi á Svarfhóli í Svínadal, f. 29. september 1901, d. 27. febrúar 1985. Börn þeirra Lovísu og Axels eru: Sóley Björk, f. 23. september 1969; Kristjana, f. 21. júní 1975, sambýlismað- ur hennar er Hjalti Páll Ingólfsson, f. 28. ágúst 1973; Grétar Már, f. 3. maí 1979, sambýliskona hans er Karen Áslaug Vignisdóttir, f. 28. desember 1980; og Áslaug Harpa, f. 7. febrúar 1985. Lovísa ólst upp á Maríubakka en fluttist snemma til höfuðborg- arsvæðisins og fyrstu búskaparár sín bjuggu þau í Hafnarfirði en fluttust til Reykjavíkur árið 1976. Útför Lovísu fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Með þessum línum kveðjum við þig elsku mamma eftir erfiða bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Þú barðist eins og hetja allt þar til yfir lauk og sýndir ótrúlegan styrk og æðruleysi. Okkur langar til að þakka þér fyrir allt það sem þú varst okkur, betri mömmu hefði ekki verið hægt að hugsa sér. Þú varst okkur ekki bara mamma heldur einnig besti vinur okkar allra. Stundum sagðir þú okkur að fjöl- skyldan væri það sem þú lifðir fyrir og að þú litir á það sem tilgang þinn hér á jörðinni að hlúa að okkur. Þú gafst allt í að sameina fjölskylduna og áttir mestan þátt í að móta okkur sem einstaklinga. Oft fannst manni furðulegt hversu vel predikanirnar þínar og lífsspeki samræmdust lífi unglingsins. Allar skemmtilegu stundirnar eru svo dýrmætar í minningunni og víst er að speki þín mun lifa í lífsviðhorfum okkar um ókomna framtíð. Þú varst alltaf mikið náttúrubarn og kenndir okkur að meta fegurð landsins og virða allt kvikt. Heima- sveitin var þér ávallt svo kær og mikið þótti þér vænt um bræður þína og mömmu. Hvergi leið þér betur en í skóginum þínum í Vall- arhorni og víst er að alúðin sem þú lagðir við trjáræktina er að leiða af sér mikinn skóg. Þú hafðir uppi þau glettnu áform að kaupa þér rósóttan kjól og hatt í stíl sem þú ætlaðir að vera í við gift- ingar okkar krakkanna. Eitt sinn þegar sýnt var hvaða örlög voru þér búin sagðist þú ætla að sitja í þess- ari múnderingu á skýi og dingla nið- ur fótunum af gleði. Þegar þeir dag- ar koma munum við öll líta upp til himins og hugsa til þín. Sú stað- reynd að þú og stóra systir þín lét- ust nákvæmlega sama dag með 30 ára millibili hefur styrkt trú okkar á að þú sért á góðum stað og njótir endurfunda látinna ástvina. Við treystum því kæra mamma að þið systur sitjið saman og horfið niður til okkar á merkisstundum í lífi okk- ar. Þú varst alltaf fremur hæglát kona og kunnir ekkert sérstaklega vel við þig í margmenni. En þú lagð- ir alltaf mikla áherslu á mannlega þáttinn í samskiptum þínum við ann- að fólk og blómstraðir innan um þá sem þér leið vel með. Það sást vel þegar þú þurftir að vera löngum stundum á spítalanum hversu mik- ilvægt það var þér að vera í góðu sambandi við starfsfólkið. Í veikindum þínum styttir þú þér stundir við að gefa fuglunum úti í garði að borða og þá dugði ekkert minna en heimalöguð „fuglakássa“. Þú kallaðir þessa litlu vini skjól- stæðinga þína og þökkuðu þeir þér gestrisnina með því að drita á þvott- inn sem hengdur var úti á snúru. Skemmtilegast þótti okkur þegar þú hvæstir á kettina sem létu sjá sig í garðinum en óhljóðin sem þú lést frá þér hefðu nægt til að lama tígrisdýr. Því langar okkur til að kveðja þig elsku mamma með kvæðinu um fuglana. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson.) Takk fyrir allt. Sóley, Kristjana, Grétar og Áslaug. Kæra Lovísa, Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þakka þér fyrir allt, mér mun allt- af þykja vænt um allt það sem þú gerðir fyrir mig. Þinn tengdasonur, Hjalti Páll. GUÐRÚN LOVÍSA SIGURÐARDÓTTIR Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284 ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.