Morgunblaðið - 26.10.2001, Side 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 53
Í DAG kl. 9.15 hefst í Norræna húsinu
í Reykjavík námsstefna um „norsku
húsin á Íslandi“. Björn Bjarnason
menntamálaráðherra mun setja
námsstefnuna sem stendur í dag og á
morgun, laugardag.
Um 35 þátttakendum frá Íslandi og
Noregi hefur verið boðið. Flestir eru
arkitektar og sagnfræðingar sem búa
yfir mikilli þekkingu á byggingasögu,
sögu byggingalistar og rannsóknum
og vörslu eldri húsa á Íslandi. Meðal
fyrirlesara verða framkvæmdastjóri
Húsafriðunarnefndar ríkisins Magn-
ús Skúlason arkitekt og Hjörleifur
Stefánsson arkitekt. Norskir þátttak-
endur í umræðunum verða m.a.
Kristene Bruland prófessor frá Há-
skólanum í Osló og vísindamennnirnir
Jens Christian Eldal og Jon Brænne
frá norsku rannsóknarstofnuninni um
menningarminjar (NIKU).
Námsstefnan er hluti áætlunar um
að rannsaka og gera yfirlit um norsk
timburhús á Íslandi. Mörg húsanna
eru í flokki verndaðra bygginga á Ís-
landi og voru oft reist í tengslum við
síldveiðar, hvalveiðar og kaup-
mennsku.
Nánari upplýsingar um námsstefn-
una og rannsóknaráætlunina fást hjá
Per Roald Landrö í norska sendi-
ráðinu í Reykjavík.
Námsstefna
um norsku
húsin á Íslandi
FYRSTI fundur haustsins hjá
Kvæðamannafélaginu Iðunni verður
í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20 í sal
Blindrafélagsins í Hamrahlíð 17.
Kveðnar verða vísur úr sumarferð
félagsins um Borgarfjörð og Mýrar
og vísur fluttar sem urðu til á lands-
móti hagyrðinga að Hvanneyri í
ágústlok.
Haustfundur
kvæðamanna
FÉLAG Snæfellinga og Hnappdæla
í Reykjavík heldur sína árlegu
árshátíð laugardaginn 3. nóvember, í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Heiðursgestir verða hjónin Stefán
Jóhann Sigurðsson og Guðrún Alex-
andersdóttir frá Ólafsvík og Sex í
sveit úr Grundarfirði skemmta.
Veislustjóri verður Jóhann Jón Ís-
leifsson frá Stykkishólmi.
Allir Snæfellingar og velunnarar
þeirra eru velkomnir, segir í frétta-
tilkynningu.
Snæfellingar
halda árshátíð
NÝLEGA opnuðu hjónin Ólafur
Benediktsson og Ólöf Ólafsdóttir
nýja sérverslun, Dún og fiður, að
Laugavegi 87, Dún og fiður sér-
verslun. Ólafur hefur í 33 ár starfað
við og sérhæft sig í framleiðslu,
meðhöndlun og þvotti á sængum,
koddum og öðrum vörum fram-
leiddum úr dún og fiðri. Verslunin
er rúmgóð og björt og hefur á boð-
stólum sængur, kodda og allskyns
gjafavörur tengdar sængurfatnaði.
Áfram mun Ólafur bjóða upp á
þvott og hreinsun á koddum og
sængum, segir í fréttatilkynningu.
Morgunblaðið/Ásdís
Ný sérverslun,
Dún og fiður