Morgunblaðið - 26.10.2001, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 57
DAGBÓK
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert öryggið uppmálað og
hefur því góð áhrif á um-
hverfi þitt. Gættu þess að
ganga ekki yfir aðra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess að gera ekki
meiri kröfur til annarra en þú
gerir til þín sjálfs. Ósanngirni
í garð annarra hrekur bara
fólk frá þér, vinina líka.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt erfitt með að segja nei
og situr því uppi með verk-
efnafjölda sem þú ræður orð-
ið ekkert við. Nú verður þú að
setja hnefann í borðið - NEI!
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er aldrei of seint að eign-
ast nýja vini. Um leið og þú
ert opinn gagnvart öðrum
skaltu fara þér hægt við að
hleypa fólki of nálægt þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu fjölskyldu og heimili
ganga fyrir. Þú hefur van-
rækt þína nánustu upp á síð-
kastið og verður nú að breyta
um ef þú vilt ekki glata því
besta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Lífið hefur á sér margar hlið-
ar og það getur stundum ver-
ið erfitt að velja réttu leiðina.
Hlustaðu á aldna, því þeir
hafa lært svo margt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur margar góðar hug-
myndir um endurbætur á
vinnustaðnum og ættir ekk-
ert að liggja á þeim, þótt ekki
sé víst að þær falli í kramið
hjá öllum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sá hefur nóg sér nægja lætur.
Gleymdu ekki að láta þína
nánustu finna fyrir ást þinni
og umhyggju. Alls ekki
geyma það til morguns.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að skapa þér tóm til
þess að vera út af fyrir þig og
fara í gegn um málin. Þetta er
nauðsynlegt svo þú getir
haldið ótrauður áfram.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það getur komið sér vel að
eiga trúnaðrvin sem getur
deilt með þér bæði gleði og
sorg. En mundu, að slíkt sam-
band er ekki bara á einn veg.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er lag til að koma hug-
myndum þínum á framfæri.
Gættu þess bara að reyna
ekki að blekkja áheyrendur
þína, þú þarft þess ekki og
það hefnir sín.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gefðu þér tíma til þess að
hlusta á unga fólkið tíunda
fyrirætlanir sínar. Þótt þér
finnist þær ekki ýkja raun-
hæfar getur þú samt lært
eitthvað.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Leggðu áherslu á að hafa alla
pappíra í röð og reglu og vita
nákvæmlega hver staðan er
hverju sinni. Ekkert er eins
vont og óvissan.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
VIÐLÖG
Blítt lætur veröldin,
fölnar fögur fold.
Langt er síðan yndið mitt
var lagt í mold.
Austan blikar laufið
á þann linda.
Allt er óhægara
að leysa en binda.
Svanurinn syngur víða,
alla gleðina fær.
Blómgaður lundurinn
í skógi grær.
Heimsmeistaramótið hófst á
mánudaginn í París. Í fyrsta
hluta spila þátttökuþjóðirn-
ar innbyrðis tuttugu spila
leiki, en síðan taka við lengri
útsláttarleikir. Átján sveitir
hefja keppni bæði í opnum
flokki og kvennaflokki og er
markmiðið til að byrja með
að vera í hópi átta efstu. Spil-
ið að neðan kom upp í þriðju
umferð á mánudaginn:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ Á6543
♥ –
♦ G943
♣9872
Vestur Austur
♠ 7 ♠ 2
♥ KG873 ♥ ÁD1065
♦ 1062 ♦ ÁD875
♣KD105 ♣G6
Suður
♠ KDG1098
♥ 942
♦ K
♣Á43
Þetta er dæmigert sagnbar-
áttuspil á háu nótunum, því
NS eiga ellefu spaða saman,
en AV tíu hjörtu. Fimm
hjörtu tapast, en víðast hvar
fóru NS í fimm spaða, sem er
spennandi spil. Í leik Breta
og Ítala í kvennaflokki vann
Nicola Smith fimm spaða
eftir útspil í hjarta. Hún
trompaði í borði og spilaði
strax tígli. Austur drap á ás-
inn og réðst á laufið, en
Smith tók á laufás, fór inn í
borð á spaðaás og trompaði
tígul. Hún stakk svo hjarta
og lagði af stað með tígulgos-
ann úr borði og gleypti tíu
vesturs. Ellefu slagir.
Í opna flokknum sá
Bandaríkjamaðurinn Paul
Soloway fram á svipuð örlög,
en hann var í vestur í vörn
gegn fimm spöðum eftir
þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Soloway Shimizu Hamman Takano
Pass Pass 1 hjarta 1 spaði
4 hjörtu 4 spaðar 5 tíglar Pass
5 hjörtu 5 spaðar Pass Pass
Dobl Allir pass
Þetta var í viðureign
Bandaríkjamanna og Jap-
ana. Soloway kom líka út
með hjarta og Takano spilaði
alveg eins og Smith, gaf á
tígulásinn og trompaði tígul.
Soloway sá hvað verða vildi
og lét tígultíuna í annan tíg-
ulslaginn! Sagnhafi taldi lík-
legt að vestur ætti þrílit í
tígli og tían benti til að sá
þrílitur væri nákvæmlega
D10x. Takano trompaði því
þriðja tíglinum (Hamman
dúkkaði auðvitað), en veiðin
var ekki drottningin heldur
óbreyttur hundur. Einn nið-
ur.
Ef að líkum lætur verður
þetta varnarspil fært til bók-
ar sem ein snotrasta blekk-
ing bridssögunnar.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. Dc2 d5 5. cxd5 exd5
6. Bg5 c5 7. Rf3 h6 8. Bxf6
Dxf6 9. a3 Ba5 10. e3 cxd4
11. Rxd4 Rc6 12. Hd1 Bg4
13. Be2 Rxd4 14. Hxd4
Bxc3+ 15. Dxc3 Bxe2 16.
Kxe2 O-O 17. Hc1 Df5 18.
Dd3 Dh5+ 19. g4 Dxh2 20.
Hxd5 Hae8 21. Hd7 Dg2 22.
Df5 He5 23. Df3
Í september var haldin
liðakeppni í atskák í Batumi
í Georgíu á milli Evrópu og
Asíu. Teflt var í kvenna- og
opnum flokki. Bæði lið voru
gríðarlega sterk. Garry
Kasparov (2838) hafði svart
í stöðunni
gegn víet-
namska
stórmeistar-
anum Dao
Thien Hai
(2572).
23...Hxe3+!
24. Dxe3
Ekki var
skárra að
leika 24.
Kxe3 þar
sem eftir
24...He8+
25. Kf4 g5+
mátar svart-
ur í næsta
leik.
24...Dxg4+
25. Kf1 Dxd7 26. Dxa7
Db5+ 27. Kg2 Dg5+ 28.
Kf1 Db5+ og hvítur lagði
niður vopnin. Kasparov
fékk 11 vinninga af 12
mögulegum. Lið Evrópu
sigraði í opnum flokki með
47 ½ vinningi gegn 24 ½ á
meðan lið Asíu lagði
kvennalið Evrópu 21 ½
gegn 10 ½. Lið Evrópu
vann því keppnina með
samtals 58 v. gegn 46 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 1. september sl. í
Bessastaðakirkju af sr. Jónu
Hrönn Bolladóttur og sr.
Bjarna Karlssyni Sigríður
Hulda Jónsdóttir og Þor-
steinn Helgi Þorsteinsson.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. september sl. í
Viðeyjarkirkju af sr. Gunn-
ari Sigurjónssyni Marta
Halldórsdóttir og Högni
Jökull Gunnarsson.
80 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 26. októ-
ber er áttræður Vigfús Pét-
ursson, Bárðarási 7, Hellis-
sandi. Eiginkona hans er
Guðrún Guðlaugsdóttir.
Vigfús er að heiman í dag.
Þó svo að fyrirtækið standi
vel, þá er allt í lagi að
leggja sig ofurlítið fram.
Það dugar flestum að taka
með sér póstkort heim úr
fríinu, Einar.
60 ÁRA afmæli. Í dag26. október er sex-
tugur Kjartan Leifur Sig-
urðsson, Starrahólum 8,
Reykjavík. . Hann og eigin-
kona hans, Friðrika Rósa
Sigurbjörnsdóttir, taka á
móti gestum á heimili sínu
eftir kl. 19 á afmælisdaginn.