Morgunblaðið - 26.10.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
FORDÓMAR í garð múslíma á Ís-
landi hafa farið vaxandi eftir hryðju-
verkaárásirnar í Bandaríkjunum 11.
september sl. Fordómarnir eru
einna mest áberandi í garð múslíma
með arabískt yfirbragð og er jafnvel
hrópað á eftir þeim á götu.
Misjafn sauður í mörgu fé
Rakel Dögg Þorvarðardóttir, sem
gerðist múslími 12 ára, segir að for-
dómarnir komi fram með ýmsum
hætti. „Erfiðast er að fá fólk til að
skilja að þótt hryðjuverkamennirnir
hafi verið múslímar séu ekki allir
múslímar slæmir.“
Yousef Ingi Tamimi, múslimi af
palestínskum og íslenskum uppruna,
varð fyrir því að þrír skólafélagar
hans fóru að ofsækja hann í skólan-
um tveimur dögum eftir árásina.
Fordómar
gagnvart
múslímum
Íslam er friður/B4
BAUGUR tilkynnti í gær að félagið
ætti í viðræðum við bresku verslun-
arkeðjuna Arcadia Group um kaup á
öllum útistandandi bréfum í félag-
inu. Nú er eignarhlutur Baugs í Ar-
cadia 20,1%. Verðhugmyndir Baugs
eru á bilinu 280–300 pens á hlut og
um staðgreiðslukaup verði að ræða
sem þýðir að Baugur þyrfti að greiða
63–67,5 milljarða króna fyrir hluti
annarra hluthafa en markaðsvirði
Arcadia nam 75,6 milljörðum króna
við lokun markaða í gær.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, segir að ekki komi til greina
að hækka verðtilboð umfram upp-
gefið verðbil en í erlendum fjölmiðl-
um í gær kom fram að um of lágt
verð væri að ræða. Kom meðal ann-
ars fram á fréttavef BBC að 350 pens
á hlut væri nær lagi.
Hlutabréf í Arcadia hækkuðu
um 22,5% en Baugur stóð í stað
Verð á hlutabréfum í Arcadia
hækkaði um 22,5% í gær, úr 218,75
pensum á hlut í 268 pens. Fyrir einu
ári var verð bréfanna 38 pens á hlut.
Að sögn Jóns Ásgeirs jók Baugur
ekki við hlut sinn í Arcadia í gær en
geri Baugur tilboð í bréfin þá verði
það í hlutabréf allra annarra hlut-
hafa í einu.
Hann segist ekki geta gefið upp á
þessu stigi málsins hverjir muni
standa á bakvið fjármögnun kaup-
anna. Augljóslega séu þó erlendir
aðilar að baki svo stórri fjármögnun,
íslenskir aðilar taki ekki þátt nema
að litlu leyti.
10,5 milljarða króna tap hjá
Arcadia á síðasta fjárhagsári
Í gær voru 219 milljóna króna við-
skipti með hlutabréf í Baugi á Verð-
bréfaþingi Íslands en verð bréfanna
var óbreytt frá fyrra degi, 11,20.
Afkoma Arcadia var kynnt í gær
en tap félagsins nam 70 milljónum
punda eða um 10,5 milljörðum ís-
lenskra króna á liðnu fjárhagsári.
Hagnaður Arcadia fyrir skatta og
óreglulega liði nam 53,3 milljónum
punda sem samsvarar tæpum 8
milljörðum íslenskra króna.
Arcadia greiðir 17,9 milljónir
punda í skatt, 3,5 milljónir punda í
arð og óreglulegir liðir félagsins eru
neikvæðir um 101,9 milljónir punda
en þeir eru að stærstum hluta, 74,7
milljónir punda, gjaldfærsla vegna
sölu á vörumerkjum og verslunar-
keðjum að undanförnu sem ekki
töldust til kjarnastarfsemi Arcadia.
Fyrirtækið er metið á tæpa 76 millj-
arða króna eða 3–4-falt virði Baugs
Baugur lýsir áhuga á
að taka Arcadia yfir
Baugur/34
HLJÓMSVEITIRNAR Quarashi og
Botnleðja léku í gærkvöldi með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands fyrir troð-
fullum sal Háskólabíós. Samruni sí-
gildra og nýgildra tóna féll vel í
kramið hjá áheyrendum og ætlaði
fagnaðarlátum í lok tónleikanna
seint að linna.
Morgunblaðið/Kristinn
Sinfónískt rokk
Sinfónían rokkar/31
FRAMLÖG til Vegagerðarinnar
verða tæplega hálfum öðrum millj-
arði lægri á árinu 2002 en kveðið er á
um í vegaáætlun, vegna sérstakra að-
gerða sem ríkisstjórnin hefur gripið
til. Alls verður 5,8 milljörðum kr. var-
ið til nýframkvæmda í vegamálum,
skv. fjárlagafrumvarpi fyrir árið
2002.
Í frumvarpi til fjárlaga segir að
samgönguráðherra muni gera nánar
grein fyrir þessum breytingum við
endurskoðun vegaáætlunar, en skv.
heimildum Morgunblaðsins stendur
vilji til þess innan ríkisstjórnarinnar
að öllum framkvæmdum við jarðgöng
verði skotið á frest um óákveðinn
tíma til þess að draga úr þensluáhrif-
um í efnahagslífinu.
Á dögunum féllst Skipulagsstofnun
á umhverfsmat fyrir jarðgöng sem
fyrirhuguð eru milli Fáskrúðsfjarðar
og Reyðarfjarðar á Austurlandi. Nú
hefur stofnunin einnig samþykkt um-
hverfismat vegna jarðganga sem
leggja á milli Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar á Tröllaskaga. Í jarðganga-
áætlun, sem samþykkt var á Alþingi
með atkvæðum allra viðstaddra þing-
manna í fyrravor, er ekki gert upp á
milli jarðganga á Austurlandi og
Norðurlandi. Þess í stað var gert ráð
fyrir að samgönguráðherra taki
ákvörðun um framkvæmdaröð þegar
þar að kemur, en gert var ráð fyrir að
framkvæmdir hæfust á árinu 2002 og
að þá yrði 1.450 milljónum kr. varið í
þessu skyni, eða samsvarandi fjár-
hæð og ákveðið hefur verið að skera
niður í fjárlagafrumvarpinu.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði við Morgunblaðið í gær
að engin ákvörðun lægi enn fyrir í
þessum efnum. Hann vísaði þó til
fjárlagafrumvarpsins þar sem gert
væri ráð fyrir minna fé til nýfram-
kvæmda en kveðið væri á um í vega-
áætlun. Enn hefði ekki verið tekin
lokaákvörðun um það hvaða fram-
kvæmdum verði skotið á frest vegna
þessa.
Jarðgangagerð
verði skotið á frest
Áform stjórnarflokka til að draga úr þensluáhrifum
LYFJAFYRIRTÆKIÐ Delta hefur
í hyggju að stórauka framleiðslu sína
á sýklalyfinu Ciprox, eða Ciproflox-
acin þar sem spurn eftir því á Evr-
ópumarkaði er talsvert umfram
framboð. Um er að ræða mjög öflugt
sýklalyf sem til þessa hefur einkum
verið beitt gegn lungnabólgu og ým-
iss konar sýkingum, en er nú hamstr-
að sem aldrei fyrr í Bandaríkjunum
og Evrópu þar sem það verkar gegn
áhrifum miltisbrandssýkingar.
Bandarísk stjórnvöld skýrðu frá
því í gær að samningar hefðu tekist
við þýska lyfjafyrirtækið Bayer um
stórfelld kaup á sýklalyfinu Cipro,
sem er sömu gerðar og lyf Delta. Að
sögn Björns Aðalsteinssonar hjá
Delta hefur fyrirtækið ekki markaðs-
leyfi í Bandaríkjunum. Hann segir að
frá því útflutningur hófst á lyfinu í
ágúst sl. hafi Delta selt Ciprox til
Þýskalands fyrir um 900 milljónir kr.
og að undanförnu hafi orðið vart við
gríðarlega spurn eftir lyfinu. Unnið
sé að því að auka framleiðslu í verk-
smiðjum Delta hér á landi og á
Möltu, enda sé eftirspurnin nú langt
umfram allar áætlanir. „Enn sem
komið er höfum við ekki markaðs-
leyfi í fleiri Evrópulöndum. Stjórn-
völd kunna þó að leggja af slíkar tak-
markanir í tilfelli þessa lyfs í ljósi
þeirra aðstæðna sem nú eru uppi,“
sagði Björn.
Sýklalyfið Ciproflox-
acin sem vinnur gegn
áhrifum miltisbrands
Delta eyk-
ur fram-
leiðsluna