Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 2

Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Seljandinn, sem rekur forn- munaverslun í Winnipeg og hefur selt 2.597 verk á ebay.com, sam- kvæmt upplýsingum á vefnum, vildi ekki gefa upp lágmarksupphæð, þegar Morgunblaðið spurðist fyrir um hana og frekari upplýsingar í gær en áréttaði að fyrri eigandi hefði fengið málverkið að gjöf þeg- ar hann var í heimsókn hjá Kjarval skömmu fyrir 1950. Hann sagðist hafa fengið sérfræðing, sem þekkti mjög vel til verka Kjarvals og væri nýkominn frá listasýningu á Íslandi, til að skoða málverkið fyrir áhuga- saman viðskiptavin á Íslandi og hann hefði staðfest að það væri frá sögustað á Íslandi og sennilega mál- að á fjórða eða fimmta áratug lið- innar aldar. Hann hefði ennfremur staðfest að það væri ekki eins og seinni verk listamannsins. „Myndin er gimsteinn,“ segir eigandinn. Annarri fyrirspurn svaraði eig- andinn á þann veg að hann hefði keypt málverkið úr dánarbúi fyrir einu og hálfu ári af fólki af íslensk- Á BANDARÍSKA uppboðsvefnum ebay.com stendur nú yfir uppboð á málverki frá Þingvöllum sem sagt er vera eftir Jóhannes S. Kjarval og er hæsta boð komið í 9.100 dollara eða um 970.000 krónur, en uppboð- inu lýkur aðfaranótt þriðjudags nk. Íslenskir sérfræðingar eru hins veg- ar á einu máli um að umrætt mál- verk sé eftir Jóhannes S. Frímanns- son og að verðmætið sé í mesta lagi um 15.000 til 20.000 kr. eftir því hve ramminn er verðmætur. Uppboðið byrjaði fyrir nokkrum dögum og var fyrsta boð 9,99 doll- arar en 13 tilboð höfðu borist í gær- kvöldi. Fram kemur að lágmarks- upphæð hafi ekki verið náð en ekki kemur fram hver hún er. Í lýsingu á málverkinu segir að það sé í mjög góðu ástandi og hafi verið keypt úr dánarbúi vinar, sem hafi fengið málverkið í hendur frá Kjarval á fimmta áratug nýliðinnar aldar. Stærðin er sögð vera 25x40 tommur eða 63,5x101,6 sm fyrir ut- an ramma. um ættum. Það hefði átt bústað í Gimli í Manitoba, sem væri fjöl- mennasta samfélag Íslendinga fyrir utan Ísland, en væri flutt til vest- urstrandar Kanada, þar sem ómögulegt væri fyrir sig að hafa uppi á því. Sér hefði verið sagt að málverkið væri a.m.k. virði 10.000 kanadískra dollara, um 680.000 króna, og það hefði komið sér skemmtilega á óvart. Ólafur Ingi Jónsson, forvörður í Morkinskinnu, segir að ljóst sé að himinn og haf séu á milli umræddra listamanna og ekki fari á milli mála að undirskriftin sé eftir Jóhannes S. Frímannsson og málverkið sé í anda hans. Annaðhvort viti eigandinn ekki betur eða um vísvitandi blekk- ingu sé að ræða, en virði verksins sé ekki meira en 15.000 til 20.000 krónur í ramma. Tryggvi P. Friðriksson í Galleríi Fold tekur í sama streng. Hann seg- ir að svona mál hafi komið upp áður og full ástæða sé til að vara fólk við því að kaupa listaverk á Netinu. Tæp ein milljón boðin í málverk eignað Jóhannesi Kjarval á Netinu Sérfræðingar segja verkið ekki vera eftir Kjarval Undirskriftin á málverkinu. Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isBirgir og Björgvin yfir pari / B1 Þórður Guðjónsson á leið frá Spáni til Hollands / B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r17. n ó v e m b e r ˜ 2 0 0 1 TILKYNNT var um stórþjófn- að í innbroti í íbúð í fjölbýlis- húsi við Kleppsveg í fyrra- kvöld. Að sögn lögreglu var stolið töluverðum verðmætum, fyrir allt að eina milljón króna, s.s. fatnaði og 3 þúsund veiðiflug- um auk annarra verðmæta. Ekki er vitað hvenær innbrotið átti sér stað en húsráðendur höfðu verið að heiman. Ekki er vitað hverjir voru að verki og málið er í rannsókn hjá lögreglunni í Reykjavík. TOLLGÆSLAN á Keflavíkur- flugvelli stöðvaði í fyrrakvöld rúmlega þrítugan Íslending sem var með um tvö kíló af hassi innanklæða. Hassið hafði hann límt á líkama sinn. Að sögn tollgæslu var mað- urinn stöðvaður við venjubund- ið eftirlit en hann var að koma til landsins frá Kaupmanna- höfn. Hann hafði ekki áður komið við sögu lögreglu eða tollgæslu. Málið telst upplýst og var manninum sleppt úr haldi í gær eftir yfirheyrslur hjá fíkniefna- deild lögreglunnar í Reykjavík. Með tvö kíló af hassi límd á líkamann Þjófar stálu þrjú þúsund veiðiflugum HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær konu á fimmtugsaldri af ákæru um ölvunarakstur þrátt fyrir játningu hennar, þar sem dóm- urinn féllst á að henni hefði verið nauðsynlegt að aka bifreið í umrætt sinn til að bjarga sér undan alvar- legu ofbeldi sambýlismanns síns. Með játningu ákærðu, niðurstöðu blóðrannsóknar og framburði vitna taldist sannað að ákærða hefði verið undir áhrifum áfengis á Þorláks- messu sl. þegar hún ók bifreið um sumarbústaðahverfi í landi Galtar- holts í Borgarbyggð. Konan bar það fyrir sig að hún hefði ekki átt annarra kosta völ til að bjarga sér undan alvarlegu ofbeldi og hélt því fram að háttsemi sín teld- ist refsilaus vegna neyðarréttarsjón- armiða almennra hegningarlaga. Færni konunnar til gangs er þetta átti sér stað var mjög takmörkuð vegna meiðsla. Sannað þótti með framburði ákærðu og sambýlis- manns hennar að hann veittist að henni með ofbeldi, braut aðra hækju hennar, braut rúður í sumarhúsinu sem þau voru í og annað sem þar var og hótaði henni lífláti. Einnig að hann hefði komið út á eftir henni, eft- ir að hún var flúin út í bifreiðina, og hótað að brjóta rúður í bifreiðinni. Dóminn kvað upp Hjördís Há- konardóttir héraðsdómari. Verjandi ákærðu var Ásgeir Björnsson hdl. Ölvunar- akstur tal- inn nauð- synlegur FIMM klukkustunda fundi í kjara- deilu launanefndar Félags tónlistar- skólakennara og samninganefndar ríkisins lauk í gærkvöld án þess að árangur næðist. Sameiginlegur fundur deiluaðila var ekki boðaður eftir fundinn í gær, en launanefnd sveitarfélaga mun funda einhliða í dag. Fyrir fundinn í gær afhenti nemendafélag Tónlist- arskóla Reykjavíkur formanni launanefndar sveitarfélaga, Birgi Birni Sigurjónssyni, undirskriftir 2.600 manna sem tónlistarskólanem- endur víðsvegar að af landinu hafa safnað til að styrkja málstað Félags tónlistarskólakennara. Þá lék sext- ett úr Tónlistarskóla Reykjavíkur tónlist fyrir fundinn og þá voru haldnir fimmtu örtónleikar á vegum verkfallsstjórnar um leið og skorað var á launanefnd sveitarfélaga að ganga að kröfum tónlistarskóla- kennara. Morgunblaðið/Ásdís Árangurslaus fundur í deilu tónlistarskólakennara ALLS óvíst er hvort sýnt verð- ur frá Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í íslensku sjón- varpi, en keppnin fer fram í Kóreu og Japan á næsta ári. Að sögn Ingólfs Hannessonar, deildarstjóra íþróttafrétta hjá Ríkisútvarpinu, mun kostnaður við kaup á efni frá HM ekki verða undir 30 milljónum. Grip- ið hefur verið til aðhaldsað- gerða í rekstri RÚV og gera þær m.a. ráð fyrir að dregið verði úr útsendingum frá stærri íþróttaviðburðum. Útsendingar frá HM fara fram síðla nætur og snemma morguns sem gerir það að verkum að erfiðara er en ella að selja auglýsingar og ná samn- ingum við kostunaraðila, að sögn Ingólfs. RÚV hefur þegar tekið ákvörðun um að ekki verði sýnt frá vetrarólympíuleikunum á næsta ári en þeir verða haldnir í Salt Lake City. Ekki sýnt frá HM í knatt- spyrnu?  Fer HM/B3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.