Morgunblaðið - 17.11.2001, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ástund á aldarfjórðungsafmæli
Við erum við
hestaheilsu
VERSLUNIN ogfyrirtækið Ástundheldur upp á 25
ára afmæli sitt mánudag-
inn 19. nóvember. Hér er
um afar sérhæft fyrirtæki
að ræða þar sem hesta-
mennska og knattspyrna
eru í öndvegi. Arnar Guð-
mundsson, einn stofnenda
fyrirtækisins, er fram-
kvæmdastjóri, en vísaði á
son sinn Guðmund sem
forsvarsmann, enda „væri
hann óðum að taka við
stjórn fyrirtækisins,“ eins
og hann komst að orði.
Guðmundur er markaðs-
stjóri fyrirtækisins og
Morgunblaðið ræddi við
hann í vikunni.
– Segðu okkur frá tilurð
fyrirtækisins og hverjir
stóðu þar á bak við?
„Ástund var stofnuð 19. nóvem-
ber árið 1976 í eigin húsnæði að
Háaleitisbraut 68. Stofnendur
voru Arnar Guðmundsson, Sigríð-
ur Guðmundsdóttir og Guðmund-
ur Ágúst Ingvarsson. Aðdragand-
inn að stofnun fyrirtækisins var
fyrst og fremst áhugi stofnenda á
hestamennsku og fótbolta. Nú,
eins og þá, er því áherslan lögð á
hestavörur og vörur til knatt-
spyrnuiðkunar. M.a. rekur Ástund
sérverslun með vörur sem tengj-
ast knattspyrnu, en Ástund er
einkaumboðsaðili á Íslandi fyrir
Manchester United-vörurnar. Nú
nýlega var stofnuð ný deild innan
fyrirtækisins með dans- og ballett-
vörur þannig að segja má að hér sé
um ósvikna sérverslun að ræða.“
– Hvað á að gera í tilefni dags-
ins?
„Í tilefni af 25 ára afmælinu
bjóðum við til afmælisveislu þar
sem við bjóðum 25% afslátt af öll-
um vörum verslana okkar dagana
22.–24. nóvember. Þá kynnum við
nýjan hnakk, „Ástund Winner“,
með 25% afmælisafslætti, en þetta
er sjötta hnakkgerðin sem Ástund
framleiðir. En ef til vill er stærsti
viðburðurinn sá að við bjóðum 25
Ástundarhnakka í sérstakri af-
mælisútgáfu með þriggja ára
ábyrgð. Hnakkarnir eru númerað-
ir og smíðaðir úr sérvöldu leðri af
„Water Buffalo“ en leðrið er inn-
flutt frá Asíu, nokkuð sem ekki
hefur sést hér á landi áður. Hér er
um að ræða dýrasta hnakk á Ís-
landi og sennilega dýrasta hnakk
sem smíðaður hefur verið fyrir ís-
lenska hestinn í heiminum. Þeir
eru smíðaðir á sérhannað fjaður-
virki og þeir dýrustu eru með loft-
púða í dýnum. En það var einmitt
Ástund sem innleiddi loftpúða í
hnakka fyrir íslenska hestinn árið
1999. Loftpúðahnakkarnir þykja
með eindæmum hestvænir og nú
er hægt að fá alla Ástundarhnakka
með loftpúðum sé þess óskað.“
– Þið smíðið sem sagt hnakkana
hér heima?
„Árið 1985 stofnaði Ástund
söðlaverkstæði í húsnæði sínu við
Háaleitisbraut og hóf framleiðslu
á hnökkum, svokölluð-
um Ástundarhnökkum
og reiðtygjum fyrir ís-
lenska hestinn. Við er-
um kannski þekktust í
dag einmitt fyrir
Ástundarhnakkana sem njóta
mikilla vinsælda, en stefna fyrir-
tækisins hefur alltaf verið að
framleiða hestvæna hnakka,
þ.e.a.s. hnakka sem vernda og fara
vel með bak hestsins. Innan fyr-
irtækisins er hannaður reiðfatnað-
ur sem er framleiddur undir eigin
nafni og hefur hann náð miklum
vinsældum.
Í nóvember á síðasta ári opnaði
Ástund auk þess sérdeild með
hinn heimsþekkta fatnað frá
AIGLE International og var hún
sú fyrsta sinnar tegundar sem
opnuð var á Norðurlöndum.
Áhersla er lögð á sama stíl í öllum
AIGLE-verslunum og eru allar
innréttingar og teikningar frá höf-
uðstöðvum fyrirtækisins í París.
Fatnaðurinn er sérhæfður til úti-
vistar og tómstundaiðkunar og
hentar því vel fyrir hestamenn,
veiðimenn, kylfinga og göngufólk,
auk þess sem hann telst ekki síst
vera sportlegur tískufatnaður.“
– Eruð þið eitthvað í útflutn-
ingi?
„Já, útflutningur á eigin fram-
leiðslu hófst í kring um 1990 og
hefur verið vaxandi þáttur í starf-
semi fyrirtækisins til þessa dags.
Ástundarhnakkar og reiðtygi, svo
og reiðfatnaður, eru nú seld í 15
þjóðlöndum.“
– En seljið þið hross?
„Ég gerði það sjálfur á eigin
vegum hér áður fyrr, en fyrirtæk-
ið er ekki í þeim viðskiptum. Hitt
er svo annað mál að óbein ráðgjöf
fer oft fram innan veggja okkar,
hestamenn spyrja okkur hvort við
vitum um góð kaup og við leysum
úr því eftir bestu getu.“
– Er vitað hvað hestamenn í
landinu eru margir?
„Ég bara þekki það ekki og veit
ekki hvort það hefur verið kannað,
en hestamennska á ævinlega vax-
andi vinsældum að fagna hér á
landi.“
– Er algengt að fólk komi til
ykkar alls ófrótt um hesta-
mennsku?
„Við fáum mikið af fólki sem er
að byrja í hestamennsku og leitar
ráða hjá okkur, vænt-
anlega vegna þess
trausts sem fyrirtækið
nýtur, enda byggir
Ástund starfsemi sína
fyrst og fremst á fag-
mennsku og gæðum ásamt þekk-
ingu og persónulegri þjónustu.“
– En hvað með rekstrarum-
hverfið? Nú er niðursveifla. Finnið
þið fyrir henni?
„Verslun sem þessi verður vör
við þær miklu sveiflur sem ein-
kenna þetta þjóðfélag rétt eins og
önnur fyrirtæki í landinu. En
framtíðin er björt og við erum við
hestaheilsu.“
Guðmundur Arnarsson
Guðmundur Arnarsson fædd-
ist í Reykjavík 11. febrúar 1966.
Hann er með verslunarpróf og er
markaðsstjóri Ástundar frá
árinu 1990. Guðmundur hefur
stundað tamningar samhliða
starfinu hér heima og áður í
Sviss og Þýskalandi. Guðmundur
er kvæntur Þórdísi Ingjalds-
dóttur og eiga þau tvö börn, Sól-
rúnu Sif og Arnar Orra.
Á vaxandi
vinsældum
að fagna
Það ætlar aldeilis að koma sér vel fyrir ykkur í þessu vinstra-sukki að ég lét reisa Perluna.
HÁTT í tvær milljónir hafa safnast
til styrktar bræðrunum Friðriki og
Sigurði Guðmundssyni en bræð-
urnir fæddust báðir með ólækn-
andi og sjaldgæfan vöðvarýrn-
unarsjúkdóm. Þá hafði lengi
dreymt um að ferðast til Flórida að
skoða Disney World sem er nokk-
urt fyrirtæki þar sem báðir eru
þeir bundnir við hjólastól.
Móðir bræðranna, Gunnfríður
Friðriksdóttir, segir að það sé frá-
bært hversu mikið fé hafi safnast
og mun meira en vænst hafði verið.
Hún segir að þeir bræður hafi
fylgst mjög vel með söfnuninni og
Sigurður fylgist raunar með henni
á Netinu dag frá degi. „Friðrik og
Sigurður sjá nú fram á að geta lát-
ið drauminn rætast og við munum
fara að huga að ferðinni eftir ára-
mótin, væntanlega
verður farið í
febrúar eða mars.
Þetta er hreinlega
alveg ótrúlegt.“
Í tengslum við
opnun nýrrar
heimasíðu í októ-
ber ákváðu Sjóvá-
Almennar að
styrkja þá bræður
með því að bjóða
upp eina bifreið í
almennu útboði og
láta söluverð
hennar, 400 þús-
und krónur, renna
í ferðasjóð handa bræðrunum. Nú
hafa fleiri lagt þeim bræðrum lið,
s.s. starfsmenn Íslenskra Aðal-
averktaka-Ísafls í Vatnsfells-
virkjun. Lionsklúbbarnir á Suð-
urnesjum hafa skrifað sig fyrir
stuðningi auk þess sem framlög
hafa borist frá ónefndum aðilum.
Hátt í tvær
milljónir
hafa safnast
Bræðurnir tveir ætla að heimsækja Disney World í
febrúar eða mars.
Bræðurnir Friðrik og Sigurður á leið í DisneyWorld
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað karl
og konu af ákærum fyrir ölvunar-
akstur.
Í máli karlmannsins staðhæfðu
hann og sambýliskona hans að hún
hefði ekið bifreiðinni og hann setið í
farþegasæti við hlið hennar. Eftir að
hún hefði numið staðar hefði hann
snarast út úr bifreiðinni og gengið
aftur fyrir hana, til viðræðna við lög-
reglumennina tvo sem stöðvuðu för
þeirra, og skilið farþegadyrnar eftir
opnar. Sambýliskonan hefði því
stokkið út um dyrnar ökumannsmeg-
in og lokað þeim á eftir sér, hlaupið
fram fyrir bifreiðina, að farþegadyr-
unum og sest þar inn til að koma í veg
fyrir að hundur þeirra slyppi út úr
bifreiðinni.
Hæstiréttur sagði frásögn þeirra
lítt trúverðuga þegar litið væri til
vættis lögreglumannanna tveggja,
en á það bæri að líta að annar þeirra
hefði hvorki séð karlinn aka bifreið-
inni né stíga út úr henni um öku-
mannsdyr að akstri loknum. Um
þessi atriði væri aðeins annar þeirra
til frásagnar.
Í hinu málinu var kona ákærð fyrir
að hafa ekið bifreið sinni frá golf-
skála til heimilis síns. Hún neitaði að
hafa ekið drukkin, en kvaðst hafa
drukkið af stút óblandað sterkt
áfengi eftir að hún kom heim til sín.
Skömmu síðar hefði hún farið út í bif-
reið sína og sest upp í hana í því skyni
að ná í veski sitt. Lögreglumaðurinn
sem handtók hana kvaðst hafa séð
bifreið hennar við golfskálann rúm-
um hálftíma áður en hann sá konuna
aka henni áleiðis heim til sín, en ann-
ar lögreglumaður kom á vettvang
nokkrum mínútum eftir handtöku
hennar.
Ekkert þvagsýni
Hæstiréttur segir að þrátt fyrir
þessar aðstæður hafi þess ekki verið
gætt að taka þvagsýni af konunni til
alkóhólrannsóknar, heldur látið við
það sitja að taka úr henni blóð, en
samanburður á þessum sýnum hefði
getað veitt upplýsingar um hvort hún
hefði verið undir áhrifum áfengis
þegar hún ók bifreiðinni. Þá hafi lög-
reglumennirnir ekki kannað hvort
vél bifreiðarinnar væri heit viðkomu
eða hvort einhver vitni hefðu verið að
hugsanlegri drykkju hennar í golf-
skálanum eða akstri hennar þaðan.
Sýknað í Hæstarétti
vegna skorts á þvagsýni