Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 12

Morgunblaðið - 17.11.2001, Page 12
FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í VIÐTALI í Morgunblaðinu á mið- vikudag við sænska prófessorinn Dan Olweus, sem var aðalfyrirlesari á málþingi menntamálaráðuneytis- ins um einelti, kom fram að í sænsk- um grunnskólalögum og aðalnám- skrá er sérstaklega tekið fram að einelti sé bannað. Að sögn Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra kveða íslensk lög um grunnskóla á um aga í skólum en þar segir m.a. að samskipti starfsfólks, nemenda og foreldra skuli grundvallast á gagn- kvæmri virðingu, kurteislegri fram- komu og tillitssemi. „Mikið hefur verið unnið í þessum málum hér á landi,“ segir Björn. „Aðgerðir gegn einelti eru þróunarverkefni hjá ráðu- neytinu og heimsókn Dans Olweus hingað til lands var hluti af því. Hitt er alltaf álitamál hvort orða eigi sér- stakt bann í lagatexta eða opinber- um reglum. Að sjálfsögðu ber að túlka okkar reglur á þann veg að þær banni einelti, um það er engin spurning, hvernig sem Svíar taka á málinu hjá sér. Í aðalnámskránni okkar er gert ráð fyrir að grunnskól- ar setji í skólanámskrá reglur um viðbrögð gegn einelti.“ Í aðalnámskrá grunnskóla segir m.a.: „Æskilegt er að allir grunn- skólar komi sér upp forvarnaráætl- un sem m.a. felur í sér aðgerðir til að koma í veg fyrir agabrot ásamt vinnureglum um hvernig staðið skuli að málum ef skólareglur eru brotn- ar. Slíkar reglur geta falið í sér að skólar skilgreini í skólanámskrá hvernig skuli unnið gegn ofbeldi, þar með talið einelti. Áætlun um hvernig skuli brugðist við ef upp kemst um einelti í skólanum verður að vera til og öllum aðilum þarf að vera ljóst hver vinnur með slík mál innan skóla og hvernig. [...] Því er mikilvægt að settar séu ákveðnar reglur um sam- skipti og hegðun jafnt í skólanum sem utan hans.“ Björn segir að orðalag sé e.t.v. misjafnt í námskrá ólíkra landa en markmiðið sé hins vegar það sama; að nemendum líði vel í skólanum. „Það er mismunandi hvernig tekið er á þessu innan einstakra skóla, en þetta er þáttur sem þarf ekki síður að huga að í framhaldsskólum heldur en í grunnskólunum.“ Netþingi, unglingaþingi umboðs- manns barna, lauk á dögunum og í ályktunum þess er meðal annars hvatt til þess, að nemendur í fram- haldsskólum geti leitað til sérstaks ráðgjafa innan framhaldsskóla, t.d. þegar upp kemur ósætti milli kenn- ara og nemenda. Í setningarræðu málþings um einelti sagði Björn um ályktun Netþingsins: „Í rökstuðn- ingi hennar segir að leggi kennari nemanda í einelti vísvitandi eða ómeðvitað eða mismuni honum á ein- hvern hátt, þá geti nemandi leitað aðstoðar hjá þessum ráðgjafa. Geti ráðgjafinn unnið að lausn í málinu í samráði við nemanda og kennara. Ályktunin er í samræmi við það að innan skóla sé ljóst, hver taki á vanda vegna eineltis.“ Starfshópur sem skipaður var af samráðsnefnd grunnskóla vinnur nú að gerð tillagna um samræmda að- gerðaáætlun um hvernig bregðast skuli við ef og þegar einelti kemur upp í grunnskólum. Eineltisáætlanir í alla skóla samkvæmt námskrá HALDIÐ var upp á fjörutíu ára afmæli Sparisjóðs vélstjóra í lið- inni viku í Borgarleikhúsinu að viðstöddu fjölmenni. Afmælishá- tíðin var með nýju sniði, engar ræður voru haldnar en Örn Arn- arson rakti sögu Sparisjóðsins á milli skemmtiatriða. „Við ákváðum að hafa þetta með öðru og kannski dálítið óvenjulegu sniði í þetta sinn, það má eiginlega segja að þetta hafi verið eins konar kabarett. Og ég held afmælishátíðin hafi bara tekist mjög vel,“ segir Hall- grímur Jónsson sparisjóðsstjóri en hann kom fyrst til starfa hjá Sparisjóðnum árið 1962. Á hátíð- inni voru heiðraðir tveir starfs- menn, þær Oddný Óskarsdóttir, sem hóf störf 1969, og Valgerður Marínósdóttir sem hóf störf árið 1967. Þá voru stjórnarmennirnir Jón Júlíusson, sem hóf stjórn- arstörf árið 1963 og var formað- ur stjórnar frá 1964 og Jón Hjaltested, sem hóf störf sem stjórnarmaður árið 1965, heiðr- aðir. Þeir luku stjórnastörfum á aðalfundi sparisjóðsins á þessu ári. Hallgrímur segir að vélstjórar hafi verið fjölmennastir í stofn- fjárhópnum á sínum tíma en reyndar hafi menn úr öðrum sjó- mannastéttum komið að stofn- uninni. Eftir að hafa starfað frá upphafi í leiguhúsnæði, fyrst á Bárugötu 11 og síðan í Nóatúni 17 var starfsemin flutt árið 1977 í eigið húsnæði í Borgartúni 18 þar sem höfuðstöðvar hans eru nú en auk þess eru rekin útibú í Rofabæ 39 og Síðumúla 1. Nýtt hús við Hraunbæ Að sögn Hallgríms er nú unnið að byggingu nýs húsnæðis við Hraunbæ og er reiknað með að útibúið í Rofabæ flytji þangað næsta vor en við það batni öll að- staða til mikilla muna. Umsvif Sparisjóðs vélstjóra hafa aukist mikið og hann er nú þriðji stærsti sparisjóður landsins og starfs- menn 77 talsins. Hallgrímur segir að eiginfjárstaða sparisjóðsins sé nú mjög sterk og mikill vöxtur hafi verið í allri starfsemi hans síðustu ár. „Við höfum auðvitað lagt sérstaka áherslu á þjónustu við einstaklinga og fjölskyldurnar auk þjónustu við meðalstór og minni fyrirtæki. Það hefur verið gríðarleg aukning í viðskipta- mannahópnum hjá okkur og ég get nefnt að frá áramótum og fram í október hafa bæst við 2.200 nýir innlánsreikningar um- fram þá sem eyðilagðir hafa ver- ið. Það hefur verið góð stígandi hjá okkur og við erum bjartsýn á framtíðina.“ Sparisjóður vélstjóra fjörutíu ára Oddný Óskarsdóttir, Jón Júlíusson, Jón Hjaltested og Valgerður Marínósdóttir hafa samtals starfað fyrir Spari- sjóð vélstjóra í 144 ár. Á myndinni er einnig Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar sparisjóðsins. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing. Fyrirsögnin er höfundar: „Fátt er víst jafnhollt fyrir sálina og að gera játningu, helst fyrir presti, áður en það er orðið um sein- an. Ég játa hér með fyrir Sr. Val- geiri Ástráðssyni sem sæti á í fram- kvæmdastjórn Sólheima að það er rétt sem hann hélt fram í Morg- unblaðinu í gær (föstudag), ég var aldrei rétti maðurinn til að gegna stöðu framkvæmdastjóra á Sólheim- um. Sem framkvæmdastjóri þurfti ég að taka hollustu við yfirboðara mína fram yfir eigin réttlætiskennd. Ég játa að þegar réttlætiskennd mín er annars vegar get ég verið þversum og ósamvinnufús. Þannig lét ég það trufla rósemd sálarinnar þegar ekki átti að standa við samn- inga sem gerðir höfðu verið við starfsfólk. Ég gat alls ekki stillt mig um að benda yfirboðurum mínum á að ég efaðist um að fjárreiður og stjórnsýsla Sólheima væri með lög- mætum hætti. Ég játa að hafa farið gjörsamlega yfir strikið þegar ég lét í ljósi áhyggjur af fátækt hinna fötl- uðu íbúa. Og auðvitað kom það mér ekkert við þó að húsaleiga þeirra hækkaði um 6.000 kr. Það breytti hvort sem er engu fyrir íbúana því að húsaleigubætur til íbúa sambýla höfðu hækkað um sömu upphæð um sama leyti. Svona gæti ég haldið eitthvað áfram, en ég veit að mér verður fyr- irgefið þótt ég haldi því fyrir mig. Það er jú hugarfarið sem skiptir mestu máli. Eitt er það þó sem ég get huggað mig við og það er það að stjórn Sólheima varð lítið fyrir barðinu á mér þar sem hún fundar aðeins fjórum sinnum á ári. Það var því mest stjórnarformaðurinn, sem mér var tjáð að færi með umboð stjórnar á milli funda, sem þurfti að þola mig. Með von um fyrirgefningu, Björn Hermannsson, fyrrum framkvæmdastjóri Sólheima.“ Játning Seltjarnarnes Prófkjör Nes- listans í dag PRÓFKJÖR Neslistans í Seltjarn- arnesbæ fyrir komandi sveitar- stjórnarkosningar fer fram í dag og fer kjörið fram í Valhúsaskóla frá klukkan 11 til 18. Atkvæðagreiðsla utankjörstaða var í Valhúsaskóla sl. mánudag. Bæjarmálafélagið á Sel- tjarnarnesi býður Neslistann fram og rétt til að kjósa í prófkjörinu hafa allir sem orðnir verða 18 ára 25. maí 2002, eiga lögheimili á Seltjarnarnesi og fylgja stefnu Bæjarmálafélagsins. Þeir sem bjóða sig fram eru Sunn- eva Hafsteinsdóttir, sem gefur kost á sér í 1. sæti listans, Guðrún Helga Brynleifsdóttir og Þorvaldur Kol- beinn Árnason, gefa kost á sér í 1. eða 2. sæti á listanum, Nökkvi Gunn- arsson, gefur kost á sér í 3. sæti, Árni Einarsson og Stefán Bergmann, gefa kost á sér í 3. til 4. sæti, og Edda Kjartansdóttir og Kristján Einar Einarsson, sem gefa kost á sér í 3. til 5. sæti á listanum. Tímabundin bensín- lækkun ÓB ÓB BENSÍNSTÖÐVARNAR lækk- uðu verð á bensíni og díselolíu í gær og er eldsneytisverð á stöðvunum þá 5 krónum lægra en venjulegt verð á bensínstöðvum olíufélaganna. Kost- ar bensínlítrinn samkvæmt því 90,3 krónur og lítri af díselolíu 47,5 krón- ur. Er þetta gert tímabundið í tilefni af því að fimm ár eru liðin frá því fyrsta ÓB stöðin var opnuð við Fjarðarkaup í Hafnarfirði. Alls eru nú 10 ÓB-stöðvar á svæð- inu frá Borgarnesi til Njarðvíkur og er gert ráð fyrir fjölgun slíkra stöðva á næstunni. FORELDRAFÉLAG var stofnað við Fjölbrautaskólann í Garðabæ á þriðjudagskvöld að viðstöddum fjölda foreldra, annarra forráða- manna og nemenda. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem foreldrafélag er stofnað við framhaldsskóla hér á landi. Kristín S. Kvaran var kjörin formaður og segir hún aðdraganda stofnunar félagsins vera þann að frá því sjálfræðisaldurinn breyttist úr 16 í 18 ár, beri framhaldsskól- unum að hafa samstarf við foreldra. „Eftir að lögin voru sett kallaði Heimili og skóli til foreldra og for- ráðamenn alls staðar að af landinu,“ segir Kristín. „Frá því í vor hefur verið unnið að stofnun þessa for- eldrafélags og í haust setti ég mig í samband við nemendafélag skólans. Síðan þá var unnið að stofnuninni í samstarfi við það.“ Foreldrafélagið var stofnað í samstarfi skólastjórnenda, kenn- ara, foreldra og forráðamanna og nemendafélagsins sem tilnefndi tvo nemendur í stjórn þess. Auk þeirra sitja sjö úr hópi foreldra í stjórn. „Upphaflegu tillögurnar hljóðuðu ekki í þá átt að nemendur tækju þátt í foreldrafélaginu en þeir sýndu samstarfi strax mikinn áhuga og þess vegna kom ekkert annað til greina, enda einstakt að fá þá með.“ Í fréttatilkynningu segir að til- gangur félagsins sé að stuðla að auknum gæðum Fjölbrautaskólans í Garðabæ og bæta jafnframt almenn skilyrði og aðstæður einstakra nem- enda til menntunar og almenns þroska. „Okkar hlutverk er fyrst og fremst að styðja við skólastarfið,“ segir Kristín. „Það er gífurlega margt sem félag sem þetta getur gert til að stuðla að bættu starfi með því að vinna með nemendun- um. Með þeirri vinnu erum við jafn- framt að sinna forvarnastarfi.“ Bakhjarl skólans Markmiðum sínum hyggst félagið meðal annars ná með því að vera samráðs- og samstarfsvettvangur foreldra og nemenda, stuðla að auk- inni vitund foreldra um forsjár- skyldur sínar og ekki síst að vera bakhjarl skólans og efla og tryggja gott samstarf foreldra og starfs- fólks skólans og vera hagsmuna- hópur um bættan hag og stöðu skólans. Félagsmenn eru sjálfkrafa allir foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda skólans og félagið er jafn- framt opið öðrum velunnurum skól- ans. Stofna foreldrafélag við framhaldsskóla STÉTTARFÉLÖGIN á Húsavík hafa opnað töluver fyrir félagsmenn í fundarsal félaganna á Garðars- braut 26. Markmiðið er að auka enn frekar þjónustu við félagsmenn. Þeim gefst kostur á að koma á skrifstofu stétt- arfélaganna og fá aðgang að tölvu, prentara og internetinu. Þessi nýja þjónusta kemur sér vel fyrir þá sem ekki hafa aðgang að tölvum og er fé- lagsmönnum að kostnaðarlausu, segir í frétt frá félaginu. Skrifstofa stéttarfélaganna er op- in alla virka daga frá kl. 8 – 17. Einn- ig er hægt að komast í tölvuverið á kvöldin og um helgar, allt eftir sam- komulagi. Með þessu framtaki vilja stéttar- félögin á Húsavík leggja sitt af mörkum til að efla tölvulæsi fé- lagsmanna. Félögin munu standa fyrir tölvunámskeiði í vetur. Stéttar- félögin á Húsavík opna tölvuver ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.