Morgunblaðið - 17.11.2001, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.11.2001, Qupperneq 16
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tillögur að nýju aðalskipulagi Grindavíkur til næstu tuttugu ára eru þessa dagana á borði Einars Njálssonar bæjarstjóra. NÝ íbúðahverfi verða byggð norðan núverandi byggðar í Grindavík, austan Grindavíkurvegar. Kemur það fram í drögum að nýju aðal- skipulagi til næstu 20 ára sem verið er að vinna að. Í því er einnig gert ráð fyrir nýjum 400 metra viðlegu- kanti fyrir stór fiskiskip í Grindavík- urhöfn og nýju athafnasvæði við höfnina. Unnið hefur verið að nýju aðal- skipulagi fyrir Grindavík. Valdís Bjarnadóttir og Gunnar Ingi Ragn- arsson á Vinnustofunni Þverá hafa unnið að verkinu. Drög að tillögum þeirra hafa verið kynntar bæjarbú- um, til að gefa þeim kost á að koma að skipulaginu á vinnslustigi. Áform- að er að tillaga að nýju aðalskipulagi verði afgreidd í skipulagsnefnd í byrjun desember og staðfest í bæj- arstjórn síðar í þeim mánuði. Núgildandi aðalskipulag Grinda- víkur gildir frá 1983 til 2003 og renn- ur það því út eftir tiltölulega stuttan tíma. Segir Einar Njálsson bæjar- stjóri að auk þess hafi það rekið á eftir vinnu við gerð skipulagsins að bærinn væri að verða uppiskroppa með skipulagt byggingarland. 3.000 íbúar eftir 20 ár Í tillögunni er reynt að meta það hversu mikið land þurfi fyrir þróun byggðarinnar næstu tvo áratugina. Nú eru íbúar Grindavíkur liðlega 2.300. Gert er ráð fyrir hóflegri fólksfjölgun á skipulagstímabilinu, þannig að íbúar verði 2.700–3.000 eftir tuttugu ár. Er það mun minni fjölgun en verið hefur í plássinu síð- ustu árin. Auk þess að skipuleggja bygging- arland til að taka við þessari fjölgun þarf að gera ráð fyrir að núverandi íbúðir verði minna nýttar en nú er. Einar vekur athygli á því að nú eru um það bil 3,5 manneskjur um hverja íbúð í Grindavík. Það sé heil- um manni meira en að meðaltali í öðrum sveitarfélögum. Stafi það meðal annars af lágum meðalaldri íbúa í Grindavík og mörgum barna- fjölskyldum. Segir hann að reikna þurfi með því að þróunin í Grindavík verði svipuð og annars staðar, þann- ig að það verði um það bil 2,5 mann- eskjur um hverja íbúð að jafnaði, og það hefði í för með sér að byggja þyrfti 200 íbúðir þótt íbúunum fjölg- aði ekki neitt. Á næstu árum er ætlunin að full- byggja Vallahverfið sem liggur upp með Grindavíkurvegi að vestan- verðu. Einnig er gert ráð fyrir að hægt verði að úthluta nokkrum lóð- um á svæði við Dalbraut. Þá er í að- alskipulagstillögunum gert ráð fyrir að í nýju deiliskipulagi gamla bæj- arins verði opnað fyrir þéttingu byggðar. Segir Einar stefnt að því að fólk geti byggt þar ný hús í göml- um stíl, auk þeirra húsa sem verða endurnýjuð. Nýtt byggingarsvæði verður hins vegar norðan við núverandi byggð, austan Grindavíkurvegar. Fyrst verður byggt hverfið sem er næst veginum, norðan við nýja leikskól- ann og íþróttasvæðið. Byggingar- svæðið þróast síðan austur fyrir nú- verandi byggð og verður svæðið í nágrenni dvalarheimilisins Víðihlíð- ar síðast byggt, samkvæmt aðal- skipulagstillögunum. Gert er ráð fyrir að nýr grunn- skóli verði á reit norðan íþrótta- svæðisins. Þá verði þriðji leikskóli bæjarins reistur í nágrenni Víðihlíð- ar. Nýr 400 metra hafnargarður Gert er ráð fyrir því að nýr Suður- strandarvegur tengist Grindavíkur- vegi norðan við fyrirhugaða íbúða- byggð, en verði ekki lagður í gegn um bæinn eins og núverandi vegur úr Krísuvík. Segir Einar bæjarstjóri að umferðin verði væntanlega þung á nýjum Suðurstrandarvegi og þurfi hann því að vera utan byggðarinnar í framtíðinni. Einnig er miðað við að aðkoma að höfninni færist út úr nú- verandi byggð. Í aðalskipulagstillögunum koma fram hugmyndir að breytingum á Grindavíkurhöfn. Gert er ráð fyrir að nýr viðlegukantur fyrir stór fiski- skip, allt að 400 metra langur, geti risið í sunnanverðri höfninni. Í stað- inn færist smábátahöfnin frá Eyja- bakka og verði í framtíðinni út af Hópi. Upp af nýja viðlegukantinum á að rísa nýtt og rúmgott athafnasvæði. Jafnframt verður hafnarsvæðið skil- greint upp á nýtt og greint á milli hafnarsvæðis og almenns iðnaðar- svæðis. Búgarðahverfi í Þórkötlustaðahverfi Auk þeirra atvinnulóða sem verða til sunnan við höfnina er enn eftir að úthluta nokkrum lóðum upp af Eyja- bakka. Þá er í aðalskipulaginu gert ráð fyrir lóðum fyrir orkufrekan iðn- að töluvert norðan við byggðina, á svæði sunnan Hagafells. Þangað á að vera hægt að flytja orku frá Svartsengi á hagkvæman hátt, með- al annars gufu. Einar vekur athygli á þeirri hug- mynd í aðalskipulagstillögunum að skipuleggja stórar byggingarlóðir í Þórkötlustaðahverfi, austan Grinda- víkur. Notar hann orðið búgarða- hverfi um það. Hugmyndin er að gefa hestamönnum og jafnvel einnig fjáreigendum kost á að byggja hest- hús og önnur útihús á lóðum sínum og halda þar húsdýr. Í Þórkötlu- staðahverfinu er gömul og dreifð byggð, þar eru meðal annars nokkr- ir fjáreigendur. Nú eru fjárhús í og við þorpið og er hugmyndin að þau muni í framtíðinni flytjast út fyrir meginbyggðina. Einar Njálsson segist vera ánægður með skipulagstillögurnar. Hann telur að þær styðji mjög vel þá framtíðarsýn bæjarstjórnarinnar að Grindavík verði fjölskylduvænn bær, sem byggi á sjávarútvegi, þjón- ustu við ferðamenn og möguleikum sem jarðhitinn skapar. „Markmiðið er að Grindavík verði eftirsóknar- verður bær til búsetu, bæði hvað snertir atvinnumöguleika, menntun og þjónustu,“ segir bæjarstjórinn. Kynntar hafa verið tillögur að nýju aðalskipulagi fyrir Grindavíkurbæ Íbúðabyggðin þró- ist norður og aust- ur með þorpinu Grindavík SUÐURNES 16 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÚTSVAR Grindvíkinga verður óbreytt á næsta ári, þrátt fyrir heimild til hækkunar. Fasteigna- gjöld verða hins vegar lækkuð vegna hækkunar fasteignamats. Bæjarstjórn Grindavíkur sam- þykkti á fundi sínum í fyrrakvöld álagningarreglur fasteignagjalda og útsvars fyrir næsta ár, vegna vinnu við fjárhagsáætlun sem nú stendur yfir. Reglurnar voru samþykktar samhljóða. Samþykkt var samhljóða að hafa útsvarið áfram 12,7%. Grindavíkurbær nýtti á þessu ári að fullu heimild til álagningar út- svars. Nú hefur sveitarfélögun- um verið heimilað að hækka út- svarið um 0,33%, upp í 13,03%, en Grindavíkurbær mun ekki nýta sér þá heimild að þessu sinni. Ómar Jónsson, forseti bæjar- stjórnar, segir að staða bæjar- sjóðs sé sterk þrátt fyrir veru- legar framkvæmdir. Nýtt hafi verið heimild til hækkunr útsvars á síðasta ári og hann segist meta stöðuna svo að fólki þyki nóg um allar þær hækkanir sem séu að ganga yfir. Mikilvægt sé að ein- hver reyni að spyrna við fótum. Einar Njálsson bæjarstjóri segir að þótt staða bæjarsjóðs sé rúm um þessar mundir, meðal annars vegna óvæntra tekna frá Hitaveitu Suðurnesja, þurfi Grindavíkurbær væntanlega að nýta heimild til hækkunar út- svars síðar. Lækka fasteignagjöld Fasteignamat húseigna í Grindavík hækkar á þessu ári um 5% vegna breyttrar uppbygging- ar matsins og fasteignamat lóða hækkar um nálægt 50%. Einar segir að ákveðið hafi verið að lækka álagningarprósentur fast- eignagjalds til að koma til móts við fólk vegna þessarar hækk- unar en tekur fram að hún sé ekki að fullu bætt. Skattur á íbúðarhúsnæði verð- ur 0,376% af fasteignamati, í stað 0,4%. Skattur á atvinnuhúsnæði og annað húsnæði fer í 1,49% í stað 1,57%. Álagningarprósenta holræsagjalds og vatnsgjalds verður óbreytt. Lóðarleiga Grindavíkurbæjar verður hins vegar lækkuð úr 1,8% í 1,4%. Útsvarið verð- ur ekki hækkað Grindavík LEIKSKÓLAR Reykjanesbæjar, sjö talsins, héldu Dag íslenskrar tungu hátíðlegan í gær með skemmtun í Frumleikhúsinu. Þar komu saman elstu börnin af hverjum leikskóla og tróðu upp, hver skóli með sitt atriði, og í lokin fóru öll leikskólabörnin upp á svið og tóku lagið saman. Ingibjörg Hilmarsdóttir, leik- skólastjóri á Heiðarseli, sagði þetta hafa verið gert í fyrsta sinn á síðasta ári og gengið svo vel að ákveðið var að hafa sams konar hátíð í ár. „Öllum foreldrum er velkomið að koma og fylgjast með ásamt öðrum sem vilja koma, en börnin hafa verið að undirbúa sig síðustu 10-14 daga,“ sagði Ingibjörg og bætti við: „Það eru einungis börn fædd 1996 sem taka þátt í skemmtuninni, en yngri börnin halda daginn hátíð- legan í hverjum leikskóla fyrir sig með söng og ýmsum uppá- komum.“ Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir Elstu börnin í leikskólunum komu fram á skemmtun í Frumleikhúsinu. Sungið og leikið á Degi íslenskrar tungu Reykjanesbær HALLGRÍMUR Bogason, formaður bæjarráðs Grindavíkur, hefur verið kosinn formaður Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum. Nýkjörin stjórn SSS skipti með sér verkum á fundi í fyrradag. Stjórnin er óbreytt frá síðasta ári. Samkvæmt hefð gengur formanns- embættið á milli stjórnarmanna, nú var röðin komin að Grindvíkingum. Fráfarandi formaður, Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, var kjörinn vara- formaður og Óskar Gunnarsson, for- seti bæjarstjórnar Sandgerðis, rit- ari. Með þeim í stjórn eru Sigurður Jónsson sveitarstjóri í Garði og Þóra Bragadóttir oddviti í Vogum. Nýr for- maður SSS Suðurnes ATVINNULEYSI jókst mjög á Suð- urnesjum í október, miðað við sept- ember. Atvinnuleysi meðal kvenna er 1,7% og 0,5% meðal karla. Með- altalið er 1% sem er undir landsmeð- altali en það er 1,2%. Í yfirliti sem Vinnumálastofnun sendi frá sér í gær kom fram að með- alfjöldi atvinnulausra á Suðurnesj- um var í október 77 eða um 1% af áætluðum mannafla á Suðurnesjum en var 0,6% í september sl. Atvinnu- leysi á Suðurnesjum hefur aukist um 71,1% milli mánaða en atvinnulaus- um á svæðinu hefur fjölgað um 32 frá því í september sl. Atvinnuleysi er hins vegar 126% meira miðað við sama tíma í fyrra en atvinnuleysi þá var aðeins 0,4%. Atvinnuleysi kvenna mælist nú 1,7% en var 1,0% í september sl. At- vinnuleysi karla mælist nú 0,5% en var 0,3% í september sl. Atvinnu- lausum konum hefur fjölgað um 22 frá síðasta mánuði og atvinnulausum körlum um 10. Í mánuðinum fjölgaði um 38 á at- vinnuleysisskrá á Suðurnesjum. Voru þá 76 skráðir án atvinnu í Reykjanesbæ, þar sem flestir eru. Atvinnu- leysi komið í 1% Reykjanes ÞAKJÁRN fauk af húsi við Uppsala- veg í Sandgerði í gærmorgun. Björg- unarsveitin Sigurvon var kölluð út til að hemja plöturnar. Verið var að skipta um þakjárn á húsinu. Ekki var unnið við það í gær en nýja járnið fór að fjúka af í rokinu. Fólki var talin stafa hætta af fljúg- andi þakjárni og voru félagar í björg- unarsveitinni Sigurvon því kallaðir út klukkan rúmlega tíu í gærmorg- un. Negldu þeir niður lausar járnplöt- ur og höfðu upp á þeim lausu. Þakjárn á flugi um bæinn Sandgerði ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.