Morgunblaðið - 17.11.2001, Side 22

Morgunblaðið - 17.11.2001, Side 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 22 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLANDSSÍMI tapaði 777 milljón- um króna á fyrstu níu mánuðum árs- ins. Tapið allt síðasta ár nam 492,5 milljónum króna. Í fréttatilkynningu frá Íslandssíma kemur fram að tapið er í takt við endurskoðaðar áætlanir félagsins en í þeim er gert ráð fyrir rekstrarbata á síðasta ársfjórðungi. Rekstrartekjur Íslandssímasam- stæðunnar námu 1.019 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins en rekstrargjöld námu 1.389 milljónum. Tap fyrir afskriftir nam 370 milljón- um og afskriftir námu 333 milljónum. Tap fyrir fjármagnsliði var 703 millj- ónir og fjármagnsgjöld 193 milljónir. Tap af reglulegri starfsemi fyrir skatta nam því 937 milljónum og skattar að upphæð tæpar 160 millj- ónir voru tekjufærðir. Eignir Íslandssíma 30. september sl. voru 5.243,4 milljónir en voru í lok síðasta árs 3.917,8 milljónir. Eigið fé í lok september sl. nam tveimur millj- örðum og var eiginfjárhlutfall 38,7% miðað við 26,8% í lok síðasta árs. Framundan er forgangsréttarút- boð hjá Íslandssíma. Aukið hlutafé verður m.a. notað til að greiða niður skammtímaskuldir, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Að undan- förnu hefur einnig verið unnið að langtímafjármögnun vegna stækkun- ar á símstöð, sem fjármögnuð var til bráðabirgða með skammtímaláni. Þá stendur yfir endurfjármögnun skammtímalána að upphæð 250 millj- ónir króna. Samanlagt munu þessar aðgerðir bæta veltufjárhlutfall félags- ins til muna þannig að það nái fyrri stöðu,“ segir í tilkynningunni. Áhrif ráðstafana sem gripið var til eftir birtingu hálfsársuppgjörs til að lækka viðskiptakröfur félagsins eru enn ekki komin fram en viðskipta- kröfur samstæðunnar námu 463 millj- ónum króna í lok september sl. Íslandssími býst við að samlegðar- áhrif vegna sameiningar við fjar- skiptafélagið Títan muni skila sér að fullu síðustu þrjá mánuði ársins. Tap vegna dótturfélaga vegur þungt í niðurstöðu rekstrarreiknings móðurfélagsins fyrstu níu mánuði ársins eða sem nemur 381 milljón króna, eins og segir í tilkynningunni. „Stór hluti þessa taps er tilkominn vegna reksturs Íslandssíma GSM sem á sér stutta rekstrarsögu.“ Rekstur Íslandssíma GSM hefur nú verið sameinaður rekstri móður- félagsins. Íslandssími tapar 777 milljónum Í takt við endurskoðaðar áætlanir Morgunblaðið/Jim Smart SAMKVÆMT óendurskoðuðu uppgjöri er Aco- Tæknival hf. gert upp með 861 millj- ónar króna tapi á fyrstu níu mánuðum ársins 2001. Að því er fram kemur í til- kynningu frá félag- inu nemur rekstrar- tap félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld 675 milljónum króna. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 315 milljónir króna. Á fyrri árshelmingi ársins 2001 var fyrirtækið gert upp með 664 milljóna króna tapi sem þýðir að þriðji árs- fjórðungur skilaði 197 milljóna króna tapi. Það er hlutfallslega minna tap en fyrsti og annar ársfjórðungar skiluðu þrátt fyrir að þessi ársfjórðungur sé yfirleitt sá lakasti, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins. Framlegð undir væntingum Rekstrartekjur AcoTæknivals á fyrstu níu mánuðum ársins nema 3.715 milljónum króna og samanlögð velta fyrirtækjanna í lok síðasta árs var 5.863 milljónir króna. Á þriðja ársfjórðungi voru rekstrartekjur fé- lagsins 4% undir áætlun, en framlegð reyndist 24% undir áætlun, sem skýr- ist að mestum hluta af lagerútsölum þar sem vörur voru seldar undir kostnaðarverði. Samkomulag um endurfjármögnun félagsins í samráði við viðskiptabanka þess var undirritað í september og er þegar tryggt viðbót- arhlutafé að mark- aðsvirði 550 milljón- ir króna. Samkomu- lag þetta var samþykkt á hluthafafundi 10. október sl. og mun allt hlutafé vera greitt til félagsins í lok nóvember, og verður þá eigið fé jákvætt um 248 milljónir króna. Að auki var samið um skuldbreytingu skammtímaskulda í langtímaskuldir og lækka skammtímaskuldir um 860 milljónir króna. Í tilkynningu félagsins segir að áfram sé unnið að endurskipulagn- ingu efnahags AcoTæknivals. Mikil áhersla hafi verið lögð á að ná niður birgðum og skammtímakröfum fé- lagsins en þær hafa lækkað um 1.031 milljón króna frá áramótum, og nem- ur birgðastaða AcoTæknivals nú 465 milljónum króna. Töluverður sam- dráttur hafi orðið í tölvu- og raftækja- sölu, en framlegðarstig vörusölu hafi aukist og sé komið í viðunandi horf. Gert er ráð fyrir jákvæðum rekstri á síðasta ársfjórðungi en ekki er búist við fullum árangri af hagræðingu fyrr en á næsta ári. Verulegt tap hjá Aco-Tæknivali hf. Morgunblaðið/Kristinn ATVINNULAUSUM á Íslandi hefur fjölgað í heild að meðaltali um 16,1% á milli september og október og um 37,1% miðað við október í fyrra. Árs- tíðasveiflan milli september og októ- ber nú er því mun meiri en meðaltals- sveiflan undanfarin tíu ár sem hefur verið 6,3%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirliti Vinnumálastofn- unar yfir atvinnuástand í október sl. Vinnumálastofnun segir um vís- bendingar um atvinnuástandið í nóv- ember: „Atvinnuástandið versnar iðulega í nóvember miðað við októ- ber, þó árstíðasveiflan hafi minnkað síðustu ár.“ Og síðar: „Í samræmi við þróun undanfarinna ára má gera ráð fyrir að eftirspurn eftir vinnuafli minnki í nóvember og að atvinnuleysi aukist að sama skapi. Þá má gera ráð fyrir að atvinnuleysi aukist hlutfalls- lega meira en undanfarin ár í ljósi þess samdráttar sem er að verða í ís- lensku efnahagslífi. Því má gera ráð fyrir að atvinnuleysi í nóvember auk- ist miðað við októbermánuð og verði á bilinu 1,3% til 1,7%.“ Atvinnuleysisdagar í október jafn- gilda því að 1.765 manns hafi að með- altali verið á atvinnuleysisskrá í mán- uðinum. Þar af eru 738 karlar og 1.027 konur. Þessar tölur jafngilda 1,2% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði samkvæmt spá Þjóðhags- stofnunar eða 0,9% hjá körlum og 1,7% hjá konum. Það eru að meðaltali 245 fleiri atvinnulausir en í síðasta mánuði, þegar atvinnuleysi mældist 1,1%, en um 478 fleiri en í október í fyrra þegar atvinnuleysi var 0,9% af mannafla. Atvinnuleysi karla eykst meira en kvenna Atvinnuástandið versnar alls stað- ar nema á Norðurlandi vestra og Austurlandi þar sem það er svipað. Atvinnuleysi er nú hlutfallslega mest á Norðurlandi eystra og á höfuðborg- arsvæðinu. Atvinnuleysið er nú meira en í október í fyrra á öllum svæðum nema á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Atvinnuleysi kvenna eykst um 10,7% milli mánaða en atvinnuleysi karla eykst um 24,7% milli mánaða. Þannig fjölgar atvinnulausum konum að meðaltali um 99 á landinu öllu en atvinnulausum körlum fjölgar um 146. Atvinnuleysi mun áfram aukast Veruleg umskipti hjá SÍF SÍF-samstæðan skilaði 286 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins en tap á sama tíma í fyrra var 886 milljónir króna sem er breyting upp á 1.172 milljónir króna. Hagnaður SÍF fyrir afskriftir og fjár- magnsliði (EBIDTA) nam 1.181 millj- ón króna sem er hækkun um 1.042 milljónir króna frá sama tímabili árið 2000. Þá skilaði rekstur samstæðunn- ar jákvæðu veltufé frá rekstri að upp- hæð 557 milljónir króna en það var neikvætt um 283 milljónir fyrir sama tímabil árið á undan. Þannig hefur veltufé frá rekstri aukist um 840 millj- ónir króna frá sama tímabili árið 2000. Í tilkynningu frá SÍF kemur fram að eins og greint var frá í tengslum við sex mánaða árshlutauppgjör SÍF hf. hefur breyting verið gerð á reikn- ingsskilum þannig að gengismunur á erlendum lánum sem tekin voru til fjármögnunar á kaupum á dóttur- félögum erlendis, er færður yfir eigið fé til mótvægis við gengisumreikning af rekstri og eignum dótturfélaganna. Áhrif þessara breytinga á afkomu fé- lagsins eru jákvæð um 174 milljónir króna. Þá hefur áður gjaldfærð tekju- skattsskuldbinding nú verið leyst upp að hluta vegna fyrirhugaðra skatta- lagabreytinga, en áhrif hennar á rekstrarniðurstöðu fyrstu níu mán- aða ársins er jákvæð um 85 milljónir. Rekstur SÍF er almennt í góðu samræmi við áætlanir félagsins á þriðja ársfjórðungi en umfang og hagnaður samstæðunnar er þó mest- ur á fjórða ársfjórðungi, sem skýrist af mikilli sölu og neyslu laxa-, síldar- og saltfiskafurða á þessum tíma. Því gera áætlanir félagsins ráð fyrir auknum hagnaði á komandi mánuð- um. EFTIRLITSMENN á vegum Fiski- stofu hafa verið um borð í Bjarma BA og Báru ÍS frá því síðastliðinn miðvikudag, að sögn Árna Múla Jón- assonar, aðstoðarfiskistofustjóra. Skipstjórar þessara skipa hafa geng- ist við brottkasti á fiski sem sýnt var í mynd með umtalaðri sjónvarpsfrétt í síðustu viku. Árni Múli segir að eftirlitsmenn- irnir verði áfram um borð í þessum skipum meðan þau stundi veiðar. Kostnaður 20 þúsund á dag Samkvæmt breytingum á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar, frá því í desember á síðasta ári, skal Fiskistofa setja veiðeftirlitsmann um borð í skip til að fylgjast sér- staklega með veiðum þess, ef stofan telur að afli viðkomandi skips sé að stærðarsamsetningu, aflasamsetn- ingu eða gæðum frábrugðinn afla annarra skipa sem stunda sambæri- legar veiðar. Í lögunum segir einnig að hafi veiðieftirlitsmaður í þessu skyni verið um borð í veiðiskipi sjö daga eða sjö veiðiferðir samtals á sama fiskveiðiári skuli Fiskistofa ákveða hvort ástæða sé til að fylgjast með veiðum skipsins áfram. Útgerð skipsins skal greiða allan kostnað, þar með talinn launakostnað, af veru eftirlitsmannsins um borð frá og með áttunda degi. Árni Múli segir að kostnaður við- komandi útgerða sé um 20 þúsund krónur á dag. Viðkomandi útgerðir byrji þó ekki að greiða kostnaðinn fyrr en frá og með áttunda degi. Bjarmi BA og Bára ÍS Eftirlit um borð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.